Dagblaðið - 05.01.1976, Blaðsíða 17
Dagblaðið. Mánudagur 5. janúar 1976.
17
Andlát
___ • . ’ V- .
BJARNl BJARNASON,
læknir, lézt i Landsspitalanum 23.
desember. Útför hans fer fram
frá Dómkirkjunni i dag kl. 14. —
Bjarni var fæddur að Geitabergi i
Svinadal i Borgarfjarðarsýslu 29.
október 1901. Foreldrar hans voru
hjónin Sigriður Einarsdóttir og
Bjarni Bjarnason bóndi og hrepp-
stjóri. Hann lauk stúdentsprófi
frá MR árið 1922 og embættisprófi
i læknisfræði árið 1927. Hann
stundaði framhaldsnám á sjúkra-
húsum i Björgvin 1928, Vin 1930 og
Kaupmannahöfn árið 1930 og
1933—34. Viðurkenningu sem sér-
fræðingur i meltingarsjúkdómum
hlaut hann árið 1935. Hann var við
námsdvöl i Kaupmannahöfn
1939—40, New York 1946, Skotl.
1951, Þýzkalandi 1952 og ’58
Bjarni starfaði sem læknir á
Akureyri og aðstoðarlæknir við
sjúkrahúsið þar 1928—33. t
Reykjavik vann hann frá 1934 og
æsiðan. Hann starfaði við sjúkra-
hús Hvitabandsins 1935—46.
Hann rak sjúkrahúsið Sólheima
ásamt fleirum og starfaði þar frá
1946. A elliheimilinu Grund vann
hann frá 1935—38 og frá 1952.
Bjarni lét félagsmál mikið til
sin taka. Hann sat i stjórn Rauða
kross tslands um árabil, var for-
maður K rabbameinsfélags
Reykjavikur frá 1960—66 og siöar
árum saman formaður Krabba-
meinsfélags tslands.
Arið 1925 gekk Bjarni að eiga
Reginu Þórðardóttur leikkonu.
Þau eignuðust tvær dætur. Þau
hjónin voru bæði sæmd heiðurs-
merki hinnar islenzku fálkaorðu
fyrir störf sin. Regina lézt i októ-
ber 1974.
FRÍÐA PROPPÉ
lyfsali, lézt 23. desember. Hún
var jarðsett á laugardaginn var.
— Friða fæddist á Þingeyri við
Dýrafjörð 25. september 1906.
Foreldrar hennar voru hjónin Jó-
hanna Jósafatsdóttir Proppé og
Carl Proppé. Árið 1914 fluttu þau
hjónin með börn sin til Reykja-
vikur og þar lauk Friða stúdents-
prófi árið 1926. Að þvi loknu hóf
hún nám i lyfjafræði og lauk fyrri
hluta prófs hér heima. Þá hélt
hún til Kaupmannahafnar og tók
próf við Lyfjafræðiháskólann þar
árið 1931. Árið 1935stofnaði Friða
Akranessapótek og þar starfaði
hún upp frá þvi, fram til 1973 er
hún lét af störfum vegna heilsu-
brests.
Friða var ógift alla ævi.
ELÍAS KR. JÓNSSON
frá Þingeyri, Höfðabraut 16,
Akranesi, lézt 23. desember. Út-
för hans fór fram siðastliðinn
föstudag. — Elias fæddist að
Tandraseli i Borgarfirði 1. júni
1898. Foreldrar hans voru Þórdis
Þórðardóttir og Jón Eliasson.
Ungur að árum flutti Elias með
föður sinum til tsafjarðar, en
missti hann skömmu siðar. Eftir
það ólst hann upp hjá föðursystr-
um sinum. Sjö ára gamall flutti
hann með frænkum sinum og fjöl-
skyldum þeirra til Reykjavfkur
og bjó þar, þar til hann fór að
vinna. Fyrst var hann á Seyðis-
firði, en seinna á Þingeyri við
Dýrafjörð þar sem hann starfaði
lengst af við verzlun. Árið 1955
flutti hann frá Þingeyri til
Reykjavikur með fjölskyldu
sinni. Þá hóf hann störf hjá Aðal-
verktökum og vann þar til ævi-
loka, — fyrst á Keflavikurflug-
velli og siðar i Hvalfirði. Siðustu
árin bjó Elias á Akranesi.
