Dagblaðið - 08.06.1976, Page 14
14
DAGBLAÐIÐ — ÞRIÐJUDAGUR 8. JUNl 1976.
Heimsmet
í hástökki!
Dwight Stones Bandaríkjunum
setti nýtt heimsmet í hástökki á
móti í Philadelphíu á laugardag
— stökk 2.31 metra og bætti eldra
heimsmet sitt um einn senti-
metra. Það var sett 11. júlí 1973 í
Miinchen.
Sigurður á
10.7 í Belgíu
Margir íslenzkir frjálsíþótta-
menn eru nú við æfingar og
keppni erlendis. Á móti í Köln i
maí hljóp Sigurður Sigurðsson,
Armanni, 200 m á 22.40 sek.
(rafmagnstímataka) og 100 m á
10.8 sek. og á móti í Belgiu hljóp
hann 100 m á 10.7 sek., en með-
vindur var nokkur. A mótinu i
Köln kastaði Erlendur Valdi-
marsson, KR. kringlu rúma 56 m
og varð í sjötta sæti í keppninni.
Þar var sett Evrópumet. Óskar
Thorarensen, ungi ÍR-ingurinn,
sem er 16 ára, er með þeim. Hann
hljóp 100 m í Belgíu á 12.0 og
hlaut 4570 stig í tugþrautar-
keppni i Þýzkalandi.
Óskar Jakobsson, ÍR, Íslands-
methafinn i spjótkasti er í Sví-
þjóð, þar sem hann mun jafnvel
dvelja í ár. Hann hefur tvívegis
keppt í kringlukasti á mótum þar
— kastað 52.60 og 52.50 metra —
en á æfingum hefur kringlan hjá
honum flogið hátt í 57 metra.
Óskar hefur mikla möguleika að
ná ólvmpíulágmarkinu — eink-
um í spjótkasti.
Finninn beztur
Finninn Seppo Hovinen náði
bezta árangri ársins i spjötkasti.
þegar hann kastaöi 90 metra
slétta á móti í Tampere á laugar-
dag. Hafði kastaö lengst 89.94 m í
ár.
PUMA
fótboltaskór
10 gerðir
Verð frá kr. 3.100.-
Sportvöruverzlun
Ingólfs Óskarssonar
Hólagarði,
Breiðholli.
siini 75020.
Heimsmetin urðu
sautján í
Austur-þýzka meistaramótinu í
sundi, sem jafnframt var úr-
lökumót fyrir Olympíuleikana í
Montreal, lauk á laugardag — og
heimsmetaregnið hélt áfram. Alls
voru 17 heimsmet sett á mótinu
— öll nema tvö af hinum frábæru
auslur-þýzku sundkonum.
Kornelia Ender, drottning
Evrópumet
sett daglega!
Peter Nocke, Vestur-
Þýzkalandi, náði aftur Evrópu-
meti sínu í 200 m skriðsundi á
úrtökumóti í Miinchen á laugar-
dag. Synti vegalengdina á 1:51.86
mín. og bætti met landa síns,
Klaus Stcinbaeh, um meira en
sekúndu. Tími hans er sá fjórði
bezti í hciminum í ár.
Zoltan Wladar, Ungverjalandi,
setti nýtt Evrópumet í 800 m
skriðsundi á móti í Graz í Austur-
ríki í gær — synti á 8:15.54 mín.
og bætti met Igor Kuehepelov,
Sovétríkjunum, 8:16.50 mín., sem
Igor setti í Kiev á föstudag!
Staðan í 2.
Staðan í 2. deild eftir leiki
helgarinnar: ÍBV 4 4 0 0 13-0 8
Ármann 4 3 1 0 9-3 7
KA 5 2 1 2 9-10 5
ÍBÍ 4 1 2 1 6-5 4
Haukar 3 1 1 1 6-3 3
Þór 3 1 1 1 2-2 3
Völsungur 5 1 1 3 4-8 3
Selfoss 3 0 1 2 3-7 1
Re.vnir 3 0 0 3 3-17 0
A miðvikudaginn leika efstu
liðin í 2. deild saman — Ármann
mætir ÍBV á Laugardalsvellinum.
