Dagblaðið - 22.05.1976, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 22. MAl 1976.
7
\
ÆÐISGENGINN
LOKASPRETTUR
Á OLYMPÍUMÓTI
— íslenzka sveitin hafði
unnið 20 leiki — gert
eitt jafntefli og tapað
17eftir39umferðir
í Monte Carlo
Monte Carlo, föstudag.
Síöustu umferðirnar á Olym-
píumótinu í bridge verða
spilaðar i dag — og ef að líkum
lætur verður keppnin um
ólympíutitilinn meiri og
harðari en nokkru sinni fyrr.
Frakkland sigraði á fyrsta
Ólympíumótinu 1960 —síðan
Ítalía þrívegis, en þegar þetta
er skrifað höfðu enn sex þjóðir
möguleika til að sigra á mótinu.
Spenna í hámarki.
Framan af mótinu höfðu Svíar
forustu — sigruðu í fjórum
fyrstu leikjunum með hámarks-
stigatölu, sem er met á sltku
móti. Einnig unnu Svíarnir í
níu fyrstu umferðunum — ann-
að met þeirra þar. En svo fóru
Svíar að dala um tíma. Sviss-
lendingar náðu forustunni, en
hefur gengið heldur illa að und-
anförnu og eru nú án mögu-
leika. Þá kom að Bretum að
spretta úr spori og þegar mótið
var rúmlega hálfnað höfðu
Bretar náð 33ja stiga forskoti á
aðra sveit. En þá kom að ís-
lenzku sveitinni að klekkja á
Bretum. Það var fyrsti tapleik-
ur Breta — lítill þó 9-11 — frá
því í fyrstu umferðunum, en
setti brezku spilarana eitthvað
úr skorðum. Þeir töpuðu nokkr-
um leikjum eftir tapið við
ísland — misstu niður allt for-
skotið á stuttum tíma — en
hresstust svo við aftur.
ítalir náðu þá forustu — og
voru komnir vel yfir um tíma,
en misstu allt forskotið og
meira til sl. fimmtudag. Þrír
tapleikir þeirra í röð — þar á
meðal þrír í mínus gegn Frakk-
landi — settu óvænt strik i
reikninginn. Italska sveitin
virtist vera orðin mjög sterk,
þegar líða tók á mótið — og það
var fyrst og fremst frábær
spilamennska þeirra Bella-
donna og Vivaldi, sem átti þátt í
því.
Eftir tap Itala fyrir Banda-
rlkjamönnum i heimsmeistara-
keppninni, sem háð var hér í
vikunni á undan Ólympíumót-
inu í Monte Carlo, var stórt
spurningarmerki við itölsku
sveitina. Pietro Forquet, hinn
fimmtugi bankastjóri frá
Napolí, sem verið hefur einn
fremsti spilari heims tvo
síðustu áratugina, var ekki
ánægður með þátt heimssam-
bandsins í heldur ruglingslegu
svindlmáli, sem sagt er að hafi
átt sér stað á Ítalíu. Nafni hans
var blandað í það mál aðeins
vegna þess, að hann spilaði við
Bianchi eitt sinn i heimsmeist-
arakeppni. Það líkaði Forquet,
einum heiðarlegasta og drengi-
legasta keppnismanni í bridge
gegnum árin, illa — það svo, að
hann hélt heim til Italíu eftir
heimsmeistarakeppnina í stað
þess að spila áfram á Ólympíu-
mótinu við Belladonna. Þetta
kom ítölsku sveitinni í vissan
vanda í fyrstu — en vel leystist
úr málunum. Belladonna, sem
nú er að nálgast sextugt og
hefur verið konungur bridge-
ins um langt árabil, stóð þá
einn uppi. En síðan fór hann að
spila við Antonio Vivaldi, sem
mikla reynslu hefur á stórmót-
um þó ungur sé að árum, og
eftir nokkra byrjunarörðug-
leika fóru þeir að spila frábær-
lega vel saman — það svo, að á
hinni miklu sigurgöngu ítölsku
sveitarinnar eftir mitt mótið,
spiluðu þeir nær alla leiki
Ítalíu. Það hefur kannski verið
of mikið — árin farin að segja
til sín hjá Belladonna og nokk-
urrar þreytu farið að gæta hjá
honum.