Árið 1927 kvæntist Elias eftirlif-
andi konu sinni, Jóhönnu Þor-
bergsdóttur frá Þingeyri. Þau
eignuðust tvær dætur.
Kelduhverfi:
Mannfólkið og skepn-
urnar þreytt og hrœtt
Mjör snarpur jarðskjálfta1
kippur varð i Kelduhverfi i gær-
morgun. Mældist hann um 5 stig
á Richter og telst þvi með þeim
harðari.
„Sprungur i jörð og húsum
hafa stækkað,” sagði Kristveig
Árnadóttir á Lindarbrekku i
viðtali við DB i morgun. Viö
spurðum hana sérstaklega um
það, hvernig dýrin tækju þess-
um hamagangi og sagði Krist-
veig þau að vonum vera mjög
hrædd. „Skepnurnar hnipra sig
saman i útihúsunum og láta sem
minnst á sér kræla.”
Sagði Kristveig, að þótt
skömm væri frá að segja væru
nokkrir hestar á útigangi þótt
engin jörð væri fyrir þá, en ekki
væri vitað til að neitt hafi orðið
að þeim. Þd sagði Kristveig, að
erfitt væri að segja til um,hvort
nyt hefði eitthvað minnkað i
kúm, þetta væri sá árstimi er
hún væri minnst hvort eð væri ItP
HALLDÓR BJARNASON,
útgerðarmaður, Hólatorgi 6, lézt
29. desember. Útför hans fór fram
i morgun frá Háteigskirkju.
LÚÐVÍK JÓNSSON,
meinatæknir, Hátúni 32, Kefla-
vik, lézt 20. desember. Útför hans
fer fram frá Fossvogskirkju i dag
kl. 13.30.
SNJÓLAUG GUÐRÚN
ARNADÓTTIR
Austurgötu 25, Hafnarfirði, lézt
30. desember. Hún verður jarð-
sungin frá Þjóðkirkjunni i Hafn-
arfirði 7. janúar kl. 14.
GUÐNÝ JÓHANNESDÓTTIR
Stóra-Skógi, verður jarðsungin
frá Kvennabrekkukirkju á morg-
un, 6. janúar kl. 14.
GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR,
Hjallavegi 19, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju á morgun kl
10.30.
R A G N H I L D U R E R L A
ERLINGSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 7. janúar
kl. 13.30.
BORGÞÓR HERBERTSSON,
Háaleitisbraut 39, verður jarð-
sunginn frá Neskirkju á morgun
kl. 10.30.
MARTIN TÓMASSON
forstjóri frá Vestmannaeyjum
lézt i Borgarspitalanum 1. janú-
ar.
JENSÍNA E.S. JÓNSDÓTTIR,
Brekkugerði 7, lézt i Landspital-
anum 2. janúar.
I N G A ÓL Ö F
ARNGRÍMSDÓTTIR,
lézt 2. janúar.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
Mánudagur 5. janúar kl. 20: Jóla-
hátið æskulýðsins. Allt ungt fólk
hjartanlega velkomið.
Fjármálaráðherra tekur þátt
i viðræðum um kjaramál, sem
hefjast nú að nýju milli BSRB
og rikisins. Lögum samkvæmt
átti kjaradómur að hafa skorið
úr kjaradeildu opinberra starfs-
manna fyrir 1. jan. sl.
Að tilhlutan rikisstjórnarinn-
ar var þessum lögum breytt nú
fyrir jólin. Var kjaradómi með
breytingunni gefið svigrúm til
31. jan. aðljúka störfum. Þá var
og gert ráð fyrir þvi að deilunni
Brotizt inn í
blómabúð og
ofnasmiðju
Innbrotsþjófar lögðu leið
sina i blómabúðina Alaska við
Miklatorg aðfaranótt sunnu-
dagsins en höfðu ekki erindi
sem erfiði. Brutu þeir rúðu i
gróðurhúsinu og rótuðu mikið
i hirzlum. Engir peningar né
önnur verðmæti voru geymd
þarna og hurfu þeir þvi á
braut.
Þá var brotizt inn i Ofna-
smiðjuna, en þar var lögregl-
an heldur betur á verði, þvi
hún gómaði þjófinn á inn-
brotsstaðnum. Fékk hann þvi
ekki færi á þvi að gera neinn
óskunda.
væri hægt að visa til sáttasemj-
ara rikisins, ef annar samnings-
aðila óskaði þess.
