Dagblaðið - 23.01.1976, Síða 23
Pagblaöið. Föstudagur 23. janúar 1976.
23
Utvarp
Sjónvarp
Sjónvarp kl. 21.40 í kvöld:
VIÐFRÆG NJOSNAMYND
EFTIR HITCHCOCK
Þegar Bandaríkjamenn höföu
dregizt inn i siðari heims-
styrjöldina fór fljótlega að bera
meira á njósnamálum i kvik-
myndum sem gerðar voru. Stór
hluti þeirra 375 kvikmynda sem
gerðar voru i Hollywood á árun-
um 1942—44 og voru með
„ættjarðar-ástar-sjónarmið”
voru annaðhvort glæpamyndir
eða hrollvekja með „njósna-
ivafi”.
Biómyndin sem er á dagskrá
sjónvarpsins i kvöld kl. 21.40 er
ein af fyrstu „njósnamyndun-
um” sem kom fram á sjónar-
sviðið. Myndin nefnist
Skemmdarverk (Saboteur),
gerð árið 1942 af snillingnum
Alfred Hitchcock.
Aðalhlutverkin eru i höndum
Robert Cummings og Priscilla
Lane.
Cummings er ranglega
ákærður fyrir að hafa valdið
ikveikju á hergagnaverksmiðju,
þrátt fyrir að bezti vinur hans
hafi látið lifið i eldsvoðanum.
Cummings reynir að sanna
sakleysi sitt og kemur i leiðinni
upp um þýzkan skemmdar-
verkahring sem hefur aðsetur i
New York.
Mynd þessi hefur öðlazt nokk-
urn sess i sögu kvikmyndanna.
m.a. fyrirlokaatriðið sem gerist
I Frelsisstyttunni i New York.
1 kvikmyndahandbókinni okk-
ar fær myndin þrjár og hálfa
stjörnu sem þýðir að hún sé
mjög þokkaleg. Þýðandi
myndarinnar er Jón Thor
Haraldsson og sýningartimi er
55 minútur.
A.Bj.
Robert Cummings og Priscilla Lane I hlutverkum sínum i kvik-
myndinni Skemmdarverk.
r r
Sjónvarp kl. 20.35 Kastljós
- ER OFNOTKUN FÚKKALYFJA A ISLANDI?
- ALÞÝÐUBANKAMÁLIÐ
- FELLAHELLIR HEIMSÓTTUR
„Það verða þrjú mál á dag-
skrá i kvöld,” sagði Svala
Thorlacius, en hún sér um
Kastljós að þessu sinni.
Arni Gunnarsson fréttarit-
stjóri ætlar að taka fyrir Al-
þýðubankamálið og vonandi
veitir hann okkur einhverjar
nýjar upplýsingar i þvi máli.
Fjallað verður um það hvort
ofnotkun sé hér á landi á fúkka-
lyfjum, svo sem penisilini.
Sigurður B. Þorsteinsson, sér-
fræðingur I smitsjúkdómum,
hefur skrifað um þetta grein i
blaðið Hjartavernd. Hann mun
ræða þetta mál i sjónvarpssal i
kvöld og fáum við væntanlega
fróðlegar upplýsingar.
Fellahellir verður heimsóttur
en þar fer fram kennsla á veg-
um Námsflokka Reykjavikur.
Barnagæzla er þar á staðnum
og húsmæður hafa notfært sér
þessa þjónustu mikið. Spjallað
verður við nokkrar þeirra og lit-
ið inn i kennslustundir.
—K.P.—
Er ofnotkun
tslandi?
fúkkalyfja á
KATRIN
PÁLSDÓTTIR | -
ERNA V
ingólfsdött;
Útvarpið í kvöld kl. 22.15 Dvöl
Nýjasti bókmenntaverð-
launahafi
Norðurlandaróðs
Ólafur Jóhann Sigurðsson
„Olafur Jóhann Sigurðsson
stendur undir hvaða verðlaun-
um sem er þvi að fáir islenzkir
höfundar hafa sent frá sér vand-
aðri og betri skáldskap,” sagði
Gylfi Gröndal sem sér um bók-
menntaþáttinn Dvöl.
Gylfi Gröndal umsjónarmaður
bókmenntaþáttarins Vöku.
Þátturinn fjallar um Ólaf
Jóhann og verk hans en eins og
kunnugt er fékk Olafur
bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs i siðustu viku.
Spjallað verður við Ólaf sjálf-
an. Bregður hann upp svip-
myndum frá bernskudögum
sinum i Grafningi og segir frá
þvi hvernig það atvikaðist að
hann fékk gefna út sina fyrstu
bók. Það var i svörtustu krepp-
unni árið 1934. Einnig segir
hann frá þvi þegar listamanna-
laun hans voru minnkuð um
helming á árunum 1945—46 en
þá hafði hann einmitt sent frá
sér tvær af sinum beztu bókum.
