Dagblaðið - 23.01.1976, Blaðsíða 7
7
Pagblaðið. Föstudagur 23. janúar 1976.
Árangur hernaðaraðstoðar Sovétmanna og Kúbana við MPLA:
MPLA IR
STRÍÐINU
— Erlendri aðstoð við FNLA og UNITA
NETO, leiðtogi MPLA
MPLA hreyfingin i Angola,
sem Sovétmenn styrkja með
hergögnum og Kúbumenn með
nær tiu þúsund hermönnum,
sem berjast með sovézkum
vopnum, eru ótvirætt að vinna
sigur yfir andstæðu hreyfingun-
um tveim, UNITA og FNLA, en
Bandarikjamenn og Kinverjar
styrktu þær. Einnig Suður-Af-
rikumenn, sem nýjustu fréttir
herma að séu að draga sig út úr
landinu. Nágrannarikið Zambia
hefur einnig styrkt UNITA og
FNLA, en Tansaníustjórn beitir
nú þrýstingi á stjórn Zambiu að
hætta þvi, en Tansaniustjórn er
hliðholl MPLA.
Tansania og Zambia eru efna-
hagslega mjög nátengd og er
sterklega búizt við að Zambiu-
AÐ GiRSIGRA I
f ANGOLA
lokið eða er að Ijúka
menn hætti aðstoð sinni, þá með
hliðsjón af þvi að MPLA er að
ná yfirhöndinni i Angola og þvi
ekki ráðlegt að standa á móti
hreyfingunni.
Samkvæmt bandariskum
upplýsingum hefur FNLA tapað
öllum strandbæjum norður af
Luanda, sem er höfuðborg
MPLA. Þá hafa bæirnir Cela,
Amboiva og Santa Komo, i mið-
hluta landsins, einnig fallið fyrir
MPLA, sem beitir nú ákaft so-
vézkum skriðdrekum og eld-
flaugum og skortir ekkert til um
leið og erlend riki eru hætt eða
að hætta að styrkja FNLA og
UNITA. Þvi er einsýnt að
hverju stefnir og bandarfskir
hemaðarsérfræðingar segja að
MPLA muni á hverri stundu
kljúfa fylkingar FNLA eins og
hnifur smjör. Talið er að and-
virði sovézkra hergagna, sem
MPLA berst með, nemi a.m.k.
100 milljónum dollara. —
Roberto, leiðtogi FNLA Savimbi, leiðtogi UNITA
Vel búnir, sigurvissir og sigursælir MPLA hermenn.
Veruleg fólks-
fœkkun í Englandi
Tala fæðinga á Englandi og i
Wales varð 602.000 á siðastliðnu
ári, sem er lægsta tala frá lok-
um siðari heimsstyrjaldar-
innar. Sérfræðingar segja að
vaxandi verðbólgu megi kenna
þessa fækkun.
Samkvæmt tölum, sem birta'r
vom af brezku hagstofunni, sést
að með 6% fækkun fæðinga á
siðast liðnu ári sé að nálgast hið
algjöra lágmark er varð á
þriðja tug aldarinnar.
Fæðingar urðu 22 þúsundum
fleiri en dauðsföll en brottflutn-
ingur fólks frá Englandi og
Wales er álitinn hafa numið allt
að 40 þúsund manns, og i fyrsta
skipti i 50 ár er talin hafa orðið
veruleg fólksfækkun i löndunum
tveim.
Þjóðhagsfræðingar segja
að fjárhagslega afkoma þ]óö-
arinnar, sem var slæm, at-
vinnuleysi og verðbólga, eigi
stóran þátt i fækkun þessari.
Þá kemur getnaðarvarnar-
pillan verulega inn i dæmið,
fóstureyðingar og vilji fólks til
þess að hafa fjölskyldurnar
minni.
Sífelld hryðju-
verk í Belfast
Fimm létu lífið
í nótt
' Fimm mannslétu lifið i átökun-
um á Norður trlandi i nótt. Tveir
lögreglumenn frá Ulster létust
samstundis er byssa, sem útbúin
var sem sprengja, sprakk við
skoðun á lögreglustöð.
Byssuna höfðu lögreglumenn-
irnir fundið við húsleit i Belfast.
Fyrr i gærkvöldi höfðu fjórir
unglingar, vopnaðir byssum rutt
sér leið inn á bifreiðaverkstæði i
þorpinu Eglish og haft á brott
með sér einn þriggja unglinga er
þar voru. Fannst hann myrtur
skammt frá verkstæðinu.
Nokkrum minútum siöar var
maður skottinn til bana i þorpinu
Ballytog. Lögreglan hafði engar
frekari upplýsingar um það
morð.
í þorpinu Portglenone stöðvaði
vopnaður maður litinn sendi-
ferðabil, sem flutti landbúnaðar-
verkamenn til sins heima. Réð
hann bana 32ja ára mótmælanda
frá Ulster.
LÍTILL ÁRANGUR AF
MOSKVUVIÐRÆÐUM
Likurnar á viðræðum milli
sovézkra og bandariskra ráða-
manna um afvopnun virðasthafa
minnkað, eftir tveggja daga við-
ræður um kjarnorkuvopn, sem
Bresnev og Kissinger hafa átt
með sér i Moskvu.
Bandariskir embættismenn i
fylgd með Kissinger sögðu að
hann hefði talið að „verulegur ár-
angur” hefði náðst i átt að ná-
kvæmari útlistun á samkomulagi
þvi er náðist milli þjóðanna i
Vladivostok árið 1974. Þar var á-
kveðið, að hvor þjóðin um sig
mætti ekki hafa i fórum sinum
meira en 2400 kjarnorkueldflaug-
ar og sprengjuflugvélar.
Embættismennirnir viður-
kenndu, að ennþá væri töluverður
ágreiningur um nánari ákvæði
samkomulagsins, sem leggja á
fyrir nefnd sérfræðinga i Gent
Helzta takmark Kissingers
hafði verið’að reyna að komast að
samkomulagi um þessi atriði i för
sinni til Moskvu á dögunum.
Ford Bandarikjaíorseti og
Bresnev eru sagðir hafa frestað
frekari framhaldsviðræðum. þar
til gengið hefur verið frá sam-
komulagsatriðum þessum i af-
vopnunnrsa mningnum.
Það er létt yfir Bresnev á þessari mynd og eitthvað virðist það kæta Kissinger en Gromyko er hinn al-
varlegasti á svip.