Dagblaðið - 22.05.1976, Síða 6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 22. MAÍ 1976,
ISRAELSMENN BJODA
GÆZLUNNI FLUGVEL
— minni en Fokker en
þrefalt ódýrari og
getur borið byssur
og eldflaugar
ísraelsmenn hafa sent Land-
helgisgæzlunni tilboö um kaup
á Arava 201 Stol-flugvél, en
vélar þessar eru framleiddar af
Israel Aircraft Industries. Vél
þessa telja ísraelsmenn henta
vel til gæzluflugs, auk þess sem
hún hentar mjög vel til að
lenda á minni flugvöllum
landsins.
Bjóða tsraelsmenn vélina til
afhendingar á óvenju stuttum
afgreiðslufresti, 45 dögum eftir
undirritun samnings, en verð
véla sem þessara eru rúmar 185
millj. króna með varahlutum til
árs.
Vélar þessar hafa rými fyrir
20 farþega i farþegaflugi en
eru víða notaðar með lúxus-
innréttingu. Einnig eru þær
framleiddar með hríðskota-
byssum og flugskeytum.
Fokkervélar eins og Gæzlan
hefur mestan hug á til
gæzlustarfanna i 200 mílna
fiskveiðilögsogunni kosta
a.m.k. þrefalt á við israelsku
flugvélina, enda eru þær allar
minni í sniðum en Fokkerinn.
Umboðsmaður fyrir Israel
Aircraft Industries hér á landi
er Gunnar H. Sigurgeirsson.
-JBP-
Tónaflóð á Raufarhöfn:
Þrír kórar í
vetur og
tónleikar
ídag
Söngmennt hefur staðið í
miklum blóma á Raufarhöfn í
vetur og að undanförnu. Þrír
ungir tónlistarmenn, þau Margrét
Bóasdóttir sópransöngkona,
Kjartan Öskarsson klarínettuleik-
ari og Hrefna Unnur Eggerts-
dóttir píanóleikari efna þannig til
tónleika í Félagsheimilinu Hnit-
björgum á Raufarhöfn í dag, laug-
ardag kl. 17.00.
Á efnisskránni eru sönglög
eftir íslenzka og erlenda höfunda,
verk fyrir klarfnettu og píanó
eftir Saint Saéns og Pierné, verk
fyrir píanó eftir Brahms og
Debussy og verk fyrir sópran,
klarínettu og píanó eftir Spohr og
Schubert.
Tónleikar þessir eru í eðlilegu
framhaldi af þróttmiklu tónlistar-
starfi sem farið hefur fram á
Raufarhöfn i vetur, tveir kórar
hafa starfað við skólann og
kirkjukór Raufarhafnarkirkju
hefur haldið sjálfstæða tónleika,
auk þátttöku i kórakvöldi á
Raufarhöfn sem haldið var í apríl
sl. að tilhlutan Kirkjukórásam-
bands Norður-Þingeyjarsýslu.
Þótti sú samkoma takast einkar
vel.
Listafólkið mun halda tónleika
í Skjólbrekku, Mývatnssveit,
sunndaginn 23. þ.m. kl. 21 og í
félagsheimilinu á Húsavík á þriðju
dagskvöldið á sama tíma.
— JFG/HP.
Öldutúnskrakkar
moX fÁHjioíLiim
« m — —-— *~~~~ ■■■ w m w ■■■ waamw ■■■
Kór Öldut únsskóla efnir til
tónleika á morgun (sunnudag)
í Háteigskirkju kl. 5 siðdegis.
Efnisskráin er fjölbre.vtt,
m.a. verða frumflutt kórverk
eftirdr. Ilallgrím Ilelgason. Pál
P. Pálsson og norska tónskáldið
Egil Hovland. Á föstudaginn
(28.5.) heldut' kórinn i söngför
til Noregs og tekur þátt i nor-
ræna barnaköramötinu sem fer
fram í Bergen. Stjörnandi
kórsins er Egill Friðleifsson.
