Dagblaðið - 13.04.1976, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1976.
Himneskur
fríður
Miklar og vandlega skipulagðar hópgöngur stuðningsmanna Hua
Kuo-feng, núverandi forsætisráðherra í Kina, hafa verið farnar að
undanförnu í Pcking. Eiga þær að vega upp á móti mótmælum um
100 manna á Torgi hins himneska friðar snemma í síðustu viku,
sem urðu til þess að Teng aðstoðarforsætisráðherra var vikið frá.
Myndin er frá þeim atburðum.
Sádi-arabísk herflugvél
lenti óvœnt í Tel Aviv
— með bilaðan
Herflugvél frá Sádi Arabíu,
sem flaug inn í loflhelgi Israel
með bilaðan áltavita og var ncydd
til að lenda f Tel Aviv, mun fá að
fara þaðan I dag.
Flugvélin, sem er af gerðinni
Herkúles, var á venjulegu flugi
frá Damaskus til Riyahd með 25
hermenn, sex almenna borgara og
fimm manna áhöfn, þar af þrjá
Bandaríkjamenn.
tsraelsmenn segja, að þeir hafi
komið að vélinni nálægt landa-
áttavita
mærum Líbanon, þar sem hana
hafði borið rúmlega 240 km af
leið sinni, sem upphaflega lá yfir
Jórdaníu.
Tvær herþotur úr flugher tsra-
el neyddu flutningavélina til þess
að lend? á Ben Gurion flugvellin-
urn við in Aviv, en síðar var hún
flutt til nærliggjandi herflug-
vallar. Öryggisverðir, sem yfir-
heyrðu farþega og áhöfn vélar-
innar, sögðu, að svo virtist sem
hér hefði bara verið um mistök að
ræða.
Bandaríkjamennirnir, sem
látnir voru sendiráðsfulltrúum í
té, sögðu við yfirheyrslur, að þeir
væru starfsmenn Lockheed verk-
smiðjanna, sem framleiða vélar
þessar og hefðu þeir verið að
þjálfa flugmennina. Kornið hefði í
ljós, að áttavitinn væri bilaður.
Að sögn sjónarvotta, voru
Arabarnir taugaóstyrkir í fyrstu
en hresstust von bráðar við, er
þeim voru bornar kökur og
appelsín og boðin gisting í her-
búðumvið flugvöllinn, þar til þeir
fara í dag.
MARÍA PSRON FYRIR HCRRÉTT
VÍGNA MIKILLA FJÁRSVIKA
Að sögn ráðamanna innan
argentínska hersins mun
María Peron, sem rekin var frá
vóidurn fyrir skömmu og nú er
stofufangelsi, verða leidd fyrir
herrétt, sökuð um fjárhagslega
glæpi gegn ríkinu.
Þó enn hafi ekki verið gefin
út opinber tilkynning um
réttarhöldin, er álitið, að
ákvörðun um þau hafi verið
tekin, eftir yfirheyrslur yfir
forsetanum fyrrverandi.
Aðalákæran gegn henni er
talin vera sú, að hún
undirritaði tékka að upphæð
sem svarar um 90 milljónir
króna af almannafé til þess að
greiða eigin skuldir. Hafði
Peron raunar verið sökuð um
þetta athæfi fyrir byltinguna af
stjórnarandstöðunni, en
sýknuð af hæstaréttardómara,
sem sagði, að hún hefði gert
það vegna mistaka i skrif-
stofubákninu.
Kissinger œtlaði að hœtta '73:
Hafði látið
flytja allt
sitt í burtu
— úr Hvíta húsinu, segja
Bernstein og Woodward
Að sögn bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins var Kiss-
inger utanríkisráðherra
kominn á fremsta hlunn með að
segja af sér embætti árið 1973
og hafði hann látið flytja alla
persónulega muni og skjöl úr
Hvíta húsinu.
Talsmaður ráðuneytisins,
John Trattner, neitaði því hins
vegar, að Kissinger hefði látið
flytja ríkisleyndarmál í hús
Nelsons varaforseta i New
York ríki.
Ákæran á hendur Kissinger,
þess efnis, að hann hefði látið
fjarlægja ríkisleyndarmál úr
Hvíta húsinu, birtist fyrst í ný-
útkominni bók þeirra Bob
Woodwards og Karls Bernstein,
sem hlotið hefur nafnið
„Síðustu dagarnir”.
Segir í bókinni, að Kissinger
hefði verið áhvggjufullur um
öryggi skjalanna í Hvíta hús-
inu, er leið að lokum veru
Nixons forseta þar.
Segja ráðamenn, að Kissing-
er, sem var sérstakur ráðunaut-
ur Nixons um öryggismál, er
hér var komið sögu, hafi nýlok-
ið samningaumleitunum um
frið í Vietnam, er hann íhugaði
að segja af sér.
