Dagblaðið - 23.01.1976, Page 12
SKÍÐASKÓLI INGEMARS STENMARK
Danirnir eins og smá-
krakkar í Dankersen!
Rosi með
46 stiga forskot
Rosi Mittermaier, Vestur-Þýzkalandi, jók
forskot sitt i heimsbikarnum i alpagreinum i
46 stig, þegar hún varö i öðru sæti i svig-
keppninni i Bagdastein i Austurríki i gær.
Hún hefur nú hiotið 184 stig, en i öðru sæti er
Bernadetta Zurbriggen, Sviss, með 138 stig
og I þriðja sæti i stigakeppninni er Lisa-
Maria Morerod, Sviss, með 120 stig.
Philippe Garot sækir aö de Jong, markmanni Waregem, en i þetta
sinn fór boltinn framhjá.
fyrri leiknum i Kaupmannahöfn
með 17—14. Pankersen kemst þvi
áfram i keppninni — samtals á
41—30.
Dankersen byrjaði mjög vel i
leiknum. — Skoraði sex fyrstu
mörkin og var þá þegar greinilegt
að hverju stefndi. Dönsku leik-
mennirnir höfðu ekkert að gera i
hendurnar á islendingunum og
Þjóðverjunum hjá Dankersen.
Staðan i hálfleik var 11—3 og
lokatölur eins og áður segir 27—13
eða 14 marka munur. Það er ó-
venju mikill munur i Evrópu-
keppni.
Axel Axelsson var i miklum
ham i leiknum og skoraði sex
mörk — en hins vegar var Ólafur
H. Jónsson ekki mikið inn á eftir
að hin örugga forusta náðist.
Hann var lasinn, en forráðamenn
Dankersen þorðu þó ekki að
hætta á að nota Ólaf ekki i leikn-
um. Hann var sterkur i vörn að
venju — en reyndi litið við mark-
skotin meðan hann var inn á —
skoraði ekki i leiknum.
1 Sofiu sigraði Sportist Kremi-
kovtsi, Búlgariu, norska liðið
Fredensborg með 19—14 i æsi-
Charlton
var slakur
Bobby Charlton, sem verður 38
ára á þessu ári, dró fram knatt-
spyrnuskóna á ný um siðustu
helgi og lék þá með irska liðinu
Waterford, sem bezti vinur hans
Shy Brennan, en þeir léku lengi
saman hjá Manch. Ctd., stjórnar
nú.
Waterford sigraði þá St.
Patrick 3—2, en Charlton átti
slakan leik. ,,Það gengur svona
til, þegar úthaldið er ekki i lagi.
Sennilega er bezt fyrir mig að
leika ekki næsta leik liðsins”,
sagði Charlton eftir leikinn — en
hann lék sem kunnugt er 105
landsleiki fyrir England.
Waterford á þá að leika við
Cork Celtic, en með þvi liði leikur
George Best. Cork Celtic tapaði
um helgina fyrir Shelbourne 2—1
— og það var i annað skipti i þeim
þremur leikjum, sem Best hefur
leikið með liðinu, sem það tapar.
Hins vegar sáu 5000 áhorfendur
leikinn — og hjá Waterford fjór-
földuðust tekjurnar vegna
Charltons. Bobby var spurður aö
þvi eftir leikinn hvað hann segöi
um að leika gegn Best og svaraði.
,,Ég er kominn af þeim aldri að
hafa áhyggjur af móti hverjum ég
leik”.
12-0 fyrir
Tékkneska olympiuliðið i knatt-
spyrnu lék i gær æfingaleik i Hol-
landi — við liðið Hatten, áhuga-
mannalið. Tékkarnir sigruðu með
12—0 eftir 10—0 i hálfleik. Nehoda
var markhæstur með fimm mörk.
