Dagblaðið - 17.09.1976, Blaðsíða 12
12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1976.
bráðefnilegi markvörður á þó
skilið annað tækifæri. Menn hafa
brugðist í fyrsta landsleik áður —
leikmenn, sem síðar hafa orðið
,,stórkallar“.
Birgir byrjaði strax að verja —
varði fjögur fyrstu skotin, sem
hann fékk á sig, og sá aðeins á
eftir knettinum i mark eftir víta-
köst í fyrri hálfleiknum. Olafur
Einarsson komst í ham — skoraði
þrjú mörk í röð. Jafnaði í 7—7 og
misnotaði þó víti. Viðar Símonar-
son áður. í hálfleik var staðan
10—9 fyrir ísland.
Jafnræði var framan af síðari
hálfleik — íslenzka liðinu tókst
meira að segja ekki að nýta, að
tveimur leikmönnum Sviss var
vísað út af á sama tíma. Ölafur
var í sama ham — skoraði þrjú
fyrstu mörk íslands, en fór svo út
af, og Viggó, sem sýndi góða
kafla, og Björgvin komu tslandi i
15—12. Þá fór allt að ganga úr-
skeiðis hjá Svisslendingum — og
leikmennirnir reyndu, Viðar og
Geir, gengu á lagið. Viðar skoraði
þrjú mörk og Geir tvö á stuttum
tíma. Munurinn jókst — mest í
níu mörk, 24—15, en mikil mistök
i lokin gerðu það að verkum, að
Jullig skoraði þrjú síðustu mörk
leiksins fyrir Sviss.
Mörk íslands skoruðu. Olafur 6.
Björgvin 5, Viggó 4, Viðar 4 (1
viti), Geir 2, Arni Indriðason 2, og
Agúst Svavarsson eitt — reyndar
fyrsta mark islands. Jullig
skoraði 9 mörk fyrir Sviss — þrjú
víti — Schar 3, Jehle og Offalter 2
hvor, Huber og Graber eitt hvor.
hsím.
puma
ÆFINGASKÓR
NÝKOMNIR
Iþróttir
þrottir
Iþróttir
Iþrottir
Hollond
leikur í HM
Mikil blaðaskrif hafa orðið vegna
ummæla eins af st.jörnarmönnum
hollenzka knattspyrnusambandsins
á dögunum, þar sem hann sagði að
Holland mundi hætta þátttöku i
heimsmeistarakeppninni í knatt-
spyrnu ef lokakeppnin yrði í
Argentínu.
í gær gaf formaður knattspyrnu-
sambandsins hollen/.ka, Mennle-
man, út yfirlýsingu, þar sem hann
sagði, að Hoíland mvndi kcppa á
HM.
_miiiiuiwliiO'1"M1lVVS"
Fimleikasýning
Ollerup i kvðld
i Laugardalshöll
Ilér hafa dvalið frá því sl.
laugardag tveir sýningaflokkar
íþróttaskólans i Ollerup i Dan-
mörku.
Þeir hafa sýnt við mikla
hrifningu við v ígslu iþróttahússins í
Vestmannaeyjum, íþróttahúsi
Hagaskólans og á miðvikudag i
íþróttaskeinmunni á Akureyri, þar
sem húsfyllir var.
Siðustu sýningu sína hafa
fiokkarnir í kvöld í Laugardalshöll.
Núverandi skólastjóri skölans,
Gunnar B. Ilanscn stjórnar karla-
flokkunum en Marit M.Mortensen
kvennaflokkunum. Við píanóið er
Karen Hvilshöj.
Sýningarnar hefjast kl. 20.45.
Valur leikur
á Selfossi
í tilefni af 40 ára afmæli Ung-
mennafél. Selfoss á þessu ári munu
íslands- og bikarmeistarar Vals í
knattspyrnunni leika við Sel-
fyssinga á laugardag. Leikurinn
hefst kl. 14.00 og þar mun Hermann
Gunnarsson leika sinn 250. leik með
meistaraflokki V'als.
Niu lið í mfl. í
Reykjanesmóti
Reykjanesmót í handknattleik
hefst sunnudaginn 19. september
kl. 11.00. í meistaraflokki karia
taka 9 lið og er þeim skipt i tvo riðla
A og B riðil. Vegna þess hversu
áskipað er með leiki á næstunni var
tekin sú ákvörðun að leika alla
leikina í riðlunum á tveim suniiu-
dögum eða 8 leiki hvorn i striklotu.
