Dagblaðið - 12.08.1976, Side 6
6-
Lrfitt er að gera sér grein fyrir hinu raunverulega ástandi í flóttamannabúðunum, en hörmungar-
sögur þeirra, sem þaðan hafa sloppið, eru óhugnanlegar. Hér má sjá bílalest Rauða krossins flytja
særða út úr búðunum.
Allir fluttír brott
frá Tel Al-Zaatar
Sendifulltrúi Arabasamtak-
anna í Líbanon, Hassan Sabri
Al-Kholi, tilkynnti fréttamönn-
um í gær, að samkomulag hefði
náðst um að flytja alla íbúa Tel
Al-Zaatar flóttamannabúðanna
á brott en stöðug skothríð hefur
nú verið á búðirnar í meira en
sjö vikur.
Leiðtogar hægri manna gáfu
út um það tilkynningu í gær, að
búðirnar væru í þann veginn að
falla og að þeir hefðu náð á sitt
vald síðasta vatnsbóli Palest-
ínumanna.
Ekki vildi Al-Kholi greina
nánar frá samkomulaginu milli
hægri manna og leiðtoga
Palestínumanna, sem höfðu
fyrr um daginn sagt, að ekki
kæmi tilgreina að gefast upp.
Samkomulagstilraunir sem
þessar hafa áður reynzt hald-
litlar í borgarastyrjöldinni í
Líbanon og vekur það athygli,
að einungis þeir fulltrúar
Falangista, sem ráða yfir svæð-
unum næst flóttamannabúðun-
um, hafa undirritað samkomu-
lagið.
Enn er óljóst liversu margir
hafast við í búðunum, sem eitt
sinn hýstu a.m.k. 30 þúsund
manns. Eru búðirnar í miðjum
austurhluta Beirút en kristnir
hægri menn hafa ráðið þeim
borgarhluta um langt skeið.
Talsmaður Palestínumanna
sagði i gær, að búðirnar liktust
nú einna helzt fjöldagröf, þar
sem 10—12 börn dæju á dag
vegna fæðuskorts og fjöldi full-
orðinna af sárum sínum.
Að sögn herstjórnar krist-
inna manna er álitið, að um 300
hermenn Palestínumanna séu
enn í búðunum, en vandamálið
er að fá þá til þess að gefast
upp. Þeir eru bundnir eiði þess
efnis að drepa alla þá, er reyna
að gefast upp, líkt og hermenn
Þjóðverja á síðustu mánuðum
heimsstyrjaldarinnar.
_____DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 12. ÁGUST 1976.
Reyndu að
rœna EI-AI
#■ A§ — fímiti
flugvel s
Fimm manns létust og um 20
særðust alvarlega eftir skotbar-
daga milli palestínskra
skæruliða og öryggisvarða á flug-
vellinum við Istanbul í gær.
Hófu skæruliðarnir skothríð á
fólk og sprengdu eina hand-
sprengju, eftir að taska, sem einn
skæruliðanna hélt á sprakk við
skoðun öryggisvarða. Mun einn
skæruliðanna hafa látið lífið í
sprengingunni, en tveir lögreglu-
menn særzt alvarlega. Tveir
skæruliðanna reyndu að verjast
handtöku á salerni, en gáfust upp
eftir um hálftíma bardaga.
Að sögn farþega, sem komu
með flugvél þeirri er
skæruliðarnir ætluðu með og er í
eigu EL-Al flugfélagsins ísra-
elska, hófu þremenningarnir
skothríð, er þeir voru hindraðir í
að taka 40 farþega sem gísla og
færa þá inn í flugvélina. Tóku
öryggisverðir vel við sér og segja
farþegarnir, að einn skærulið-
anna hafi fallið fyrir kúlum
þeirra. Þá hafi hinir hafið skot-
hríð með fyrrgreindum afleiðing-
um.
Korchnoi
fundinn
Sovézki stórmeistarinn Viktor
Korchnoi, sem sótt hefur um land-
vistarleyfi í Hollandi sem pólitísk-
ur flóttamaður, hefur sagt, að
hann muni taka þátt í heims-
meistaramótinu í skák á næsta
ári.
Korchnoi hefur verið veitt
landvistarleyfi til bráðabirgða i
sex mánuði, þar til ákvörðun
hefur verið tekin um mál hans
hjá dómsmálaráðuneytinu. Segja
apinberar heimildir, að öruggt sé
talið, að honum verði veitt hæli i
landinu.
„Sjálfsstjórn á Grœn■
landi er óraunhœf"
Kansas:
19 ÁRAIEYNISKYTTA DRAP TV0
OFAN AF 26. HÆÐ HÓTEIS
— og sœrði sjö aðra vegfarendur
í viðtali við dönsku frétta-
stofuna Hitzau segir græn-
lenzki þjóðþingsmaðurinn Lars
Emil Johansen, að sjálfsstjórn í
Grænlandi sé óhugsandi þessa
stundina. Segir hann ennfrem-
ur, að stjórnmálalega sinnaðir
menn á Grænlandi eigi að beina
öllum kröfum sínum að því að
heimastjórn komist á laggirnar
sem fyrst, sjálfsstjórn verði
ekki komið á fyrr en eftir einn
mannsaldur eða þá meira.
