Dagblaðið - 08.06.1976, Blaðsíða 6
DAGBLAÐIÐ — ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1976.
6
Vinstri menn
stöðva tramrás
Sýrlendinga
Liðsmenn vinstri sinna í
Beirút segjast nú hafa stöðvað
framrás sýrlenzkra hermanna
að borginni og eins brotið á bak
aftur sprengjuárásir Sýrlend-
inga á hafnarborgina
Sidon, skammt suður af höfuð-
borginni.
Talsmaður samtaka
Palestínumanna, sem eru mjög
andvígir þátttöku Sýrlendinga í
innanríkismálum Líbana, segir
að herdeildir Sýrlendinga hafi
stöðvazt við hernaðarlega
mikilvæg gatnamót á leiðinni
til höfuðborgarinnar, eftir að
hafa orðið fyrir mikilli skotárás
Palestinumanna. Alls segir tals-
maðurinn Sýrlendinga hafa
verið á um 100 skriðdrekum og
brynvörðum bifreiðum. Eiga
bardagar þar að hafa verið
mjög harðir og stóðu enn yfir,
er síðast fréttist.
Sovétmenn hafa ásakað vest-
rænar þjóðir um að kynda
undir átökum við Miðjarðarhaf
og segja að þessir blóðugu at-
burðir séu tilraunir heims-
valdasinna til þess að koma í
veg fyrir framrás samtaka
Palestínumanna. Segir í
fréttum frá Moskvu, að Yasser
Arafat, leiðtogi samtaka
Palestínumanna hafi þegar
beðið Sovétmenn og Júgóslava
um aðstoð, en enn er ekki vitað
í hvaða formi sú aðstoð verður.
Vinstri menn segjast nú hafa stöðvað framrás meira en 100 skriðdreka og brynvarðra bifreiða
Sýrlendinga skammt frá Beirút.
La Coruna:
FRAMHLUTINN A FLOTI
Björgunarsérfræðingum
tókst að koma framhluta risa-
olíuskipsins Urquiola á flot um
helgina. Eins og kunnugt er
strandaði skipið skammt
undan La Coruna á Norður-
Spáni og meirihluti olíufarms
þess fór í sjóinn.
Framhlutinn, en í honum
eru flestir tankarnir, var dreg-
inn í sérstaka þurrkví í
grenndinni, en þar munu sér-
fræðingar sem kannað hafa or-
Bflasalon við Vitatorg
Sími 12500
Malibu árg. ’73, 1750 þús. — Nova árg. ’70, 1 millj. —
Peugcot árg. ’73 1250 þús. — Nova árg. ’73, 1400 þús. —
Comet árg. ’74, 1600 þús. — Morris Marina árg. ’74, 850
þús. Sunbeam 1500 árg. ’73 700 þús. — Bronco Ranger
árg. ’74 2 millj. — Austin Mini árg. ’74, 590 þús. —
Fíat 131 árg. ’76. 1400.000.00.
Óskum eftir bílum á söluskrá
Öskum eftir Mazda 818, útb. 1 millj.
Óskum eftir Range Rover árg. 74-75.
sakir slyssins, athuga skemmd-
irnar.
Risaolíuskipið, sem var
hlaðið 110 þúsund tonnum af
svartolíu, er það strandaði,
brotnaði í tvennt um helgina
og var þá hægt að koma bönd-
um á framhiutann.
Segja björgunarsérfræðing-
arnir, að lítil von sé til þess, að
hægt verði að bjarga aftur-
hluta skipsins, sem er mjög illa
farinn.
ATH. Aðeisss erfá !<! afgreiðs!n næstu daga. Tryggið ykkur bví strax cinn íöfravagn. Munið
aftaní franskan bíl aðeins franskt hjölhýsi og auðvitað Casita.
Casita fer sigurför um allan heim.
Heildverzlunin HallbjörnJ. Hjartarson h/f
Skagaströnd — Sími 95-4629
Atokiii Vio iuituamu.Ti ’töSuii.-
bique og Ródesíu fara sífellt
harðnandi og verða æ mann-
skæðari. Hér má sjá hermenn
úr öryggissveitum landsins
kanna vegsummerki eftir jarð-
sprengju, sem varð tveimur að
bana fyrir skömmu.
