Dagblaðið - 15.10.1976, Blaðsíða 8
8
Áhugamenn
um
bifreiðaíþróttir
Stofnfundur bifreiöaíþróttadeildar
F.Í.B. verður haldinn í Ráðstefnusal
Hótel Loftleiða sunnudaginn 17. okt.
nk. kl. 14. Markmið deildarinnar er
bifreiðaíþróttir, t.d. rally, rally-cross,
ísakstur o. fl.
Skýrt frá brautarlagningu. Áhuga-
menn fjölmennið, vélhjólamenn vel-
komnir.
Stjórnin.
Simavarsla — afgreiðsla
Við óskum að ráða vanan starfs-
kraft til símavörslu og afgreiðslu-
starfa. Nokkur vélritunarkunnátta
æskileg.
Laun samkvæmt launakerfi ríkis-
starfsmanna.
Umsóknir sendist skrifstofu okkar
aö Lindargötu 46 fyrir 25. þ.m.
Fasteignamat ríkisins.
Heildsölubirgðir
FrakkastíR. — Símar mW, 1059Ö
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUH 15. OKTOBFH 197f>
Nú þarf ekki lengur að bera vatn í mjólkurbrúsum:
EN VATN í KRANA
GETUR VERIÐ DÝR
„MUNAÐUR”
— kostaði milljón
ó hvert býli
í Flóanum
1 mörg ár hefur það verið
talið sjálfsagt að hafa rennandi
vatn-í krana. Samt sem áður er
aðeins ár síðan að vatnsveita
kom í Sandvíkurhrepp. „Nú er
pað liðin tið að bera vatn í
mjólkurbrúsum langar leiðir.
Stundum þurfti að fara alla leið
á Selfoss og ná í það,“ sagði
Málfríður Benediktsdóttir hús-
freyja að Stóru-Sandvík í Sand-
víkurhreppi í samtali við DB.
Hún sagði að nú loks væru
komnir brunahanar í hreppinn
og það væri þægilegt að vita að
loks fengist nóg að vatni ef
kviknaði í einhvers staðar. Það
hefði verið mjög mikið öryggis-
leysi að vita til þess að vatns-
leysi stæði í vegi fyrir því að
hægt væri að bjarga verðmæt-
um frá skemmdum ef eldsvoða
bæri að höndum.
Sandvíkurhreppur hafði
pamvinnu við Selfoss við bygg-
ingu vatnsveitunnar. Vatnið er
leitt úr Ingólfsfjalli. Nú hafa
öll býlin 17 að tölu, sjálfrenn-
andi vatn og er það mikill
munur að eiga ekki yfir höfði
sér vatnsleysi þegar rafmagn
fer t.d. í vondu veðri. Þá
stöðvuðust vatnsdælurnar sem
voru á hverjum bæ en þær voru
mjög afkastalitlar. Einnig gat
farið svo að sumir bæir yrðu
alveg vatnslausir þegar miklir
Málfríður húsfreyja í Stóru-Sandvík er að vonum ánægð með að fá
rennandi vatn í kranana. Þessi „munaður" þykir sjáifsagður í dag
enda hafa Reykvikingar notið hans áratugum saman. Myndina tók
Gunnar Vigfússon fyrir Sveitarstjórnarmál.
þurrkar voru. Voru þeir stund-
um vatnslausir í margar vikur.
Það má segja að vatnsdrop-
inn sé dýr hjá hreppsbúum,
vatnsveitan kostaói rúmar 13
milljónir, eða eina milljón á
hvern kílómetra í lögn.
Það eru fleiri sem borga vel
fyrir að fá vatnsveitu. Þrir
hreppir í Flóa, Villingaholts-
hreppur, Gaulverjabæjar-
hreppur og Stokkseyarhreppur,
hafa nú fengið sjálfrennandi
vatn á bæi sín, en þeir eru 93 i
þessum þrem hreppum.
Kostnaðurinn varð um 90 millj-
ónir króna, eða ein milljón á
hvert býli. Það sem gerir
þessar framkvæmdir mögu-
legar er að framiag ríkisins er
50% af kostnaðinum.
—KP.
Landssamband slökkviliðsmanna þingar:
AÐ SLOKKVA ELDINN
ÁÐUR EN HANN KVIKNAR
,,Oft verður lítill neisti að stóru
báli en það viljum við einmitt
reyna að koma í veg fyrir þegar
verðmæti og mannslíf eru í veði,“
sagði Halldór Vilhjálmsson, úr
slökkviliði Keflavíkurflugvallar
og nýkjörinn ritari Landssam-
bands íslenzkra slökkviliðsmanna
sem þingaði á Akureyri fyrir
skömmu, er hann ræddi við DB.
