Dagblaðið - 08.06.1976, Síða 28
Sérstœður ágreiningur í uppsiglingu:
Fer hassgróðinn í íslenzkan
eða bandarískan rikissjóð?
íslenzk yfirvöld reyna nú að
kanna bankainnstæður fíkni-
efnasala á Keflavíkurflugvelli.
Taíið er, að maður þessi, sem er
á snærum varnarliðsins hafi
stundað ólöglega sölu fíkniefna
hér í mörg ár. Þá er og talið, að
hagnaður af þessum viðskipt-
um hafi jafnharðan verið lagð-
ur inn í banka i Bandaríkjun-
um.
Má telja víst, að könnun á
bankainnstæðum mannsins
gefi upplýsingar um það,
hversu umfangsmikil þessi við-
skipti hafi verið. Einnig hefur
ólöglegur hagnaður þýðingu
með tilliti til þess, að hann er
gerður upptækur, ef til hans
næst. Þa'nnig hefur vitneskja
um þessar bankainnstæður
tviþætta merkingu.
Þrátt fyrir trúnað banka við
viðskiptavini sína, er ekki von-
laust, að umbeðnar upplýsingar
fáist, einkum ef sök mannsins
þykir ótvíræð. Hitt þykir hins
vegar alveg víst, að hvað sem
líður upptöku ólöglegs hagn-
aðar af fíkniefnasölu, fáist
hann aldrei afhentur fyrr en
bandarisk skattayfirvöld hafa
farið um hann ómjúkum hönd-
um. Virðist hér vera í uppsigÞ
ingu sérstæður ágreiningur.
Bandarísk skattayfirvöld
þykja mjög hörð í horn að taka
og ganga fast eftir sínu. Liggja
þung viðurlög við hvers konar
skattsvikum, en ólíklegt er, að
fíkniefnasalinn hafi talið þess-
ar tekjur sínar til skatts.
Spurningin er því sú, hvort
íslenzk yfirvöld geta fengið af-
hentan hinn ólöglega hagnað,
ef dómur kveður á um upptöku
hans, eða hvort bandarísk
skattayfirvöld eiga forgangs-
kröfu til hans. Að sjálfsögðu
nær engin íslenzk skattlagning
til neinna tekna eða umsvifa i
tollfríkríkinu á Keflavíkurflug-
velli.
Enn hitnar bœndum í hamsi í Húnaþingi:
NÚ ER ÞREFAÐ UM RÉTTAR-
SMÍÐIVIÐ JARÐAREIGANDA
Mætið við rettina klukkan 17
á annan hvítasunnudag, ella
mun mannvirkinu verða ýtt
burtu með jarðýtu minni!
Eitthvað i þessuni dúr voru
skilaboðin sem tveir hrepp-
stjórar i Húnaþingi fengu frá
Bjarna bónda Hannessyni, eig-
anda eyðijarðarinnar Undir-
fells i Áshreppi.
Og viti menn. Þegar þeir odd-
vitarnir, Gísli Pálsson og Bjarni
Jónsson mættu í gærdag, var
Bjarni mættur með jarðýtu sina
á staðnum við framkvæmdir
sem nýlega eru hafnar við
endurbyggingu gömlu réttar-
innar í landi Undirfells. Sú
gamla hefur verið rifin til
grunna og slegið upp fyrir innri
réttarveggjunum.
Ekki virðist hafa verið
gengið ncuu vel frá samningum
við eigendur — því þegar upp-
slættinum var lokið kom sim-
skeytið með hinu óvenjulega
fundarboði til oddvitanna.
Tveir lögfræðingar úr Reykja-
vík mættu við réttina í fylgd
með oddvitunum, svo líklega
hafa þeir vitað hvað til stóð.
Voru þetta þeir Páll S. Pálsson
og Arnór Pálsson. Eftir talsvert
þref yfirgáfu menn staðinn og
var sagt að ýmsum hafi verið
heitt í harnsi. Engir samningar
tókust.
Nú er spurt í Húnaþingi
hvort bændur í Ás- og Sveins-
staðahreppum þurfi að rétta í
öðrum sveitum eða hvort þeir
freisti þess að láta féð renna af
sjálfsdáðum til sinna bæja. Svo
kann að fara að bændur í
þessum hreppum hafi enga rétt
lengur til að smala fé sínu í.
— JBP —
drukknaði
slysstaðinn. Samferðamenn
Þórólfs hófu þegar leit að
honum og leituðu lengi kvölds.
Undir morguninn leituðu þeir
aðstoðar lögreglunnar á
Akureyri. Nokkru síðar fannst
lík Þórólfs í ánni. Hafði það
borizt 7 til 8 km leið og fannst
niður undir Eyjafjarðará.
