Dagblaðið - 12.08.1976, Síða 9
D.AGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 12. ÁGUST 1976.
íslenzki verkamaðurinn stendur verr en verkamaður í öðrum löndum, f lestum
ÍSIAND ER LÁGLAUNALAND
Island er láglaunaiand,
miðað við önnur vestræn ríki.
Það sýnir samanburður á því
hve Iengi verkamaður er að
vinna fyrir ákveðnum, helztu
nauðsynjavörum og áfengi.
Miðað er við 6. taxta Dags-
brúnar og borið saman hve
mikla vinnu vörurnar kosta í
Reykjavík, Washington,
Moskvu, Miinchen, London ög
París.
Lengi má auðvitað deila um
hvort teknar eru alveg sam-
bærilegar vörur en í stórum
dráttum er niðurstaðan eins og
hér fer á eftir.
tslenzkur verkamaður er 73
mínútur að vinna fyrir hálfu
kílói af kaffi. t Washington er
verkamaðurinn 32 mínútur að
þvi, 163 í Moskvu, 75 í Múnch-
en, 69 í London og 43 í Paris.
118 mínútur tekur það
íslenzka verkamanninn að
vinna fyrir 7 kílóum af kar-
töflum en 58 mínútur hinn
bandaríska, 49 hinn sovézka, 53
mínútur hinn vestur-þýzka, 160
hinn brezka og 94 hinn franska.
Hálft kíló af hakki kostar
ísienzkan verkamann 65
minútna vinnu en hinn banda-
ríska 17 mínútur. 104 mínútur
tekur það verkamanninn í
Moskvu, 29 í MUnchen, 38 í
London og 50 í París.
Hálft kíló af smjöri kostar
íslenzka verkamanninn 72
mínútna vinnu en hinn banda-
ríska 23 mínútur, hinn sovézka
71, hinn þýzka 31, hinn brezka
29 og hinn franska 39.
Þrjú kíló af brauði kosta
hinn íslenzka 72 mínútur, hinn
bandaríska 64, hinn sovézka 61,
hinn þýzka 67, hinn brezka 29,
hinn franska 54.
Tólf egg kosta íslenzkan
verkamann 49 mínútna vinnu,
bandarískan 21, sovezkan 156,
vestur-þýzkan 39, brezkan 28 og
franskan 56
Kíló af þorski kostar Dags-
brúnarmanninn 26 mínútna
starf, en í Washington er verka-
maðurinn 49 minútur að vinna
fyrir því, 56 i Moskvu. 52 í
MUnchen, 98 í London og 113 í
París.
Kíló af úrvals nautakjöii
kostar íslenzkan verkamann
154 mínútur, bandarískan
aðeins 66, sovézkan 144, vestur-
Það þýðir Iíklega ekki annað en
taka því með heimspekilegri ró
þótt landið okkar hljóti nú að
teljast tii iáglaunasvæða
heimsins. Hann kærir sig
áreiðanlega kollóttan, fyrir-
sætan okkar á þessari mynd,
einn af láglaunamönnum
þjóðfélagsins en engu að síður
eitt af „breiðu bökunum*‘.
(DB-mynd Björgvin).
þýzkan 115, brezkan 147 og
franskan 166.
Og 0,2 lítrar af vodka kosta
íslenzkan verkamann 153
mínútna vinnu, bandarískan 19
mínútur, sovézkan 168
mínútur, vestur-þýzkan 18,
brezkan 59 og franskan 42.
-HH.
Nýtt íþróttahús í Mosf ellssveit:
w
AFTURELDINGI
BARÁTTUNNIÁÐUR
EN LANGT UM LÍÐUR
Nú getum við farið að búast við
að Afturelding, íþróttafélag
Mosfellinga, fari að blanda sér í
keppnina í fyrstu deildinni í
handboltanum áður en langt um
líður. Þar er nú verið að reisa
vegíegt íþróttahús, sem verður
tekið í notkun í haust. Gólfflötur
hússins er 40x23 metrar og því
löglegur keppnisvöllur fyrir
handknattleik. Búningsklefar
verða sameiginlegir fyrir húsið og
sundlaugina. Húsið er einingahús
og mun kosta 40 milljónir eins og
það er nú en þá er eftir að setja i
það gólf og ganga frá þaki. Húsið
mun kosta fullbúið á núverandi
verðlagi um 150 milljónir.