A Selfossi leika heimamenn við
Reyni.
A-Berlín
þeirra allra, — ljöshærða stúlkan
frá Halle. náði enn ötrúlegum
árangri, þegar hún synti 200 m
fjórsund á laugardag á 2:17.14
mín. og bætti heimsmet Ulriku
Tauber 2:18.30 mín. Það var
fimmta heimsmet hennar á
mótinu — en samtímis missti hún
eitt þeirra, þegar Ulrika Richter
synti 100 m baksund á 1:01.51
mín. í fyrsta spretti í boðsundi.
Fyrr á mótinu hafði Ender synt
á 1:01.62 mín. i baksundinu, sem
er algjör aukagrein hjá henni —
og það var í fyrsta spretti í
fjórsundi.
Eina heimsmetið, sem austur-
þýzku stúlkurnar bættu ekki á
mótinu var í 200 m bringusundi.
Heimsmet Karla Linke — hún er
auðvitað austur-þýzk— frá EM
1974 stóðst öll átök í Austur-
Berlín. Það var ekki nóg með að
stúlkurnar settu heimsmet í 13
einstaklingsgreinum — heldur
náðu þær 26 sinnum betri tíma,
en gildandi heimsmet.
A lokadegi keppninnar var sett
heimsmet í 200 m flugsundi. Rose-
marie Gabriel—Kother bætti
heimsmet sitt um tvær sekúndur
— synti á 2:11.22 mín. — en hún
komst samt ekki nema í B-sveit
Dynamo Berlín í 4x100 m
fjórsundi, þar sem Andrea
Pollaek, synti aðeins hraðar í
úrslitum í 100 m flugsundinu —
en þar setti Ender heimsmet.
Sveit Dynamo setti heimsmet í
báðum boðsundunum —4x100 m
skriðsundi 3:48.80 mín. og ekki er
Ender i þeirri sveit — og 4x100 m
fjórsundi 3:13.41 mín.
Eina heimsmet karla setti
Roger Pyttel í 200 m flugsundi og
tvíbætti þar heimsmet Mark
Spitz. I 100 m flugsundinu setti
Pyttel nýtt Evrópumet 55.22 sek.
sem gefur til kynna að síðasta
heimsmet Spitz eigi ekki langa
lífdaga fyrir höndum.
u.
Baráttuglaðir Ár-
menningar unnu KA
Á laugardaginn léku KA og
Ariuann í 2. deild og báru
Armenningar sigur úr býtum —
skoruöu tvívegis, en ekki tókst
KA-mönnum að skora. Þetta var
f.vrsti leikur sumarsins, sem fram
fer á grasvellinum fyrir norðan.
Veður var gott en þö dálítil
norðan gola.
Varla var liðin óema um ein
mín. er boltinn lá í marki heima-
manna. öllum að óvörum. En
markið var mjög umdeilt.
Aukaspyrna var tekin nokkrum
metrum utan við vitateiginn.
Skaut Jón Hermannsson beint úr
henni og í mark án þess að mark-
vörður KA-liðsins ætti minnstu
möguleika til varnar. En nú kom
flagg línuvarðarins upp til merkis
um það að einn Ármenningurinn
hafi verið rangstæður, en dómar-
inn sá enga ástæðu til að fara
eftir línuverði sínum, sem selti
flaggið fljótt niður, og dæmdi
markið löglegt, og við það sat.
Næsta hálftímann sóttu KA-
menn ákaft og komust Armenn-
ingar vart fram yfir miðju.
Heimamenn spiluðu oft mjög vel
þennan tima og áttu nokkur
hættuleg markfæri svo sem þrjú
góð skot Cunnars Bliindals rétt
frain hjá markinu og einnig átti
Sigbjörn gott skot fram hjá eftir
hreint frábæra sókn KA-liðsins.
