Dagblaðið - 09.06.1976, Page 1
íriálst
úháð
daghlað
RITSTJÓRN SlÐUMÚLA 12, SÍMI 83322, AUGLVSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2, SlMI 27022.
2. ARG. — MIÐVIKUDAGUR 9. JUNÍ 1976 — 124. TBL.
Sparisjóður Kópavogs var opnaður með lykli, sem pjofarnir
höfðu stolið frá sparisjóðsstjóranum. Þeir komust ekki inn í
fjárhirzlurnar. DB-myndir Björgvin.
Sjóntap vegna neyzlu ó ólyfjan
,,Það væri ekki fjarri lagi að
segja að hingað kæmu um tíu
tilfelli árlega," sagði starfs-
maður augndeildar Landakots-
spítalans er innt var eftir því
hversu algeng blinda af völdum
drykkju væri.
Þeir sem leggjast inn í þessu
ástandi munu í yfirgnæfandi
mæli vera svokallaðir „rónar“.
Þeir leggja sér til munns vökva
eins og hárspíra og rakspíra svo
nokkuð sé nefnt.
Þá koma þarna nokkur tré-
spíratilfelli en metanólið mun
vera afar skaðlegt.
Starfsmaðurinn benti á að
ekki væri alveg rétt að kalla
þetta blindu þar sem að menn
héldu ratsjóninni. Það væri les-
sjónin, það er að segja skarp-
asta sjónin sem færi varanlega
við slíka eitrun.
Augndeildin gæti ekki
hjálpað þessi fólki nema að því
leyti að reyna að venja það af
drykkjunni og gefa því rétta
fæðu. Vannæring gerði það að
verkum að fólkið hefði lítinn
sem engan viðnámsþrótt.
— BA —
Þaðer
stétta-
skipting
ó íslandi
— sjá kjallaragrein
bls.10-11
Yel heppnaðir
popptónleikar
m áListahátíð
ígœrkvöldi
— bls. 14
Launapok-
inn þyngist
um mánaða-
mótin
— baksíða
Brotizt
spari
sjóð
Jósafat Líndal var mættur i
Sparisjóðinn laust fyrir klukkan
niu í morgun. Hann vildi ekkcrt
frekar en aðrir um málið segja.
Stórinnbrot voru framin í Kópa-
vogi í nótí', — annað í Sparisjóð
Kópavogs við Digranesveg 10, hitt
í tbúðarhúsið að Hraunbraut 24.
Þjófarnir höfðu þann háttinn á
við innbrotið í Sparisjóðinn að
þeir stálu lyklum sparisjóðs-
stjórans Jósafats Líndal á heimili
hans og fóru síðan inn í húsið.
Fjárhirzlur Sparisjóðsins eru
óhreyfðar, en töíuvert af lausafé
var stolið. Einnig voru skemmdir
unnar. Þjófarnir lögðu einnig leið
sína í tannlæknastofu og sjúkra-
samlag Kópavogs, sem er í sama
húsi og Sparisjóðurinn. Ekki er
vitað hverju var stolið þaðan.
Á Hraunbraut 24 reistu
þjófarnir stiga upp við vegg og
fóru þar inn um glugga. í húsinu
voru talsverðir fjármunir, en
Dagblaðinu tókst ekki að fá upp-
gefið hve miklu var stolið þaðan.
Rannsóknarlögreglan í Kópa-
vogi hefur rannsókn þessa máls
með höndum. Þórður Þórðarson
rannsóknarlögreglumaður vildi
ekkert láta eftir sér hafa í sam-
bandi við þetta mál í morgun.
Spurningum Dagblaðsins svaraði
hann með því einu, að hann hefði
ekkert um málið að segja. Inn-
brotin virðast því vera á mjög
viðkvæmu stigi þessa stundina.
— AT —
A Hraunbraut 24 reistu þjófarnir
stiga og fóru síðan inn um glugga
á húsinu.
^ 4. skoðqnakönnun Dqgblaðsins:‘~*^
GENGI NATO HEFUR MINNKAÐ
Mun færri en áður vilja, að
Island sé áfram í Atlantshafs-
bandalaginu. Samt er greinileg-
ur meirihluti enn fylgjandi
aðild íslands að bandalaginu.
Þetta urðu niðurstöður skoð-
anakönnunar Dagblaðsins.
Rúmlega 45 af hundraði vilja
að ísland sé áfram í NATO. 31
af hundraði er því andvígur, og
tæplega 24 af hverjum hundrað
eru óákveðnir.
Aðildin að NATO á mun
minna fylgi meðal kvenna en
karla. Aðalorsök minnkandi
áhuga Islendinga á NATO er
vafalaust sú, að mörgum þótti
bandalagið gera lítið til að
hjálpa Islendingum í land-
helgismálinu.
Skoðanakönnunin var gerð,
áður en samið var um land-
helgismálið.
— HH
Sjá bls. 15
Olíuborun
við Grœn-
land hefst í
þessari viku
— erl. f réttir bls. 6
œs&m
Vaxandi
mikilvœgi
Danmerkur
fyrirCIA
— erl. fréttir bls. 6 - 7
igssffism