A-riðilI B-riðill
FH Ilaukar
UMFN Grótta
Afturelding ÍBK
UBK Stjarnan
HK
Sunnudaginn 19. september leika
eftirtalin lið saman.
FH—UMFN
Ilaukar—Grótta
Afturelding—UBK
HK—FH
Stjarnan—Haukar
UMFN—UBK
Afturlending—HK
ÍBK—Stjarnan
Reykjavikurmótið
hefst á morgun
Revkjavíkurmótið i handknatt-
leik. hið 31. i röðinni, hefst á
morgun í Laugardalshöl! kl. 15.30
með leik Víkings og Vals í meistara-
flokkí karla. Siðan leika ÍR og
Artnann í sama riðli. Auk þess er
Leiknir í riðlínum. Leikið er i
tveimur riðlum. i hinurn riðlinum
eru KR. Frani, Þróltur og Fylkir. A
sunnudag kl. 14.00 heldur mótið
áfram með leik KR-Fram. Siðan
leika Þrótlur-Fylkir, Kl. 19.00 leika
Válur-Armann, Vikingur-Leiknir.
Allar stœrðir
fyrirliggjandi
Sportvöruverzlun
Ingólfs
Óskarssonar
Hólagarði Breiðholti
Simi 75020
Klapparstíg 44
Simi 11783
Það verður fylgzt
með þeim öllum!
— sagði pólski landsliðsþjólfarinn um
íslenzku leikmennina, sem leika erlendis
Islenzka landsliðið lék oft vel í
siðari hálflcik, en það er margt,
sem hetur má fara. Ég er viss um,
að ég get gerl mikið fyrir islen/.ku
landslrðsmcnnina. sagði pólski
landsliðsþjálfarinn. Janusz Czer-
winski, eftir landsleikinn í gær.
Viljinn til að sigra var aðall liðs-
ins í leiknum, en það vantar
hraðaupphlaup og inargt annað i
leik liðsins.
Að \isu er ekki gott með
samanburð. sagði Czerwinski enn-
fremur. þar sem lið Sviss er slakt
lið á Fvrópunnelikvaröa. Mót-
staðan var því ekki mikil, sem
íslenzka liðið hlaut.
Ekki vildi þjálfarinn spá um
möguleika íslands í B-keppninni
í Austurríki í vetur, þar sem sex
efstu liðin komast í úrslit heims-
meistarakeppninnar í Danmörku
— Sagði í þvi tilefni, að það
mundi verða fylgzt með öllum
þeim íslendingum, sem leika með
erlendum handknattleiksliðum
og þeir reyndir með íslenzka
landsliðinu i‘f ásta'ða þykir til —
svo fremi, a<) þeir hafi möguleika
til að leik; íeö islenzka lands-
liðinu.
Sportvöruverzlun
Ingólfs
Óskarssonar
Hólagarði Breiðholfi
Simi 75020
Klapparstig 44
Simi 11783
Eftir sex marka sigur íslands
gegn Sviss í landsleiknum í hand-
knattleik í Laugardalshöll í gær-
kvöld, 24—18, — sigur, sem átti
og gat orðið miklu stærri, er með
öllu óskiljanlegt hvernig íslenzka
landsliðið fór að því að tapa fyrir
þessu svissneska landsliði á Akra-
nesi á þriðjudag. Svissneska liðið
er slakt — slakara en beztu 1.
dcildar-lið okkar. Liðið á aðeins
einn góðan leikmann, Jullig, auk
sæmilegra markvarða — leik-
kerfi eða leikfléttur sáust varla.
BOLIR
BERRI
leikfimibolir
Aðeins byggt á hraða — og aftur
hraða.
Leikur íslenzka liðsins gekk i
bylgjum — allgóður í síðari hálf-
leik — en sigurinn byggðist þó
mest á einstaklingsafrekum nokk-
urra snjailra leikmanna og var
Björgvin Björgvinsson þar
fremstur í flokki ásamt Birgi
markverði Finnbogasyni. Hið
athyglisverðasta í leiknum var
samvinna Olafs Einarssonar og
Björgvins — samvinna, sem gaf
af sér nokkur falleg- mörk. Hins
vegar er rétt að taka fram að í
byrjun kepiinistímabils — gegn
slakri mótstöðu — verða leik-
menn varla dæmdir af þessurn
leik. Villur íslenzku leikmann-
anna voru lika fjölmargar í leikn-
um.
