Dagblaðið - 09.06.1976, Side 10
DAGBLAÐIÐ — MIÐVIKUDAGUR 9. JUNl 1976
SMSBIABW
frfálst, úháð dagblað
Útíiefandi Daiiblartirt hf.
F. amkvæmdastjóri: Svcinn H. Fvjólfsson. Hitstjóri Jónas Kristjánsson.
Fréttastjóri: Jón JíiiKÍr l’étursson. Hitstjórnarfulltrúi: Haukur Holnason. Aðstortarfrétta-
stjóri: Atli Stoinarsson. lþróttir: Ilallur Simonarson. Iiönnun: Jóhannes Heykdal. Handrit
ÁsKrímur Pálsson.
Bla^amenn: Anna Bjarnason. Ásueir Tómasson. Braui Siuurrtsson. Frna V. Intfólfsdóttir.
(•issur Siuurösson. Ilallur Hallsson, llelui Pétursson. Jóhanna Biruisdóttir. Katrin Pálsdóttir.
Kristin Lýösdóttir. Olafur Jónsson. Omar Valdimarsson. Ljósmyndir: Arni Páll Jóhannsson.
Bjarnleifur Bjarnleifsson. B jör.uvin Pálsson. Hajinar Th. Siuurösson.
Cjalilkeri: Þráinn Þorleifsson. Dreifinuarst.jóri: Már F. M. Halldórsson.
Askriftarujald 1000 kr. á mánurti innanlands. I lausasölu 50 kr. eintakirt.
Kitstjórn Síóumúla 12. sími 83322, au«lýsinuar. áskriftir og afsreirtsla Þverholti 2. simi 27022.
Setninu oj» umhrot: Daublartió hf. oj> Steindórsprent hf. Ármúla 5.
Mynda-of> plötuuerrt: Hilmirhf. Sirtumúla 12. Prentun: Árvakurhf. Skeifunni 19.
Sóparar á Vellinum?
Engu máli skiptir, hvort margir
eða fáir íslendingar gerast
sóparar á Keflavíkurflugvelli,
þegar rætt er um, að íslendingar
leysi Bandaríkjamenn af á ýmsum
sviðum. Hins vegar skiptir máli,
hversu margir íslendingar taka
við flóknum tækniverkefnum og
stjórnunarstörfum á vegum herstöðvarinnar.
Röng er sú trú, að íslendingar séu úti að aka í
hermálum. Starfsmenn Landhelgisgæzlunnar
hafa undanfarna mánuöi verið á þriðja þrepi
sínu í taugastríðsskóla þorskastríðanna. Starfs-
menn Flugmálastjórnar hafa um langan aldur
gætt flugsins yfir Norður-Atlantshafi með
miklum sóma. Starfsmenn og sjálfboðaliðar
Almannavarna fá hér á landi meiri tækifæri til
raunhæfrar þjálfunar en hermenn margra
annarra landa fá á því sviði.
Störf hins svonefnda ,,varnarliðs“ eru fyrst
og fremst tæknilegs eðlis. Veigamesti þáttur
þess er að fylgjast með allri óvenjulegri umferð
í lofti, á sjó og neðansjávar á íslandssvæðinu.
Með hæfilegri tæknilegri þjálfun gætu starfs-
menn Flugmálastjórnar og Landhelgisgæzlu
hæglega annast þetta eftirlit, bæði sjálft flugið
og stjórnun þess úr landi.
Þannig gætum við aflað okkur aukinnar
tæknilegrar þekkingar, sem síðan hefði óbein
áhrif á þróun efnahagsmála, þar sem
tækniþekkingin er mikilvægasta auðlind iðn-
ríkja heimsins.
Þannig gætum við aflað okkur her-
fræðilegrar þekkingar og aukið sjálfstæði
okkar um leið. Svisslendingar og Svíar geta
kennt okkur, að án slíkrar þekkingar verða
þjóðir ævinlega annars flokks þjóðir.
Þannig gætum vió líka aukið tekjur
þjóðarinnar, þar sem innlendir starfsmenn
mundu greiða skatta og gjöld til innlendra
yfirvalda. Eins og er hafa opinberir aðilar
engar slíkar tekjur af hinum erlendu hátekju-
mönnum, sem annast herstööina.
Sérfræðingar Atlantshafsbandalagsins og
bandaríska hermálaráðuneytisins munu hér
eftir sem hingað til reyna að telja okkur trú
um, að ekki sé unnt að láta Íslendinga yfirtaka
hin mikilvægu störfin á þessum sviðum. Þeir
vilja vitanlega halda íslendingum niðri og við
eigum ekki að taka mark á þeim. Við skulum
heldur leita ráða hjá stofnunum, sem ekki hafa
hagsmuna að gæta.
