Dagblaðið - 09.06.1976, Page 23
23
nÁCiBTiADTÐ — iVnnVIKTJDAGUH 9. Jl'TNt 1976
Utvarp
Sjónvarp
„Hver andskotinn, eru þeir
að fara að endursýna þennan
þátt,“ sagði Valgeir Guðjóns-
son, einn af meðlimum Spil-
verks þjóðanna er DB ræddi
við hann um sjónvarpsþátt Spil-
verksins er var fyrst á dag-
skránni 6. september í fyrra —
tveimur dögum áður en Dag-
blaðið kom fyrst út. Þátturinn
verður endursýndur í kvöld kl.
22.T0.
„Þessi þáttur er ákaflega
hrár og tekinn upp beint," hélt
Valgeir áfram. „Hann gefur í
rauninni enga mynd af Spil-
verkinu eins og það er nú þar
sem við vorum ekki orðin
hljómsveit á þessum tíma. Þessi
þáttur var gerður áður en upp-
taka á LP plötunni okkar hófst
svo að þetta er eiginlega ekki
að marka.“
I þessum þætti flytur Spil-
verk þjóðanna nokkur lög sem
síðar lentu á plötunni. Þar á
meðal eru Plant No Trees, Ice-
laiidic Cowboy, Lazy Dasy og
fleiri.
Auk þeirra Valgeirs Guðjóns-
sonar, Sigurðar Bjólu Garðars-
sonar og Egils Ölafssonar
bregður fyrir ýmsu fólki á
meðan á þættinum stendur.
Það eru aðallega meðlimir
Líkams og heilsuræktarfélags-
ins Hlyns. Einnig sést söngkona
Spilverksins, Sigrún Hjálmtýs-
dóttir á skjánum. Hún var þó
ekki gengin í hljómsveitina á
þessum tíma, heidur sýndi hún
aðeins nokkrar leikfimiæf-
ingar.
Er þetta samtal við Valgeir
fór fram vann Spilverkið af
kappi að æfingum á því efni
sem það bauð fólki upp á í
Háskólabíói í gærkvöldi. Það
næsta, sem er á döfinni, er upp-
taka nýrrar plötu.
—ÁT—
ALVERK
FYRIR ALLA
EFTIR ÞEKKTA ERLENDA LISTAMENN
SJÓN ER
SÖGU RÍKARI
öOftA
HUSIÐ
LAUGAVEGI178.
SPILVERK ÞJÖÐANNA. I þættinum f kvöld gefur á að hlýða
nokkur af lögunum, sem síðar lentu á plötu hijómsveitarinnar.
DB-mynd: Kagnar Th. Sigurðsson.
Útvarp í kvöld kl. 20,20:
Endurminningarfrá Laugarvatni
Margra lands-
þekktra manna
minnzt
Sölutjöld 17. júní
Þeim aðilum, sem hyggjast setja upp
sölutjöld á þjóðhátíðardaginn 17. júní
nk., ber að hafa skilað umsóknum
sínum fyrir 12. júní nk. á skrifstofu
borgarverkfræðings, Skúlatúni 2,3. h.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á
sama stað.
Þjóðhátíðarnefnd.
K
Agúst Vigfússon kennari segir
frá Laugarvalnsskóia í kvöld.
DB-mynd: Björgvin.
Ágúst telur að Laugavatns-
skóli hafi verið hin merkasta
stofnun og kvaðst eiga þaðan
hinar ljúfustu endurminning-
ar. Allir gamlir Laugvetningar
eru hvattir til að hlusta á þátt-
inn.
Agúst Vigfússon er
Dalamaður að uppruna en
kennari að mennt og vann hann
við það starf í Bolungarvík í
um 20 ár og síðan í Kársnes-
skóla. Hann vinnur nú sem
dyravörður í Háskólabiói.
Sumarvakan er á dagskrá
útvarps f kvöld kl. 20.20, en þar
mun Agúst Vigfússon flytja
endurminningar sínar frá
Laugavatnsskóla.
