Dagblaðið - 03.05.1976, Side 15
DA(iBLAi)li). MANUMCUR 3. MAÍ 1976.
15
íarki Vals og boltinn var á leið yfir þegar Bergsveinn Alfonsson
þarna f.vlgist hann spenntur með. DB-mynd Bjarnleifur.
Framarar
ril hindrun
2-1 og þrír leikmenn Fram bókaðir
Guðmundur Þorbjörnsson, hinn
efnilegi sóknarmaður Vals
skoraði bæði mörk liðs síns, hið
fyrra með fallegum skalla, hið
síðara með góðu skoti af stuttu
færi. Markheppinn, drengurinn
Guðmundur skoraði fyrra mark
;itt á 20. mínútu. — Kristinn
ijörnsson gaf góðan bolta fyrir
narkið og Guðmundur skallaði
ram hjá Þorbergi í marki Fram.
rram náði að jafna fyrir hálfleik
— Bergsveinn Alfonsson varði á
ínu — en boltinn var á leið yfir.
Vlarteinn tók vítið — reyndar
laröi Sigurður fyrri spyrnu hans
— en hafði hreyft sig áður.
Vlarteini urðu ekki á nein mistök
síðara skiptið.
Það kom strax í ljós í síðari
íálfleik hvort liðið var sterkara
— Valur yfirspilaði Fram og
aunar má segja að Fram hafi
iloppið vel með aðeins eitt tap-
nark áður en yfir lauk. Eins og
iður sagði skoraði Guðmundur
porbjörnsson síðara mark Vals
neð góðu skoti af stuttu færi sem
Þorbergur átti ekki möguleika á
tð verja. Fram skapaði sér ekkert
jmtalsvert tækifæri það sem eftir
/ar leiksins. Hins vegar átti Valur
jgæt tækifæri er ekki nýttust.
Staðan í mótinu er nú:
Valur 4 3 0 1 10-2 8
Fram 4 2 11 9-4 6
Víkingur 3 12 0 7-2 5
Þróttur 3 10 2 2-6 2
Armann 3 10 1 2-10 2
KR 3 0 12 1-61
Næsti leikur verður milli KR og
Ármanns í kvöld og hefst hann kl.
19- h. halls.
Okkarbeztí
leíkur í vor
— sagði Mike Ferguson, þjólfari
Skagamanna, um leik í A og Hauka
ó Skaganum í Litlu bikarkeppninni
„Ég er mjög ánægður með leik
minna manna gegn Haukum. Við
náðum okkar bezta leik það sem
af er vorinu,” sagði Mike Fergu
son, þjálfari Skagamanna, eftir
leik íA og Hauka í Litlu bikar-
keppninni á laugardag þar sem
Skagamenn unnu 3-0 og hlutu
sinn fyrsta sigur í keppninni. Þar
með bundu þeir enda á sigur-
göngu 2. deildarliðs Hauka,
sem áður hafði sigrað bikarmeist-
ara ÍBK og eins sigurvegara 2.
deildar frá síðasta sumri —UBK.
Sigur Skagamanna var aldrei í
hættu og þrátt fyrir góða spretti
Hauka í byrjun þá mættu þeir
einfaldlega ofurjörlum sínum.
Matthías Hallgrímsson skoraði
eina mark fyrri hálfleiks og í
þeim síðari bætti Matthías við
öðru marki og hið þriðja skoraði
Teitur Þórðarson. Enn eru Skaga-
menn ekki með alla sína menn
frá í fyrra, er liðið var svo sigur-
sælt. Þeir Jón Alfreðsson og Jó-
hannes Guðjónsson voru ekki
með og eins lék Arni Sveinsson
ekki.
„Mér lízt vel á sumarið,” sagði
Ferguson ennfremur — „ekki er
að efa að 1. deildin verður erfið
og jöfn. Skagamenn koma til með
að mæta sterkir í deiidina. Leikir
okkar hingað til hafa verið
talsvert misjafnir og eins og
kannski er við að búast. Stundum
höfum við náð ágætum leikjum
en síðan dottið niður á stig meðal-
mennskunnar og gott betur. Þetta
tel ég ekki óeðlilegt eins og að-
stæður hafa verið í sumum leikja
okkar — hreint hroðalegar.
