Dagblaðið - 13.04.1976, Síða 12
12
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1976.
róttir
íþróttir
Lincoln hefur
skorað
100 mörk
Lincoln City sigraði Stockport 3-0 í
4. dcildinni cnsku í gær og það á
útivelli.Þar mcð varð Lincoln fyrst liða
til að skora 100 mörk á leiktimabilinu
— og það er í fyrsta skipti frá
Ieiktímabilinu 1966-1967 sem lið
skorar 100 mörk. Þá skoraði QPR 103
mörk, þegar liðið sigraði í 3. deild.
Vann tvöfalt það vor — sigraði einnig í
deildabikarnum. Lincoln hefur þegar
unnið sér rétt í 3. dcild næsta
kcppnistímahil — og 1952 skoraði lið
félagsins 123 mörk. Lincoln City hefur
leikið hér á landi — 1948.
Southampton heldur í vonina að ná í
sæti í 1. deild næsta keppnistímabil. í
gær léku Dýrlingarnir á heimavelli við
Chariton og unnu 3-2. Enski lands-
liðsmaðurinn Mike Channon skoraði
tvö af mörkum Southampion, en liðið
er sem kunnugt er komið í úrslit bikar-
keppninnar. Jim McCalliog skoraði 3ja
mark iiðsins. Staða efstu liða í 2. deild
Sunderland 38 21 8 9 59-33 50
Bristol City 39 18 14 7 57-33 50
Boiton 37 17 12 8 51-33 46
WBA 38 17 12 9 44-32 46
Southampton 38 19 7 12 72-46 45
Tékkar halda
sínu striki
Svíar liöfðu ekkert að gera i
hendurnar á Tékkum á HM í íshokkey
í Katowice í gær. Tckkar sigruðu með
3-1 og halda öruggri forustu í
keppninni. Mesta athygli vakti, að
Austur-Þýzkaland sigraði Bandarikin
2-1 — en áður hafði Pólland sigrað
Austur-Þýzkaland 6-4. Sovétríkin
sigruðu Finna 8-1 og Vestur-
Þjóðverjar unnu Pólverja 5-3. Staðan í mótinu er nú þannig:
Tékkar 3 3 0 0 25-1 6
Sovét 3 2 0 1 16-7 4
Pólland 4 2 0 2 15-25 4
USA 3 1 1 1 6-5 3
Finnland 3 1 1 1 9-13 3
Svíþjóð 3 1 0 2 5-6 2
V.-Þýzkal. 3 1 0 2 8-12 2
A.-Þýzkal. 4 1 0 3 6-21 2
Innanfélagsmót Víkings á skíðum
verður haldið dagana 15.4-19.4 og
verður keppt í svigi og stórsvigi í öllum
aldursflokkum. Eins verður skíðaskáli
félagsins opinn um páskana.
Skikir aftur verðkiunum
og hœttir þótttöku á NM
— Ólga meðal júdómanna vegna vals keppenda ó Norðurlandamótið
„Formaður Júdósambandsins
vildi ekki taka við bikarnum
aftur eftir landsliðsæfinguna í
Armannshúsinu,” sagði Gunnar
Guðmundsson Íslandsmeistari í
Iéttmillivigt, þegar DB ræddi við
hann í Njarðvíkunum í gærkvöld.
, Að velja Halldór
Guðbjörnsson, sem varð þriðji á
nýafstöðnu islandsmóti sem
keppanda númcr eitt á
Norðurlandamótið er sama og
svipta mig titlinum, en einhver
tækninefnd eða stjórnin hefur
verið að pukrast með þetta mál og
ákvað að senda Halldór af því að
hann hefur öðlast „svarta beltið”
eins og það eitt nægði honum til
Gunnar Guðmundsson
—aðeins minjagripur um
óíþróttamannslegar hvatir
stjórnar júdósambandsins.
Ljósmynd emm.
árangurs eftir að hafa tapað bæði
fyrir mér og Ómari Sigurðssyni.”
