Dagblaðið - 08.06.1976, Qupperneq 3
DAöBLAÐIÐ — ÞRID.JUDAGUR 8. .IIINt
Raddir
lesenda
DEKKIN ÓNÝT OG ENGAR BÆTUR
3
venjulegur strigalagafjiildi
undir sendibíla.
En brátt fóru aö koma í ljós
djúpar sprungur á köntum
dekkjanna og setti bilstjórinn
þá kappa í dekkin og lappaði
upp á þau á annan hátt og gat
meö herkjum notaö þau i 25
þúsund kílómetra akstur. Þá
voru þau endanlega ónýt. Þar
sem bílstjórinn hafði aldrei sett
yfir þrjú tonn í bílinn og
hugsaö eðlilega um dekkin,
enda miklir peningar í húfi, fór
hann á fund umboðsmannsins
og tjáði honum afrdekkin væru
gölluð. Umboðsmaðurinn sagði
hins vegar að bíllinn væri of
þungur fyrir þessi dekk, þrátt
fyrir að þau væru sex strigalaga
Bauð bílstjórinn þá upp á þá
málamiðlun að fá tvö ný dekk
fyrir hin fjögur en því neitaði
umboðsmaðurinn einnig. Varð
bílstjórinn því að kaupa fjögur
ný dekk, þar sem ekki var hægt
að sóla þessi vegna kant-
skemmda, en bílstjórar gera
það yfirleitt. Ný dekk kosta 15
til 20 þúsund krónur stykkið,
svo tjónið er tilfinnanlegt, og
koma engar bætur fyrir.
Bilstjórinn kom með dekkin
til okkar hér í Síðumúlann og
sást þá greinilega, að kantar
þeirra voru allir ónýtir þrátt
fyrir að slitlag væri tals-
vert eftir. Myndin sýnir er bíl-
stjórinn rekur fingur I gegnum
eina sprunguna,-
Bílstjóri af Sendibílastöðinni
kom og sagði farir sínar ekki
sléttar: I f.vrrasumar keypti
hann Benz sendiferðabíl
norður á Akureyri og voru þá
fjögur dekkin glæný, af
Generalgerð, en þau dekk eru
framleidd í Portúgal. Voru þau
meiraaðsegja óvenju-verkleg og
traustvekjandi i útliti og bjóst
bílstjórinn við að þau dygðu
jafnvel yfir 60 til 70 þúsund
kílómetra en það er
meðalnýting á dekkjum sent
sendibílar nota. Dekkin voru
sex strigalaga og er það
Arons fjölg-
or stöðugt
Áhangendum
Nokkrir félagar höfðu
samband við blaðið:
„Sífellt eru uppi háværari
raddir um að nauðsynlegt sé að
taka gjald fyrir aðstöðu NATO
hér í Keflavík. Þeim sem fylgja
Aron Guðbrandssyni að málum
fjölgar stöðugt og við erum í
þeim hópi.
Norðmenn taka greiðslu, eins
og fram hefur komið í grein
eftir Mats Wibe Lund í Dag-
blaðinu fyrir nokkuð löngu.
Það er alveg óskiljanlegt að við
Islendingar séum nokkuð
merkilegri en þeir, nema síður
væri. Þess vegna er það engin
spurning um þjóðarstolt hvort
gjald verði tekið eða ekki. Hvað
erum við nema staurblankir og
ósjálfbjarga? Við höfum ekki
efni á því að vera að belgja
okkur upp yfir engu.
Gjaldið getum við notað til
þess að byggja upp atvinnuvegi
okkar gera vegi og flugvelli til
að taka dæmi. Annars vantar
svo margt að við vitum áreiðan-
lega í hvað við getum notað
þessar greiðslur. Eitt er samt
Aron Guðbrandsson
víst, það má ekki hleypa þessu
út I efnahagslffið svo þetta
verði verðbólgumyndandi.
Aron, hann hefur hugmyndina
og hann veit alveg hvað hann er
að tala um. Hann er búinn að
reyna að koma þessu inn í
hausana á okkur en þeir eru
örugglega mjög þykkir. Látum
nú af þessari vitleysu og gerum
eitthvað af viti, ekki veitir
af.“
Hringið í síma
83322 milli
kl. 13 og 75
eða skrifið
ENGINN
SVEFNFRIÐUR
— vegna hóvaða úr bflskúrnum
Hanna Ingvarsdóttir, hringdi:
,,Ég er eigandi kjallaraíbúðar
við Mávahlíð. Hér við húsið er
bílskúr sem er leigður út.
Leigutakinn hefur sett upp
einhvern iðnað, alla vega má
heyra þvílíkan hávaða úr
skúrnum, aö varla er líft fyrir
mig í minni íbúð. Þessi hávaði
er einnig á helgidögum svo ég
hef ekki stundlegan frið. Ofan
á þessa erfiðleika mína bætist
svo það að ég er með sjúkling.
Eins og títt er með sjúkt fólk
þarf hann mikinn svefn en það
er komið í veg fyrir það með
þessum hávaða öllum úr
bílskúrnum.
Ég hefði frekar viljað leigja
skúrinn sjálf en að hafa þetta
yfir höfðinu alla daga. Það er
erfitt fyrir fólk að standa á rétti
sínum og kostar jafnvel mála-
ferli. Það minnsta sem fólk
getur gert er að segja sambýlis-
fólki sínu þegar það gerir svona
hluti. Það ætti jafnvel að ganga
fyrir um leigu á bílskúrum.