Dagblaðið - 05.01.1976, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 05.01.1976, Blaðsíða 12
: - ■ 12 Dagblaðiö. Mánudagur 5. janúar 1976. (I íþróttir Eþrottir Iþrottir Iþróttir Iþról íþróttir Enn topor Göppingen Við hjá Göppingen lékum í Leutershausen og töpuðum með sex marka mun, 25—1S fyrir heimaliðið, sagði Gunnar Einars- son, þegar Dagblaðið ræddi við hann i gær. Ég var heldur öheppinn i byrjun — átti tvö stangarskot og tvisvar var varið frá mér, og eftir það náði ég me'r ekki beint á strik í leiknum. Leikurinn var ekki góður hjá liðinu. Staðan breyttist ekki. Göppingen er enn 3ja að neðan með 6 stig af 16 mögulegum. Liðin, sem eru fyrir neðan, Berlinarliðið Fusche og Neuhausen, töpuðu bæði. Fyrir Dietzenbach og Hint- heim. Gunnar skoraði þrjú mörk í leiknum — eitt vitakast — og hefur skorað 42 mörk i leikjunum átta. Rúmlega fimm mörk f leik og er hann meðal markahæstu manna í þýzku Bundesligunni, þrátt fyrir slakan árangur Göppingen. Derby fékk Liverpool Á laugardag var dregið í 4. um- ferð enska bikarsins og þar verður stórleikurinn milli Derby og Liver- pool. Leikiö verður laugardaginn 24. janúar. Niðurstaðan varð ann- ars þessi. Sunderland—Hull eða Plymouth Bradford—Swindon eða Tooting Huddersfield—Brentford eða Bolton Derby — Liverpool York City — Chelsea Coventry—QPR eða Newcastle Charlton — Portsmouth eða Birmingham Tottenham eða Stoke—Manch. City Leeds — Crystal Palace Southend — Cardiff WBA — Lincoln City Ipswich — Wolves Leicester—Middlesbro eða Bury Norwich eða Rochdale—Luton Manch. Utd.—Nottm. Forest eða Peterbro Southampt. eða Aston Villa—Blackpool. Gummersbach fékk skell! Evrópumeistarar Gummersbach fengu skell i fyrri leik sinum i 2. uniferð Evrópukeppni meistara- liða i Póllandi á laugardag. Töpuðu þá fyrir pólska meistaraliðinu Slask Wroclaw með sjö marka mun i Wroclaw, 22-15, eftir að staðan var 12-6 fyrir Pólverja i hálfleik. Það veröur erfitt fyrir Gummersbach að vinna muninn upp á heimavelli — en annað eins hefur þó skeð hjá þvi liði i Þýzkaiandi. Jerzy Klempcl var markhæstur hjá Pólverjum með 10 mörk, Antczek skoraði fjögur, Faleta og Piekarek þrjú hvor, Kocjan og Sokolwski eitt hvor. Jochen Deckarm skoraði 8 mörk fyrir Gummersbach, Klaus West- ebbe þrjú, Hansi Schmidt tvö, Reiner Brand og Joachim Henkels eitt hvor. Harkan varð aðalvopn jötna Sovétríkjanna! — þegar sovézka landsliðið sigraði það íslenzka í síðari landsleiknum í gœrkvöld með fjögurra marka mun 19—15 Ég er ánægður með leikina við Sovétrikin. Þeir hafa verið mikil upplyfting fyrir Islenzkan hand- knattleik. Hins vegar kom fram i siðari leiknum, að okkur vantar meiri breidd. Siðustu 10 min. var talsvert um rangar sendingar, þegar leikmenn okkar voru orðnir örþreyttir. Við verðum að keyra of mikiö á sömu leikmönnunum og æfingin er ekki nægileg til að leika tvo jafn erfiða lciki dag eftir dag, sagði Ólafur H. Jónsson, fyr- irliði islcnzka landsliðsins, eftir siðari leik islands og Sovétrikj- anna i Laugardalshöll í gærkvöld. W