Dagblaðið - 23.01.1976, Blaðsíða 15
Págblaðið. Föstudagur 23. janúar 1976.
15
Smásöluverð
9
a
gosdrykkjum
lœkkar
um kr. 1.00
flaskan
Verð á gosdrykkjum lækkaði
frá og með 1. janúar sl. og hefur
verðlagsstjórinn nú auglýst hið
nýja smásöluverð á þessum vör-
um. Nemur verðlækkunin mjög
almennt kr. 1.00 á flösku. Sam-
kvæmthinni nýju verðskrá kostar
19 sentilitra flaska af Pepsi-cola
og Coca-cola nú kr. 29,00 i stað kr.
30.00 áður svo dæmi séu nefnd.
Astæða þessarar verðlækkunar
er lækkun vörugjaldsins sem
niður átti að falla um áramót,
samkvæmt yfirlýsingum þar um,
þegar það var lagt á i júlimánuði
sl. Sem kunnugt er af fréttum,
varð það siðan ofan á að lækka
það i áföngum og lækkaði úr 12% i
10% um áramótin. Tekur sú lækk-
un til hráefnis til gosdrykkja
framieiðslu, svo sem sykurs. Er
áðurgreind lækkun á smásölu-
verði til samræmis við hana.
Samkvæmt auglýsingunni er nú
framleidd 31 tegund af gos-
drykkjum og öli hérlendis. —BS—
HAFIN
Hangikjöt fyrir
heimferðina
Hópurinn, sem kom hér frá
Bandarikjunum til þess að taka
þátt i ferðamálanámskeiði,
gæðir sér á islenzku hangikjöti i
hádegisverðarboði hjá Hótel
Loftleiðum.
Dvölin hér stóð yfir i um viku.
Áður en heim var haldið,afhenti
borgarstjórinn i Reykjavik,
Birgir Isleifur Gunnarsson,
þeim prófskirteinin.
DB-mynd Bjarnleifur.
FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR SINFÓNÍUNN
AR NÆSTKOMANDI LAUGARDAG
Fyrstu fjölskylduhljómleikar
Sinfóniuhljómsveitar Islands á
þessu ári verða haldnir i Háskóla-
biói á laugardaginn klukkan tvö.
Þar verður á dagskránni efni af
léttara taginu — fyrir alla fjöl-
skylduna.
Þarna verður frumflutt verkið
„Tobbi túba”, sem Guðrún
Stephensen leikkona hefur þýtt.
Hún verður jafnframt sögumaður
i verkinu. Tobbi túba er litil saga
sem hefur notið mikilla vinsælda
erlendis að undanförnu.
Þá mun Manuela Wiesler leika
einleik á flautu i verki eftir
Mozart fluttur verður Rússneskur
dans eftir Strawinsky og fleira
verður á dagskránni. Kynnir á
þessum fjölskyldutónleikum
verður Atli Heimir Sveinsson.
Fjölskyldutónleikar Sinfóniu-
hljómsveitarinnar hafa notiö
mikilla vinsælda og góð aðsókn
hefur verið á tónleikana.
Hljómsveitin hefur átt gott sam-
starf við barnaskóla Reýkjavikur
um dreifingu á miðum. Sú leið
var þó ekki farin að þessu sinni,
heldur verða miðarnir til sölu viö
innganginn i Háskólabiói.
—AT—
VÉLSLEÐAVERTIÐIN
Um þetta leyti árs tekur vél-
sleðasalan venjulega fjörkipp
og menn taka að þeytast upp um
fjöll og firnindi á þessum
skemmtilegu tækjum. —
Undanfarin ár hafa þrir aðilar
verið einna stærstir i snjósleða-
sölunni, það er Þór hf., Gunnar
Asgeirsson og Globus.
Þór hf. flytur inn sleða af
gerðinni Evinrude. Þar fást
tvær gerðir, 30 og 40 hestafla.
Fyrrnefndi sleðinn er á einu
breiðu belti og er mikið seldur
til björgunarsveita og bænda.
Siðarnefnda gerðin er meiri
sportsleði og hefur meðal ann-
ars selzt vel hér innanbæjar.
Þór selur árgerð 1976 af
Evinrude en flogið hefur fyrir
að þetta sé siðasta árið sem
þessi gerð sé framleidd.
Blaðamaður Dagblaðsins iflugferðá snjósléða. DB-mynd Björgvin.
Innflytjandinn kannaðist þó
ekki við þann orðróm.
Fram á siðasta ár seldi
Gunnar Asgeirsson snjósleða af
gerðinni Johnson. Nú hefur
fyrirtækið þó hætt innflutningi á
þeirri gerð þar sem 1976 er
siðasta framleiðslu ár Johnson.
Fyrirtækið selur i staðinn nýja
kanadiska gerð, Skiroule. Þrjár
gerðir eru fluttar inn, 27, 30 og
45hestöfl. Hjá fyrirtækinu feng-
um við þær upplýsingar að
sleðarnir seldust allvel og væru
þeir uppseldir um þessar
mundir.
Globushf. hefur umboð fyrir
sænsku Snow Trick sleðana. Tvö
undanfarin ár hafa þeir þó ekki
verið fluttir inn þar sem John-
son og Evinrude sleðarnir hafa
verið seldir á hagstæðara verði.
Globus annast alla varahluta-
þjónustu fyrir Snow Trick.
— AT.
Sleðarnir eru góð farartæki fyrir tvo.
Reykir þú?
