Dagblaðið - 02.09.1976, Síða 2
2
DAGBLAÐIÐ. — FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 1976.
Sorphaugarnir við hlið
stœrstu púðurtunnu landsins
Helgi Vilhjálmsson skrifar:
Oft hafa gerðir ráðamanna
valdið furðu eða jafnvel reiði
ýmissa, bæði fyrr og síðar. Er
slíkt engin nýlunda. I raun má
þetta teljast eðlilegt, því að svo
margþætt og margslungið er
mannlífið að ekki er á færi
margra að gera svo öllum líki.
Þó finnst mér fyrirhyggjuleysi
borgaryfirvalda hafa keyrt úr
hófi, þegar sorphaugum
Reykjavikur var valinn staður
upp við Gufunes á sínum tíma
— í næsta nágrenni við
Áburðarverksmiðju ríkisins.
Fyrir nokkrum árum var
byrjað að aka á þennan stað
sorpi og alls kyns úrgangi. Var
þá vegalengdin að hliði
Áburðarverksmiðjunnar á að
gizka 400 m. Þarna var ágæt
náttúrufegurð: lítið lón gekk
inn í landið, en á hina hönd lá
bóndabýli og fallegur vogur.
Síðan hefur átt að heita svo, að
allt rusl væri grafið niður með
stórvirkum vinnuvélum og
sandi og öðrum jarðefnum ýtt
yfir. Ef hreyft hefur verulega
vind, hefur blaðarusl eigi að
síður fokið vítt og breitt um
næsta nágrenni öllum til mikils
ama og þá sérstaklega starfs-
fólki Áburðarverksmiðjunnar
og fólki, sem í grennd býr. í
annan stað hafa rottur átt mjög
góða daga á soprhaugum þess-
um, þær hafa orðið stórar og
bústnar og gengið þarna um
. eins og stórir fjárhjópar.
En nú skal að lokum minnzt á
hlut, sem er sýnu verri og
alvarlegra eðlis en þau atriði
sem á hefur verið drepið hér að
framan Á undanförnum árum
hafa margsinnis orðið sjálfs-
íkveikjur í sorpinu. Er þá
kallað á slökkvilið Reykjavíkur
til að ráða niðurlögum eld-
anna. En eins og gengur og
gerist hefur það verið misfljótt
að koma á staðinn. Sterk
reykjarsvæla hefur þábætztvið
megnan óþef sem gjarnan
leggur af haugum þessum yfir
nærliggjandi mannabústaði og
veldur mörgum skapraun og
angri.
Aðfaranótt laugardagins
14. ágúst síðastliðinn myndaðist
ein af þessum sjálfsikveikjum,
var það í annað sinn á sama
stað með eins eða tveggja daga
millibili og hefur ekki í annan
tíma logað jafnglatt á þessum
slóðum. Svo undarlega sem það
nú annars kann að láta f eyrum
eru þessir sorphaugar alltaf að
færast nær Áburðarverksmiðj-
unni.Gizka ég á að vegalengdin
frá hliði verksmiðjunnar að
sorphaugunum sé nú sé nú um
um 100 metrar, en einmitt þar
á mörkunum loguðu hinir
miklu eldar.
Áburðarverksmiðjan er án
efa stærsta púðurtunna
landsins. Þess vegna stendur
maður undrandi frammi fyrir
þeirri staðreynd, að sorp-
haugum skuli valinn staður
einmitt þarna. Þessa umræddu
nótt urðu sprengingar í eld-
kófinu og þyrlaðist neistaflugið
Útigöngufénaður Reykjavikur
SKJOTIÐ SKJOLSHUSIYFIR
SMÆLINGJANA
Helgi Hannesson skrifar:
Hugsað til hunda og katta.
Ég ólst upp með hundi og
ketti, eins og allflest önnur
sveitabörn — þeir félagar þóttu
þá nauðsynlegir þjónar á
hverjum bæ. Hundur skyldi
hjálpa til við að verja tún og
engjar fyrir ágangi búfénaðar.