p * Sovétrikin sigruðu þá með fjög- urra marka mun, 19-15, en það var ekki fyrr en lokakafla leiks- ins, sem sovézkir tryggðu sér sig- urinn. Skiljanlegt að þreytu gætti hjá islenzka liðinu i lokin. Leikmenn eins og Ólafur H. Jónsson, Páll Björgvinsson, Stefán Gunnarsson mega ekki vikja af velli á sama tima og sovézkir gátu skipt inn á eins og þeim þóknaðist. Þreyta lykilmanna varð tslandi að falli — leikmanna, sem við gátum ekki verið án. En hvað verður, þegar við náum öllum okkar beztu mönnum saman i landslið — get- um skipt um leikmenn án þess að veikja liðið að ráði? Margir sterk ir leikmenn voru fjarri góðu gamni að þessu sinni. — Leik- menn eins og Björgvin Björgvins- son, Geir Hallsteinsson, Gunnar Einarsson, Einar Magnússon, Axel Axelsson — Jón Hjaltalin Magnússon fyrir leikinn, Bjarni Jónsson þann siðari. Næstum heilt lið sterkra leikmanna — og samt stóðu leikmenn okkar, sem voru i eldlinunni, sig eins og hetj- ur gegn þessu sterka, sovézka landsliði — liði, sem sigrað hefur beztu lið heims undanfarnar vik- ur og mánuði — lið eins og heims- meistara Rúmena, Olympiu- meistara Júgóslava svo eitthvað sé nefnt. Leikurinn i gærkvöld var ekki i sama gæðaflokki og fyrri lands- leikurinn — of mikið um villur og það hjá báðum liðum. En lengi framan af voru Sovétmenn oft ráðvilltir gegn sterkum leik ts- lands. Ólafur H. skoraði fyrsta markið eftir tæpar 3 min. og þá höfðu tvö hraðaupphlaup sovézkra mistekizt. Þeir jöfnuðu þó og komust i 2-1, en Árni Indriðason jafnaði — og svo skor- uðu Ólafur Einarsson og Stefán og staðan var 4-2 fyrir tsland eftir lOmin. Óli Ben. gerði sér litið fyr- ir og varði snilldarlega viti frá Maximow, frægasta leikmanni sovézkra, sem gat ekki leikið i fyrri leiknum vegna veikinda. Páll Björgvinsson tók Maximow úr umferð og gerði það svo vel, að Maximow skoraði aðeins eitt Nýliðinn i islenzka landsliðinu, Steindór Gunnarsson, Val, skorar fyrsta mark sitt i landsleik — ni- unda mark isiands i fyrri leikn- um. DB-mynd Bjarnleifur. Rangers hefur nóð Cehíc að stigum — og Celtic fœr erfiðan leik í skozku bikarkeppninni Celtic heldur efsta sætinu I aöaldeildinni skozku eftir leikina á laugardag, þó liðið næði ekki nema jafntefli gegn Dundee á heimavelli 3-3. Liðið hefur 26 stig — en hefur misst þriggja stiga forskot, sem það hafði. Rangers hefur náð Celtic að stigum, en er með lakari markatölu. Celtie virstist stefna i öruggan sigur gegn Dundee á laugardag. Kömst I byrjun siðari hálfleiks i 3-1. Dixie Deans og Kenny Dal- glish skoruðu, Dalglish tvivegis. Mark Dundee var sjálfsmark bakvarðarins Andy Lynch. En lokakafla leiksins tókst Dundee tvivegis að skora — Hoggan og Mclntosh. Úrslit urðu annars þessi. Aberdeen — Motherwell 0-0 Ayr — St. Johnstone 2-0 Celtic —Dundee 3-3 DundeeUtd, —Hibernian frestað Hearts — Rangers 1-2 Rangers sigraði Hearts i Edin- borg. Henderson skoraði bæði mörk Ragners i siðari hálfleik. Staðan er nú þannig: Celtic 20 11 4 5 40-25 26 Rangers Motherwell Hibernian Hearts Aberdeen Dundee Ayr Dundee Utd. St. Johnst. 