En þegar um það bil þrjátíu mín.
voru liðnar af leiktimanum fóru
Armenningar að spila og b.vrjuðu
að sækja mun meira. en þeir
höfðu gert f.vrr í leiknum.
Aukaspvrnur þeirra voru mjög
ógnandi einkum upp við vítateig
KA. En KA-menn áttu af og til
hættuleg upphlaup, sem voru á-
gætlega útfærð. Sunnanmenn
gerðust nú æ aðgangsharðari við
mark heimamanna og ekki leið á
liingu þar til þeir bættu við sínu
öðru marki. Magnús Þorsteinsson
fékk sendingu inn á vítateig þar
sem KA-vörnin var mjög illa á
verði og skoraði örugglega.
Ármenningar áttu aðeins ör-
fáar sóknir í síðari hálfleik og var
nær um einstefnu KA-liðsins að
ræða og sköpuðu þeir sér oft góð
færi. En vörn Ármenninga var
afar þétt fyrir og gekk KA-
mönnum erfiðlega að komast í
gegnum hana enda flestallir Ár-
menningar inni á sínum teig.
Mikil barátta og samstaða ein-
kenndi leik Ármenninga en hana
vantaði hjá KA. KA-strákarnir
voru mjög óheppnir að skora ekki
mörk í þessum leik miðað við öll
þau tækifæri, sem liðið fékk.
Tveir menn fengu að sjá gula
spjaldið hjá ágætum dómara
leiksins, Grétari Norðfjörð. Það
voru þeir Þráinn Ásmundsson,
Ármanni og Kári Árnason, KA
sem kom inn á i stað Steinþórs
Þórarinssonar á 18. mín. Beztu
menn Ármanns í þessum leik
voru þeir Gunnar Andrésson,
fyrirliðt liðsins, og Ögmundur
Kristinsson en annars var liðið
m.jög jafnt. Birgir Einarsson lék
ekki með vegna ineiðsla. Enn einu
sinni sýndi Hörður Hilmarsson að
hann á heima í landsliðshópnum,
var beztur sins liðs. Þeir Harald-
ur, Guð.jón, Gunnar og Magnús
koniust þokkalega frá leiknunt.
Línuverðir voru þeir Kjartan
Tómasson og Jóhann Karl
Sígurðsson. Ahorfendur voru 648.
— St.A.
RITSTJÖRN:
HALLUR
SiMONARSON
.
niuaHHKMaina
Guðmundur Þorbjörnsson hinn skemmtilegi sóknarmaður Vals
mark Vals. Davíð Kristjánsson kom engum vörnum við og Þröstur
markið verður að skrifast á reikning hans.
Meistaratc
Valsmenn I
— Valur vann stórsigur á íslandsmeisl
Það var glæsiknattspyrna
sem sýnd var á nýja Laugar-
dalsvellinum á laugardag þegar
Valur og Islandsmeistarar ÍA
leiddu saman hesta sína í 1.
deild Islandsmótsins í knatt-
spyrnu. íslandsmeistararnir
voru hreinlega teknir í
kennslustund af velleikandi
Valsliði. Ekki þar fyrir, bæði
lið sýndu ágæta samleikskafla
en Valsmenn voru klassa betri
og stórsigur þeirra varð stað-
reynd. 6—1.
Já, það er vor í íslenzkri
knattspyrnu, það er ekki orðum
aukið. Landsliðið hefur náð
skínandi árangri undir stjórn
landsliðsþjálfarans, Tony
Knapp. Hins vegar hefur mönn-
um virzt, sem félagsliðin stæðu
getulega séð ekki í réttu hlut-
falli við landsliðið. lA hefur jú.
undanfarin tvö ár borið ægis-
hjálm yfir íslenzk knattsp.vrnu-
lið. A laugardag var veldi ÍA
brotið á bak aftur af velleik-
andi Valsliði. Er maðurinn vit-
laus,- kann einhver að segja?
