Dagblaðið - 05.01.1976, Page 7
Dagblaöið. Mánudagur 5. janúar 1976.
7
Mikið látið með
fjölskyldu Nixons
í Kínaheimsókninni
Dóttir Nixons, fyrrum Banda-
rikjaforseta, Julie, og maður
hennar, David Eisenhower, eru
á ferðalagi um suðurhluta Kina.
í gær var jafnframt fyrsta sýn-
ing á ófullgerðri kinverskri
heimildakvikmynd um heim-
sókn þeirra.
Sá flýtir, sem hafður var á
framleiðslu litkvikmyndarinnar
um heimsókn Eisenhower-hjón-
anna, þykir enn til marks um
þann gi'furlega áróður, sem
Peking-stjórnin hefur i frammi
vegna heimsóknar hjónanna.
1 Dagblaði alþýðunnar, mál-
gagni kommúnistaflokksins,
voru auglýsingar, sem boðuðu
sýningar kvikmyndarinnar— er
heitir „Mao formaður hittir
bandarisku gestina Julie og
David” — um landið allt.
Kinverskir fjölmiðlar hafa
sagt mjög nákvæmlega frá
heimsókn Julie og David. A ný-
ársdag lögðu flest blöð forsiður
sinar undir myndir og texta frá
fundi hjónanna með Mao for-
manni.
Peking-stjórnin hefur notað
tækifærið til að itreka þakklæti
sitt i garð hins forsmáða forseta
vegna framlags hans til að bæta
sambiið Bandarikjanna og
Kina. Jafnframt hefur litið ver-
ið gert úr tilraunum stjórnar-
innar í Washington til að bæta
sambúðina við Sovétrikin.
Bandariskir diplómatar i
Peking hafa litið samband haft
við Eisenhower-hjónin og full-
trúa Bandarikjastjórnar var
ekki boðið að vera viðstöddum
þegar Julie og David hittu Mao.
Fundur þeirra stóð i 45 mi'nút-
ur. Kinverjar vilja bjóða Nixon
að koma aftur til Kina, en ekki
er talið að hann láti veröa af þvi
fyrr en eftir forsetakosningarn-
ar i heimalandi sinu og jafnvel
ekki fyrr en 1979.
Erlendar
fréttir
i
REUTER
8
Spánn:
Carlos Arias Navarro, forsætisráöherra Spánar, fer sjálfur aldrei ncitt
nema i fylgd vopnaðra varða. Nú lofar hann fjögurra eða fimin flokka
starfi á Spáni innan tveggja ára.
VEÐURHAMFARIR
í EVRÓPULÖNDUM
Gifurlegt tjún hefur orðið af óveðrinu, sem geisaði i Evrópu um
helgina. Viða muna elztu menn ekki eftir ööru eins, enda voru um
fjórtán vindstig viða og flóðin eftir þvi. Þessi mynd er frá Alasundi í
Noregi, þar sem veður var slæmt á milli jóla og nýárs.
„Fjórir eða fimm flokkar
starfa innan tveggja óra"
— segir Arias í Newsweek
Spænski forsætisráðherrann
Carlos Arias Navarro sagði i við-
tali við bandariska fréttatimarit-
ið Newsweek i dag, að innan
tveggja ára ættu fjórir eða fimm
stjórnmálaflokkar að vera i
„skapandi starfi i nýju, spænsku
lýðræði”.
Forsætisráðherrann sagðist
ekki geta imyndað sér, að komm-
únistaflokkurinn — sem er bann-
aður — tæki þátt 1 stjórnmálalifi
landsins i framtiðinni. „Það er
ekki til eitt einasta dæmi um
kommúnistaflokk i öllum heimin-
um, sem hefur sannað með gerð-
um virðingu sina fyrir leikreglum
lýðræðisins eftir að hann hefur
komizt til valda,” sagði forsætis-
ráðherrann.
