Dagblaðið - 23.01.1976, Blaðsíða 6
6
Pagblaðið. Föstudagur 23. janúar 1976.
NORSKIR
LISTAMENN
VERÐA Á
FÖSTUM
LAUNUM
Norska þingið hefur nýlega
lagt til að viðurkenndum
norskum listamönnum og rit-
höfundum verði tryggð ákveð-
in lágmarkslaun á ári úr ríkis-
sjóði.
t skjali, sem þingið hefur
lagt fyrir stjórnina, er mælt
með að upphæðin nemi lág-
markslaunum opinberra
starfsmanna, en þau eru nú
um 1200 þús. isl. krónur.
Reiknað er með að þetta fyrir-
komulag geti orðið að raun-
veruleika árið 1979 og talið er
að 550 til 600 listamenn muni
njóta þessa það árið. —
Gandhi hefur
herferð gegn
barneignum
Á fundi með indverskum
læknum i gær sagði Indira
Gandhi að stjórnin hygðist
taka upp raunhæfar aðgerðir
til að takmarka fólksfjölgun-
ina i landinu svo að Indverjum
fjölgi ekki um helming á 28
næstu árum. Indira gaf I skyn
að beitt yrði þeirri aðferð að
takmarka réttindi fólks, sem
ekki brygðistvel við, á ýmsan
hátt. Innan tiðar er að vænta
lista yfir þau réttindi sem
samvinnuþýtt fólk mun öðlast
og þá geta barnafjölskyldur
væntanlega lesið út úr honum
skert réttindi sin. —
12.000 Kínverjar
minntust sund-
afreks Maos
Olían í
Norðursjó
Geysilegar framkvæmdir eru
við oliuboranirnar i Norðursjó og
eru byggð þar mannvirki sem
heimurinn hefur aldrei fyrr aug-
um litið. Á myndinni hér til hliðar
sjást undirstöður fyrir borpall,
sem er i smiðum i Andalsnes i
Noregi. Myndin hér fyrir neðan
sýnir Oftedal, formann utanrikis-
málanefndar norska þingsins i
viðræöum við Millan, innanrikis-
ráðherra Skota, um framtiðará-
ætlanir varðandi oliuvinnslu i
Norðursjó.
Sundafreki Maos formanns, er
hann á áttræðisaldri synti yfir
stærstu á Kina, Yangtsekiang,
varfyrir skömmu minnzt á lit-
rikan hátt. Nú eru liðin um tiu
ár siðan Mao synti yfir ána og
i tilefni þess syntu 12 þúsund
Kinverjarsömu vegalengd nú,
og á sama stað og Mao forð-
um. Kinverska fréttastofan
sagði að verkamenn, bændur,
hermenn, konur og börn hefðu
þreytt sundið.
Hér syndir Mao formaðui
sundið fræga yfir Yangtseki-
ang, 72 ára að aldri.
AÐ MINNSTA KOSTIEKKIRUSSNESKT
Norðmenn hafa mótmælt
opinberlega við sovézk yfirvöld
dvöl eiginkvenna rússneskra
starfsmanna á Svalbarða.
Utanrikisráðherra Noregs,
Knut Frydenlund, kvaddi
sovézka sendiráðsritarann.
A.P. Smirnov á sinn fund hinn
16. þessa mánaðar. Lagði hann
fyrir Smirnov að flytja
sovézkum stjórnvöldum opinber
mótmæli vegna dvalar rúss-
neskra kvenna á þessari heim-
skautaeyju.
Ekki hefur verið látiö neitt
uppskátt um, hvernig mótmæli
þessi eru rökstudd, en tilefni
þeirra er á góðri leið með að
verða „diplómatiskt” rifrildi
milli norskra og sovézkra
stjórnvalda.