Annars verð ég að segja eins og
er — hér á íslandi eru margir
góðir einstaklingar, betri en ég
átti von á fyrirfram. Ég get ekki
stillt mig um að minnast á ungan
ieikmann hér á Skaganum, Pétur
Pétursson. Hann er bezti mið-
vallarspilari sem ég hef séð á
íslandi hingað til. Hann verður
góður drengurinn sá, það er ef
hann heldur vel á spilunum. Hins
vegar eru liðin í deildinni mjög
jöfn og svipuð að styrkieika eins
og ég átti von á. Þetta gefur því
fyrirheit um gott sumar.”
h. halls.
Staðan í Litlu bikarkeppninni
er nú þannig. Ein umferð er eftir
Breiðablik hefur þó lokið sínum
leikjum:
Breiðablik 4 2 11 7-6 5
Haukar 3 2 0 1 4-5 4
lA 3 1115-33
ÍBK 3 1 0 2 4-5 2
FH 3 0 2 1 2-3 2
Þríbœtti
heimsmetið
íkringlu!
Nýi heimsmethafinn í kringlu-
kastinu, Mac Wilkins, bætti
nýsett heimsmet sitt i kringlu-
kastinu á móti í San Jose í Kaii-
forníu í 70.86 metra á laugar-
daginn. Hann bætti eldra met sitt
— 69.16 metra, sett fyrir átta dög-
um — í öllum þremur fyrstu
köstum sínum á mótinu í San
Jose. Wilkins, sem er 25 ára, er
nú taiinn liklegur sigurvegari á
Olympíuleikunum i Montreal í
sumar — og hann sagði eftir
heimsmetin á iaugardag, að hann
byggist við að kasta um 72 metra í
sumar.
Góð byrjun FH síðoi
allt í handaskolum
- FH og Breiðablik skildu jöf n 1-1 íLitlu bikarkeppninni
„Ég er alls ekki ánægður með
frammistöðu strákanna,” sagði
Ian Ure, þjálfari FH, eftir leik
liðsins við Breiðablik í Litlu
bikarkeppninni á laugardag. FH
og Breiðablik skildu jöfn 1-1.
FH-ingar voru fyrri til að skora
— Leifur Helgason var þar að
verki. Hann fékk sendingu í gegn
um vörn Breiðabliks og skoraði
með góðu skoti. Fram að markinu
voru FH-ingar mun frískari og
hreinlega yfirspiluðu Blikana.
Hins vegar virtist allt loft úr
Hafnfirðingum eftir markið —
þeir hreinlega hættu að spila. Við
það náðu Blikarnir frumkvæðinu
og Gísli Sigurðsson jafnaði fyrir
þá úr aukaspyrnu.
„FH-ingar byrjuðu mjög vel —
spiluðu skínandi knattspyrnu,” —
sagfði Ure — „og fram að
markinu höfðu þeir frumkvæðið
en misstu allt spil niður eftir
það. Með þetta er ég alls ekki
ánægður. Lið verður að spila
knattspyrnu í 90 mínútur ef það
ætlar að vinna leik. Þetta verða
strákarnir að skilja. Það býr
margt í liði FH en það er eins og
strákarnir vilji alltaf gera erfiða
hluti — alltaf, og auðvitað tekst
það ekki alltaf. Ef lið ætlar að
skila árangri verða leikmenn þess
að skilja að i knattspyrnu er það
hið einfalda sem gildir. Að gera
einfalda hluti mestan part
leiksins — svo sem að gefa á
samherja við hliðina á þér. Láta
þannig boltann ganga manna á
milli — það skilar árangri. Að
gera erfiða hluti — það er aðeins
á færi hinna allra beztu.