Ágúst segir í þætti þessum
frá veru sinni á skólanum árin
1930—31. Skólinn var þá ný-
byrjaður að starfa og Bjarni
Bjarnason nýtekinn við skóla-
stjórn. Ágúst minnist kennara
skólans, þeirra Guðna Ólafs-
sonar frá Sörlastöðum,
Guðmundar Gislasonar, síðar
skólastjóra á Reykjum í Hrúta-
firði og sr. Kristins Stefáns-
sonar síðar skólastjóra í Reyk-
holti. Þá verður minnzt á
nokkra nemendur skólans
þennan vetur sem síðar urðu
þjóðkunnir menn, svo sem rit-
höfundana Stefán Jónss., og
Guðmund Daníelsson, svo og
Pál Þorsteinsson, alþing-
ismann. Ágúst talar einnig
örlítið um skólastarfsemina,
kennslufyrirkomulagið og
skólabraginn.
^ Sjónvarp
Miðvikudagur
9.júní
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Bílaleigan. Þýskur myndaflokkur.
Tilræöi viö ástargyðjuna. Þýðandi Bríet
Héðinsdóttir.
21.05 Karlakórinn Svanir. Karlakórinn
Svanir frá Akranesi syngur undir
stjórn Hauks Guðlaugssonar. Undir-
leikari Fríða Lárusdóttir. Stjórn upp-
töku Tage Ammendrup.
21.25 Læknisaögerö án uppskuröar. Þýsk
fræðslumynd um nútímatækni við
læknisaðgerðir. Þýðandi Auður Gests-
dóttir. Þulur Ingi Karl Jóhannesson.
22.10 Spilverk þjóðanna. Félagarnir Val-
geir Guðjónsson, Egill Ólafsson og
Sigurður Bjóla fremja eigin tónsmið
með aðstoð ýmissa vina ogvanda-
manna. Tónlist þessa kalla þeir há-
fjallatónlist. Stjórn upptöku Egill
Eðvarðsson. Áður á dagskrá 6. septem-
ber 1975.
22.30 Dagskrárlok.
Utvarp
Miðvikudagur
9« * *
. jum
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynn-
ingar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miödegissagan: „Myndin af Dorían
Gray" eftir Oscar Wilde Valdimar
Lárusson les þýðingu Sigurðar Einars-
sonar (10 ).
15.00 Miödegistónleikar
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir).
16.20 Tónleikar.
17.00 Lagiö mitt Anne-Marie Markan
kynnir óskalög barna innan tólf ára
aldurs.
17.30 „Eitihvaö til aó lifa fyrír" eftir Victor
E. Frankl. llólmfríður Gunnarsdóttir
les þýji.'.gf. sina á bók eftir austur-
riskun gcðlækni vö).
18.00 Tónleil.ar. Tilk> nningar.
18.45 Veðurfregnir r-ags:- : á kvöhlsins
19.00 Fróttir. r.éiu.^uk.. Tiikyniungar.
19.35 Túnblómin okkar. Ingimai' Oskars-
son nátlúrufriVÓin,.* u flyturerimii.
20.00 Einsöngur . úivarpssal: H reinn
Líndal syngui lög eflir Sigvalda
Kaldalóns, Pál ísólfsson, Emil
Thoroddsen og Karl O. Runólfsson.
Ólafur Vignir Albertsson leikur á
píanó.
20.20 Sumarvaka. a. í Laugarvatnsskóla
veturinn 1930. Agúst Vigfússon kenn-
ari segir frá. I;. Störin syngur llerdis
Þorvaldsdóttir leikkoná les ljóð eftir
(iuðmund Frímann. c. Tveir a ferö um
Tungu og Hlíð Halldór Pétursson
flytur frásöguþátt: fyrri hluta. d. Kór-
söngur Kaimm-rkörinn syngur. Söng-
stjóri: Kut I. Magnússon.
21.30 Útvarpssoyan: „Síðasta freistingin"
eftir Nikos Kazantzakis. Sigurður A.
Magnússor. þ\<'m:i’ Kristins
Björnssonar (37).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðlllfregnir. Kvöldsagan: „Hækk-
andi stjarna" eftir Jón Trausta Sigriðlir
Seliiöth les (2).
22.45 Djassþattur Jóns Múla Ai nasonai’.
23.30 Fréllir. Dagskrárlok.
Sjónvarp kl. 22,10: Spilverk þjóðanna:
ÞESSI ÞÁTTUR GEFUR ENGA MYND AF
SPILVERKINU EINS 0G ÞAÐ ER NÚNA