Evrópukeppnin
í körfubolta
Tveir leikir voru háðir i 8-liöa
úrslitum meistaraliða i Evrópu-
keppninni i körfubolta. 1 Sofiu i
Búlgariu sigraði Akademik Sofia
júgóslavneska liðið Zadar með
97—96 og i Tel Aviv i tsrael sigr-
aði Maccabi austurriska liðið
Sefra, Vinarborg, með 102—72.
Ston Bowles
ó sölulistann!
Nektarmynd, sem enski landsliðsmaðurinn
Stan Bowles fékk 50 sterlingspund fyrir, er á-
stæðan til þess, að leikmaðurinn er nú að yf-
irgefa Vesturbæjarlið Lundúnaborgar, QPR.
Bowles hefur farið fram á sölu og stjórn QPR
ákvað á þriðjudag að verða við ósk leik-
mannsins. Hann getur farið frá félaginu —
það er ef eitthvert félag vill kaupa pilt.
Eiginkona Bowles hefur yfirgefið hann og
tekið með sér börn þeirra þrjú aftur til Man-
chester. Þoldi ekki að sjá myndir af eigin-
manninum i blöðum — berum að ofan, en i
knattspyrnubuxum nteð allsberri sýningar-
stúlku, Jenny Clark.
Bowles hefur átt i erfiðleikum allt frá þvi
hann byrjaði að leika meö Manch. City.QPR
keypti liann fyrir stórfé frá Carlisle — og það
er ekki vafi á þvi, að hann er nú einn leiknasti
maöur enskrar knattspyrnu. Hann er ntark-
hæstur leikmanna QPR á þessu leiktimabili
með 8 ntörk. 1 september 1974 var Bowles á
sölulista hjá QPR, sent vildi fá 200 þús sterl-
ingspuiid fyrir leikmanninn. Enginn vildi
kaupa og 11 dögunt síðar var hann tekinn af
listanum. Talið er að QPR láti sér nú nægja
mun minni upphæð fyrir leikntanninn. Þetta
voru þó ekki óvæntustu fréttirnar úr ensku
knattspyrnunni á þriöjudag — miklu ovænt-
ara var, að Pat Crerand lét af störfum sent
aðstoðarfrantkvæmdastjóri Manch. L'td.
eftir 13 ár hjá félaginu — fyrst sent leikntað-
ur. Þá má geta þess, að Steve James hjá
Manch. Utd., er bvrjaður að leika nteð York
City.
Ágúst fékk að kœla sig í
fyrsta leiknum í Svíþjóð
Agúst Svavarsson, risinn i ÍR-
liðinu, og fyrrum landsliðsntaður,
sem nú stundar tæknináni i Svi-
þjóð, lék um siðustu helgi sinn
fyrsta leik nteð Malmberget.
Leikið var i Norður-Sviþjóð og
Lugi, liðið, sem Jón Hjaltalin
Magnússon leikur nteð, kont i
heimsókn.
Malmberget, sem er i neðsta
sæti i deildinni og hefur ekki hlot-
ið stig i 10 fyrstu umferðunum,
náði þarna i sitt fyrsta stig — en
Lugi skauzt upp i efsta sætið,
þrátt fyrir jafnteflið 26—26. Það
voru óvænt úrslit — allir bjuggust
við sigri Lugi og lengi vel leit út
fyrir Lugi-sigur. Staðan 15—10
fyrir Lugi i hálfleik, en siðan seig
Malmberget á og tókst að ná
jöfnu.
Ágúst Svavarsson byrjaði mjög
vel i leiknum — skoraði þrjú
'fyrstu mörk liðs sins. Þá setti
Lugi mann honum til höfuðs og
Ágúst skoraði aðeins eitt mark
eftir það — eða fjögur i leiknum.
En þessi gæzla á Ágústi var til
þess, að það losnaði um aðra leik-
menn liðsins — einkum Hans
Sandberg, sem skoraði átta mörk
i leiknum. En Ágúst þoldi ekki
gæzluna alltof vel. Honum var
visað af leikvelli i tvær minútur af
dómurum leiksins — en það fengu
einnig fjórir aðrir leikmenn
Malmberget að reyna, og þrir i
Lugi.