Arias sagði einnig, að nágrann-
ar Spánverja i Evrópu ættu að
sýna „skilning og sveigjanleika”
i viðleitni sinni til að sigrast á
þeim efnahagslega og stjórn-
málalega mismun, sem skilur
Spán frá Evrópu. Um Nato sagði
hann, að Spánverjar hefðu áhuga
á aö ganga i bandalagið, en fyrst
yrðu nágrannaþjóðirnar að binda
enda á „misréttið”, sem þjóð
hans væri beitt.
„Annaðhvort viðurkennir
Evrópa Spánverja sem eðlilega
bandamenn sina,” sagði Arias,
„eða við neyðumst til að tak-
marka notkun herstöðva okkar
við þarfir Bandarikjanna og
Spánar.”
Hann sagði einnig, að Banda-
rikjamenn yrðu að minnsta kosti
að tvöfalda þá upphæð, sem þeir
greiða fyrir afnot af spænskum
herstöðvum.
Samningaviðræður Banda-
rikjamanna og Spánverja um á-
framhaldandi veru bandariskra
hermanna á Spáni hófusti stjórn-
artiðFrancos og hefur verið hald-
ið áfram siðan.
INDVERSKIR ÞINGMENN
KOMA EKKI TIL ÞINGS
Allt að eitt hundrað stjórnar-
andstæðingar á indverska þing-
inu munu ekki koma til þing-
setningar i dag til að mótmæla
þvi, að fjöldi félaga þeirra er
enn i haldi síðan lýst var yf. r
neyðarástandi i landinu fyrir
sex mánuðum. Jafnframt vilja
stjórnmálamennirnir lýsa van-
þóknun sinni á ýmsum öðrum
stjórnaraðgerðum frá sama
tima.
Þingmennirnir sögðu i bréfi,
sem þeir sendu Fakhruddin Ali
Ahmed, forseta Indlands, að
þeir myndu ekki sitja undir
þingsetningarræðu hans, þar
sem það væri eina mótmæla-
leiðin, er þeir sæju.
1 bréfi þeirra sagði að neyðar-
ástandiö væri gjörsamlega á-
stæðulaust og hefði verið það
allt frá upphafi. Þeir mótmæltu
einnig þeim hömlum, sem fjöl-
miðlar verða að sæta.
Talsmenn stjórnarandstöðu-
flokkanna skýrðu frá þvi i Nýju
Dehli i gærkvöldi, að þingmenn-
irnir myndu koma saman til
sérstakra funda þegar aö lok-
inni þingsetningarræðunni.
Uppköst stjórnarskrárbreyt-
inga, sem verið hafa á sveimi i
höfuðborginni undanfarnar vik-
ur, benda til þess að stjórnin
hafi i hyggju að bera fram
breytingartillögur, er flýttu fyr-
ir stjórnskipunarbreytingum i
Indlandi, þannig að vald þings-
ins yrði minnkað og forsetar.s
aukið, eins og t.d. i Bandarikj-
unum.
Indira Gandhi og flokkur
hennar, Kongressflokkurinn,
hafa nauðsynlegan meirihluta i
báðum deildum þingsins tii að
gera hverjar þær breytingar,
sem hugurinn girnist.
LITASJÓNVARP
EKKI FYRIR
„LITAÐA"
Eftir margra ára deilur
verður í dag loks hafið sjónvarp
i Suður-Afriku. Sjónvarpað
verður i' litum — en nær ein-
göngu fyrir hvita áhorfendur.
Rúmlega milljón manns
mun fylgjast með fimm min-
útna ræðu Johns Vorsters, for-
sætisráðherra, er hann hefur
s-afrikanskt sjónvarp formlega
i kvöld.
Blökkumönnum er ekki bann-
að að horfa á sjónvarp, en dýr
sjónvarpstæki — greiða verður
allt að 170 þúsund krónur fyrir
litsjónvarpstæki og að auki tiu
þúsund krónur fyrir sjónvarps-
leyfi — gera flestum blökku-
mönnum landsins ókleift að
njóta þessa munaðar. Blökku-
mönnum er ætlað að fá sina eig-
in stöð eftir á að gizka fimm ár,
þegár heimagerð sjónvarpstæki
— nú þau dýrústu i heimi —
verða ódýrari.