Gunnar var mjög gramur yfir
ákvörðun júdósambandsins, en
sagði að liann og Ómar hefðu átt
von á þessu. Stjórn sambandsins
ætti erfitt með að sætta sig við að
Halldór, goðið þeirra, væri fallið
af stalh og tilgangurinn með að
ota honum í efsta sætið væri sá,
að þrjú efstu sætin í NM gæfu
von um ferð á næstu
Olympíuleika, þótt það hefði
reyndar ekki komið skýrt fram.
„Þessi verðlaunapeningur,” sagði
Gunnar og lyfti gullinu, „er
staðfesting á meistaratitlinum,
sem einhver dularfull öfl hafa
tekið af mér, en núna er hann
aðeins minjapeningur um
óiþróttamannsiegar hvatir
júdósambandsins. Eg hef ekki
Naumur sigur Por-
tizan á Akranesi
Partizan Bjelovar lék sinn
þriðja og síðasta leik í Islands-
hcimsókninni í gærkvöld og
mætti þá gestgjöfum sínum —
Val á Akranesi. Partizan sigraði
Val, en naumt var það 21—20
eftir að Valsmenn höfðu haft
góða forystu i hálfleik 13—10.
Ahorfendur á Akranesi kunnu
greinilega vel að meta framtak
Valsmanna að hafa leikinn á
Skaganum. Um 600 manns sáu
leikinn og var stemmning góð.
Jón Karlsson kom einna bezt út
hjá Val — en eins var Bjarni
drjúgur i horninu og skoraði
skemmtileg mörk. Hjá Partizan
bar að venju mest á fyrirliða
þeirra — Horvat.
Ýmsir leikmanna Vals hafa nú
leikið tvo leiki á tveimur dögum
og sá þriðji bætist við í kvöld,
þegar liðið mætir FH í úrslitaleik
bikarsins. Hvort það hefur áhrif á
leik liðsins er ekki gott að segja
um — en óneitanlega hefur þetta
verió strangt hjá leikmönnum
Vals undanfarna daga.
Stórkallar íhringnum
Ken Norton, sem er fyrsti
áskorandi Muhammad Ali um
heimsmeistaratitilinn í þunga-
vigt í hnefaleikum — Joc Frazier
annar og George Foreman þriðji
— mun keppa við landa sinn Ron
Stander 30. apríl, Keppnin verður
12 lotur í Landover í Maryland,
en á sama móti mun Áli verja titil
sinn gegn Jimmy Young.
Ef Aii sigrar í þeim leik mun
hann keppa við Evrópumeistar-
ann Richard Dunn í Munchen 25.
maí — en siðan mun hann snúa
sér að Norton annað hvort í
september eða október.
Ken Norton hefur keppt í 35
leikjum og aðeins tapað þrisvar.
George Foreman rotaði hann —
en Norton sigraði Ali og kjálka-
braut hann í keppni í Kaliforníu,
en sex mánuðum síðar sigraði Ali
Norton örugglega. Stander, sem
er þritugur, hefur keppt 38 sinn-
um. Unnið 28 leiki, en tapað átta.
Tveir jafnir. Hann keppti við
Frazier um heimsmeistaratitilinn
1972 og tapaði í fimmtu lotu.
Ný Ijósatafla i Njarðvik
í seinni leiknum við
Portúgalina var tekin í notkun ný
klukka — eða öllu heldur
ljósatafla í íþróttahúsinu í
Njarðvik sem sýnir bæði tinia og
marka- eða stigatölu og fagna því
áreiðanlega margir, ekki sízt
þeir sem annazt hafa það verk-að
..handsetja” stöðuna i körfuknatt-
leikjum og máttu stundum hafa
sig alla við að vera nægilega
handfljótir að stinga tölu-
stöfunum í rammana.
Reyndar hefur orðið nokkur
bið á þvi að ljósataflan kæmi frá
Iðntækni og það hefði verið vel
þegið af hinum áhugasömu körfu-
knattleiksunnendum þar syðra að
fá hana fyrr en í seinasta leik
vetrarins — en hún er þá alla
vega komin á sinn stað og bíður
haustsins og vonandi margra
skgmmtilegra leikja á komandi
árum. emm
sagt mitt seinasta orð í þessum
málum og ætla að reyna að ná
fram rétti mínum eftir öðrum
leiðum.”