Jón Hjaltalin Magnússon hafði
sig ekki mjög i frammi i leiknum
með markskotin. Hann skoraði
þrjú mörk — en markhæstur
Lugimanna var Klas Ribendahl
með 10 mörk. Eero Rinne og
Ingvar Nilsson skoruðu fimm
mörk hvor. Göran Gustavsson
þrjú. Sandberg skoraði eins og
áður segir 8 mörk fyrir Malm-
berget, Henrik Karlsson 5, Ágúst
og Ulf Johansson fjögur hvor, Jan
Olofsson 2, Knut Sirkka 2 og Agne
Björk 1.
Eftir 11 umferðir i Alsvenskan
var Lugi efst með 15 stig — Heim
og Ystad voru með 14 stig, Ystad
sigraði Heim i umferðinni 25—18
— og Malmö og Frölunda, Gauta-
borg, voru með 13 stig. Malm-
berget leikur i kvöld við Drott á
útivelli i 12. umferð.
Grœnlendinga?
Meistarar Molenbeek
RWDM, sátu hjá I tuttugusti
umferðinni i 1. deildinn
belgisku og féllu niöur I 3ja sæt
ið þar sem Anderlecht og FC
Brugge unnu auöveldlega
heimaleiki sína — við tvö al
botnliöum deildarinnar.
Leikur FC Brugge við La
Louviere bauð ekki upp á mikið
— hraði leiksins litill og tækifæri
þvi fá. Segja má að leikmenn
Brugge hafi fullnýtt tækifæri
þau sem þeir fengu. La
Louviere lagðist i vörn strax i
byrjun og takmarkið að halda
jöfnu. Á 20. min. tókst Van der
Eyken að skora eftir sendingu
írá Lambert. Eftir klukku-
stundar leik sendi Verkist knött-
inn i eigiö mark eftir misheppn-
að úthlaup markmannsins,
Stassins. Lambert lék með að
nýju og stóð vel fyrir sinu.
Siðasta markið skoraði hann úr
vitaspyrnu á lokaminútu leiks-
ins.
Anderlecht átti ofur auðveld-
an leik gegn RC Malines, enda
vantaði fimm beztu leikmenn
liðsins. Áhangendur Anderlecht
semfjölmenntu á völlinn — um
30 þúsund — þurftu þó að biða
eftir marki þar til á 43.min. er
Tobby Rensenbrink skoraði gott
mark. 1 siöari hálfleik var um
hreina einstefnu að marki RC
spennandi leik. En það nægði búl-
garska liðinu ekki. Fredensborg
sigraði i heimaleik sinum með
sex marka mun, 20—14, og kemst
þvi áfram i keppninni á marka-
11 ára og hlaut 268
þúsund í getraunum!
Það hljóp hcldttr betur á snærið
hjá ellefu ára dreng i islenzku
getraununum unt siðustu helgi.
Hann reyndist einn ntcð ellefu
rétta á seðli sinunt og fyrir það
lilýtur hann 268 þúsund krónur.
Drengurinn — en nafn hans feng-
um við ckki gefið upp — á heima i
Breiðlt oltinu.
Þrettán seðlar voru með tiu
réttuni og fyrir það hljóta hand-
hafar þeirra 8.800 krónur hver.
Þátttaka hefur nokkuð minnkað i
getraununum eftir áramótin —
sama sagan og þar hefur átt sé_r
stað á undanförnum árum. Þátt-
taka eykst mjög siðustu vikurnar
fyrir jól, dregst svo saman aftur.
Keppnisskiðaskór eru of stífir og halla of mikið frant fyrir byrj-
endur. Það er erfitt að standa uppréttur. Gott er að hafa i huga
þegar skór eru valdir: 1. Að þeir séu þægilegir. 2. Að þeir styðji
Landskeppni við
Þetta er myndin, sem kostaði öll lætin — en
hún gerði sýningarstúlkunni Jenny Clark
ekkert. „Aldrei fyrr fengiö aðra eins auglýs-
ingu — og ekki heyrt minnzt á Bowles fyrr en
að starfinu kom”, sagði Itún.
