Dagblaðið - 23.01.1976, Side 3
Magblaöiö. Föstudagur 23. janúar 1976.
Fólmkennd viðbrögð
íslenzku stiórnarinnar
— Um hvað œtli Geir semji þegar hann fer til London?
Matthias Gunnarsson verka-
maður skrifar:
„Fimmtudaginn 6. janúar
birti eitt af blöðum borgarinnar
grein undir fyririsögninni „Allir
haldi sér fast”. Greinin fjallar
um hina margumtöluðu ásigl-
ingu Leanders á Þór, sem hvert
einasta mannsbarn á íslandi
veit um. Það greindi nánar frá
atburðinum neðar á sömu siðu i
smáklausu. Þá var tekið fram
að rikisstjórnin muni ræða á-
siglinguna og mótmæla eins og
venjulega.
Daginn eftir kom i sama
blaði: YFIRLÝSING RtKIS-
STJÓRNARINNAR: VIÐRÆÐ-
UR VIÐ NATO — LUNS TIL IS-
LANDS - FASTRADIÐ TIL
FUNDAR:
Aðgerðir þessar þótti mér
fálmkenndar og ræfilslegar eins
og raunar allt sem þessi rikis-
stjórn hefur gert i þessu máli.
Siðan kom i beinu framhaldi:
Pétur Thorsteinsson ráðuneyt-
isstjóri mun sem sérstakur full-
trúi rikisstjórnarinnar ferðast
til höfuðborga aðildarrikja
NATOs i Evrópu og gera rikis-
stjórnum þessara rikja grein
fyrir sjónarmiðum tslendinga.
Sendiherrar Islands hjá SÞ og
i Washington kallaðir heim til
þess að undirbúa frekari kynn-
ingu á málstað Islands vestan
hafs.
Krafizt fundar i fastaráði
NATOs.
Óskað eftir þvi að Luns fram-
kvæmdastjóri NATO komi hing-
að til lands til viðræðna.
Að lokinni kynningu málsins
krafizt nýs fundar fastaráðs
NATOs.
Að þessum aögerðum má ljóst
vera að rikisstjórnin reynir allt
til þess að þæfa málið. Þá kom
hið dularfulla loforð — einsýnt
að framhald ásiglinga leiðir til
stjórnmálaslita.
Viðtal var við Geir í sama
blaði og þar segist hann vona að
ekki komi til stjórnmálaslita
með þvi að ekki verði fleiri á-
siglingar.
Daginn eftir viðtalið sigldi
Leander á Þór og þá hugsuðu
landsmenn með sér. Nú hljóta
stjórnvöld að gera eitthvað. Nei,
þessi stjórn gerði ekkert annað
en að mótmæla og enn var reynt
að þæfa málið.
Fyrst var beðið eftir sjópróf-
um — þá var sett einhver
þriggja manna nefnd — enn var
málið þæft. Jú, svo fóru loks
NATÓ-dallarnir út fyrir — en
hverju var það keypt.
Jú, svo virðist sem islenzka
rikisstjórnin hafi lofað að áreita
brezka togara ekki i islenzkri
landhelgi. Þrátt fyrir yfirlýs-
ingar stjórnvalda um að is-
lenzkum lögum verði framfylgt.
En hvar eru varðskipin?
Hvers vegna eru brezkir togar-
ar látnir i friði? Er það ekki
vegna þess að islenzka rikis-
stjórnin hefur gefið loforð á bak
við tjöldin um að láta togarana i
friði? Svo fer sjálfsagt Geir
Hallgrimsson til London og
semur upp á hvað, 80 — 90 — 100
þúsund tonn?
Ásiglingarnar á Þór. Viðbrögð
islenzku rikisstjórnarinnar
fálmkennd, segir lesandi.
UM GUÐSBÖRN OG ATVINNUGÓÐMENNI
Jóhannes (ekki skirari) skrifar:
„Ekki er að'undra þótt kirkj-
unnar menn á Islandi reki i
rogastanz — já, þyki það
beinlinis glæpsamlegt að finnast
skuli fólk sem er reiðubúið að
HVAR FÆST
FUGLAFÓÐRIÐ?
„A vinnustað minum, i einu
húsi við Laugaveginn. snúa
gluggarnir m.a. út i bakgarð
sem nú .er bilastæði. A húsa-
burstunum i kring má oft sjá
tugi ef ekki hundruð snjótittl-
inga, sem biða þess að einhvers
staðar sjáist korn i nefið. Ef
hamingjan er þeim hliðholl,
þ.e.a.s. ef einhver setur brauð-
mylsnu eða fuglafóður á bila-
stæðið, eru þeir óðar komnir til
að seðja hungur sitt.
Um þessar mundir hart i ári
hjá þessum litlu greyjum og ætti
fólk þvi að muna eftir að gefa
þeim, eins og reyndar heyrist
auglýst. En hvað á að gefa
þeim? Við hérna á vinnustaðn-
um erum búin að fara Lauga-
veginn á enda til að kaupa
fuglafóður, en það fæst bara alls
ekki.
Hvemig stendur á þvi? Hvað
á að gefa fuglunum ef fugla-
fóður fæst ekki? Það má ekki
gefa þeim hvað sem er, eða
hvað?
Mér þætti vænt um að einhver
kæmi með svar við þessum
spurningum.
