Dagblaðið - 09.06.1976, Blaðsíða 5
D'A'-iBLAÐIÐ — MIÐVIKUDAC.UR 9. JÍINt 1976
5
Ástralski bréfritarinn hjú (sl. aðalverktökum:
ÞUfíF/Ð ÞER HÍBÝLÍ
UPPFYLLIR EKKILENGUR
SKILYRÐITIL UNDAN-
ÞÁGU TIL JO-NÚMERS
— segir Páll Ásgeir Tryggvason deildarstjóri
„Samkvæmt upplýsingum
sem lögreglustjórinn á Kefla-
víkurflugvelli hefur sent
varnarmáladeild uppfyllir
ástralska stúlkan, sem annast
bréfaskriftir fyrir ísl, aðalverk-
taka ekki lengur þau skilyrði,
sem veita henni rétt til að aka
bifreið með JO einkennisstöf-
um,“ sagði Páll Ásg. Tryggva-
son deildarstjóri í viðtali við
DB.
Dagblaðið skýrði fyrir
skömmu frá þessu máli og
heimildir blaðsins fyrir frétt-
inni drógu í efa rétt hennar til
þeirra hlunninda, sem JO-
einkennisstafirnir veita. Nú
hefur komið í Ijós, að hlunnindi
þau er þessi starfsmaður isl.
aðalverktaka hefur notið,
standast ekki lengur.
Páll Ásgeir sagði að mál
stúlkunnar væri ekki endan-
lega afgreitt, en nýjar upplýs-
ingar lögreglustjórans sýndu að
undanþáguheimildirnar ættu
ekki rétt á sér lengur.
Stúlkan var upphaflega ráðin
erlendis til sérstakra starfa
fyrir ísl. aðalverktaka. Fari slík
ráðning fram erlendis veitir 1.
grein varnarsamningsins við
Bandaríkjamenn heimild til
slíkar undanþágu. Sé ráðið í
þessi störf hér á landi, gilda
undanþágurnar ekki.
Páll Ásgeir sagði að ýmsir
aðilar hefðu fengið þessar
undanþágur um tíma. Nefndi
hann t.d. sérfræðinga er unnu
við aó reisa lóranmastrið á
Sandi og menn sem komið
hefðu til viðhalds og eftirlits
þess, einnig enska klæðskera
sem hér hefðu tekið mál vegna
fatasaums ensks fyrirtækis
fyrir varnarliðið og einnig
starfsmenn í banka (American
Express) á Keflavíkurvelli
fyrir varnarliðsmenn og starfs-
lið varnarliðsins.
Ástralska stúlkan sem unnið
hefur hjá ísl. aðalverktökum
um nokkurt árabil, er hins
vegar komin í íslenzku þjóð-
skrána býr i Njarðvík og er
farin að greiða skatta hér á
landi að sögn Páls og gildir
undanþágan því ekki lengur
fyrir hana.
Varðandi Þjóðverja tvo, er
lengi hafa starfað í klúbbum á
Keflavíkurflugvelli, sagði Páll
að þeir hefðu verið ráðnir er-
lendis og ekki yrði annað séð,
en þeir uppfylltu öll skilyrði til
undanþágunnar, sem þeir hafa.
—ASt.
Hraunbœr
2ja herb. íbúð á 3. hæð.
Suðursvalir.
Norðurmýri
4ra herb. íbúð í tvíbýlishúsi.
Nýstandsett.
Fossvogur
4ra herb íbúð. Suðursvalir.
Falleg íbúð.
Seljtarnarnes
Sérhæð, 5 herb. á 2. hæð
með bílskúr. Fallegt útsýni.
Fífuhvammsvegur
Einbýlishús, stór lóð. Verð
12-13 milljónir.
2ja, 3ja og 4ra herb.
íbúðir
fokheldar og tilbúnar undir
tréverk.
Einbýlishús og raðhús
í smíðum á Seltjarnarnesi, í
Garðabæ, Breiðholti og Mos-
fellssveit.
HIBÝLI & SKIP
Garöastræti 38.
Sími 26277.
Heimasími 20178.
Sumarbústaður
Vandaður ca 40 ferm sumarbústaður í
Þrastaskógi til sölu. Verð 3.5 millj.
útb. 1.5—2 millj.
Allar upplýsingar í símum 43102 og
26200.
Laus staða
Staða framkvæmdastjóra við Sinfóníuhljómsveit íslands
er hér með auglýst laus til umsóknar.
