Dagblaðið - 17.09.1976, Síða 4
4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1976.
Tónlistarfélag Reykjavíkur
auglýslr:
Getum bætt við okkur nokkrum nýjum áskrifendum að
tónleikum félagsins í vetur.
Nánari upplýsingar í síma 17765 eða á skrifstofunni
Garðastræti 17, föstudaginn 17.9. frá kl. 17—19 og laugar-
daginn 18.9. frá kl. 10—12.
Ein f rœgasta
ijéðasðngkona
heims í
Hóskólabíói
„Helztu verkefni Tónlistar-
félagsins eru að fá það bezta tón-
listarfólk sem völ er á hingað er-
lendis frá og gefa Islendingum
tækifæri til að halda tónleika og
um leið ungum tónlistarmönnum
tækifæri til að koma fram“ sagði
Haukur H. Gröndal framkvæmda-
stjóri Tónlistarfélagsins í viðtali
við DB í gær.
Hann sagði að hin heimsfræga
hollenzka sópransöngkona, Elly
Ameling og píanóleikarinn
Dalton Baldwin, myndu halda
tónleika í Háskólabíói á morg-
un, laugard. kl. 14.30 Ameling er
ein frægasta ljóðasöngkona heims
í dag og Baldwin er talinn með
fremstu listamönnum á sínu sviði.
Tónlistarunnendum mun í fersku
minni er hann heimsótti ísland í
fyrra ásamt franska söngvaranum
Gérard Souzay og vöktu tónleikar
þeirra mikinn fögnuð áheyrenda.
A efnisskrá tónleikanna á
morgun verða lög eftir Schubert.
Næstu tónleikar Tónlistar-
félagsins verða laugard. 28. sept.
og er þar á ferðinni Zetteravist-
kvartettinn frá Svíþjóð. Tónleik-
ar þessir eru liður í Norðurlanda-
samvinnu um tónleikahald á veg-
um Nordisk Solisrád.
• Gunnar Kvaran og Gísli
Magnússon munu halda tónleika
fyrir félagið 9. okt. Guðný
Guðmundsdóttir, Hafliði M. Hall-
grímsson og Philip Jenkins koma
fram í tónleikum í janúar.
Franski fiðluleikarinn Jan
Dobrezelezski kemur til tónleika-
halds í febrúar. Italski fiðlu-
leikarinn Pina Carmirelli og Árni
Kristjánsson halda tónleika í
marz. Crsúla Ingólfsson heldur
tónleika I apríl, Selma Guðmunds-
dóttir heldur sína fyrstu opinbéru
tónleika I apríl. Síðustu tónleik-
arnir verða I maí með hinum
heimsfræga söngvara Peter Piers.
Tónlistarfélagið getur bætt við
sig nokkrum félögum fyrir næst-
komandi vetur.
—EVI
Þar leigja menn í
5 ár - kaupa svo
8 nýjar íbúðir voru teKnar í
notkun á Sauðárkróki I sl. mánuði
en þær eru hluti úr nýju 14 íbúða
fjölbýlishúsi. Af þessum 8 eru
tvær í eigu bæjarins en fimm I
eigu einstaklinga.
Smíði hússins hófst vorið 1974
og er það Byggingafélagið Hlynur
hf. sem s'á um framkvæmdir.
Þeir sem taka við íbúðunum
tryggja sér leigurétt i næstu 5 ár
og forkaupsrétt að þeim tíma
loknum með því að kaupa skulda-
bréf af bæjarsjóði fyrir upphæð
sem nemur um 20% af byggingar-
kostnaði.
Ibúðirnar eru tveggja og
þriggja herbergja, og eru afhent-
af fullbúnar með öllum venju-
legum heimilistækjum.
Auk þessa húss eru á annað
hundrað íbúða í smíðum á
Sauðárkróki.
-JB.
Sauðárkrókur:
Þeir una sér auðsjáanlega vel þessir ungu „Króksarar" sem
spila þarna fótbolta fyrir utan nvju blnkkina í bænum.
Ljósmyna: Stetan Pedersen.
Ljósmyndir að ~| 122 AF SNILLDAR-
Kjarvalsstöðum: J MYNDUM GUNNARS
Fjöldi stórfenglegra Jitmynda
er á ljósmyndasýningunni sem
opnuð var í gærkvöldi að
Kjarvalsstöðum, til minningar um
Gunnar Hannesson ljósmyndara
sem lézt fyrr í sumar.
Það er fjölskylda Gunnars heit-
ins og vinir sem að sýningunni
standa en sumar myndirnar, sem
þar eru, hafði hann sjálfur valið á
sýningu er hann hugðist halda í
haust. Þarna er um að ræða 122
myndir, viðs vegar af landinu,
margar mjög ó\ cnj-!''''Tnr oe ailai
stórfallegar Myndirnar eru
ailar úr safni Giuiiia' ^
heitius cn það hot ui ið ge.vma svo
margar myndir að vart verður
töiu á þær komið.
Gunnar vann við verzlunar- og
viðskiptastörf alla ævi en ljós-
myndun tók hann upp sem áhuga-
mál árið 1964. Batt hann sig ein-
göngu við litmyndir frá Islandi og
sérstaklega voru Vatnajökull og
Reykjavfk honum hugleikin við-
fangsefni. Hafa komið út tvær
bækur með myndum eftir hann,
einmitt frá þessum tveimur stöð-
um. Gunnar var mikill náttúru-
unnandi og fór víða um ævina.
Aldrei hafði hann þó mynda-
vélina með sér nema hér innan-
lands.
Síðastliðinn vetur var Gunnari
sérstaklega boðið að sýna hjá
Nikkon House í New York en
þangað koma margir þekktir ljós-
myndarar með myndir sinar. Enn-
fremur tók hann þátt í tveimur
sýningum hér á landi, Ljós ’73 og
tsland—íslendingar 1974. Þá
prýddu myndir Gunnars mörg
tímarit og almanök, auk jólakorta
o.fl.
Sýningin að Kjarvalsstöðum
stendur daglega frá kl. 4—10 til
28. september.
—JB