Byrjunin var slæm og eftir 17
mín. leik hafði Sviss náð þriggja
marka forskoti 7—4. Birgir Finn-
bogason kom þá i markið, en Jens
Einarsson, sem lék sinn fyrsta
landsleik, hafði ekki náð sér á
strik — reyndar ekki varið skot.
Taugarnar brugðust því Jens i
sínum fyrsta landsleik — en þessi
Óskiljanlegt hvernig
ísland lá á Akranesi
— Islenzka landsliðið sigraði Sviss 24-18 í Laugardalshöll í gœrkvöld.
Lið Sviss lakara en beztu 1. deildarlið okkar.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1976.
óttir
íþróttir
Iþróttir
íþróttir
Sebrar Charleroi byrjuðu vel
Um síðustu helgi fór fram
fyrsta umferð 1. deildar í knatt-
spyrnu og einnig var leikin
önnur umferð í 2. deild. Á
laugardag voru leiknir sjö af
átta leikjum helgarinnar í 1.
deild og hinn áttundi — leikur
Standard Liege og Molenbeek
fór fram á sunnudag. Áður en
við höldum lengra skulum við
lita á úrslit leikja:
1. deild
Beershot—Lierse 6-2
Malinois — Winterslag 1-0
Courtrai — CS Brugge 1-1
Charleroi — Beveren 2-1
Anderlecht — FC Liege 1-1
Standard — Molenbeek 0-0
Lokeren — Östende 1-0
FC Brugge — Waregem 2-0
Beringen — Antwerpen 1-2
Ur 2. deild má nefna, að
Royale Union sigraði Turnhout
2-1.
Anderlecht. sem sjaldan eða
aldrei hefur leikið betur en um
þessar mundir, náði ekki að
sýna sínar beztu hliðar í
leiknum við FC Liege á Parc
Astrid. Þó leit út fyrir auðveld-
an sigur Anderlecht eftir 20
mínútur, þegar Rensenbrink
einlék skemmtilega í gegn um
vörn Liege og skoraði 1-0. Eftir
markið dofnaði mjög yfir
Evrópumeisturum bikarhafa og
handhafa ,,super-cup“ og
jöfnunarmark Liege lá í loft-
inu. A 41. mínútu var dæmd
aukaspyrna á Ressel. Leunen
sendi háa sendingu f.vrir mark
Anderlecht og K’ivpers skallaði
í netið 1-1.
Anderlecht reyndi mikið að
ná forvstu, en allt kom fyrir
ekki og Anderlecht tapaði sínu
fyrsta stigi i sínum f.vrsta leik í
1. deild í ár.
Antwerpen krækti sér í eina
útisigurinn í f.vrstu umferðinni,
þegar liðið sigraði Beringen 2-1.
Beringen álti töluvert meira í
lciknum og átti betra skilið.
Van Moer, sem Beringe i keypti
frá Standard eftir síðasta
keppnistimabil, átti mjöggóðan
leik og kom vörn Antwerpen
oft í hinn mesta vanda með
frábærum sendingum. Jafntefli
hefðu verið sanngjörn úrslit.
FC Brugge, meistararnir frá
því I fyrra, átti ekki í erfiðleik-
um með Waregem á heimavelli
sínum og 2-0 voru sanngjörn
úrslit. Paul Courant, belgíski
landsliðsmaðurinn sem keyptur
var frá FC Liege til að fylla
skarð Roger Van Gool, sem
seldur var til FC Köln í V-
Þýzkalandi, átti frábæran Ieik
og bar af á vellinum. Hann
skoraði sjálfur fyrra markið og
lagði hið siðara upp. Roger
Davies, sem Brugge keypti frá
Derby í Englandi, Iék allan
leikinn og þótti ekki koma nógu
vel frá leiknum.
Sebrarnir frá Charleroi ætla
að byrja betur en í fyrra og
unnu Beveran heima 2-1. Hinn
nýi leikmaður Charleroi, Iezzi
skoraði fyrra mark Charleroi á
8. mínútu og opnaði þar með
markareikning sinn í 1. deild.
Þetta var jafnframt fyrsta
markið á keppnistímabilinu i
1. deild. Jacobs kom Sehrunum
í 2-0 og það var ekki fyrr en á
síðustu mínútu að Beveren
tókst að minnka muninn í 2-1.