Það hefur gengið á ýmsu hjá
íslenzku sveitinni — en
árangur þó eftir atvikum sæmi-
legur. Þegar þetta er skrifað
hefur sveitin spilað 38 leiki það
var eftir 39 umferðir — ein
yfirseta vegna þess að sveit
Portúgals mætti ekki til leiks
— og af þessum 38 leikjum
hafði Island unnið 20 — gert
eitt jafntefli, en tapað 17 leikj-
um og vinningshlutfallið um
55%. Efsta sveitin í mótinu var
þá með um 75% vinningshlut-
fall.
Við skulum nú líta á nokkur
spil frá mótinu. 1 leik Islands
og Filippseyja í 39. umferð kom
þetta spil fyrir.
Nobður
♦ 76
VÁD10765
010
+ D543
Austur
+A10852
VG83
OG5
+ KG6
SUÐUR
+ K
^K942
OK762
+Á1087
A þetta spil fengu þeir Guð-
mundur Pétursson og Karl
Sigurhjartarson að spila þrjú
hjörtu á spil n/s. Unnu þau og
fengu 140. Á hinu borðinu
spiluðu Ásmundur Pálsson og
Hjalti Eliasson fjóra spaða á
spil austurs-vesturs og unnu
sex.
í leik Italíu og Vestur-
Þýzkalands var farið I fimm
spaða á báðum borðum. ítalir
unnu sex, en þegar Þjóðverjar
spiluðu spilið var það doblað.
Og sjö unnust. Hjarta kom út —
trompað — spaðaás tekinn,
kóngurinn féll, trompið tekið
og siðan svínað fyrir tigulkóng.
Þjóðverjarnir fengu því 1250
fyrir spilið og unnu 13 imp-stig
á því.
Hans Kreijns,
Hollendingurinn snjalli, sem
spilaði heima á Islandi fyrir um
15 árum, vekur alltaf mikla at-
hygli við spilaborðið. Á
Ölympíumótinu hér í Monte
Carlo lenti hann í sex gröndum
á spil suðurs. Vestur spilaði út
spaða og austur tók á ásinn.
Spilaói síðan spaðadrottningu.
Vestub
+ DG943
<7 ekkert
O ÁD9843
+ 92
Norbur
+ enginn
S>Á8532
O K7
+ KG9542
Austur
+ ÁDG105
<7 10
01042
+D1073
SUÐUR
+ K973
KDG
0 ÁD98
+ Á6
Hans þurfti ekki meira en
að austur tók á spaðaásinn —
eftir það var hann fljótur að
renna heim tólf slögum. Hann
drap spaðadrottningu með
kóng — spilaði háspilum sín-
um 1 hjarta. Fór síðan inn
Vestur
+ 8642
V 9764
O G653
+ 8
spilið tapaðist á báðum. Það er
hægt að vinna sex hjörtu á
ýmsan hátt — og er ekki sjálf-
sagt að spreyta sig á því?
I leik tslands og Hollands á
Ólympíumótinu kom þetta spil
fyrir.
Vestur
+ 1093
VG3
O G10
+ K97532
Norður
+ ÁKG4
V ÁD8
0 K93
+ ÁD8
Austur
+D75
V1074
0642
+ G1064
SUÐUR
+ 862
V K9652
0 ÁD875
♦ ekkert
skrifar f ró
Monte Carló
á spil blinds á tlgulkóng og
tók ás og áttu í hjartanu.
Kreijns hafði kastað tveimur
laufum úr blindum á tvo fyrstu
slagina i spaða.
Þá spiíaði hann tígli frá
blindum og drap á drottning-
una. Sviðið var sett og þegar
Kreijns tók á tígulásinn var
austur fastur í kastþrönginni,
þar sem hann var með upphaf-
lega alla spaðana yfir nlu
suðurs — og laufadrottning-
una. Hann valdi að kasta
spaðanum — en Hollendingur-
inn tók þá spaðanluna og siðan
tvo hæstu í laufi.12 slagir.