Malines að ræða. Rensenbrink,
sem jafnframt var bezti maður
vallarins, bætti við tveimur
mörkum og van Binst skallaði
knöttinn i netið á 85. min. Loka-
tölur leiksins 4-0.
Lierse-Lokeren.
Leikurinn var ekki eins góður
og búizt hafði verið við, þetta
eru tvö af beztu sóknarliðum
Belgiu. Lokeren með Pólverj-
ann Lubanski i fararbroddi
skoraði tvö fyrstu mörk leiksins
en Postehmus breytti stöðunni i
2-1 stuttu eftir leikhléið.
Engelen gerði út um leikinn
þegar hann skoraði 3. mark
Lokeren á 85. min.
Standard-Waregem.
1 bæði liðin vantaði marga
fastamenn. Hjá Standard
Christian Piot markvörð —
landsliðsmarkvörðinn — en
hann var skorinn upp á hné i
siðustu viku og verður frá i allt
að 3—5 mánuði. Van Moer
meiddist á æfingu og Asgeir
Sigurvinsson meiddist illa i
ökkla i siðasta leik Standards
við Brugge. Miche Renquin var
einnig á sjúkralista eftir sama
leik. Fjórir landsliðsmenn frá
en engu að siður vann Standard
auðveldlega 4-1, enda lika mikið
um forföll i Waregemliðinu.
Fyrsta mark leiksins skoraði
Grun-Weiss nankersen ltafði
algjöra yfirburði gegn Kaup-
mannaltafnarliðinu FIF i siðari
leik liðanna i Evrópukeppni
hikarnieistara i Dankersen i gær.
Lokatölur i leiknunt 27—13 fyrir
Dankersen — en FIF sigraði i
Um áramótín kom út fimnita
serian af silfurmynt til minningar
um Oly mpiuleikana i Montreal og
sést hún á myndinni til hliðar.
Tveir 5 dollara peningar og tveir
Kldollara. Þeir eru nýlcga komn-
ir á Evrópumarkað.
tölunni 34—33. Staðan i hálfleik i
gær var 10—5 fyrir Búlgara, en
Norðmönnum tókst að halda
jöfnu i siðari hálfleik. Leikurinn
var einnig i keppni bikarhafa.
Ingentark Stenmark er frábær. Myndin var tekin, þegar hann sigraði i
svigkeppninni i Wengcn á dögunum i keppninni um heimsbikarinn — og
þar sést glæsistill hans vel. Hann hefur nú forustu i stigakeppninni.
Danska blaðið BT skýrði frá þvi á mánu-
dag, að Grænlendingar hefðu skorað á
Islendinga i landskeppni á skiðum. Ekki
tókst okkur að ná i forráðamenn Skiðasam-
bandsins i morgun til að fá staðfestingu á
fréttinni — en þess má geta, að blaðið segir
einnig, að Grænlendingar hafi farið fram á,
að danska meistaramótið i skiðaiþróttum
verði háð á Grænlandi i marz.
vel við mjólegginn og hæl. 3. Æskilegt er að hægt sé að beygja
fótinn óhindrað um ökklann. 4. Hafið mjúka púða á þeim stöðum
sem þrýstir að fætinum.
Waregem á 10. min. en Gorez
jafnaði á 43. min. eftir mikil
varnarmistök Waregemmanna.
Siðari hálfleikur var mun betur
leikinn en sá fyrri þrátt fyrir
erfiðar aðstæður. Labarbe skor-
aði annað mark Standards á 62.
min. úr vitaspyrnu og Billem
það 3. á 80.mín. með spyrnu af 25
metra færi. A siöustu mialeiks-
ins var dæmd aukaspyrna á
Waregen rétt utan vitateigs.
