Dagblaðið - 09.06.1976, Qupperneq 24
[
Fyrst var hlegið að
hugmyndinni, —
] Nú er úthofsrœkju-
veiðitogari í undirbúningi
„Þaö hefur eiginlega verið
hlegið að þessari hugmynd
minni þar til núna,“ sa'gði
Snorri Snorrason skipstjóri og
útgerðarmaður á Dalvík f
viðtali við DB í gær, en hann
hefur látið teikna fyrir sig
veiðiskip til úthafsrækjuveiða,
en þær hafa lítið sem ekkert
verið stundaðar hér til þessa.
Teikningarnar voru unnar í
Skotlandi að færeyskri fyrir-
mynd og á skipið að verða 35
metra langt og mælast um 300
tonn. Frystitæki eiga að vera
um borð og stendur til að
heilfrysta rækjuna.
Ef allt gengur eins og Snorri
hefur fyrirhugað, verður
skrokkur skipsins smiðaður í
Liverpool, en frágangur
unninn í Slippstöðinni á
Akureyri. Unnt verður að
frysta allt að 12 tonnum um
borð á sólarhring og er rúm
fyrir 150 tonn í geymslu. Fyrir
þann afla fengjust nú um 45
milljónir ■ króna. Skv.
útreikningum Snorra nægir þó
að veiða tvö tonn á sólarhring
til að grundvöllur sé fyrir þess-
ari útgerð.
Snorri hyggst veiða rækjuna
fyrir Norðurlandi á 30 til 100
mílna fjarlægð frá landi og
geta veiðiferðirnar orðið
mánuður á lengd. Er hann
fullviss þess að nægileg rækja
sé fyrir skipið og byggir
þá vissu m.a. á tilraunum
sínum á Sæþóri EA, sem hann
mun selja upp i byggingu
skrokksins á nýja skipinu.
Snorra hefur gengið
þokkalega að fjármagna
fyrirtækið og að útvega tilskilin
leyfi þar til nú undir það
síðasta, að staðfesting á ríkis-
ábyrgð er einhvers staðar föst í
kerfinu. Hann hefur fengið
hana munnlega en vantar
nauðsynlega tilskilda pappíra,
sem ekki hafa fengizt í tvo
mánuði. Því má bæta við að
Hafrannsóknastofnunin hefur
gert tilraunir með
djúprækjuveiðar víða um-
hverfis landið og hafa þær víða
lofað góðu. Þar sem tiltölulega
lítinn sérbúnað þarf til þessara
veiða, miðað við venjuleg
veiðiskip svo sem nótabáta,
kunna að skapast verkefni fyrir
þá við rækjuveiðar á milli
loðnuvertíðanna.
— ef ni í noffcun hér
nú uppfylla kröfur
markaðskindanna
en eru ekki nógu góð
Hún sagði að stöðugt þyrfti
að vera á varðbergi gagnvart
þessum breytingum, en nú
sem stæði uppfylltu litarefni í
notkun hér sett skilyrði í
markaðslöndunum.
Útflutningur unninna og
litaðra grásleppuhrogna héðan
nemur aðeins örfáum
prósentum heildarfram-
leiðslunnar hér, afgangurinn
fer saltaður í tunnum til
fullvinnslu ytra en alls eru 60
til 80 prósent allra
grásleppuhrogna á heims-
markaðnum framleidd hér.
Að lokum sagðist hún ekki
Þessi var að vinna við að skilja grásleppuhrogn vestur í Stykkishólmi. Hann og félagi hans stunda
grásleppuveiðar og ganga síðan frá hrognununum í tunnur.
(DB-mynd Árni Páll)
Litunarvandamál grásleppuhrogna:
Verið að reyna nýtt ef ni hér
„Við erum með tvo löglega
liti í notkun nú en þar sem
okkur líkar ekki nægilega vel
við þá erum við að hefja
tilraunir með þriðja litinn, sem
kemur erlendis' frá,“ sagði
Matthildur Steinsdóttir hjá
Sölustofnun lagmetis í viðtali
við DB í gær, vegna ört hertra
reglna um litunarefni
grásleppuhrogna.
Svíar hafa t.d. bannað þau
litarefni, sm dönsk fyrirtæki
nota einkum til litunar hrogna
fyrir Svíþjóðarmarkað, frá og
með næstu áramótum. Að sögn
Matthildar eru litarefnin sett
saman úr mörgum efnum og
kemur af og til fyrir að eitt
efnanna er einhvers staðar
bannað og þá er uppskriftin þar
með ónýt.
vera meira uggandi nú en áður
um að unnt verði að standast
kröfur markaðslandanna um
litarefni, hinsvegar væru
þessar breytingar kostnaðar-
samar og kynnu að koma eitt-
hvað út í verðlagið.
-G.S.
Hitastigið í
Víti hefur
snarhœkkað
Svo virðist sem hitastig
vatnsins í gígnum Víti í Öskju
hafi hækkað verulega að
undanförnu. Maður nokkur sem
nýlega var á ferð um Öræfin,
fyrstur manna á þessu sumri kom
til byggða í gær og sagði þá að
ómögulegt væri að baða sig í
vatninu, .sem venjulega er ekki
nema snarpheitt.
Kvaðst hann ekki ntuna til þess,
að svo hefði verið og taldi, að
hitastigið væri nú um 60 gráður.