-ASt.
30 stiga hiti við skókborðið
hóir ekki íslendingnum:
Guðmundur í
ef sta sœti
Ungur maður, Þórólfur
Tryggvason frá Litla-Hamri i
Öngulstaðahreppi, drukknaði í
Núpá um kvöldmatarleytið á
laugardaginn. Þórólfur, sem
var 22ja ára, var við fjárrekstur
ásamt mörgum öðrum þá er
slysið varð.
Þórölfur hugðist ríða yfir
Núpá. Var hann með tvo til
íNiípá og
reiðar. Er talið að hesturinn er
hann sat hafi hrasað er út í ána
var komið og féll Þórólfur
heitinn af baki. Áin var í
miklum vexti og óvenjulegt
vatnsmagn í henni. Þórólfur
heitinn var gerkunnugur
staðháttum á þessum slóðum.
Hestar Þórólfs höfðu sig upp
úr ánni nokkru fyrir neðan
ásamt þrem Rússum
,,Hér er 30 stiga hiti og erfitt að
tefla skák inni í sal sem ekki er
hætis hót svalari en utan dyra,“
sagði Guðmundur Sigurjónsson,
stórmeistari, þegar DB náði tali af
hopum í síma á Kúbu, þar sem
hann er um þessar mundir að
ljúka skákum sínum í Capa-
blanca-minningarmótinu. Guð-
mundur er efstur á mótinu, en
staðan nokkuð óljós að því er
hann sagði, því skákmennirnir
hafa lokið misjafnlega mörgum
umferðum. Guðmundur á eftir
eina skák.
I 15. umferð sigraði Guð-
mundur Juan Bellon, Spáni, en í
þeirri umferð sigraði Ulf Ander-
son, stórmeistari Svíanna, Kozma
frá Tékkóslóvakíu og komst upp í
5. sæti. Guðmundur er efstur með
9 vinninga ásamt Rússunum
Gulko og Razuvaev. Þriðji Rúss-
inn, Beliayski er með 8 vinninga í
4. sæti, Anderson með 714 vinn-
ing.
Guðmundur kvaðst koma heim
núna um næstu helgi, og þá hefst
undirbúningur fyrir mót i Hol-
landi, sem er á næstu grösum.
Hann kvaðst hafa séð íslands
getið í dagblöðum á Kúbu á dög-
unum, þegar samið var við Breta
um fiskveiðilögsöguna, en hefði
orðið lítils vísari af þeim fréttum.
Annars var símasamband við ríki
Kastros með eindæmum lélegt, —
líklega búa fleiri við sæstrengi en
íslendingar.
Eftir 16. umferð, sem tefld var I
gærkvöldi, er staða efstu manna
ekki fullkomlega ljós, vegna bið-
skáka, en samkvæmt síðustu
fréttum er hún þessi:
1.—4. Guðmundur, Gulko, Razu-
vaev, Beliavski: 9 vinningar.
5. Anderson: 814vinningur.
6. Peev 7 vinningar.
Ljóst er því, að Svíinn, Ulf
Anderson, hefur unnið skák sína
við Kúbumanninn Amador Rod-
riguez í 16. umferð, en sem fyrr
segir er sennilegt að einhverjum
biðskákum úr þessari umferð hafi
ekki verið lokið þegar síðustu
fréttaskeyti voru send frá Cien-
fugos á Kúbu.
JBP.
íslandsmeistararnir í bridge 1976 — sveit Stefáns Guðjohnsen (bridgefréttaritara Vísis). Talið frá
vinstri Stefán, Símon Símonarson (bridgefréttamaður DB), Þórarinn Sigþörsson, Hörður Arnþórsson
og Haliur Símonarson (íþr.ritstj. DB). Þeir Þórarinn og Hörður urðu nú íslandsmeistarar í
sveitakeppni i fyrsta sinn — hinir þrír hafa oftsinnis hlotið þann titil. DB-mynd BP.
Handtekinn með
■jj WÉk 1.
blártd
ogTarlsbergb
Einn af útigangsmönnunum
í Revkjavik var hand-
tekinn aðfaranótt
sunnudagsins I Veitinga-
stofunni að Vesturgötu 53.
