Dagblaðið - 10.02.1976, Síða 6
6
Dagblaðið. Þriðjudagur 10. febrúar 1976.
Hóruhós leyniþjón-
ustu Bretlands
Brezhnev
eignast
gullór
Leonid Brezhnev, leiðtogi sovezka
kommúnistaflokksins, eignaðist dýr-
indis armbandsúr bandarísks
diplómats á meðan Henry Kissing-
er, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, var í Moskvu nýlega ásamt
fylgdarliði til að ræða takmörkun
kjarnolrkuvopnabúnaðar.
Time, bandaríska fréttaritið
skýrir frá þessu. Segir ritið að
Brezhnev hafi fengið mikið dálæti á
dýru Omega-úri úr gulli sem Hel-
mut Sonnenfeldt, ráðgjafi í banda-
ríska utanríkisráðuneytinu, hafi
borið. Brezhnev bauð upp á skipti
og vildi láta ódýrt, sovézkt vasaúr í
staðinn.
Brezka leyniþjónusian kom á laggirn-
ar tveimur hóruhúsum í Belfast á
Norður-írlandi í því skyni að grípa þar
glóðvolga virðulega borgara sem síðan
væri hægt að láta afla upplýsinga, að
því er segir í grein í marzhefti tímarits-
ins Penthouse.
Segir í greininni að hóruhúsin hafi
verið vel búin duldum myndavélum og
hljóðnemum og hafi starfað í tvö ár.
Starfsemin lagðist niður eftir að írski
lýðveldisherinn IRA gerði árás á húsin.
Greinarhöfundur er Bretinn David
Lewis. Hann segir að hóruhúsin á
Norður-írlandi hafi ekki verið þau
fyrstu sem brezka leyniþjónustan hafi
starfrækt. Hún hafi oft áður beitt „kyn-
ferðislegum gildrum” til að afla ákveð-
inna upplýsinga.
Greinin ber yfirskriftina ,,í kynferðis-
þjónustu hennar hátignar” og er tekin
úr bókinni „Sexpionage” eftir Lewis,
sem gefin verður út í Bandaríkjunum í
maí og síðar á árinu í Bretlandi.
Að sögn Lewisar voru hóruhúsin tvc
stofnsett í júli 1970 á Antrim og Stran-
millis-götum í Belfast.
Það var hinn svokallaði „lastakóng-
ur” Lundúna, Bernie Silver, sem
brezku leyniþjónustumennirnir fengu
til að velja bæði hús og „þjónustustúlk-
ur”, segir í greininni. Segir ennfremur
að hórunum hafi verið greidd rífleg
laun, sem svarar 170 þúsund krónum
vikulega, og hafi þær að auki svarið
þagnareið. öllum var gert ljóst að þær
lentu umsvifalaust í fangelsi ef þær
segðu orð um upplifun sína á Norður-
frlandi.
Lewis segir að í marz 1971 hafi
starfsemin borið góðan ávöxt. Þá hafi
yfirvöldum tekizt að nafngreina bana-
menn þriggja brezkra hermanna.
„Það var áberandi maður í borgarlífi
Belfast sem nafngreindi meniiina eftir
að hann hafði verið kúgaður tii að veita
upplýsingar. Áður hafði hann verið
gestur í öðru hóruhúsanna,” segir í
greininni. Segir ennfremur, að um hafi
verið að ræða háttsettan stjórnmála-
mann.
Lewis segir í grein sinni að eftir að
írski lýðveldisherinn áttaði sig á því
hvað raunverulega var að gerast í hús-
unum tveimur, þa hafi verið i*aðizt
gegn þeim. .Það var 2. október 1972.
Eldflaugar í ísrael
Yigal Allon, varnarmálaráðherra ísraels, skoðar nýjar Lancing-eldflaugar
með kjarnaoddum, sem fiuttar hafa verið til ótilgreinds staðar í ísrael.
AUKIÐ GILDIKINA-
FARAR NIXONS
Fvrirhuguð ferð Nixons, fyrrum
Bandaríkjaforscta til Kína hefur orðið
mun þýðingarmeiri eftir að nýr for-
sætisráðhcrra hefur verið skipaður í
embætti þar.
Ford Bandaríkjaforscti er nú á erfiðu
kosningaferðalagi, þar sem hann á í
harðri baráttu við ríkisstjóra Kali-
forníu, Ronald Reagan, um útnefningu
sem forsetaefni. Er það álit manna í
þeim herbúðum, að ferð Nixons komi
sér illa fvrir Ford á margan hátt.