Umsækjandi þarf að hafa re.vnslu á sviði stjórnunar og
fjármála.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist til Ríkisútvarpsins fyrir 24. júní nk.
Ríkisútvarpið
Bflasalan við Vitatorg
Sími 12500 - 14100
Malibu árg. ’73 —'Nova árg. ’70, 1 millj.
Peugeot árg. ’73, 1250 þús. — Nova árg. ’73, 1400 þús.
Comet árg. ’74, 1600 þús. — Morris Marina árg. ’74, 850
þús. Sunbeam 1500 árg. ’73 700 þús. — Bronco Ranger
árg. '74, 2 millj. Austin Mini árg. ’74, 590 þús.
Fiat 131 órg. 76, 1400 þús.
Óskum eftir bílum ó söluskró.
Óskum eftir Mazda 818 úrg. 74 útb. 1 millj.
Óskum eftir Range Rover úrg. 74—75.
Til sölu Mazda 818 úrg. 75.
Til sölu bílar ó skuldabréfum.
Ók í stórgrýtta f jöru
íNauthólsvík
Stórum og þungum Mercedes
Benz var bakkað ofan í
stórgrýtta fjöruna við
bryggjuna í Nauthólsvík á
laugardagskvöldið. Þegar
óhappið varð var einn ungur
maður í bílnum og var hann
grunaður um ölvun við akstur.
Fimm félagar höfðu komið í
bílnum suður eftir og munu
hafa fengið sér bað í læknum
volga og vinsæla. Einn þeirra
brá síðan á leik, vatt sér upp í
bílinn og stuttri ökuferð lauk í
fjörunni. Kranabíl varð að fá til
að nábílnum upp. -ASt.
Til sölu!
VW 1300 árgerð 1972, bifreiðin er í
góðu ásigkomulagi og er til sýnis að
Skúlagötu 63.
Uppl. veittar á skrifstofu Ábyrgðar
h/f, sími 26122.
Óskum að ráða vana menn á
traktorsgröfu og vörubfl
Véltœkni h/f, sími 84911.
Flugmaður
Flugmaður með flugkennararéttindi óskast.
Flugtak
Atvinna í boði
Stúlka óskast til afgreiðslu- og vél-
ritunarstarfa. Þarf að geta byrjað
strax. Uppl. sendist Dagblaðinu, Þver-
holti 2, fyrir nk. föstudagskvöld
merkt: VÉLRITUN 404.
Fastback árg. ’71. Mjög vel
með farinn. Litur: orange.
Ný skiptivél. Vetrardekk
fylgja.
Rambier Classic árg. ’66.
Litur: biágrænn, 6 cyl.
Skipti möguleg. Góður
mótor. Otvarp.
Datsun 140 J árg. ’74
Rauður. Ekinn 25 þús km.
(Jtvarp.
Ný þjónusta-
tökum og birtum
myndir af bílum.
Vantar sölubíla —
höfum kaupendur.
Dodge Dart Custom árg. ’74.
Ekinri 44 þús. km. Skipti á
nýrri bíl. Litur brúnn.
Vetrardekk fylgja.
| HOFDATÚNI 4 - SlMI 10356
2ja-3ja herb. íbúðir
við Stóragerði, Hringbraut,
Langholtsveg, Reynimel,
Asparfell, Holtagerði
(m/bílskúr), Nýbýlaveg
(m/bílskúr), Grettisgötu, í
kópavogi, í Garðabæ,
Hafnarfirði norðurbæ,
Breiðholti og víðar.
4ra—6 herb. íbúðir
við Holtsgötu, Goðheima, í
Fossvogi, við Safamýri, í
Hlíðunum, við Álfheima,
Skipholt, á Seltjarnarnesi.
við Háaleitisbraut, Hraun-
bæ, i vesturborginni, Hafn-
arfirði (norðurbæ), Kópa-
vogi, Breiðholti og víðar.
4ra herb. góð íbúð
á fyrstu hæð í vesturbænum,
110 ferm. Verð 9.5 millj.
Nánari uppl. á skrifstofunni.
Einbýlishús og raðhús
Fokheld — ný — gömul — í
Reykjavík, Hafnarfirði,
Breiðholti og víðar.
Óskum eftir öllum
stœrðum íbúða ó sölu-
skró.
Íbúðasakin Borg
Laugavegi 84.
Sími 14430.