í síðustu viku var hér í leiðara Dagblaðsins
haldið fram, að bandaríski flotinn og þarlendir
starfsmenn hans á Keflavíkurflugvelli ættu í
rauninni að greiða tolla, söluskatt, tekjuskatta
og útsvar til íslenzkra stjórnvalda. Ennfremur
væri þátttaka flotans í byggingu flugstöðvar
þar syðra óeðlilega lítil. Og loks kæmi til
greina, að hið svonefnda ,,varnarlið“ reisti
varaflugvöll á Egilsstöðum og tæki þátt í varan-
legri vegagerö hér á landi.
Þetta var byggt á þeirri skoðun, að herstöðin
væri fyrst og fremst fyrir Bandaríkin, næst
fyrir Atlantshafsbandalagið og aðeins í þriðja
lagi fyrir varnir íslands.
Við þurfum aó sækja fram á tveimur sviðum
í senn. í fyrsta lagi þurfum við að ná nýjum
samningum um breytta fjármögnun her-
stöðvarinnar. ()g í öðru lagi þurfum við að ná
nýjum samningum um, að ísland yfirtaki smám
saman á vegum Atlantshafsbandalagsins þá
starfsemi, sem nú er á Keflavíkurflugvelli.
Menn hafa komizt
Kissinger er að tapa tíu ára pókerspili
Þaó eru ekki allir í hinni
nýju Afríku sem hafa látiö
blekkjast af töfralækninum
Henry Kissinger, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna. Með
eða án rússneskra áhrifa hafa
afrískir stjórnmálamenn
komizt að því aó Kissinger er
hættulegur maöur.
Hann talar tveim tungum.
Kissinger sagði nýlega á
ferðlagi sínu um Afríku að
Bandaríkjamenn hefðu samúð
með málstað frels;shreyfinga
blökkumanna þar.
Geta menn treyst þeirri
fullyrðingu?
Varla. Og þá hvers vegna
ekki? Vegna þess að eftir því
sem tímar hafa liðið hefur það
orðið æ erfiðara að treysta
orðum utanríkisráðherrans.
Hann hefur fallið í gryfju sem
umvafin er efasemdum um það
að hægt sé að taka hann alvar-
lega.
Og hann hefur skjalfest að
hann er tvöfaldur njósnari.
Á leiðinni út
Þessu hafa margir komizt að.
Þar á meðal Rússarnir. Eins
Arabar, Israelsmenn, Hvítá
húsið, utanríkisráðuneytið,
bandaríska þingið, báðir aða,l-
stjórnmálaflokkarnir og nú
s*ðast er röðin komin að
nokkrum áhrifamiklum stjórn-
málamönnum i Afríku.
Röðin er komin að Kissinger.
Nýjar uppljóstranir
Það versta fyrir hann er það
að fólk er almennt að venjast
þvi að hann einn á ekki lengur
að stjórna gangi utanríkismála
Bandaríkjamanna.
Dag eftir" dag flytja fjöl-
miðlar í Bandaríkjunum
frásagnir af tvöföldum leik
hans sem haft gætu alvarlegar
afleiðingar í för með sér og um
sjálfsánægjulegan feril hans.
Nú síðast var það hinn
áhrifamikli Gyðingur Aron
Latham í tímaritinu New York
sem fært hefur sönnur á það að
Kissinger sé að syngja sitt
síðasta vers. Greinilegt er að
hann hefur lagt út rangt spil í
þessu tíu ára gamla pókerspili.
Ekki sannleikurinn
Aron Latham og margir aðrir
Gyðingar og einnig þeir sem
ekki eru af þeim kynstofni sem
kynnt hafa sér stöðu Banda-
ríkjanna í alþjóðamálum, hafa
fært sönnur á að á ferðum
sínum um löndin fyrir botni
Miðjarðarhafs hafi Kissinger
margoft gengið svo langt að
hinir stríðandi aðilar, ísrael og
Arabalöndin héldu að hann og
Bandaríkin væru bandamenn
þeirra.
Hann beinlínis laug, eða lét
það kyrrt liggja að segja allan
sannleikann um samningaað-
ferðir sínar.
Eftir stríðið við Yom Kipur
kallaði Golda Meir hann
„Metternich“ vitandi það að"
Kissingerhefurallatíð haft mik-
ið dálæti á þeim austurríska
stjórnmálamanni. Metternich
bjó til hugtakið Stjórnmála-
legt jafnvægi. Kissinger stal
því.
Samningamaðurinn
Hann reyndi að skapa
jafnvægi í stjórnmálum í
Miðausturlöndum, milli Hvita
hússins og þingsins, milli
hauka og dúfna í Banda-
ríkjunum og milli valdhafa og
hinna frjálslyndu bandarísku
dagblaða.
Upp á síðkastið hefur hann
brotið þessa meginkenningu
sína. Hann hefur varað þjóðir
Vestur-Evrópu við að taka við
kommúnistum í ríkisstjórnir og
hann hefur varað Sovétmenn
Ekki er vist aö Kissinger verði fagnað eins mikið í framtíðinni eins og verið hefur. Forystumenn
annarra rikja hafa komizt að því. að hann er oft tvöfaldur i roðinu.