Er þessi yfirlýsing Johansen,
sem talinn hefur verið róttæk-
ur, algjörlega í samræmi við
það, sem varaformaður Græn-
landsráðsins, Jonatan Motzfeld,
hefur sagt. Hann á einnig sæti í
nefnd, sem kannar möguleik-
ana á heimastjórn.
Þessar yfirlýsingar stjórn-
málamanna koma í kjölfar
fundar, sem haldinn var í
Narssak á Grænlandi. Þar var
þess krafizt, að skipuð yrði
nefnd ,,eða byltingarráð, eða
frelsissveitir“ sem beittu sér
fyrir algjörri sjálfsstjórn Græn-
lendinga.
Segja stjórnmálamennirnir
tveir, að fremur beri að túlka
þær hugmyndir sem gagnrýni á
störf heimastjórnarnefndarinnar.
Lögreglan í Wichita í Kansas í
Bandaríkjunum skaut og særði í
gær ungan mann, sem hafði
komið sér fyrir á 26. hæð hótels í
borginni með tvo kraftmikla
riffla, drepið tvo vegfarendur og
sært að minnsta kosti sjö manns.
Talið er að leyniskyttan sé
aðeins 19 ára gömul. Hann
ruddist inn í Holiday Inn-hótelið
þar í borginni í gær og komst inn
á herbergi á efstu hæð. Þaðan hóf
hann síðan skothríð á vegfarend-
ur á helztu verzlunargötu borgar-
innar fyrir neðan.
Hann var enn að skjóta þegar
lögreglan kom á vettvang, eftir að
hafa fengið tilkynningu frá
borgara er hafði séð piltinn bera
vopnin inn á hótelið,og kom pilt-
inum að óvörum. Skot í handlegg
ag fótlegg stöðvuðu frekari skot-
hríð piltsins.
Enn hefur engin skýring verið
gefin á því hvers vegna pilturinn
hóf þesa furðulegu og afdrifaríku
skothríð. Hann liggur nú á sjúkra-
húsi og líður eftir atvikum vel.
Annar þeirra, sem pilturinn
myrti, var blaðamaður sem var á
eiðinni í bíl sínum til hótélsins til
að taka myndir af skotmanninum
ag afleiðingum skothriðarinnar.
Flokksþing repúblikana:
Buckley þingmaður býður sig
fram gegn Ford og Reagan
Ovænt staða hefur allt í einu
komið upp í jafnri baráttu
Fords forseta og Ronalds
Reagans um útnefningu banda-
ríska Repúblikanaflokksins til
forsetaframboðs þar í haust.
Þegar kosningabarátta
þeirra er aö nálgast lokatak-
markið, — flokksþingið í
Kansas City eftir he.lgina, —
tilkynnti öldungadeildarþing-
maðurinn James Buckley frá
New York, einn íhaldssamasti
þingmaður deildarinnar, að
hann hefði í hyggju að gefa
kost á sér á flokksþinginu
sjálfu. Bæði Ford og Reagan
telja þessa yfirlýsingu
Buckleys sér hjálplega—og
báðir telja hana skaðlega
hinum.
t Hvíta húsinu sögðu starfs-
menn kosningabaráttu Fords—
sem hefur heldur fleiri nauð-
synlega kjörmenn en Reagan til
að hljóta útnefningu flokksins
á miðvikudaginn — að þeir
teldu skyndiframboð Buckleys
sjá fyrir því að Ford hlyti út-
nefninguna í fyrstu umferð.
Menn Reagans líta öðruvísi á
málið. Þeir telja Buckley munu
koma í veg fyrir að Ford verði
kjörinn í fyrstu umferð og þar
með séu möguleikar þeirra
manns meiri.
Fróðir menn og fréttaskýr-
endur telja það mjög nauðsyn-
legt fyrir Ford að hljóta útnef-
ninguna þegar i fyrstu umferð,
að öðrum kosti sé veruleg hætta
á því aó hann hljóti ekki út-
nefningu flokksins. Það hefur
aðeins einu sinni gerzt áður, að
bráöabirgðaforseti (eins og
Ford er) hafi ekki hlotið út-
nefningu flokksins — en það
var fyrir nærri hundrað árum.
Þingfulltrúar eru bundnir af
flokksdeildum sinum til að
greiða annaðhvort Ford eða
Reagan atkvæði sitt í fyrstu
umferð, en í þeirri síðari geta
atkvæði fallið á allt annan veg,
ekki sízt ef þriðji frambjóðand-
inn er allt í einu kominn til
sögunnar.
Sprengiframboð: James L.
Buckley, hægri sinnaður
repúblikani frá New York,
gefur fólki kost á að kjósa sig
sem forsetaefni.