Þetta spil kom fyrir I 32. um-
ferðinni, þegar Island spilaði
við Grikkland og vann 19—1. Á
báðum borðum varð lokasögnin
þar sex hjörtu í norður — og
Stefán Guðjohnsen var
norður — og eftirað ég opnaði á
tveimur laufum á spil suðurs
runnum við I sjö hjörtu. Það er
rétt að skýra þessa opnunar-
sögn. Tvö laufin þýða ein-
hverjir tveir fimmlitir, en ég á
að vísu að eiga minnst tíu
punkta. En staðan var hagstæð
— við utan hættu, en hinir á
hættu, svo ég opnaði á spilið þó
punktinn vantaði.
Nú, Stefán varð auðvitað
mjög spenntur með sln miklu
spil og sögnum lauk ekki fyrr
en með sjö hjörtum eftir að
hann hafði komizt að þvi, að ég
átti fimmlit I báðum rauðu lit-
unum — hjarta og tígli. Báðir
litirnir „brotnuðu" svo hægt
var að fá 14 slagi á spilið ef þess
hefði þurft með.
Simon
UNGLINGALANDSLIÐIÐ í BRIDGE
Unglingalandslið í Bridge
Bridgesamband Islands
sendir landslið til þátttöku i
Evrópumeistaramóti unglinga,
sem haldið verður í Lundi
dagana 1.—8. ágúst nk.
Lið var endanlega valið
nýlega og er það skipað þessum
mönnum:
Sverrir Ármannsson, hann var
i landsliði i unglingaflokki árið
1973. Félagi hans er:
Sigurður Sverrisson, en hann
var í landsliði unglinga árið
1974
Helgi Jónsson, hefur tvívegis
verið í unglingalandsliði , árin
1974 og 1975. Félagi hans er:
Helgi Sigurðsson, þetta er I
fjórða sinn sem hann er i
unglingalandsliði.
Guðmundur P. Arnarson, var í
landsliði í unglingaflokki 1975,
en félagi hans er:
Jón Baldursson, hann spilaði í
landsliði unglinga árið 1974, en
árið 1975 spilaði hann í lands-
liði í opna flokknum (flokki
fullorðinna).
Páll Bergsson, er fyrirlilði liðs-
ins, en hann sá einnig um val
þess.
Eins og sjá má af upptaln-
ingu þessari, eru þetta reynslu-
miklir spilarar, miðað við
Sitjandi, talið frá vinstri: Sverrir Armannsson, Páll Bergsson, Helgi Jónsson, standandi: Helgi
Sigurðsson, Jón Baldursson, Guðmundur P. Arnarson, Sigurður Sverrisson.
aldur, en þeir eru allir fæddir á
árunum 1952—1954. Rétt til
þátttöku í Evrópumeistara-
mótinu í ár hafa spilarar fædd-
ir 1951 og síðar.
Unglingastarfsemi í bridge
er víða orðin mjög öflug, Sér-
staklega þykir skipulag frænd-
þjóða okkar, Dana Norðmanna
og Svía, tij fyrirmyndar. Enn
hefur ekki tekizt að skipuleggja
starfsemi þessa hér á landi að
neinu marki, sökum fjárskorts.
Þ6 hefur Bridgesamband
Islands sent landslið til keppni
í unglingaflokki erlendis
síðustu ár. Arið 1973 kepptu
Islendingar í þessum flokki á
Norðurlandamóti í Alaborg og í
Osló árið 1975. A báðum þess-
um mótum höfnuðu þeir í 4.
sæti á undan Finnum.
Fyrsta Evrópumót unglinga
var háð árið 1968, og hafa síðan
verið haldin annað hvert ár.
Árið 1974 var mót þetta haldið í
Kaupmannahöfn og náði tsland
þar 12. sæti en 21 þjóð tók þátt
í mótinu.
Ástæða er til að halda að lið
það, sem nú hefur verið skipað
eigi möguleika á að ná betri
árangri en ísland hefur áður
náð í þessum flokki.
Stjórn B.S.I.