Á sunnudag léku síðan
Standard og RWDM í Liege.
Um 32 þúsund manns komu á
völlinn og fyrirfram var búizt
við góðum leik og fjörugum, en
raunin var önnur. Fyrri hálf-
leikur Standard var með þeim
lélegri, sem liðið hefur lengi
sýnt. Mikið var um rangar send-
ingar á báða bóga og létu áhorf-
endur óspart óánægju sína í
Ijós. Það var ekki fyrr en í
síðari hálfleik að Standard fór
að taka við sér og áttum við
stórgóðan leik, 15 minútna
kafla, sem oft skapaði mikla
hættu við mark Molenbeek.
Sanngjörn úrslit að mínu áliti
og vonandi reynist gamla,
máltækið rétt, „fall er farar-
heill“.
Royale Union, liðið sem Mar-
teinn Geirsson og Stefán Hall-
dórsson leika með, vann
Turnhout 2-1 i Brussel.
Marteinn fékk góða dóma fyrir
leik sinn. Stefán Halldórson
hefur ekki getað leikið með
vegna meiósla. Union er nú í
2.—3. sæti með 3 stig eftir 2
leiki. Tongres hefur hlotið 4
stig úr 2 leikjum.
Að lokum skulum við líta á
stöðuna í 2. deild að loknum 2
umferðum.
Tongres
Malines
Royale Union
östende VG
La Gantoise
Turnhout
Saint-Rrond
Eupen
La Louviere
FC Boom
Eisden
Montignies
Waterschei
Berchem
St. Nicolas
Diest
2 0 0 4-2
2105-2
1102-1
1014-2
1013-2
10 14-2
10 13-2
10 13-3
10 12-2
1013-4
1013-4
10 11-1
1012-2
0111-21
0 112-51
0 0 2 2-6 0
Erá leik Standard og Molenbeek. —Gerels i baráttu við Teugels.
Báðir þessir leikmenn léku landsleikinn heima á íslandi.
I 2. umferð leika þessi lið
saman í 1. deild.
Antwerpen — FC Malinos
Lierse-— Beringen
Waregem — Beerschot
Ostende — FC Brugge
Molenbeek — Lokeren
FC Liege — Standard
Beveren — Anderlecht
CS Brugge — Charleroi
Winterslag — Courtrai
Royale Union leikur á úti-
velli í 2. deild við Saint-Trond.
Björgvin Björgvinsson er bezti
línumaður í heimi heyrðist Jón
Erlendsson, fyrrum formaður
landsliðsnefndar, segja, þegar
Björgvin skoraði eitt af glæsi-
mörkum sinum gegn Sviss í gær.
Björgvin skoraði falleg mörk í
gær —eitt þeirra rcyndar alveg
stórkostlega með einn Sviss-
lendinginn á bakinu. Á DB-mynd
Björgvins Pálssonar sést Björg-
vin Björgvinsson senda knöttinn í
mark Sviss — Geir Hallsteinsson,
lengst til hægri, fylgist spenntur
með.
Atli Þór ó skotskóm
með varaliði Holbœk
— og hefur alveg náð sér eftir meiðslin í sumar
Ég hef nú alveg náð mér eftir
meiðslin, sem háðu mér í allt
sumar — og hcf leikið þrjá leiki í
Danmerkur-seríunni að undan-
förnu með varaliði Holbæk.
Skorað þrjú mörk í þessum leikj-
um, sagði Atli Þór Héðinsson,
fyrrum miðherji KR, þegar
blaðið hafði samband við hann í
gær.
Atli lék í 1. deildarliði Holbæk
í vor og framan af sumri, þar til
meiðslin settu strik í reikning-
inn. Mikil keppni er um efsta
sætið þar milli B1903 og Holbæk.
Kaupmannahafnarliðið hefur 30
stig, Holbæk 29, en síðan koma
Frem, OB og AaB með 26 stig. Öll
liðin hafa leikið 21 leik — en
umferðir eru þrjátíu.
Atli Þór er alveg með 1. deildar
leikmönnum Holbæk, og þjálfari
liðsins, Svíinn Bosse Hakonsson,
tilkynnti Atla nýlega að hann
yrði fljótt valinn á ný í aðalliðið
ef hann Iéki áfram eins og að
undanförnu í varaliðinu. Holbæk,
sem um tínia hafði 3ja stiga for-
ustu í 1. deild hefur ekki gengið
of vel að undanförnu. Sigraði þó
Næstved 5-2 um síðustu helgi á
heimavelli — og skoraði þrjú
mörk úr vítaspyrnum.
