Dagblaðið - 14.07.1976, Page 24

Dagblaðið - 14.07.1976, Page 24
*™ Reikningar Laugardalshallar: Rúmlega 1 eyrir af hverri krónu varð tekjuafgangur Leigutekjur í Laugar- dalshöllinni námu á sl. ári 15,5 milljónum króna, aó því er fram kemur í reikningum Reykjavíkurborgar 1975. V Veitingasala í httsinu gaf í tekjur á liðnu ári tæplega 6,5 milljónir kr. Aðrar tekjur námu tæplega 105 þúsund krónum. Heildartekjur Laugar- dalshallarinnar voru því 22.093.600 krónur á liðnu ári. Rúmlega einn eyrir at hverri krónu er inn kom varð eftir í tekjuafgang, þá er öll gjöld höfðu verið greidd. Nam rekstr- arafgangur' Laugardalshallar samkvæmt reikningunum 251.725 krónum. Helztu gjaldaliðir hallar- innar eru laun tæplega 7,2 milljónir króna, ljós og hiti tæplega 5 milljónir, „veitingar til endursölu“ 3,8 milljónir, við- hald fasteigna 2,4 milljónir og vextir tæplega ein milljón. Á efnahagsreikningi Laugar- dalshallar er íþrótta- og sýningarhúsið metið á 97.880.000 krónur og er sú upp- hæð óbreytt frá því sem var í reikningum borgarsjóðs frá árinu 1974. ASt / Einhver varð súr: FRÉTT DB STENDUR AÐ ÖLLU LEYTI „Ummælin í dagblaðinu Vísi sem höfð eru eftir mér þar um fréttaflutning Dagbaðsins eru ekki með þvi orðalagi, sem ég notaði,“ sagði Halldór Þor- björnsson yfirsakadómari i viðtali við Dagblaðið um það, hvað hefði verið „villandi og ónákvæmt" i frétt þess um ráðningu vestur-þýzka rann- sóknarlögreglumannsins Karl Schútz, „Ég var spurður að því, hvort málið allt væri eins og það stóð í Dagblaðinu og sagði ég það ekki vera.“ Sagði Halldör ennfremur, að enn hefði ekki verið ákveðið, hvenær Sehútz kæmi hingað á ný, — „hann verður að segja til um það sjálfur.“ Eins sagði Halldór, að enn ætti eftir að senda Schútz ýmis málsskjöl og yrði það gert inn- an skamms. — HP. isnerti, en heffti sihan haldiö till ] Bonn ah nýju. A6 sögn Halldórsl I hefur Schutz enn ekki fengift öill I málskjölin i sinar hendur ogl Iværi unniö aö þvi aö búa þau il lhendur honum Halldór kvaöst llitiö vita um starfsferil manns-| lins en gat um aö i frétt Dag- Iblaösins um þetta mál I gærl Iheföi gætt mikillar ónákvæmni| |og fréttin veriö villandi. JOHl „Við reiknum með áfram- haldandi hlýindum hér á landi næstu tvo daga, en lengra nær spáin ekki hjá okkur,“ sagði Markús Á. Einarsson veður- fræðingur. Þetta er milt og þægilegt loft, sem berst frá Evröpu, og lítið er um að kaldir norðlægir vindar berist hingað núna! Unga fólkið sem hvílir lúin bein við grjótgarðinn í enda göngugötunnar virðist kunna vel að meta hlýja loftið. —DB-mynd Bjarnlcifur/KL frjálst,áháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 14. JJJLl 1976. Fékk œðiskast ó hringveginum Stórskemmdi rútubíl og hótaði fólki með hnrf ' Farþegum í rútu Austurleiða brá i brún á laugardaginn, er einn farþega tók skyndilega upp hníf og tók að ota honum að fólki. Öð hann um bílinn, öskraði og lét ófriðlega. Farþegar urðu að vonum skelkaðir, og er ekki tókst að sefa manninn, yfirgáfu far- þegar bílinn og lokuðu hin' geðveika inni. Var nú kallað á lögreglu frá Höfn í Hornafirði en blllinn var syðst i Suðursveit við bæinn Hala. Aður en tveir lögregluþjónar komu á vettvang hafði maðurinn rifið útvarp og tal- stöð bilsins af stöðum sínum, stungið sæti og skorið og brotið báðar framrúður bilsins. Guðmundur Svavarsson lög- reglumaður náði fljótt tökum á manninum og var hann settur i járn. Hann var næturlangt hafður í fangageymslu. Er bráði af manninum tjáði hann