20 11 20 9 19 20 20 20 20 19 20 5 32-19 26 4 35-26 25 4 31-23 24 6 23-25 21 7 27-26 20 8 32-39 18 9 26-33 18 9 21-27 14 16 20-44 6 Dregið var i 3ju umferð skozku bikarkeppninnar. Celtic fær erfiðan leik — Motherwell á úti- velli. Rangers fékk heimaleik gegn EastFife. Nánar á morgun. mark og það úr hraðaupphlaupi meðan Páll var inn á — auk þess tvivegis úr vitaköstum. Hins veg- ar skoraði hann tvö mörk smá- tima, sem Páll var hvildur i fyrri hálfleik. Jón Hjaltalin Magnússon, gamli Vikingsleikmaðurinn, sem nú leikur i Sviþjóð, gerði mikinn usla hjá sovézkum — betri leik- maður en nokkru sinni fyrr, 27 ára. Eftir 15. min. var jafnt 4-4, en þá skoraði Jón Hjatlalin og átti siðan snilldarsendingu á Pál, sem brunaði upp og skoraði 6-4. Þá urðu mistök I innáskiptingum — Ólafur H. Jón Hjaltalin og Páll skipt út af á sama tima. Leikur is- lenzka liðsins datt alveg niður — sovézkir jöfnuðu i 6-6. Jón Hjalta- lin kom aftur inn á og jafnaði — en á 27. min. var staðan 8-7 fyrir Sovét. Jón Hjaltalin og Ólafur H. — hreint frábært mark —skoruðu tvö siðustu mörk hálfleiksins. ís- land hafði þvi yfir i hálfleik 9-8. í siðari hálfleiknum tóku sovézkir Jón Hjaltalin úr umferð — og neyttu mjög likamsburða sinna i hálfleiknum. Léku af kröftum — oft mjög gróflega og komust að mestu upp með það. Leikurinn varð slagsmál á köfl- um — og þar höfðu sovézku jötn- arnir, stærstu og sterkustu leik- menn, sem hér hafa sézt á fjölum Laugardalshallarinnar, betur. Þeir jöfnuðu strax — Ólafur Ein- arsson kom Islandi i 10-9, en það var i siðasta skipti, sem Island hafði yfir. Sovézkir komust i 13-10 eftir 11 min. Ólafur H. og Páll minnkuðu muninn i 13-12 og spenna var um miðbik hálfleiks- ins. Ahorfendur með á nótunum — en likaði illa tafir og framkoma sovézkra. Þeir höfðu eitt til tvö mörk yfir og svo kom vendipunktur. Páll komst frir upp i hraðaupphlaupi, en varið var frá honum — Island náði knettinum aftur, Stefáni mistókst sending og sovézkir skoruðu 16-13. Niu min. eftir. Staðan töpuð. Sovézkir komust 5 mörkum yfir — Jón Karlsson skoraði siðasta mark leiksins úr vitakasti, 19-15. Tveimur sovézk- um leikmönnum var visað af leik- velli i leiknum — einum islenzk- um Árna Indriðasyni. Eins og áður voru Ólafarnir — Benediktsson og Jónsson beztu menn tslands. Ólafur Ben. varði glæsilega allan leikinn. Jón Hjaltalin var mikill styrkur fyrir liðið — Stefán, Páll, Jón Karlsson sterkir, Arni Indriðason mjög vaxandi leikmaður, Ólafur Ein- arsson ógnandi, en skotnýting slæm, og hann var ekki einn i þeirrisök — Steindór bráðefnileg- ur. Dönsku dómararnir hefðu mátt taka harðar á brotum i þess- um leik —eniheildvardómgæzla þeirra prýðileg. Maximow var markhæstur sovézkra með 5 mörk ( 2 viti), Iljin skoraði 4 og Klimov 3. Aðrir færri. Ólafur H. og Jón Hjaltalin skoruðu 3 mörk hvor fyrir Island, Arni, Páll.ólafur Ein. og Jón Karlsson (eitt viti) 2 hver, Stefán eitt. —hsim.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.