Svalbarði, sem er heim-
skautaeyja i Norður-lshafinu,
var viðurkennt norskt yfirráða-
svæði i Parisarsamningunum
1920. Eyjan er nú orðin hernað-
arlega mikilvæg, þótt afskekkt
sé. Nokkur námavinnsla er þar
rekin af bæði Norðmönnum og
Rússum. Er þar aðeins gert ráð
fyrir dvöl einhleypra karla frá
Sovétrikjunum. Þegar flugvöll-
ur hafði veiþð gerður á Sval-
barða, kröfðust Rússar þess að
hafa þar starfsmenn, meðal
annars til þess að fylgjast meö
þvi að hann yrði ekki notaður i
hernaðarskyni.
Húsbyggingar gerðu aðeins
ráð fyrir einstaklingsibúðum,
nema ibúð flugstöðvarstjóra.
Hinn 22. desember sl. komu til
Svalbarða nokkrar eiginkonur
rússneskra starfsmanna sem
þar dveljast. Hefur dvöl þeirra
nú verið mótmælt opinberlega,
sem fyrr segir, og þess krafizt,
að þær verði fluttar þaðan aftur.
Heimildir i Osló skýra frá þvi,
að þetta sé fullkomið alvörumál
á diplómatiska visu.
íNN EITT VOPNA-
HLÉIÐ ÚT UM ÞÚFUR
( BEIRÚT í NÓTT
Réttarhöldin yfir auðmannsdótturinni Patty Hearst halda áfram.
Hér sést hún yfirgefa fangelsiö I San Mateo I fylgd lögreglumanna til
þess aö vera viöstödd yfirheyrslur I máli sinu viö dómstólinn I San
Francisco. Frekari réttarrannsóknar var krafizt af lögfræöingum
hennar eftir aö hún haföi haldið þvi fram aö sálfræöingur sá er feng-
inn var til þess að rannsaka geðheilsu hennar væri ekki starfi sinu
vaxinn.
Patty Hearst er ákærö fyrir bankarán i San Francisco, er hún var
félagi i Symbionese-frelsishernum, en félagar úr þeim samtökum
rændu henni, sem kunnugt er.
Rússar bjóða 2 NATO-
ríkjum á herœfingu
Enn eitt vopnahléið var samið
i Libanon i gærkvöldi fyrir til-
stilli Sýrlendinga. Það átti að
taka gildi kl. 20.00, en fram eftir
nóttu var barizt harkalega á
viglinunum i Beirut og i borg-
inni Zghorta, sem aðallega er
byggð kristnum mönnum. Talið
er að kristnir menn hafi einkum
brotið vopnahléið, enda vilja
þeir si'ður sætta sig við ihlutun
Sýrlendinga.
A myndinni, sem tekin var á
mánudag i Beirút, eru falang-
istar aö handtaka konur og börn
eftir að þau höfðu farið yfir
svæði gegn vilja falangistanna.
Engum var i þessu tilviki gert
mein og var fólkinu siðar sleppt.
Sovétrikin hafa boðið Tyrkj-
um og Grikkjum, tveim NATO
þjóðum, að senda fulltrúa sina
tii mikilla heræfinga sovézka
hersins i Kákasus i næsta mán-
uði. Ekki er enn vitað hvort
löndin ætla að þiggja boðið.
Sovétmenn segjast gera þetta á
grundvelli Helsinkisamkomu-
lagsinsog hafa einnig boðið full-
trúum annarra ianda Balkan-
skagans nema Albaniu til æf-
inganna. Fréttamenn telja þetta
tiltæki Sovétmanna lýsa ánægju
þeirra á uppástungu Karaman-
lis, forsætisráðherra Grikk-
lands, þess efnis að lönd Balk-
anskagans taki upp nánari sam-
vinnu. Oll riki skagans nema
Albania ætla að taka þátt i um-
ræðum um málið nú fyrir mán-
aðamótin. Viðræðurnar munu
fara fram i Aþenu.
Erlendar
fréttir
REUTER
Norðmenn mótmœla opinberlega:
EKKERT KVENNAFAR Á SVALBARÐA -