Frakkland:
Endurtekning
atburðanna
í maí 1968?
— stúdentar og kennarar hóta verkfalli
Stúdentaóeirðir í Frakklandi,
sem ólgað hafa undir yfirborðinu
í margar vikur, síðan ríkisstjórn-
in lagði fram nýjar tillögur um
menntamál, tóku á sig nýja
mynd, er stúdentar og margir
kennarar við háskóla um allt
landið hafa hótað verkalli.
Enn er ekki vitað, hversu
margir hinna 800 þúsund stúd-
enta muni hlýða kalli stúdenta-
samtakanna, sem eru vinstri sinn-
uð, en vaxandi óánægja meðal
námsmanna hefur valdið ríkis-
stjórninni miklum áhyggjum.
Þótt óánægja með nýjar tillög-
ur rikisstjórnarinnar um endur-
bætur á fræðslukerfinu hafi verið
orsök uppþota í fyrstu, er það nú
viðurkennt meðal allra, sem að
standa, að ótti námsmanna við
vaxandi atvinnuleysi er megin-
ástæðan. Öeirðir hafa enn verið á
„friðsömu” stigi, þar sem mót-
mælahópar stúdenta og lögreglu-
menn hafa aðeins nokkrum
sinnum mætzt í París og nokkrum
öðrum stórborgum í Frakklandi.
Margir landsmanna eru nú ótta-
slegnir yfir þróun mála, því enn
eru þeim í fersku minni stúdenta-
óeirðirnar í maí 1968, er lömuðu
allt athafnalíf í landinu og urðu
De Gaulle næstum því að falli.
„Meyjarfœðing" brezka aðalsins:
„HANN ER RÉTTBORINN AÐALSMAÐUR"
Níu brezkir aðalsmenn
mæltu með þvi í gær, að mið-
aldra maður, en móðir hans var
„tæknilega” ennþá óspjölluð
mey þegar hann fæddist, skyldi
staðfestur sem réttborinn
aðalsmaður og fengi að nalda
umdeildum titli sínum sem slík-
ur.
Það var forréttindanefnd
lávarðadeildar þingsins, sem
komsl að þessari niðurstöðu
eftir sex vikna umþóttunar-
tima. Upphaf matsins er raktð
allt aftur til byrjunar þriðja
áratugs aldarinnar, þegar
mikið skilnaðarhneyksli kom
upp meðul brezka aðalsins.
Lávarðadeildin tnun nú öll
koma saman og taka ákvörðun i
málinu. Sú ákvörðun verður
siðan borin undir Elísabetu
drottningu.
Maðurinn, sem um ræðir —
sagður fæddur af „tæknilega”
óspjallaðri mey — er 54 ára
gamall leikhússtjóri, Geoffrey
Russell. Keppinautur hans um
að erfa nafnbótina er hálf-
bróðir hans, John Russell, sem
er 25 ára. Hálfbræðurnir höfðu
aldrei hitzt fyrr en við yfir-
heyrslur hjá néfndinni.
Geoffrey Russell er nú veru-
lega nærri þvi að vera liiglega
lalinn fjórði baróninn af Ampt-
hill. Sigur í málinu veitir þó
engin forréttindi önnur en þau
að fá að kalla sig Ampthill lá-
varð og taka sæti í lávarðadeild
þingsins sem slíkur.
Það var árið 1922 sem
„Russell-barns” skilnaðarmálið
var stöðugt á forsíðum brezku
blaðanna.
Þriðji baróninn af Ampthill
sótti þá um skilnað við konu
sína, hina fögru Christabel, á
þeirri forsendu að hjónalíf
þeirra væri ekki með öllu eðli-
legt og að Christabel væri með
barni annars manns.
Chrislabel sór af sér hórdóm,
en viðurkenndi að samlíf þeirra
hjónanna væri öfullkomið. Hún
greindi frá því, að sitthvað
hefði þó gerzt á milli sín og
eiginmanns sins og að afleið-
ingin hefði orðið sú, að barnið
kom undir.
Áður en barnið fæddist úr-
skurðuðu læknar, að hún væri
enn óspjölluð, þar sem
meyjarhaftið hefði aldrei verið
slitið til fullnustu.
Eftir nokkrar yfirheyrslur
komst kviðdómur að þeirri
niðurstöðu, að Geoffrey væri
ekki sonur eiginmannsins og
skyldi þar af leiðandi ekki erfa
nafnbótina. Nokkrum árum
síðar, 1926. komst lávarðadeild
þingsins hins vegar að annarri
ntðurstöðu og Geoffrey var úr-
skurðaður fjórði baróninn af
Amptfiill.
Það var svo nýlega að hálf-
bróðirinn John Russell gerði
kröfu til nafnbótarinnar.'
Fyrst Maríu mev tókst það, — þvi
þá ekki mér? Hin fagra Christa-
bel og sonurinn Geoffre.v 1926.