—KP
Nýja iþróttahúsið hefur þotiö upp á skömmum tima, enda byggt ur
einingum sem voru fluttar tilbúnar á staðinn.
Ný bókabúð í Mosfellssveit:
„SNERRA þýðir reyndar orusta"
„Nafnið á bókabúðinni okkar
er reyndar á sumarbústað afa
okkar, en hann er í Önundarfirði
og hann heitir líka ,,SNERRA,“
sagði Snorri Snorrason en hann
er eigandi verzlunarinnar ásamt
bróður sínum, Jóni Karli. Nafnið
er frá tímum Snorra Goða og
þýðir orusta eða harður bardagi.
„Við vildum hafa sérstætt nafn á
verzluninni og við erum ánægóir
með þetta, það er allt of mikið af
nöfnum sem er algjör deyfð
yfir,“ sagði Snorri.
Þeir bræður verzla með bækur,
ritföng og skólavörur ásamt ijós-
myndavörum. Þeir líta auðvitað
björtum augum á samskiptin við
Mosfellinga og vonast til að þeir
geti veitt þeim góða þjónustu í
framtíðinni. —KP
SKATTSKRANNI FLETT:
Ekki stórt sem sumir
stórkaupmenn þurfa
aðgreiða
Stórkaupmenn verða að mikil að vísu. Þeir virðast ekki
greiða sín gjöld eins og aðrir þurfa að axla eins miklar
skattborgarar — misjafnlega byrðar og bankastjórarnir, sem
Dagblaðið sagði frá í gær, en
þeir voru allflestir i hærri
kantinum með gjöld sín. En hér
eru sem sagt nokkrir stórkaup-
menn, búsettir í Reykjavík,
teknir af handahófi upp úr
þeirri merku bók, Skattskránni
1976:
nafn Þorgrímur Þorgrímsson tekjusk. eignask. útsvar barnab. samtais
stórkaupmaður Jón Guðlaugsson 482.345 384.820 214.000 1.081.165
forstjóri Ópal Sveinn Björnsson 279.699 133.219 154.000 566.918
stórkaupmaóur Þórður Sturlaugsson 107.514 258.378 130.900 496.792
Forstj. (Sturlaugur Jónss. & Co) Ágúst Kristmanns 101.070 6.072 109.900 217.042
frkvstj. (Snyrtivörur hf.) Agnar Ludvigsson 325.351 33.794 207.800 566.945
forstjóri Andrés Guónason 204.110 105.464 215.300 524.874
stórkaupmaður Haraldur Haraldsson 52.489 47.773 121.600 221.862
(Andri hf.) Árni Árnason 38.996 0 244,000 282.996
stórkaupm. (Austurbakki hf) Karl Eiríksson 215.604 0 126.700 342.304
framkv.stjóri (Bræóurnir Ormsson) Davíð S. Jónsson 533.128 66.942 313.100 37.500 950.670
stórkaupmaóur Eiríkur Helgason 382.315 135.400 192.700 37.500 672.915
stórkaupmaður Ragnar Borg 0 20.290 27.000 47.290
forstj. (G. Helgason & Melsteð) Guðmundur S. Júliusson 157.529 32.865 217.500 93.750 314.144
heildsali Bergur G. Gislason 0 2.399 0 37.500 + 35.101
stórkaupm. (Garðar Gisiason hf) Óiafur Haraldsson 428.694 164.852 195.500 789.046
forstj. (Fálkinn hf.) Hjörleifur Jónsson 138.662 56.600 172.300 93.750 273.812
forstj. (Fóðurblandan hf.) Gunnar Asgeirsson 120.846 42.521 189.200 352.567
stórkaupmaður 709.353 117.038 294.500 37.500 1.083.391