— Köttur skyldi verja bæinn
fyrir músagangi.
Löngu síðar var ég nokkur ár
verkstjóri á stóru búi. Hafði ég
þá hvorki hund né kött á
bænum og saknaði hvorugs,
nema síður væri. Ég fann og sá
að því fylgdu stórir kostir:
Ærnar urðu spakari en ella og
fuglar áttu friðland heim að
bæ.
Hundur er svo bezt hæfur á
búi að hann sé greindur, vel
siðaður og heimamenn allir
kunni lag á honum. En þar
hefur löngum verið ljóður á,
furðulega fáir sveitamenn
kunna að venja hund og stjórna
honum.
Nú eru sveitahundar orðnir
heldur þarflitlir þjónar. Gadda-
vírinn er búinn að gera þá
næstum atvinnulausa. t kaup-
stöðum er hvorki starf né
staður fyrir hund. Þar er hann
oftast innibyrgður fangi —
ekki sjaldan sárþjáður píslar-
vottur. Það er í sannleika sagt
furðulegt fólk sem gleðst við að
horfa á svona vansæla skepnu.
Reykvíkingar svelta enn ketti
sína.
t ungdæmi mínu voru kettir
sveltir. Þeim var skömmtuð
mjólk á undirskál, þegar bezt
lét bæði kvöld og morgna, en
yfirleitt ekki annað matarkyns.
Þá var sagt að matgjöf gerði þá
ónýta veiðiketti — sultur skyldi
knýja þá til veiða! Á sumrin
áttu þeir margir sældarævi —
voru um nætur úti á veiðum og
komu mettir að morgni af
fuglakjöti. Að vetrarlagi voru
þeir stundum sultarlegir, músa- '
veiði var oft treg og snjótittl-
ingar styggir og varir um sig.
Þannig var þetta fyrir 70
árum. Köttum var ætlað að
bjarga sér á hálfgerðum úti-
gangi og þannig er ennþá búið
að köttum hér i Reykjavík.
Fólk virðist ekki gera sér
ljóst að köttur þarf talsverðan
mat til að líða vel. Ég sann-
reyndi fyrir nokkrum árum
matarþörf læðu sem lá á kettl-
ingum. Ég gaf henni hráan fisk
og nýmjólk eins og hún vildi
þiggja. Hún lapti daglega
hálfan lítra af mjólk og át
5—600 grömm af fiski. Sá
skammtur kostar 1 búðum
minnst í kringum 100 krónur.
Það dregur út fé að fóðra
ketti sína þokkalega enda
sparar margur mat við þá. Það
hef ég sannreynt hér í Reykja-
vík. Mér hugkvæmdist í hittið-
fyrra að bjóða hungruðum ná-
grannaköttum mlnum í matar-
veizlu! Ég fékk að velja úr fisk-
úrgangi: ýsuþunnildi, ugga og
hryggi úr flökuðum smáfiski.
Eg sauð síðan þetta rusl og bar
út fyrir vegg — það stóð ekki á
veizlugestunum. Þeir komu og
átu allt nema stærstu beinin!
Síðan hef ég flesta daga
boðið þessum vesalingum
þennan veizlukost og vatnslögg
með. Eigi veit ég hversu margir
þeir eru, þessir gestir mínir,
flesta þeirra hef ég aldrei séð
— þeir koma oftast eftir hátta-
tíma! Kannski eru þeir sveltir
inni fram að háttamálum. Mælt
er að margir Reykvíkingar loki
ketti sína úti um nætur.
Til hvers hafa Reykvíkingar
ketti?
Eigi þurfa þeir að verja
fólkið fyrir músum — þær
fyrirfinnast varla I Reykjavík.
Þar að auki eru mýs miklu
meinlausari en kettir. Varla
hafa þeir ketti til að veiða smá-
fuglana. Það virðist þó aðal-
verkefni reykvískra katta. Svo
svikalaust er að því unnið að
varla sést sumarfugl I Reykja-
vík. Hér ætti þó hver skógar-
lundur að iða af fuglalífi
sumarlangt.