ÓLAFUR ER HJÁ
AÐALBÍLASÖLUNNI
Þau leiðu mistök komu fyrir
hjá okkur í síðasta laugardags-
blaði að Ragnar Bjarnason var
sagður hafa tyllt sér við borðið
hjá Bílasölu Garðars, en hann er
þarna að ræða stór bílaviðskipti
við Ölaf Magnússon hjá Aðalbíla-
sölunni v/Skúlagötu.
— KL
160 nýstúdentar fró Tjarnarskólanum:
DÚXINN ER EINS 0G
FLEIRI
ATVINNULAUS!
Fyrir utan Háskólabíó hittum
við dúx árgangsins f MT, sem út-
skrifaðist núna, Friðrik Má
Baldursson, að máli.
Friðrik er sonur Baldurs Þor-
steinssonar skógfræðings og
Jóhönnu Friðriksdóttur kennara
og er búsettur í Kópavogi.
„Það er gott að þessu er lokið,“
sagði Friðrik er við spurðum
hann um nýafstaðna þrekraun.
„Maður finnur alltaf til fiðrings
þegar á prófum stendur og ekki
sízt núna er svo mikið er í húfi.
Annars fengum við yfirleitt 5-6
daga á milli prófa í hverri grein
svo maður reyndi sitt bezta,“
bætti hann við.
Og árangurinn lét ekki standa á
sér, en hvað er siðan framundan?
„Eg er nú atvinnulaus sem
stendur," sagði Friðrik, „en það
rætist vonandi úr því. I haust
stefni ég svo í Háskólann, í raun-
vfsindadeildina, þar sem ég ætla
að leggja stund á stærðfræði í
framtíðinni.“
Og svo var hann þotinn enda
mikið um að vera á slíkum
merkisdegi, en við segjum til
hamingju, Friðrik, með ágætan
árangur.
Ails voru það 160 stúdentar
sem skelltu húfunum á kollinn á
skólaslitum Menntaskólans við
Tjörnina f Háskólabíói f gær.
Skipting eftir deildum var
þannig: Úr máladeild út-
skrifuðust 63, náttúrufræðideild
57 og úr eðlisfræðideild 40, eða
alls 160, eins og fyrr sagði.
Hæstir yfir skólann urðu tveir
piltar úr 3. bekk, Hannes Jónsson,
náttúrufræðideild, og Tómas
Jóhannesson, eðlisfræðideild, en
þeir hlutu báðjr ágætiseinkunn,
9,2. Dúx yfir nýstúdentana varð
Friðrik Már Baldursson, Kópa-
vogi, úr eðlisfræðideild með 1.
einkunn, 8.9.
Rektor Menntaskólans við
Tjörnina er Björn Bjarnason.
-JB
Strandamaður kom, só og sigraði í Hamrahliðinni:
ISUMAR BUSKAPURINN,
RAUNVÍSINDIN í HAUST
Stefán Gíslason var hress og
kátur er við tókum hann tali við
skólaslitin í gær, en hann náði
beztum árangri á stúdentsprófi
af þeim nemendum sem braut-
skráðust frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð í gær.
Stefán er frá Gröf, Ospaks-
eyrarhreppi í Strandasýslu,
sonur Gfsla Gíslasonar, sem þar
býr, og Birgittu Stefánsdóttur.
„Ég er búinn að vera hér f
þrjú ár og lauk stúdentsprófi af
náttúrusviði með 133
einingum," sagði Stefán. „Þetta
stóð yfir f 10 daga hjá okkur þvf
fyrirkomulagið er þannig hér
að við tökum lokapróf eftir
hverja önn í viðkomandi fagi,
svo þetta var ekki meira álag en
venjulega," sagði hann enn-
fremur.
Og Strandamaðurinn, sem
kom, sá og sigraði, hvað skyldi
hann ætla sér í framtíðinni?
„Ég verð heima I sumar að
vinna við búskapinn en í haust
liggur leiðin f raunvísindadeild
Háskólans," sagði Stefán að
lokum.
Og við samgleðjumst Stefáni
og fjölskyldu hans, ásamt
öðrum nýstúdentum úr Hamra-
hlíðinni.
-JB