„En til að koma í veg fyrir
eldsvoða verður að stórauka eld-
Varnareftirlit og almenna fræðslu
um eldvarnir, meðal annars með
útgáfu blaða, bóka og ritlinga.
Mjög mörg mál voru tekin fyrir
á þinginu sem var hið fjórða í
röðinni og margar tillögur sam-
þykktar sem miða að því að bæta
ríkjandi ástand í eldvarnarmálum
og málefnum slökkviliða vítt og
breitt um landið. Við teljum að
þau félög, sem hafa með höndum
skyldutryggingar fasteigna hér á
landi, Brunabótafélagið og Sam-
vinnutryggingar, eigi að láta
endurskoða þann hátt sem lýtur
að kostnaðarframlagi og þátttöku
þeirra í uppbyggingu og rekstri
slökkviliða og eftirlits — með
öðrum orðum — taki meiri þátt í
kostnaðarhliðinni."
Ársþingið, þar sem voru full-
trúar frá 32 félögum, samtals
nærri 800 slökkviliðsmönnum,
skorar einnig á sömu aðila,
Brunabótafélagið og Samvinnu-
tryggingar, að þau láta endur-
skoða reglugerðir um arðgreiðslu
til íbúa hinna einstöku bæja og
sveitarfélaga svo að hún megi
verða réttlátari en verið hefur.
Samtök slökkviliðsmanna láta
sér fátt óviðkomandi sem að eld-
varnarmálum lýtur.
Vakin var eftirtekt á út-
kallsmálum ísfirðinga, ef elds-
voða ber að höndum, en starfs-
stúlkur Pósts og síma vilja ekki
gegna því hlutverki lengur, telja
það ekki í sínum verkahring,
nema kauphækkun komi til.
Einnig var rætt um eldvarnir á
sjó og bent á að eldur verður
varla slökktur með þeim litlu og
allt of fáu tækjum sem um borð
eru og því miður oft í ólagi. Þá
vildu slökkviliðsmenn að fjölgað
yrði svonefndúm „froðutrektum"
um borð í skipurn Landhelgis-
gæzlunnar en aðeins eitt skip
hefur slíkan útbúnað.
„Sú skoðun er allt of ríkjandi
meðal manna að hlutverk okkar
sé aðallega að slökkva eida sem
kviknað hafa, en við lítum ekki
síður á okkur sem eldvarnamenn,
— að slökkva eldinn áður en hann
kviknar, ef svo má að orði
kornast," sagði Halldór, „og til að
ná sem mestum árangri var sam-
þykkt á þinginu að taka upp sam-
skipti við norræn slökkviliðs-
félög, blaðið okkar, „Slökkviliðs-
maðurinn", kemur út tvisvar á ári
og flytur ýmsan fróðleik — er
eins konar uppsláttarrit fyrir
slökkviliðsmenn. Þá er verið að
prenta fyrstu bókina í stórum
flokki sem gefin hefur verið út af
brunamáladeild háskólans i Okla-
homa í USA.“
Núverandi formaður LSS er
Armann Pétursson, slökkviliði
Re.vkjavíkur. Með honum. í stjórn
eru Gunnlaugur Búi Sveinsson,
Akureyri, Halldór Vilhjálmsson.
Keflavíkurflugvelli, Egill Olafs-
son, Sandgerði og Þórður
Kristjánsson Keflavíkurflugvelli.
—emm
Minni vinna í hraðfrystihúsinu ó Eskifirði:
r w
STARFSFOLKIÐ HVILDINNI FEGIÐ
Síðastliðinn hálfan mánuð
hefur verið töluvert minna aó
gera í Hraðfrystihúsi Eskifjarðar.
Stafar það fyrst og fremst af því
að tveir bátanna, Hólmatindur og
Sæljónið, hafa báðir verið í slipp
á Akureyri um nokkurn tíma en
eru væntanlegir heim í dag eða á
morgun. Hólmanesið hefur að
undanförnu verið við veiðar á
Vestfjarðamiðum en kom inn á
mánudagskvöld eftir um hálfs
mánaðar útivist. Hafaldan og
aðrir smábátar hafa !agt upp í
frystihúsinu að undanförnu.
Starfsfólk frystihússins hefur
verið hvíldinni fegið enda yfir-
leitt geysilega mikil vinna þar
endranær.
Sæberg SU 9 kom inn í f.vrra-
kvöld með um 60 tonn af síld. Var
hún frekar smá en skipstjórinn á
bátnum. Aðalsteinn Valdimars-
son, kvað þá skýringu á því, að
síldin væri farin að þjappa sér
meira sarnan og kæmi það niður á
stærðinni. -RJ/jb.