Dagblaðið - 17.09.1976, Side 3
OACHKAtm). KÖSTl'DACUH 17. SKPTKMBKK 1976.
3
Þaö eru oft biðraöir fyrir utan Tónabæ og aðsóknin oft mikil. Nú er talað um að loka staðnum en hvert eigum við þá að fara?
sp.vrja krakkarnir. DB-mynd Björgvin.
Hvers vegna er aðeins
gatan fyrir unglingana?
— Það vantar tilfinnanlega skemmtistað fyrir unglinga
Þ.E.H. skrifar:
„Ég var að lesa grein eftir
leigubílstjóra þar sem hann
bendir á þörfina á að unglingar
fái einhvern samastað þangað
sem þeir geta sótt. Það er ekki
hægt að láta unglingana vera á
götunni. Nú ætla yfirvöld
að taka allt af okkur og loka
Tónabæ. Ég hef sjálf farið þó
nokkuð oft í Tónabæ og það er
ekki alltaf fögur sjón að sjá þar
fyrir utan á föstudagskvöldum.
Það er algjör misskilningur
hjá Æskulýðsráði Reykjavíkur
að það geti leyst einhvern
vanda með því að loka Tónabæ.
Þar' skjátlast þeim hrapallega.
Krakkarnir reyna þá bara að
svindla sér inn í vínveitinga-
húsin hér i borg eða hanga þar
fyrir utan. Ég sé ekki að það sé
neitt skárra.
Svo eru það krakkarnir sem
eru svona um 16—18 ára. Þeir
hafa engan einasta stað til að
koma saman. Eins og leigubíl-
stjórinn sagði eru þeir of gaml-
ir til þess að fara í Tónabæ og
Raddir
lesenda
of ungir í vínveitingahúsin.
Ég skora á Æskulýðsráð
Reykjavíkurborgar að íhuga
þessi mál vandlega og reyna
eitthvað til þess að bæta félags-
líf unglinga hér í borginni. Við
verðum að fá einhvern stað til
þess að vera á. Það er ekki hægt
að siga okkur út á götuna, það
er ekki gert við þá eldri.“
Það þolir enga bið að kalla á oliubilinn þegar tankurinn er að þorna
en svo er það undir hælinn lagt hvenær olíustyrkurinn er greiddur.
VK> EIGUM ENGIN
SKÁLD LENGUR
Helga hringdi:
„Hvers konar andleg fátækt
er þetta ejginlega hjá okkur ís-
lendinguin? Eg get ekki orða
bundizt eftir þennan þátt sem
var í sjónvarpinu sunnudaginn
12. september og nefndist Ljóð
og jass. Eg hef aldrei á ævi
minni heyrt aðra eins þvælu. Á
mínu heimili er bæði ungt og
gamalt fólk. Unglingarnir
hlógu og fullorðna fólkið átti
ekki til orð yfir þetta.
Þetta fólk sem kallar sig
skáld og þiggur laun fyrir frá
ríkinu, listamannalaun, las
þessa endaleysu sina með svo
miklum þjáningarsvip að það
var eins og heimurinn væri að
farast. Ógurlega heldur þetta
fólk að það sé merkilegt. Ef
þetta eru þau skáld sem við
eigum þá eigum við bara engin
skáld lengur.“
Um nafnbirtingarsnakk
Vísur um nafnabirtingarsnakk
Allir mega um morðingja tala
mikil og góð eru gerð á þeim skil
en falsarar leikandi lausum hala
látnir sem þeir séu ails ekki til
HVAR ER OUU-
STYRKURINN?
— sveitarfélögin róða hvenœr
þau greiða hann
Jóhann Angantýsson, Kjöt-
vinnslunni ísafirði, hringdi:
„Við höfum ekki fengið olíu-
stvrkinn borgaðan síðan í marz
hér á Ísafirði og veit énginn
hvenær hann verður borgaður.
Þegar spurzt var fyrir á bæjar-
skrifstofunni var svarið: í
bvrjun ágúst. Nú er kominn
september og ekkert bólar á
styrknum. Mig langar því að
spyrja hvort engin algild regla
sé yfir allt landið hvenær borga
skuli olíust.vrkinn. Það virðist
vera að alls staðar sé búið að
borga hann nema hér.“
DB hafði samband við við-
skiptaráðuneytið og þar gaf
Yngvi Olafsson okkur þær upp-
lysingar að engar sérstakar
reglur væru fvrir hvenær
styrkur væri greiddur. Sveitar-
félögin fá peninga til umráða
og það er undir þeim komið
hvenær styrkurinn verður
greiddur út.
Allir vita um viröulegt pakkið
valdamenn landsins sem alltgeragott
En falsarar leiðandi snobbina snakkið
snoturt er svindl þeirra, fyndið og flolt
Þeir hljóta að vera miklir þeir menn
sem mega hér „nafnlausir" svindla á okkur
fundnir þeir verða víst syndugir senn
ef samstöðu sýnir hver maöur, hver flokkur
Ef upplýsa fólk vill og forsmá það pakk
sem fölsku er sleppt þó að lög séu brotin
Ef leynd verður haldið við hátíðlegt snakk
þá hallast ég að þvi að stjórnin sé rotin
Svikjandi starfsmaður opinber einn
upplýstur í máli og myndum
Hví er ei dugandi dómstóllinn hreinn
sem dæmir ei fleiri af stærri syndum
Þú sem að dómsvaldið dregur hér
sem dilk á eftir þér sjálfum
I klíkunni kurteisir hvernig sem er
kvikindi „nafnlausir" bjáifar með bjálfum
Allir mega um morðingja tala
mikil og góð eru gcrð á þeim skil
En falsarar leikandi lausum hala
látnir sem þeir séu alls ckki til
Kristján Hreinsmögur
Spurning
dagsins
Er lögregluríki ó íslandi?
Inga Hallgrímsdóttir af-
greiðslustúlka: Ég hef eiginlega
ekki myndað mér skoðuri á því.
Og þó finnst mér lögreglan
stundum full yfirgangssöm þó að
það sé kannski ekki afgerandi —
ennþá.
Guðmundur Gunnarsson vörubíl-
stjóri: Að vissu leyti. Það er til
allt of mikið af lögum og reglum,
sem sumir fá að brjóta en maður
sjálfur er síðan hankaður á.
Ingibjörg Guðmundsdóttir: Eg
hef ekki orðið vör við að lögreglu-
ríki ríki í mínu byggðarlagi. Þá
sjaldan maður þarf á lögreglu að
halda finnst hún ekki.
Bergsteinn Arnason lögreglumað-
ur: Nei. Það er langur vegur frá
því.
Gottskálk triðgeirsson nemi:
Nei, ég tel ekki að við lifum i
lögregluriki. Það er kannski allt í
lagi en svona yfirleitt virðist mér
allt vera með felldu á þeim
vígstöðvum.
Jón isleifsson. vinnur í Kröflu:
Nei. það tel ég alls ekki. Mér
'irðist starf lögreglunnar aðal-
lega vera fólgið í því að liðsinna
ósjálfbjarga borgarbúum. Eg held
að lögreglan þvrfti frekar
liðsstyrk en hitt við að levsa þau
mál sem hún f;er i hendurnar
þessa dagana.