Atli Þór hóf nám í matvæla-
tæknifræði hinn 10. september sl.
í skóla i Holbæk, en eftir ár
heldur hann til Roskilde í fram-
haldsnám, sem tekur þrjú ár.
Halmia Matthiasar sœkir
á brattann í 2. deildinni
Halmia frá Halmstad — liðið,
sem Matthías Hallgrímsson leikur
með í Svíþjóó vann góðan sigur á
útivelli í 2. deild (suður) um
síðustu helgi. Það var í Malmö
gegn IFK. Halmia vann 4-1 og
færðist óðfluga upp töfluna. Þeg-
ar Matthías hóf aðleika með lið-
inu fyrir röskum mánuði var Iiðið
í næstneðsta sæti með 11 stig eftir
17 leiki. I fjórum leikjum hefur
liðið hlotið sex stig — og er nú í 9.
sæti með 17 stig.
Matthías skoraði ekki í leiknum
um helgina. 1 Allsvenskan er
mikil keppni um efsta sætið.
Halmstad og Öster eru efst með
30 stig, en síðan kemur Malmö
með 27 stig Atvidaberg, 14 stig, og
Örgryte, 7 stig, eru neðst og svo
gott sem fallin. Staðan í 2. deild
er nú þannig:
Staðan, þegar fimm umferðir
eru eftir:
Göteborg 20 17 2 1 36
Helsingborg 20 10 6 4 26
Hassleholm 21 10 5 6 25
Jönköping 20 10 5 5 25
IFK Malmö 21 10 4 7 24
Norrby 21 8 7 6 23
Grimsas 21 7 5 9 19
Karlskoga 21 8 2 11 18
Halmia 21 6 5 10 17
GAIS 21 7 3 11 17
RAA 20 6 5 9 17
Trollhatten 21 4 7 10 15
Motala 21 5 5 11 15
_Emmaboda 21 2 9 10 13
12-2 í Sofia
Levski-Spartak, Búlgaríu,
jafnaði markamet Derby í
Evrópumótunum, þegar liðið
vann Lahti, Finnlandi, 12—2 í
Evrópukeppni bikarhafa í Sofia
í gær. 5—1 stóð í hálfleik.
Milanov skoraði sex mörk.
Áhorfendur 45 þúsund.
I UEFA-keppninni sigraði
Lokomotiv Plovdiv, Búlgariu,
Rauðu stjörnuna Belgrad 2—1 í
Plovdiv í gær. Ahorfendur 20
þúsund.
Meistarakeppni
meistara i golfi
Um helgina fer fram á Nes-
vellinum hin árlega Afrekskeppni
Flugfélags fslands, sem er eins
konar „meistarakeppni m'eist-
aranna" og lokakeppni þeirra
á árinu. Keppni þessi hefur verið
háð á Nesvellinum s.l. tólf ár, eða
frá því að Golfklúbbur Ness var
stofnaður.
Að þessu sinni er keppnin háð
með nýju fyrirkomulagi, og sérstak-
lega vandað til 1 verðlaunanna, en
þau eru í ár Skotlandsferð fyrir
einn á komandi vori.
Til keppninnar er boðið
meisturum sjö golfklúbba víðsvegar
að af landinu, svo og íslands-
meistaranum, meistaranum í Opna
islenzka meistaramótinu og sigur-
vegurunum í þeim mótum, sem
hafa gefið stig til landsliðsins á
þessu ári.
Keppnin hefst fyrir hádegi á
laugardag en lýkur síðari hluta dags
á sunnudag.
f ár eru það tíu úr hópi beztu
kylfinga landsins sem hafa rétt til
þátttöku í mótinu, og eru það
þessir:
Björgvin Þorsteinsson, GA, Ragnar
Ólafsson, GR, Sigurður Thoraren-
sen, GK, Loftur Ölafsson, GN,
Gunnar Júliusson, GL, Jóhann
Benediktsson, GS, Haraldur
Júlíusson, GV, Sigurjón Gíslason,
GK, Jón H. Guðlaugsson, GN, Hallur
Þórmundsson, GS.