Paul Philippe — landsliðsmaður
Luxemborgar — skoraði beint
úr henni. Þá áttu Andre Gorez
og Garot báðir stangarskot i
leiknum.
Charleroi-CS Brugge.
Óvæntustu úrslitin um helgina
voru án efa sigur Sp. Charleroi
(Sebranna) gegn CS Brugge —
liðinu sem ekki hafði tapað i
siðustu niu leikjum sinum i röð.
CS Brugge þurfti fimm sinnum
að sækja boltann i netiö. I fyrri
hálfleik var staðan þegar orðin
3-0 með mörkum frá Þjóðverj-
anum Gebauer á 14. min,
Austurrikismanninum Bömher
á 35. min. og Chapel á 44. min.
Það var gullfallegur skalli.
Beyhedt minnkaði muninn i 3-1
á 62. min. en Gebauer svaraði á
sömu minútu og Henrotay skor-
aði fimmta mark Charleroi á 78.
min.
Þetta var án efa bezti leikur
Charleroi það sem af er
keppnistimabilinu. Austurrikis-
maðurinn BÖmher lék þarna
einhvern sinn bezta leik fyrr og
siðar. Gebauer er leikmaður,
sem ekki fer mikið fyrir en er
iðinn við að skora mörk. Hann
er markhæstur leikmanna
Charleroi með 10 mörk. Guðgeir
Leifsson gat ekki verið með
vegna tognunar i lærvöðva og
verður frá tvo eða þrjá leiki.
Charleroi þokast hægt upp á við
og er nú i fjórða neðsta sæti.
Fyrir botnliðin la Louviere og
Berchem var þetta erfið helgi —
bæði liðin töpuðu stórt og FC
Malines sigraði Beerschoth 1-0 á
heimavelli. Beringen gerði jafn-
tefli við FC Liege.
Kveðja,
Ásgeir Sigurvinsson.
PS. Er að skána i ökklanum og
vonast til að geta leikið næsta
sunnudag.
pjooverjtnn Gebauer hjá
Charleroi fagnar fyrra marki
sinu gegn CS Brugge.
Urslit um helgina.
F.C. Mallnes — Beerschot 1-0
A.S. Ostende — Berchem 4-1
Standard — Waregem 4-1
Antwerp — Beveren 0-0
Lokeren — Lierse 3-1
F.C. Bruges — La Louviére 3-0
Beringen — F.C. Liége 1-1
Anderlecht — R. Malines 4-0
S. Charleroi — C. Bruges 5-1
R.W.D.M. bye
Næstu leikir.
R.C. Malines - A.S. Ostende
F.C. Liége - F.C. Malines
Lierse - F.C. Bruges
Beveren - Lokeren
C.S. Bruges - Antwerp
Waregem - Charleroi
Berchem - Standard
Beerschot « RWDM (s. 20.00)
La Louviére - Beringen (s. 19.30)
Bye : Anderlecht
Dagblaðið. Föstudagur 23. janúar 1976.
Dagblaðið. Föstudagur 23. janúar 1976.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
— Axel Axelsson skoraði sex mörk, þegar Dankersen sigraði FIF í síðari leik
liðanna í Evrópukeppni bikarmeistara með 14 marka mun
Anderlecht 20 42 24 23
FC. Bruges 20 41 20 28
R.W.D.M. 19 36 19 26
Lokeren 19 38 22 24
Beveren 20 23 10 24
Lierse 20 38 27 23
Standard 20 28 23 23
Waregem 20 32 23 23
Antwerp 20 23 27 22
Beerschot 20 32 32 22
C. Bruges 20 29 28 21
F.C. Liége 19 33 34 20
A.S. Ostende 20 24 30 16
F.C. Malines 20 24 32 15
Beringen 20 15 34 14
S. Charleroi 20 24 32 13
La Louviére 20 16 32 13
Berchem 20 13 35 11
R. Malines 19 10 37 10
m