Sem kunnugt er, dró BSRB
fulltrúa sinn út úr kjaradómi, en
nú stendur fyrir dyrum að hefja
viðræður milli aðila um bæði
samningsréttarmálin og kjara-
málin að sögn Kristjáns Thor-
lacius, form. BSRB.
BSRB hefur nú komið upp
starfsmannanefndum á hinum
ýmsu vinnustöðum. Þessar
Stólu
magnara
úr
safnaðar-
heimili
Brotizt var inn i safnaðar-
heimili Langholtskirkju að-
faranótt sunnudagsins. Farið
var inn i kjallara og komust
þjófarnir þannig inn i safnað-
arheimilið. Einhver spjöll
voru unnin þar og höfðu þjóf-
arnir einnig á braut með sér
magnara og sáu sér færi á að
stela litlum peningabauk með
smámynt.
nefndir eru hugsaðar sem gagn-
kvæmur tengiliður á milli
starfsmanna og samninga-
nefnda og forráðamanna BSRB.
,,Hugi” heitir nýtt fréttabréf,
sem fyrst og fremst er ætlað
starfsmannanefndunum til
skjótra upplýsinga um allt það
sem er að gerast hverju sinni og
eðlilegt er að komið sé á fram-
færi á vinnustöðum opinberra
starfsmanna.
Heita mó
snjólaus
vegur
norður
í land
Vegna fréttar um ófærð á
vegum höfðum við samband
við Þorvarð Guðjónsson hjá
Norðurleið. Hann sagði að
færðin væri merkilega góð á
veginum norður i land. Hefði
hún verið það siðan fyrir jól.
Mætti það teljast einkar at-
hyglisvert vegna þess að flug
stöðvaðist I sex daga.
Vegagerðin var tilbúin til að
aðstoða á föstudag og laugar-
dag en ekki i gær. Engu að sið-
ur var ákveðið að áætlunarbil-
ar Norðurleiðar héldu suður,
vegna skólafólks sem þyrfti að
komast leiðar sinnar.
Veður var hið verstá i Húna-
vatnssýslu i gær og varð áætl-
unarbillinn að biða nokkra
hrið á meðan það versta gekk
yfir. Siðan birti til og allt gekk
að óskum.
Fyrir utan örfáa skafla á
veginum, aðallega á Hrúta-
fjarðarhálsi. má vegurinn
kallast snjólaus alla leið norð-
ur. Þetta er miklu betra en
reikna má með þegar kominn
er vetur, sagði Þorvarður.
A.Bj.
Viðrœður hefjast milli BSRB og ríkisins
— fjármálaráðherra tekur þátt í þeim
MIKLAR UMFERÐARTAFIR Á SUÐURSTRÖNDINNI
VEGNA FANNFERGIS OG ÓFÆRÐAR
Mjög erfið færð hefur verið viða
um land um helgina. Urðu miklar
umferðartafir á suðurströndinni
og allt ófært út frá Vik i Mýrdal.
Svolitið var hægt að liðka til i gær,
en allt ófært aftur i dag.
Vegagerðin sagði að ekki væri
útlit fyrir að hægt yrði að hefja
mokstur strax, en það verður gert
um leið og hægt er.
Mjög þungfært var undir Eyja-
fjöllum og skafrenningur var i
Árnes- og Rangárvallasýslum.
Agætt færð var á Hellisheiði en
mjög þungfært á Suðurnesjum og
utan Keflavikur.
Á Snæfellsnesi var mjög þung-
fært og skafrenningur. Versta veð-
ur var i gær i Húnavatnssýsiu og
um tima var umferð þar stöðvuð
vegna veðurs. Áætlunarbill frá
Norðurleið þurfti að biða i nokkra
klukkutima vegna ófærðar.
Mikill jafnfallinn snjór var á
Akureyri og mikil hætta er talin á
skafrenningi ef hvessir og eru
vegir þá fljótir að lokast.
Vegir út frá Höfn i Hornafirði
eru ófærir en verið er að hefja
moksturi Nesjum, i vesturátt frá
Höfn og er þar nú gott veður.
—A.Bj.