Dagblaðið - 09.06.1976, Síða 6
DAGBLAÐIÐ — MIÐVIKUDAGUH 9. JUNÍ 1976
Líbanon:
Líbýumenn
reyna að
stöðva
bardagana
Abdel Salem Jalloud, kvöld frá Damaskus, að sögn með
forsætisráðhérra Líbýu reynir í stuðningsyfirlýsingar Assads
Beirút í dag að vinna fylgi við Sýrlandsforseta og Arafats
vopnahlé i átökum sýrlenzkra Palestínuarabaleiðtoga í poka- Fundir og tilmæli víða að hafa enn ekki megnað að stöðva bardagana I og umhverfis Beirút.
hermanna og bandamanna horninu. Sýrlendingar hafa nú hótað að beita öllum sfnum styrk 1 bardögunum.
Palestínuaraba og líbanskra
vinstrimanna vegna innrásar Sýr- Undanfarna þrjá daga hafa
lendinga í Líbanon. verið harðir bardagar innrásar- mannanna. Sýrlendingar hafa fjölda skriðdreka. lagsins í Kairo er haldinn til að
Jalloud kom til Beirút í gær- hersins og bandalags vinstri- notið stuðnings flughers og mikils Skyndifundur Arababanda- reyna að finna lausn á vandanum.
Olían íNorðursjónum:
FÁ NORÐMENN FÍMM
BILLJÓNIR íSINN
HLUT Á NÆSTA ÁRI?
Hið ríkisrekna olíufyrirtæki
Norðmanna, Statoil, seldi hráolíu
og hreinsaðar olíuafurðir fyrir
tæpa 14 milljarða ísl. króna á
síðastliðnu ári, samkvæmt árs-
skýrslum. Um einn fjórðungur
þessa magns var útflutningsvara.
Reikningarnir sýna að tapið á
ársrekstrinum hefur orðið um
tveir og hálfur milljarður,
þar með er heildartapið frá því að
framkvæmdir hófust orðið tæpir
fjórir milljarðar. Eignir fyrir-
tækisins eru taldar vera um 54
milljarðar samkvæmt árs
uppgjöri en þar af hefur
fyrirtækið fengið fé, sem nemur
23 og hálfum milljarði frá ríkinu
og opinberum sjóðum. Afganginn
hefur orðið að taka að láni
erlendis.
Rúmlega 34 milljarðar króna
fóru til fjárfestingar á síðastliðnu
ári til uppbyggingar olíuborunar-
svæða Statfjord og Frigg í
Norðursjónum, og um sjö
milljarðar fóru til þess að reisa
olíuhreinsunarstöðina við Rafnes
í suð-austur Noregi. Þá segir í
skýrslunni, að augljóst sé, að oliu-
fyrirtæki Norðmanna muni nú
þurfa að veita mun meira af fjár-
magni sínu í aukna fjárfestingu.
Þetta hefur í för með sér, að
olíuframleiðslutæki og flutninga-
tæki fyrir olíusvæðin munu kosta
fyrirtækið um 450 milljarða
króna, þó er það háð þeim
flutningatækjum sem valin verða.
Hagnaðurinn af þessum fjár-
festingum getur orðið um fimm
billjónir króna, enda þótt ekki sé
fjallað sérstaklega um gróða-
möguleika af öllum þessum fram-
kvæmdum í ársskýrslunni.
Þá er rætt um það, að stórauka
þurfi vinnukraft við fram-
kvæmdirnar til þess að hægt sé að
ljúka þeim á tilsettum tíma.
Richard Burton vill
kvœnast í snatri
Elizabeth Taylor sagði í New
York í morgun, að hún vildi
ekkert gera til að koma í veg
fyrir að fyrrum eiginmaður
hennar, leikarinn Richard
Burton, gæti gengið að eiga
fyrirsætuna Suzie Hunt. Taylor
bætti því við, að hún hefði
meira að segja í hyggju að gefa
Burton og Suzie fjölskyldu-
snekkjuna i brúðkaupsgjöf.
Burton, sem nú er fimmtug-
ur, og Suzie, 22 árum yngri en
hann, eiginkona brezks kapp-
akstursmanns, eru nú á Haiti,
þar sem þau hyggjast fá skilnað
frá mökum sínum i snarhasti.
Samkvæmt fréttum frá Haiti
hefur Burton þó enn ekki getað
gengið að eiga Suzie sína, því
skriflegt samþykki Liz Taylor
vantar. Hún lýsti því yfir, eins
og fyrr segir, að ekkert væri því
til fyrirstöðu að siík yfirlýsing
fengist.
'Richard Burton og nýja kærastan, Suzie Hunt
Olíuborun við Grœnland
hefst í þessarí viku
Olíuleit við Grænland hefst á
næstu dögum þegar eitt bezt
útbúna olíuborunarskip heims,
„Pelican," kemur i dag til fyrir-
hugaðs ieitarstaðar 120 km út
af Syðri-Straumfirði á vestur-
strönd Grænlands. Það er
dansk-fransk-kanadíska fyrir-
tækið TGA-Grepco, sem annast
olíuleitina.