Þá hefur Gunnar hætt við þátt-
töku á Norðurlandamótinu. -emm.
Hlýtur FH
einnig
bikarinn?
- Úrslitaleikimir i
Laugardalshöll i kvöld
íslandsmcistarar og núverandi
bikarmeistarar FH verða í eldlín-
unni í kvöld, þegar þeir mæta Val
í úrslitaleik bikarkeppni HSÍ. FH
hefur þegar tryggt sér rétt í
Evrópukeppni meistaraliða en
Hafnfirðingarnir eru staðráðnir í
að halda titlinum og þannig vinna
tvöfalt — verða íslands-og bikar-
meistarar sama árið.
Valsmenn eru engu síður stað-
ráðnir i að hreppa titilinn og
þannig hefna harma sinna á FH
en svo virtist sem Valur stefndi
örugglega í Íslandsmeistaratitil-
inn framan af íslandsmótinu en
góður endasprettur FH og eins
slæm töp Valsmanna komu í veg
fyrir það.
Það verður því ekkert gefið
eftir í kvöld — bæði liðin ætla sér
sigur.
A undan leik FH og Vals leika
Armann og Fram til úrslita í
kvennaflokki og það cr sama uppi
á teningnum hjá Fram — liðið
stefnir í tvöfalt og óneitaniega
verður að telja Fram líklegri
sigurvegara. Kvennaleikurinn
verður fyrri leikur kvöldsins og
hefst hann kl. 20.
Stefna tekin i UEFA-
úrslit i Ungverjalandi
— Unglingalandsliðið i knattspyrnu leikur við Luxemborg ó morgun
Flestir gera ráð fyrir að við
höfum þegar tryggt okkur rétt í
úrslitakeppnina í Ungverjalandi í
sumar, þar sem við unnum leik-
inn í Luxemburg, 1—0, en satt
bezt sagt eru ísland og Luxem-
burg með ákaflega svipuð lið og
því getur allt gerzt. En við erum
ákveðnir í að komast áfram,
sögðu þeir Theódór Guðmunds-
son og Lárus Loftsson, þjálfarar
íslenzka unglingalandsliðsins,
sem á morgun leikur fyrsta lands-
leik íslands á árinu, síðari
lcikinn gegn Luxemburg í
Evrópukeppni unglingalandsliða.
tsland á mjög góða möguleika á
að komast í úrslit Evrópukeppn-
innar í þriðja sinn og þegar hefur
verið gengið frá vali á liðinu.
Liðið sem stillt er upp er það
sama og í leiknum i Luxemburg.
1. Jón Þorbjörnsson, Þrótti
2. Guðmundur Kjartansson. Val
3. Börkur Ingvarsson, KR
4. Ágúst Karlsson. Fylki
5. Róbert Agnarsson. Viking
f.vrirliði
6. Huraldur Haraldsson, Viking
7. Albert Guðmunsdsson, Val
8. Valdimar Valdimarsson, UBK
9. Halldór Arason, Þrótti
10. Pétur Ormslev, Fram
11. Þorvaldur Þorvaldsson, Þrótti
Varamenn verða Halldór Páls-
son KR. Sigurður Björgvinsson
ÍBK, Pétur Pétursson IA, Þorgils
Arcson Viking og Stefán Stefáns-
son Þrótti.
Eins og kunnugt er hefur lands-
liðsþjálfarinn Tony Knapp einnig
tekið sæti i ungiingalandsliðs-
nefndinni. Það kom frant hjá
Tonv að hann vildi tengja lands-
liðið og unglingalandsiiðið meir
saman en verið hefur. Þá þannig,
að unglingarnir tækju þátt í
æfingum með landsliðjnu og
kynntust leikskipulagi þess og
eins landsliðsmönnunum sjálfum.
Jú, unglingalandsliðspiltarnir
kæmu til með að leika með
tslandi — að minnsta kosti
einhverjir þeirra.
Eins hefur skapazt kjörið tæki-
færi fvrir piltalið 14—16 ára —
því hér verður Norðurlandamót
pilta haldið í sumar og tsland
mun frantvegis taka þátt í þessum
Norðurlandamótum. h.halls