Þetta kom sér eðlilega mjög illa
fyrir hánn.
Þorsteinn Gunnarsson leikari
les upp úr „Bréfi séra Böðvars”
sem er ein af beztu og skemmti-
legustu bókum Ólafs.
Fjallað verður um verk
skáldsins. Óskar Halldórsson
lektor fjallar um skáldsögur
Ólafur Jóhann Sigurösson fékk
bókmenntaverölaun Norður-
landaráös i fyrri viku. Ljósm.
J.H.P.
hans og Helgi J. Halldórsson
cand. mag. um ljóð hans og
smásögur.
Ólafur hefur skrifað tuttugu
bækur, fjórar barnabækur,
þekktust þeirra er Við Álfta-
vatn sem gefin hefur verið út
fjórum sinnum, en það er
einmitt fyrsta bók skáldsins. Þá
hefur hann skrifað átta skáld-
sögur, fimm smásagnasöfn og
þrjár ljóðabækur.
Gylfi sagði að þótt Ólafur lifði
nú á skáldskap sinum hefði
hann þurft að vinna ýmislegt
um dagana. Svo að eitthvað sé
nefnt vann hann i Bretavinnunni
á árunum, við heyskap, vega-
vinnu, hefur verið prófarkales-
ar og lesið yfir handrit og búið
þau undir prentun
EVl
^ Útvarp
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissa gan :
„Kreutzersónatan” eftir
Leo Tolstoj Sveinn Sigurðs-
son þýddi. Arni Blandon
Einarsson les sögulok (9).
15.00 Miðdegistónleikar: Frá
tónlistarhátíöinni I Björgvin
i fyrra Flytjendur
pianóleikararnir Marina
Horak og Hákon Austbö og
Sinfóniuhljómsveit útvarps-
ins i Hamborg. Stjórnandi:
Moshe Atzmon. a. Rómansa
og tilbrigði op. 51 eftir Igor
Stravinsky.
15.45. Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn.
17.10 Ctvarpssaga barnanna:
„Bróðir minn, ljóns-
hjarta”, eftir Astrid Lind-
' grenÞorleifur Hauksson les
þýðingu sina (13).
17.30 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál.Guðni Kol-
beinsson flytur þáttinn.
19.40 „Fáir vita ómála mein”
Helgi Þorláksson sagnfræð-
ingur og Sigriður Dúna
Kristmundsdóttir mann-
félagsfræðingur lesa kafla
úr bók Jóns Steffensens
prófessors. Menningu og
meinsemdum.
20.10 Sinfóniuhljómsveit ís-
lands leikur i útvarpssal.
Stjórnandi: Ragnar Björns-
son. Einleikari: Manuela
Wiesler. a. Serenata i þrem-
ur þáttum eftir Bohuslav
Martinu. b. Konsert fvrir
flautu og strengjasveit eftir
Jean Rivier. c. „Hamlet''
forleiksfantasia op. 67 eftir
Piotr Tsjaikovský.
21.50 „Vitaljóð” Hjörtur Páls-
son les nýjan ljóðaflokk eftir
Óskar Aðalstein.
21.15 Kórlög eftir Carl Nielsen
Park-drengjakórinn syng-
ur, Jörgen Bremholm
stjórnar.
21.30 Útvarpssagan: „Morg-
unn”, annar hluti Jóhanns
Kristófers eftir Romain
Rolland f þýðingu Þórarins
Björnssonar Anna Kristi'n
Arngrimsdóttir leikkona les
lokalestur (9).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Dvöl.
Þattur um bókmenntir.
Umsjón: Gylfi Gröndal.
22.50 Afangar Tónlistarþáttur
i umsjá Ásmundar Jónsson-
ar og Guðna Rúnars
Agnarssonar.
23.40 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
í
^Sjónvarp
i
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.35 Kastljós. Þáttur um inn-
lend málefni. Umsjónar-
maður Svala Thorlacius.
21.25 Dauðinn og stúlkan.
Fronsk verðlaunamynd,
byggð á þætti úr samnefnd-
um strokkvartett eftir Schu-
bert.
21.40 Skemmdarverk. (Sabo-
teur). Bandarisk biórhynd.
Leikstjóri er Alfred Hitch-
cock, en aðalhlutverk leika
Robert Cummings og Pri-
cilla Lane. Mvndin gerist i
Bandarikjunum. er siðari
heimsstyrjöldin stendur
sem hæst. Eldur kemur upp
i flugvélaverksmiðju. Einn
starfsmanna, Barry Kane,
er að ósekju grunaður um i-
kveikju. Hann hefur leit að
sökudólgnum. Myndin er
gerð árið 1942 og ber merki
sins tima. Hins vegar hefur
hún öðiast sess i sögu kvik-
myndanna fyrir lokaatriðið,
sem gerist i Frelsisstyttunni
i New York. Þýðandi Jón
Thor Haraldssom.
22.35 Dagskrárlok. ■
i