„Þetta kemur mér ekki á
óvart,“ sagði Eysteinn Tryggva-
son hjá Raunvísindastofnun
Háskólans í viðtali við Dagblaðið.
„Það er alltaf heldur vatnslítið i
gígnum að vori til, en ég hef
sjálfur ekki verið á ferðalagi
þarna svona snemma árs. Hins
vegar er vitað, að yfirborð
Öskjuvatns fer hækkandi allt
sumarið og hitastig verður heldur
lægra við það. Hæð yfirborðs
gígsins er talið vera i samræmi
við það og þvi er svona heitt
þarna nú,“ sagði Eysteinn
ennfremur. -HP.
NÚ ÞYNGIST LAUNAUMSLAGIÐ!
— 8,83% launahœkkun um nœstu mónaðamót
Vísitala framfærslukostnað-
ar reyndist 578,64 stig hinn 1.
júní sl. samkvæmt útreikningi
Hagstofunnar. Nemur þessi
hækkun 2,67% umfram „rauða
strikið", sem kveðið var á um í
hinum almennu kjarasamning-
um frá 28. febrúar sl. Sam-
kvæmt ákvæðum hans þýðir
þetta 8,83% launahækkun frá
og með 1. júlí næstkomandi.
t áðurgreindum kjarasamn-
ingum var gert ráð fyrir 6%
áfangahækkun hinn 1. júlí.
Þegar 2,67% hækkunin er
reiknuð ofan á laun eftir 6%
hækkunina, reynist hún því
verða 8,83% eins og fyrr segir.
— BS —
Palli „sendur í sveitina":
FÆR HANN EKKIKAUPHÆKKUN?
Fóik á öllum aldri hefur haft
samband við Dagblaðið og
spurzt fyrir um það hvers
vegna vinur vor Palli í barna-
tíma sjónvarpsins er hættur að
koma fram þar.
Hefur það heyrzt, að hann
hafi ekki hlotið nægilega
umbun fyrir vinnu sina, og
hefur fólk verið að undrast það,
hvort ekki væri hægt að borga
smávegis meira fyrir ágætt
skemmtiatriði eins og Palli er, í
stað þess að „senda hann i
sveit" eins og nú hefur verið
gert.
„Palli fór snemma í sveitina í
ár," sagði Kristín Pálsdóttir,
dagskrárgerðarmaður í viðtali
við Dagblaðið. „F.vrirhugað er
að hann komi aftur með
haustinu og höfum við átt
viðræður saman um það mál.
Það er því ekki tími til þess að
segja neitt ákveðið hvað
verður," sagði Kristín
ennfremur.
— HP
frfálst, úháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 9. JUNl 1976
Stúlkur í
steininn
fyrir inn-
brot í nótt
Þeir urðu að vonum nokkuð
undrandi lögreglumennirnir
sem kl. 1.54 í nótt voru sendir
að Verzluninni Sólu að Lauga-
vegi 54 vegna innbrots þar.
Þar voru fyrir þrjár stúlkur,
sem voru allar handteknar
vegna meintrar innbrots-
tilraunar. Það heyrir til
undantekninga að kvenfólk sé
tékið við slíka iðju. En þarna
voru á ferð herskáar
valkyrkjur. Gistu þær í fanga-
geymslum í nótt og málið fer
til frekari rannsóknar.
Nokkuð er um innbrot nú og
þjófnaði. Brotizt var inn í
bakari að Leifsgötu 32 og
stolið sælgæti. Þá hafði
lögreglan afskipti af tveimur
telpum sem staðnar voru að
hnupli í Hagkaup um lokun í
gær og rétt fyrir kl. 8 f morgun
var tilkynnt um þjófnað hjá
Vöruleiðum. öll þessi mál eru
í rannsókn. -ASt.
Byssumaður
við Elliðaórnar
— ífullu leyfi
Skothveuir glumdu við
Elliðaárnar 1 gær. Fregnin var
ekki lengi að berast
lögreglunni. Var hart brugðið
við að vonum. í ljós kom að
þarna var ,,löglegur“ maður
með byssu sfna. Hefur hann
sótt um þann starfa að fæla
svartfugl frá Elliðaánum.
Hefur fuglinn sótt mikið
þangað, þvf þar er nú mikið
um niðurgönguseiði sem
Elliðaármenn hafa sett f árnar
til laxaræktar. Gerir fuglinn
mikinn usla í þessari ræktun,
sé honum ekkis stuggað frá.
-ASt.
Álfta-
hreiður
þurfti lög-
reglu-
verndar við
Hrekkjabragð var hann
kallaður í bókum lögreglunnar
í Árbæ, ljótur leikur unglinga,
sem athygli lögreglunnar var
valun á kl. 22.58 í gærkvöld.
Var þar reynt að hrekja álftir
af hreiðri sínu, sem fuglarnir
eiga í hólma ofan Árbæjarstífl-
unnar. Sáu lögreglumenn um
að koma á friði þarna í sveita-'
vininni.
Lögreglan í Arbæ er ekki
óvön afskiptum af dýrum, en
fuglavernd er þó sjaldgæft
fyrirbæri þar. Eltingaleikur
við hross er algengastur. Attu
lögreglumennirnir 1 slfkum
leik við 5 hross f gær f
Breiðholti, Árbæ og á
Sogavegi. -ASt.