7175-3158.”
leggja eitthvað i sölurnar fyrir
trúna.
Fyrir nokkru var i Dagblað-
inu vegið mjög hart að Guðs-
börnunum svokölluöu fyrir það
eitt, eftir því sem bezt verður
séð, að leggja hart að sér við
trúboðið. Vitnar greinarhöfund-
ur ákaft i kristileg málgögn sem
árum saman hafa verið að róg-
bera og hnakkrifa þessi krakka-
grey. Einna grunsamlegast
þykir makráðum þjónum kirkj-
unnar að krakkarnir skuli yfir-
gefa heimili sin og leggja allt i
sölurnar fyrir fagnaðarerindið.
Þeir eru að sjálfsögðu búnir að
gleyma þvi að frelsarinn sjálfur
og föruneyti hans fór eins að.
Sjálfur er ég i meðallagi
vantrúaður en ber þó óskipta
virðingu fyrir öllum trúarhóp-
um sem ekki þiggja af sveit —
eins og þjóðkirkjan gerir.
Atvinnugóðmennin (prestarn-
ir) eru sjálfum sér og þjóðinni
til minnkunar. Það er ekki litið
hlálegt að fólki skuli vera borg-
að fyrir það eitt að vera góð-
menni, þvi auðvitað dettur
engum i hug að prestar séu al-
mennt trúaðir, það hafa þeir
sjálfir viðurkennt i stórum stil.
Atvinnugóðmennin minna um
margt á uppmælingaaðalinn.
Fólk er skirt, fermt, gift og
jarðað i uppmælingu, og á
sunnudögum er samg rullan
höfö upp aftur og aftur. Þó kast-
ar fyrst tólfunum þegar litið er
til landsbyggðarinnar. Þar eru
þess viða dæmi að prestar þjóni,
auk eigin brauðs, tveimur eða
þremur annexium og fái hálf
árslaun fyrir hverja um sig.
Þessi sömu atvinnugóðmenni
sitja svo i launuðum hrepps-
nefndum, skólanefndum og eru
kennarar eða prófdómarar.
Með þessu lagi næla þeir sér i
um það bil þrenn árslaun, sem
er ekki svo afleitt, þegar maður
er i ókeypis húsnæði og með
bilastyrk. Það er ekki ónýtt að
vera launað „góðmenni” á
tslandi.
Að lokum óska ég Guðsbörn-
unum alls velfarnaðar og vona
að þau þurfi aldrei að þiggja af
sveit — og þau þurfi heldur
aldrei að byggja 75 metra hátt
steinlikneski til að breiða yfir
skammsýni sina.”
ATHUGASEMD FRÁ
FORSTJÓRA S.V.R.
„Herra ritstjóri.
Hinn 13. janúar sl. birtist
grein i blaði yðar eftir H. Elias-
son undir yfirskriftinni „For-
gangsflotinn”.
Eg allaði mér gagna um
árekstur þann sem olli þessum
skrifum, þ.e. skýrslu þeirra lög-
reglumanna, sem komu á vett-
vang. Þar stendur fullyrðing
gegn fullyrðingu bilstjórans og
vagnstjórans á strætisvagnin-
um um tjónvald. Hins vegar hefi
ég rætt við vitni sem gaf sig
fram og var farþegi i strætis-
vagninum. Fullyrðir það að
fólksbillinn hafi verið á eftir
strætisvagninum yfir gatna-
mótin en siðan reynt að þrengja
sér fram með eftir akrein sem
hafði mjókkað vegna snjóruðn-
ings. Þarna benda þvi likur til
að hilstjóri Ford-Mustang bif-
reiðarinnar en ekki sú-ætis-
vagnsstjörinnhafi i þessu tilviki
ætlað að helga sér forganginn.
Þetta vildi ég að kæmi fram.
þar sem ætla má að alllangur
timi geti liðið til uppkvaðningar
dóms i málinu.
Eirikur Ásgeirsson.”
Spurning
dagsins
Telur þú að
kjarnorkuvopn
séu geymd á islandi?
Svein Arve Hovlandnemi: Ég hef
ekki hugmynd um það og hef að
visu ekki hugsað um þetta mál.
Það hlýtur annars að vera ólik-
legt, þau hafa ekkert að gera hér.
Filippus, segist vera guðsbarn:
Það er ómögulegt að segja,
maður veit ekkert hvað skeður á
bak við tjöldin.
Sigurgeir Friðriksson nemi: Ég
tel það fráleitt. Það er engin að-
staða hér til að geyma slik vopn.
Annars hafa fæst orð minnsta á-
byrgð.
Lvdia Pálmarsdótlir húsmóðir:
Ekki get ég imyndað mér það. Við
erum svo friðsöm þjóð að það er
varla möguleiki.
llaraldur Óskarsson nemi: Já. ég
er ekki i nokkrum vafa. Þau eru
ekkert siður hér en á Grænlandi.
Það hrapaði flugvél fyrir utan
Grænlandsstrendur og hún var
með kjarnaodd innanborðs. Þau
hljóta að vera hér.
LV
Pétur Guðjónsson stórkaup-
maður: Nei. það er ekki hægt að
hafa þau hér. Það þarf að hafa
eldflaugar hér svo það sé hægt og
svo er ekki. Það eru engin tæki
staðsett hér á landi til árásar-
striðs.