Búizt er við að olíuborunin
að þessu sinni standi í um tvo
mánuði. Upphaflega var ætlun-
in að hún hæfist fyrir mánuði
en vegna óvenju mikils hafíss
á þessum slóðum var henni
frestað.
TGA-Grepco er hið eina af
tuttugu félögum, sem hefur
fengið leyfi til olíuleitar við
Grænland í ár. Félagið er rekið
af fyrirtækinu Total Grönland
Olie, sem er í franskri eigu.
Nokkur önnur fyrirtæki hafa í
hyggju að hefja olíuborun við
Grænland á næsta ári en fæst
félaganna hafa enn ákveðið
hvenær hafizt verður handa.
Menn gera sér nú vonir um,
að þegar þessum tilraunabor-
unum lýkur eftir tvo mánuði
liggi endanlega fyrir, hvort olía
«eða jarðgas finnst á grænlenzka
landgrunninu.
Sérfræðingar telja að 50%
líkur séu á því að olía eða gas
finnist við Græniand. Borun
verður mjög erfið vegna lofts-
lagsins. Finnist það mikil olía
eða gas, að vinnsla borgi sig,
bíður annað og meira vandamál
úrlausnar hvernig á að koma
því í land.
GILDIDANMERKUR FYRIR
CIA FíR MJÖG VAXANDI
— segir Philip Agee, fyrrum erindreki bandarísku
leyniþjónustunnar
Mikilvægi Danmerkur fyrir
bandarísku leyniþjónustuna CIA
er helzt í því fólgið, að dönsk
verkalýðsfélög og stjórnmála-
flokkar geta verið notaðir til að
koma peningum til and-
kommúnískra samtaka og
hreyfinga í sunnanverðri Evrópu.
Að auki er hægt að skipuleggja
pólitískar samúðaraðgerðir frá
Danmörku, svo eitthvað sé nefnt.
Þannig fórust Philip Agee,
fyrrum erindreka CIA orð er hann
hélt fuiííi með dönskum biaða- og
fréttamönnum í Kaupmánna-
höfn um helgina. Umræðuefni
fundarins var starfsemi
núverandi sendinefndar CIA í
Danmörku. Philip Agee er í
Danmörku í boði Sosialistisk
Kulturfront, sem þessa dagana
heldur „200 ára afmælishátíð
USA” í Valbyparken.
Ásamt blaðamanni frá danska
blaðinu Information fór Agee
yfir lista um starfsmenn
bandaríska sendiráðsins í Kaup-
mannahöfn. Með samanburði á
þeim listum við opinberar banda-
rískar uppsláttarbækur, varð
niðurstaðan sú, að sjö af þeim
tuttugu og sjö nöfnum, sem á
listanum voru, gátu verið
erindrekar CIA.
Agee gat örugglega sagt um
einn mann, Edward J. Gotchef, að
hann væri starfsmaður CIA. En
eftir að korpið er í tízku að fletta
ofan af CIA-mönnum víðsvegar
um Evrópu, hefur bandaríska
utanríkisþjónustan brugðið á það
ráð að láta ekki lengur í té lista
yfir sendiráðsstarfsmenn.
Inforination segir þó, að með
útilokunaraðferðinni og notkun
eldri starfsmannaskráa hafi verið
hægt að komast bærilega af.
Blaðið birti í fyrra lista yfir
CIA-menn í Danmörku. Þrír
þeirra, sem þa voru nefndir, voru
einnig nefndir nú, þeir William J.
Mulligan, John C. Baxter og
Joseph E. Fortier III., sem veitir
forstöðu þeirri deild sendiráðsins
er annast baráttuna gegn ávana-
og fíkniefnadreifingu, sem er
meðal nýjustu starfssviða CIA.
„Norður-Evrópa hefur öðlazt
aukið gildi fyrir Bandaríkin í takt
við stjórnmálaþróunina í sunnan-
verðri Evrópu,” sagði Agee á
blaðamannafundinum í Kaup-
mannahöfn. „Sterk aðstaða í
löndum á borð við Danmörku og
Svíþjóð á að bæta upp tapið í
suðri. Nýi sendiherrann í Dan-
mörku, John Gunther Dean. er
gott dæmi um þessa þróun. Hann
er mjög vel menntaður og hefur
dvalizt langtímum í löndum, þar
sem starfsemi CIA hefur verið
veruleg. Hvers vegna skyldi
maður á borð við hann vera
sendur til Danmerkur?"
.u..
sVÍVVÍÍÍÍÍ tflliMV
Yfirkomin af vonbrigðum
tók móðir 18 ára gamallar
stúlku í borginni Dieppe í
Frakklandi sig til nú um
helgina og skaut dótturina
til bana eftir að hafa komizt
að því að stúlkan var ófrísk,
áður en hún hafði gengið í
hjónaband.
Móðirin skýrði frá því í
bréfi, að hún gæti alls ekki
þolað þá tilhugsun, að dóttir
hennar væri ófrísk, áður en
hún gengi í hjónaband síðar
gimmmma Mmf Im mmrnmmm
mriiimm iii iriiiíii
í þessum mánuði. Síðan
reyridi hún að fremja sjálfs-
morð, en særði sig aðeins
litillega.
Konan dvelst nú á geð-
veikrahæli.
I