Þegar strákarnir hafa skilið
þetta bind ég miklar vonir við
sumarið FH hefur möguleikana
og ef við höfum lukkudísirnar
með okkur þá tel ég að við ættum
að eygja möguleika á einhverju
efstu sætanna. Þó verð ég að sgja
að mér virðist Valur hafa á að
skipa bezta liðinu eins og er en
ekki þar með sagt að svo verði
þegar út í Islandsmótið er
komið.”
h. halls.
Bommi biður Þjálfa urr. ráð...
£g ^iíil Þú átl við vandamál að stríða. *--,
En mundu, fyrsl og síðast. að þú crt fæddtm
fótbollamáóur^_________________________■—x
eir.n þeirra beztu. Eitt af
stórféldgum Evrópu vill
kattpa þig, Bommi. Kyrii
árt hcfði ég sagt nei... ^
r Nú segi ég. Taktu boðinu. Þú ert of góður v
leikmaður til að fcsfast hjá einu félagi. Þú
- skuldar sjálfum þér breytingu:
Markvörður Kastrup, Finn
Esmann, siær knöttinn af höfði
Atla Þórs Héðinssonar í undan-
úrsiitaieiknum í dönsku bikar-
keppninni í síðustu viku. Holbæk
sigraði með 2—0 á Idretsparken
og Atli Þór skoraði fyrra mark
liðsins.
Fyrsta stig
Holbœk í
Álaborg
Þetta er í fyrsta skipti síðan
Holbæk komst í 1. deild fyrir fjór-
um árum, að félagið hlýtur stig í
Alaborg, sagði Atii Þór Héðins-
son, þegar Dagblaðið ræddi við
hann í gær, en fyrr um daginn
hafði hann leikið með Holbæk
gegn AaB í Alaborg. Jafntefli
varð 1—1.
Ég fékk það hlutverk í leiknum
að reyna að draga danska lands-
liðsmiðvörðinn Munk Jensen úr
vörninni — en þetta er geysilega
sterkur leikmaður. AaB skoraði á
undari — eftir um 15 mín., en
Henrik Tune jafnaði fyrir
Holbæk, þegar stundarfjóðr-
ungur var af síðari hálfleik.
Félagar mínir voru mjög ánægðir
að hafa hlotið stig í Alaborg —
það hafði ekki tekizt fyrr, sagði
Atli Þór ennfremur.
Mér fellur mjög vel að leika
með Holbæk-liðinu og þetta
gengur betur hjá mér með
hverjum leik. Það er ekki annað
að heyra en ég hafi tryggt mér
fast sæti í 1. deiidariiðinu. A
þriðjudag leikur Holbæk á
heimavelli gegn Vanlöse — en
eftir fjóra leiki var Holbæk með
fimm stig, einn sigur og þrjú
jafntefli.
Fékk að hvíla
eftir 56 leiki!
— Jóhannes lék ekki
með Celtic d laugardag
Ég lék ekki með gegn Ayr á
laugardaginn. Fékk slæmt spark í
ökklann í leiknum gegn
Hibernian á dögunum og það
komst blóð í liðinnsagði Jóhanne$
Eðvaldsson, þegar Dagblaðið
ræddi við hann í morgun.
En ég reikna fastlega með að
leika gegn Hearts í kvöld. Það er
síðasti leikur okkar hjá Celtie í
deildinni á keppnistímabilinu —
og það getur verið að ég komi
heim í stutta heimsókn á mið-
vikudaginn. Fer svo út aftur til að
leika gegn Manch.Utd.
Celtie sigraði Ayr 5—3 á úti-
veili og þeir Kenn.v Dalglish, tvö ,
Andy Ritchie, Bobby Lennox og
McClusk.v, víti, skoruðu mörk
Celtic. Jóhannes lék gegn
Rangers sl. mánudag, þó hann
væri meiddur i ökklanum, en
fékk að hvíla sig á laugardaginn.
Kominn tími til, því Jóhannes
hefur leikið 56 leiki á leiktíma-
bilinu.