Nixon, sem varð að segja af sér eftir
Watcrgate-málið, sem frægt er orðið,
mun verða fyrsti Bandaríkjamaðurinn í
þýðingarmikilli stöðu sem hittir hinn
nýja forsætisráðherra og getur metið
aðstæður í Kína, er hann kemur þangað
þann 21. þcssa mánaðar.
Er talið, að hann muni hafa í fórum
sínum mikilvægar upplýsimgar um
ástandið í Kína, er hann kemur til baka
úr ferð sinni. Og ef Ford forseti telur sig
þurfa að fá að vita um gang mála þar,
þá er ferð Nixons ekki lengur eins
„túristaleg” eins og Ford hefur látið orð
þar um falla.
Bandaríkin hafa ekki haft neinn
sendimann af hæstu gráðu í Peking
síðan George Bush scndiráðsfulltrúi var
kallaður þaðan til þess að taka við
embætti æðsta yfirmanns CIA-
leyniþjónustunnar.
Tilkynningin um að öryggismála-
ráðherrann, Hua-Kuo-Feng hcfði tekið
við embætti forsætisráðherra í Kína að
Chou-en Lai látnum birtist í fyrradag,
er Ford vár á kosningaferðalagi eins og
áður segir.
Forsetinn hefur ekki fengizt til þess
að andmæla eða fagna ferðalagi Nixons,
en hefur endurtekið það sem Hvíta
húsið hefur viljað láta fara frá sér um
þetta efni, „að Nixon sé einungis að
ferðast á eigin vegum”.
Síðan tók sovézki leiðtoginn úrið
þrátt fyrir mótmæli Sonnenfeldts
sem sagði úrið gjöf frá tengdamóður
sinni. Brezhnev bauðst til að skila
úrinu aftur, segir Time, „þegar við
erum búnir að ná endanlegu SALT-
samkomulagi,” sagði Brezhnev.
Bretar
leysa
kynlífs-
vandann
Brezkir læknar láta fólki með
sérstök kynferðisleg vandamál í té
klámrit, að því er segir í nýjasta
hefti brezka læknaritsins.
Að sögn eins frægasta læknis
Breta, hafa ríkisreknir spítalar
komið sér upp góðum bókakosti á
þessu sviði, „sem .getulausar konur
og kynferðislega brjálaðir menn geta
svalað fýsnum sínum við að lcsa.”
Meginhluti bókakostsins kemur
frá löreglunni eftir að hún hefur
gert ritin upptæk í ólöglegum verzl-
unum. „Fólk sem annars hefði þurft
að borga fyrir þessi dónalegu rit
getur nú fengið að blaða í þeim að
vild ókeypis,” segir ennfremur í
læknaritinu.
í Sapporo í Japan er árlega haldin mikil sýning á hlutum og mannvirkjum scm byggð eru úr snjó. Þessi mynd er frá
sýningunni í ár. þar sem bvggð hefur verið þessi eftirlíking Flvíta hússins í Washington úr snjó. Er það í tilefni 200 ára
afmælis Bandaríkjanna.
Bandarísku leikkonunni Katharine Hepburn er bezt lýst með orðinu á
auglýsingaskiltinu fyrir ofan hana, þar sem hún gengur inn í Broadhurs-
lcikhúsið í New York í fyrri viku. Hún leikur þar í nýju leikriti Enids Bagnolds,
A Matter Of Gravity.
Kissinger og Nixon
sviku málstað Kúrda
— segir New York Times
Bandaríska utanríkisráðunevtið hefur
vísað á bug sem „samsafni rangfærslna
og ósanninda” grein í stórblaðinu New
York Timcs, þar scm Ford forscti og
Kissingcr utanríkisráðherra eru sakaðir
um að hafa svikið kúrdanska þjóðar-
brotið í írak.
Hiifundur grcinarinnar cr William
Safire, fyrrum ra*ðuskrifari Nixons
fyrrum forscta. Hann segir þar að Ford
hafi, samkvæmt ráðlcggingum Kissing-
ers, látið sem vind um eyrun þjóta
hjálparbeiðni frá Mustafa Barzani,
leiðtuga Kúrda, eftir að íranskeisari
hætti stuðbningi sínum við sjálfstæðis-
hreyfingu Kúrda.
Safire segir grrein sína byggða á
upplýsingum, sem séu í leynilegri
skýrslu rannsóknarnefndar fulltrúa-
deildar þingsins um starfsemi banda-
rískra lcyniþjónusta.
Hann scgir að Ford eigi að svipta
Kissinger embætti fyrir hlutdeild hans í
„sölu Kúrdanna samkvæmt skipum
keisarans í fran.”