En Reykvíkingar kjósa
heldur hungraða urðarketti —
Kettir eru oft hin failegustu
dýr en þau þarfnast líka mik-
illar og góðrar umhirðu.
það minnir á aðra borgarbúa
sem kusu Barrabas.
Til eru nokkrir einstæðingar
sem telja sér nokkra raunabót
að sambýli við kæran hund eða
kött. Það fólk lætur sér annt
um þessa einkavini sína og
lætur þá varla hrekjast úti um
nætur.
. Sæluhús fyrir útigangsketti.
Hér þarf að opna 10—20
sæluhús fyrir útigangsketti.
Þar þarf að sjá þeim daglega
fyrir mat og mjólk, eða a.m.k.
vatni. Ekki þurfa þetta að vera
Á sorphaugum myndast oft
mikil íkveikjuhætta og má geta
nærri hversu hættulegt er að
hafa aðalsorphauga Reykja-
vikurborgar við hlið Aburðar-
verksmiðju rikisins.
< -m.
hátt I loft upp. En til allrar
hamingju var svo til logn og
stóð vindáttin frá verksmiðj-
unni. Hvað hefði nú getað
gerzt, ef staðið hefði sterkur
vindur I átt að verksmiðjunni?
Ég fullyrði, að þá hefði getað
kviknað stærsta bál, sem menn
hefðu hingað til séð brenna hér
á landi.
Eins og margir vita eru notuð
mjög eldfim efni við áburðar-
framleiðslu, t.d. vetni; auk þess
er fullunninn áburður sjálfur
eldfimur. Ef vetnistankurinn
spryngi, er talið að mannvirki I
Gufunesi yrðu rúst ein og
jafnvel hluti Reykjavíkur færi
svipaða leið. Þetta er ekki
aðeins mál, er varðar starfs-
menn Aburðarverksmiðjunnar
og íbúa I Gufunesi heldur
einnig Reykvíkinga og lands-
menn alla. Þess vegna hlýtur
það að vera sjálfsögð krafa
hvers hugsandi manns að
borgaryfirvöld hlutist til um, áð
haugum þessum verði lokað hið
fyrsta og sorphaugar Reykja-
víkur færðir á annan stað.
Eðlilega hefði slíkt einhvern
kostnað I för með sér, en er
ekki betra að afgreiða málið á
þann veg en stofna dýrum
mannvirkjum og mannslífum I
hættu?
Raddir
lesenda
stórar né glæstar stofur, þó svo
hlýjar að matur frjósi þar ekki.
Eigi þyrfti þetta að vera þungt
né dýrt I vöfum. Hungurkettir
Reykjavíkur virðast að vísu
vera æðimargir en hægt væri
og heiðarlegt að létta þeim
gestum öðrum hvoru af
fóðrum: Svæfa þá löngum,
ljúfum svefni; senda þá brott
úr sultarheimi inn I sígræn
sumarlönd eilífðarinnar.
Við hótel og sjúkrahús
borgarinnar mun daglega
kastað mat sem seðja mætti
með 1000 útigangsketti. Hví
gefur fólk ekki útigöngum, tví-
og fjórfættum, þennan góða
mat? Það vantar kannski
veizlusali fyrir svona gesti?
Hjartagæzku getur ekki skort.
Reykjavíkurborg mun eiga
næg hús til þessara nota.
Nokkur get ég nefnt. í skemmti-
garði við Grundargerði stendur
nýtt hús, upphitað árið um
kring en ekki notað neitt að
vetrarlagi. í Hljómskálagarði
og á Miklatúni munu standa
myndarleg sams konar hús. Á
þessum og ýmsum fleiri stöðum
hlýtur borgin að geta skotið
skjólshúsi yfir hörmungaketti
sína!
Eg heiti á horskan borgar-
stjóra að beita sér fyrir úrbót á
þessari ófremd Reykjavíkur.
Dýraverndunarfélag Islands
þarf ég ekki að brýna.
V
I