Mótið er ekki búið, það er rétt
að bvrja.
Vissulega er íslandsmótið
rétt að b.vrja og enn er of
snemmt að spá nokkru um
hverjir standa uppi sem
Íslandsmeistarar. En eitt er þó
víst, sú knattspyrna sem Vals-
menn hafa sýnt í þeim leikjum
sem lokið er. er hverjum manni
gleði á að horfa. Boltinn er lát-
inn ganga frá manni til manns,
breidd vallarins er vel nýtt og
mörkin hafa ekki látið á sér
standa í sumar. Sextán sinnum
hafa Valsmenn sent knöttinn í
mark andstæðinganna. fjórum
sinnum hefur Sigurður Dags-
son mátt hirða knöttinn úr
eigin marki. Þetta segir sína
sögu — sóknarknattsp.vrna og
sterk vörn fara þar saman.
Vissulega hefur Valsmönn-
um gengið flest í haginn, og
vissulega var lukkan með Vals-
mönnum en er hún ekki oftast
á bandi hins sterka?
En snúum okkur að leiknum
á laugardag. Á þrið.ja þúsund
manns voru mættir á Laugar-
dalsvellinum og á leik.jum Vals
hefur áhorfendum sífellt farið
fjölgandi enda kunna þeir vel
að meta góða knattspvrnu Vals.
Valur byrjaði leikinn af
krafti, sótt var stift að marki
Skagamanna. Það var síðan á
16. mínútu að fyrsta markið
kom. Guðmundur Þorbjörnsson
átti í höggi við hinn unga mið-
vörð Skagamanna, Jón Áskels-
son, sem var mjög óöruggur í
vörn Skagamanna. Jón var á
undan Guðmundi en honum
mistókst spyrnan til mark-
varðar og Guðmundur brunaði
að marki ÍA og skoraði örugg-
lega framhjá Davið.
Ekki leið þó á löngu að
Skagamenn jöfnuðu. Þröstur
Stefánsson sendi háan bolta að
marki Vals. Sigurður Dagsson
markvörður hikaði í úthlaupi
sínu og Sigþór Ómarsson en
hann kom í stað Matthíasar
.Hallgrímssonar sem er í Sví-
þjóð skallaði vfir Sigurð í
stöngina og inn, vel gert hjá
hinum unga miðherja en mark-
ið verður að skrifast á reikning
Sigurðar Dagssonar.
Eftir markið lifnaði yfir
Skagamönnum og þeir náðu
undirtökunum í leiknum. Þrátt
fvrir það voru það Valsmenn,
sem skoruðu næst. Albert Guð-
mundsson brunaði inn á víta-
teiginn og lenti þar sanian við
Björn Lárusson, Albert féll við
og Hinrik Lárusson dómari
leiksins dærndi vítaspyrnu.
Nokkuð strangur dómur og
sjálfsagt umdeilanlegur en rétt-
lætanlegur. Atla Eðvaldssyni
urðu ekki á nein mistök í víta-
spyrnunni. 2—1 og aðeins
fjórar mínútur til hálfleiks.
Það kom hins vegar skýrt í
ljós hverjir voru sterkari í síð-
ari hálfleik, Valur tók öll völd í
leiknum og mörkin létu ekki á
sér standa. Þegar á þriðju mln-
útu skoraði Ingi Björn Alberts-
son eftir stungubolta frá Her-
rnanni Gunnarssvni. Vörn
Skaganianna var þar illa fjarri
góðu gamni.
Siðan á 11. minútu opnaðist
vörn Skagamanna illa. Ingi
Björn koinst aftur inn en skot
hans fór i stöngina og síðan
hina. þar hrökk hann fvrir
fætur Ilermanns Gunnars-
sonar. sem stóð einn fyrir opnu
marki og Hermann klúðrar
ekki sliku. skoraði örugglega.
4—1.
Hermann Gunnarsson átti
einnig sinn þátt i finnnta marki
,