Hann hafði farið þar inn til að
afla sér fanga. Er hann var
tekinn, var hann með þrjár
dósir af 1. flokks Carlsberg öli
á sér auk glass af rakspíra, sem
hefur væntanlega verið ætlað
til að koma upp gosinu. -AT-
DB og Yísir með menn
í sigursveit í bridge
Ekki bara samkeppni,
heldur líka samvinna:
íslandsmótinu í bridge lauk í
gær með sigri sveitar Stefáns
Guðjohnsen, Reykjavlk, sem vann
öruggan sigur í lokin eftir tvísýna
og skemmtilega keppni. Sveitin
varð 11 stigum á undan næstu
sveit í mótinu.,
Sveit Stefáns náði snemma
forystu i mótinu, sem hún hélt til
loka, en þó var staðan svo opin
fyrir lokaumferðina, að fimm
sveitir af átta í mótinu höfðu enn
sigurmöguleika. Sveitir Stefáns
með 82 stig og Jón Baldurssonar
með 79 stig stóðu þó bezt að vígi,
en sveitir Hjalta Elíassonar með
69 stig, Jóhanns Þ.Jónssonar, ís-
landsmeistararnir frá í fyrra með
67 stig og sveit Böðvars Guð-
mundssonar, Hafnarfirði meó 66
stig höfðu vissa möguleika þar
sem efstu sveitirnar spiluðu
saman í síðustu umferðinni.
1 lokaumferðinni sigraði sveit
Stefáns sveit Jóhanns með 15-5,
en sveit Hjalta vann sveit Jóns
13-7. Sveit Stefáns sigraði í öllum
sínum leikjum í mótinu, nema
gegn sveit Ólafs Gíslasonar,
Hafnarfirði. Sveit Ólafs vann með
minnsta mun 11-9.
Lokastaðan í mótinu var þessi:
1. Stefán 97 stig 2. Jón Baldursson
(unglingalandsliðið ) 86 stig 3.
Hjalti 82 stig 4. Jóhann 73 stig 5.
Böðvar 70 stig. 6. Ölafur H. Ólafs-
son, Reykjavík, 67 stig 7. Ólafur
Gíslason 43 stig og 8. sveit Boggu
Steins, Reykjanesi, 41 stig.
frjálst, óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 8, JUNI 1976.
John Wiíliams
hlaut slœman
skurð ífingur
— óvíst hve fljótt hann
nœr sér
— Svona óhapp er eitt af því
versta sem hent getur
strengjaleikara, sagði umboðs-
maður gítarleikarans John
Williams, þegar Dagblaðió
hringdi til London og spurðist
fyrir um hvað hefði orsakað
afturköllun hljómleikanna I
Háskólabíói á sunnudags-
kvöldið.
— Það gerðist daginn áður en
ráðgert var að leggja af stað,
að sprunga myndaðist í fingur
annarrar handar og opnaðist
sár inn að beini. Einhverjar
taugar sködduðust. Þetta er
ekki einsdæmi hjá strengja-
leikurun, en afar slæmt, því
við minnstu hreyfingu opnast
sárið að nýju og því er ekki
hægt að halda við neinni
þjálfun. Það tekur mislangan
tíma fyrir svona sár að gróa en
í síðasta tilfelli sem ég vissi
um, tók það þrjá mánuði. John
Williams tekur þetta mjög sárt
því hann er hrifinn af íslandi
og hafði hlakkað mikið til að
fara þangað aftur, sagði
umboðsmaðurinn, hr. Parrod
að lokum.
Svo við fáum ekki að hlýða á
þennan frábæra gítarleikara á
þessari listahátíð en vonandi
þó við fyrsta tækifæri. Næsti
dagskrárliður í Háskólabíói
verður I kvöld þar sem flutt
verður íslenzk popptónlist
eins og nánar er greint fré
annars staðar í blaðinu. -JB-
Hver verður
leynigestur
í Hóskólubíói?
Framlag Listahátíðar til
helzta áhugamáls unga
fólksins, popptónlistarinnar,
verður á dagskrá i Háskólabíói
i kvöld klukkan tíu. Þar koma
fram Spilverk þjóðanna og
hljómsveitin Paradís. Auk
þess skemmtir einhver leyni-
gestur á milli atriða, en hver
það er fær enginn að vita fyrr
en um kvöldið.
Spilverkið og Paradís flytja
þarna frumsamda tónlist, —
Spilverkið væntanlega lög af
nýútkominni plötu og Paradís
lög af LP plötu sem hljóm-
sveitin hefur nýlega lokið við
að taka upp í London.
Hljóðstjórnin er það atriói,
sem mest ríður á að verði í lagi
til að ^l^LH^jjjaternir hjjhnist
vel. Hób y?mir i hifffdum
Ágústs Harðarsonar hljóð-
stjóra Paradísar. — Er Dag-
blaðið leit inn á æfingu á
sunnudaginn var, vann Ágúst
að því að finna réttu
stillingarnar og var bjartsýnn
á að það myndi heppnast.
„Háskólabíó er ekki bezti
staðurinn fyrir góðan hljóm-
burð," sagði hann, ,,en með
góðum tækjum eins og við
höfum ætti þetta að heppnast
vel." -AT-