lögreglunni, að hann væri á leið umhverfis landið. Meðferðis haföi hann 21 krónu og einhvern smávarning i pappakassa. Læknir úrskuróaði manninn geðveikan. Farið var með hann flugleiðis til Reykjavíkur í fylgd tveggja lögrégluþjóna. AST. Millisvœðamótið: Það hallast lítt á í byrjun Smyslov sigraði Tal í 3. um- ferð millisvæðamótsins í skák í Bienne i Sviss í gær. Kom það mest á óvart, ekki sízt þar sem Tal hafði hvítt. Önnur úrslit. Diaz — Smejkal 0:1 Lombard — Czom 0:1 Húbner — Byrne l/í:'A Andersson — Liberzon V5: V4 Gulko — Petrosjan 'AM Sanguinetti — Matanovic 'AM Sosonko — Castro 'AM Rogoff — Larsen 'AM Portisch — Geller biðskák Að þremur umferðum lokn- um eru fjórir efstir og jafnir, Petrosjan, Húbner, Smejkal og Smyslov. Allir hafa þeir einn vinning og tvö jafntefli eða 2 vinninga. (Fyrirsögn okkar og niðurlag fréttar í gær var mis- sögn). Næstir koma Portisch, Castro og Bent Larsen með l'A og biðskák og geta þeir þvi gert strik í reikninginn hvað efstu sæti snertir. — ASt „VINNINGAR VILJA EKKIK0MA MEÐ GÓDU MÓTI" fór í bið en lauk síðar í gær- „Hef ekki falazt eftir neinum skák- manni til íslands" — sagði Friðrík Ólafsson í morgun „Þetta gengur rölega. Það er eins og vinningarnir vilji ekki koma með góðu móti,“ sagði Friðrik Ólafsson er DB ræddi við hann í síma í morgun. „En það er ekki öll nótt úti enn, þó að mötið sé nú um það bil hálfnað. Það er enn tæki- færi til að klóra í bakkann og það veröur reynt." 1 7. umferö í gær gerði Friðrik jafntefli við Farago og Guðmundur gerði jafntefli við Kurajica. Friðrik nóði iviö bétri sliiðu um tíma en Ungverjinn varðist vel. Kortsnoj vann Langeweg og Szabo vann Donner. Gipslis og Ree geróu jafntefli og sömuleiðis Sax og Ligterink. Skák Ivkov og Miles kvöldi með jafntefli. Þá lauk biðskák Velemirovic gegn Böhm með sigri Velemirovic i gærkvöldi. Staðan er því nú: Kortsnoj 5, Farago, Szabo og Miles hafa 4,5. Siðan koma Ree, Guðmundur, Kurajica, Friðrik, Gipslis, Sax, Ligterink og Velemirovic með 3.5. Ivkov og Böhm hafa 3 vinninga, Donner 2 og Lange- weg 1. Friörik kvað ekki hægt að greina á ntilii hvort síóari iúut- inn yrði léttari hinum fyrri. Keppendur væru jafnir að slyrkleika og þeir sem f.vrir- fram hel’ðu verið taldir heldur veikari. hefðu re.vnzt sterkir. sagði Friðrik Ólafsson „Kortsnoj hefur verið hvað heppnastur i mótinu,“ sagði Friðrik. Hann átti tapaðar stöður gegn Farago og Sax en þær björguðust í jafntefli hjá honum. Það og sú staðreynd að hann á samkvæmt stigatölu að vinna þetta mót gerir það ekki óeðlilegt að hann skipar nú efsta sætið. Farago er lítt þekktur. Hann vann meistara- flokk IBM-mötsins í fyrra og komst þá í stórmeistaraflokk. Hér er keppt í mörgum flokk- um og eru keppendur alls um 700 talsins." í næstu umferð tefla C.uð- inundur og Friðrik saman og hefur Guðmundur hvítt. —ASt. „Eg hef ekkert reynt að fá neinn af þátttakendum IBM- mótsins til þátttöku i alþjóðlega skákmótinu i Re.vkjavík." sagði Friðrik Olafsson í simtali við DB í morgun. „Eg hef ekki hug- mynd um. hvaða skákmenn þeir hafa áhuga á að fá. og ég voil ekki hverja þeir eru búnir að fá. Auðvitaö gæti ég kannað þetta mál hér. en ég hef ekki sérstaklega verið utn það beðinn. Þar af leiðandi hef ég ekkert gert í málinu." Eitt morgunblaðanna í morg- un skýrði ftá þessu verkefni Friðriks fvrir Taflfélagið. Dag- blaöið hafði áhuga á að vita In ernig gengi, og svar Friðriks lá á hreinu. — ASt s

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.