Undanfarna mánuði hefur Jón
Hj. Jónsson haldið fjöldann allan
af námskeiðum fyrir fólk sem
vill hætta að reykja. Arangur
þessara námskeiða hefur verið
mjög góður. Sem dæmi má taka
Húsavik en þar komu 130 manns á
námskeiðið og 106 voru hættir að
reykja i lok þess. I samtali við DB
sagði Jón að nú hefði hann beiðnir
frá 15 stöðum á landinu um
námskeiðahald af þessu tagi.
— nú fú Akureyringar
númskeið
Hann sagði okkur einnig að hann
hefði haft sérstök námskeið fyrir
unglinga.
Akureyringum gefst nú kostur
á að sækja slikt námskeið. Það
verður haldið dagana 25.-29.
janúar. Innritun fer fram i sima
22778 og er þátttakendum að
kostnaðarlausu. Námskeiðið er
opið öllum aldursflokkum.
— KP
Verður „deildarkeppni
í fiskveiðum lausnin?
##
A ráðstefnu, sem Rannsókna-
ráð rikisins efndi til um helgina
um þróun sjávarútvegs, komu
fram margar tillögur um
stjórnun og sóknartakmörkun
isl. fiskveiðiflotans. Ein þeirra
var þess efnis að stjórna veiöun-
um með þvi að reka þær sem
nokkurs konar deildarkeppni
eins og i knattspyrnunni.
Hugmyndin er þannig hugsuð
að stjórnvöld úthluti hóp báta
leyfum á ákveðin svæði en við
leyfisveitingarnar sé tekið tillit
til bátanna á sömu svæðum
næsta úthald á undan þannig að
þeir sem. hafi staðið sig bezt
rekstrarlega fái leyfi, aðrir
sitji hjá.
Eftir úthaldið yrði útkoman
svo aftur skoðuð og svona 20%
bátanna, sem verst komu út,
strikuð af skránni og önnur 20%
fengju að spreyta sig i 1. deild-
inni. Þarna er ekki einblint á
aflamagn heldur heildarafkom-
una. —GS
„Könnunarviðrœður" við
Breta ekkert nema yfirskin"
— segir Lúðvík Jósepsson
,,Ég tel að allt tal um
könnunarviðræður forsætisráð-
herra séu hafðar uppi eingöngu
til aö dylja hvað á seyöi er”
segir Lúðvik Jósepsson al-
þingismaður i greinargerð sem
hér fer á eftir um afstöðu hans á
sameiginlegum fundi utanrikis-
málanefndar og landhelgis-
nefndar Alþingis sem haldinn
var i gærmorgun.
Um boð Wilsons forsætisráð-
herra Bretlands til Geirs
Hallgrimssonar forsætisráð-
herra og viðbrögð af hálfu Is-
lendinga við þvi tjáði Lúðvik
Jósepsson fundinum efnislega
eftirfarandi:
1. Boð Wilsons til Geirs
Hallgrimssonar um viðræðu-
fund i London um landhelgis-
málið er byggt á þvi, eins og
skýrt kemur fram i orðsend-
ingu brezka forsætisráðherr-
ans, að Josef Luns hafi skýrt
Callaghan utanrikisráðherra
frá þvi að það væri hans per-
sónulega álit að ef Bretar
drægju freigátur sinar út
fyrir 200 milna mörkin þá
yrðu brezkir togarar ekki
fyrir aðkasti af hálfu islenzku
varöskipanna, eins og það er
orðað i nótu brezka forsætis-
ráðherrans.
Tilboð sem byggt er á slik-
um forsendum er ekki hægt
að samþykkja.
2. Ég tel aðenginn grundvöllursé
til fyrir nýjum samningum
við Breta um veiðiheimildir
hér við land, enda liggur
fyrir samkvæmt áliti
islenzkra og brezkra fiski-
fræðinga að draga verður
veruíega úr sókn i þá fiski-
stofna sem Bretar sækja
mest eftir að veiða. Þessa af-
stöðu tel ég að eigi að segja
Bretum undanbragðalaust og
að af þeim ástæðum séu
viðræður um fiskveiði-
heimildir þeirra tilgangs-
lausar.
3. Ég tel að allt tal um
könnunarviðræöur forsætis-
ráöherra séu hafðar uppi ein-
göngu til að dylja hvað á
seyði er.
Könnunarviðræðurnar eru
að sjálfsögðu hugsaðar sem
samningaviðræður um veiði-
heimildir þ.e.a.s. um fisk-
magn. samningstima og önn-
ur þau eínisatriði sem fylgja
slikum viðræðum.
Ég er þvi einnig á móti öllu
sem kallað er ..könnunarvið-
ræður” vegna þess að með
þeim er stefnt að samningum
sem hljóta að leiða til stór-
vaxandi erfiðleika i okkar
eigin fiskveiðum.
Athugasemd
I frétt blaðsins um of lágt raka-
stig i flugturninum á Keflavikur-
flugvelli á miðvikudag urðu þau
mistök að sagt var að vandamálið
væri mest á sumrin. Að sjálf-
sögðu er rakastigið lægst á vetr-
um, i köldu og þurru veðri.
Ennfremur skal bent á að útgeisl-
un um glugga turnsins veldur
ekki beinlinis lækkun á rakastigi.
Vegna útgeislunarinnar verður
hins vegar að hafa öflugri kynd-
ingu og hærra hitastig innan dyra
en almennt gerist en það veldur
aftur þvi að rakastig verður
lægra.
Rétt er að taka það fram að
fleiri slik mál hafa komið til kasta
heilbrigðisyfirvalda og að
ástandið er viðar slæmt til dæmis
i sumum stórum byggingum i
Reykjavik.
Eyjólfur Sæmundsson,
Heilbrigðiseftirliti rlkisins.