CASITA HÉR - ÞAR, JÁ ALLS STAÐAR
Frönsk fellihýsi og
tjaklvagnar
Örfáir vagnar
vœntanlegir nœstu daga
STJ0RNMALAFL0KKAR LEYFÐIRANY
Sérstakar umræður á
spænska þinginu munu greiða
fyrir því að lýðræðislegum
stjórnarháttum verði komið á á
Spáni eftir meira en fjögurra
áratuga einræðisstjórn Frankós.
Nú er búizt við því, að þingið
(Cortes) samþykki lagafrum-
varp, sem Karl Spánarkonung-
ur hefur lagt fram, en þar er
gert ráð fyrir því að stjórnmála-
flokkar verði leyfðir á ný en
þeir voru bannaðir eftir að
Frankó komst til valda árið
1939.
Flokkar kommúnista, stjórn-
leysingja og aðskilnaðarsinna
verða þó bannaðir ef þeir falla
undir það ákvæði frumvarpsins
sem bannar byltingarsinnaða
stjórnmálaflokka.
Frumvarp þetta er talið
verða samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum, nema ef
vera skyldi atkvæðum róttækra
hægri manna, sem halda vilja í
einsflokkakerfi það, er hefur
viðgengizt svo lengi í landinu.
Angóla:
Dauðadóma krafizt í
máli málaliðanna 13
Maialiöarnir eru flestir ungir að árum, eins og sjá má á þessum,
sem voru meðal hinna heppnu: Komust heim til Bretlands. Fyrir
hinum biasir alvaran við og jafnvel dauðinn.
Spánn:
Vegna mikillar eftir-
spurnar viða erlendis,
hefur verksmiðjan ekki
undan að framleiða, og
þar af leiðandi verður
það takmarkað sem við
getum boðið afþessum
vinsœlu vögnum íár
Casita hjólhýsið er frainúrskarandi glæsilegur vagn. Þú þarft aðeins að taka i cinn takka, eitt handtak
og þá smellur upp úr þesAari kerru sem þú sérð hér, hið glæsilegasta hjólhýsi ekki bara meðplastdúk í
hliðum, heldur raunvoifulegum veggjum. plastklæddum, sem sagt fullkomið. Innbúi þessara vagna
ætlum við ekki að reyna að lysa. eða þeim glæsibrag sem þar ríkir því okkur myndi skorta orð til þess.
Ródesía:
Jarðsprengja drepurþrjá
Saksóknarar i Angóla munu
að öllum líkindum krefjast þess
að málaliðar þeir, sem þar eru í
haldi verði teknir af lífi, að
sögn eins af verjendum þeirra,
lögfræðingsins Robert Cesner.
Málaliðarnir, sem eru 13 að
tölu, voru handdteknir í borg-
arastyrjöldinni í Angóla og eru
frá Bretlandi, Irlandi og Banda
ríkjunum. Að sögn lögfræðings-
ins hefur réttur sá er þeir verða
leiddir fyrir vaid til þess að
dæma þá til dauða ,,og allt þar
fyrir neðan” eins og lögfræð-
ingurinn komst að orði.
Réttarhöldin áttu að hefjast f
dag, en hefur verið frestað þar
til á fimmtudag til þess að lög-
fræðingarnir hafi meiri tíma til
þess að undirbúa málflutning-
inn.
Að sögn talsmanns öryggis-
sveita Ródesíu lét kona og
dætur hennar tvær lífið i gær,
er jarðsprengja sprakk skammt
frá þeim. Tala látinna í sívax-
andi skærum milli hvítra og
þeldökkra í landinu er nú
komin upp í fimm á síðustu
tveim dögúm.
Atburður þessi varð skammt
frá þorpinu Chipinga við
austurlandamæri Ródesíu og
Mosambique, en þar hafa átök-
in alla tíð verið hvað römmust
og er talið að skæruliðar hafi
bækistöðvar handan landamær-
anna.
Erlendar
fréttir
REUTER