Dagblaðið - 08.12.1976, Side 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1976
9
N
Lífeyríssjóðir á
fallandi fæti
Lífeyrissjöður verzlunar-
manna verður gjaldþrota árið
2025, ef svo heldur áfram sem
stefnir. í þeim útreikningum er
miðað við, að lífeyrir verði
verðtryggður, enda telja kunn-
ugir, að svo verði almennt inn-
an tíðar. Aðrir smærri lífeyris-
sjóðir mundu ekki standast
jafnlengi og hinn stóri Lífeyris-
sjóður verzlunarmanna.
Blaðið hafði samband við
Ingvar N. Pálsson, fram-
kvæmdastjóra Lífeyrissjóðs
verzlunarrtianna, og staðfesti
hann þessa frétt. Útreikninga
hefur Pétur Blöndal trygginga-
fræðingur gert. Ingvar lagði
áherzlu á, að ýmislegt gæti
breytt þessum reikningum, svo
sem það, ef útlán yrðu verð-
tryggð.
Pétur Blöndal lagði á það
áherzlu í viðtali við blaðið, hve
ávöxtun fjár lífeyrissjóðanna
væri geysilega neikvæð miðað
við laun. Verðbólgan kæmi
þungt niður á sjóðunum. Líf-
eyrissjóður verzlunarmanna
væri mjög stór, með heppilega
aldursdeifingu sjóðfélaga, mik-
ið af ungu fólki. Útreikningar
sýndu, að hann færi ekki á höf-
uðið, ef lífeyririnn yrði ekki
verðtryggður. Margir smærri
sjóðir mundu hins vegar að lík-
indum verða gjaldþrota strax á
jafnvel Lífeyrissjóður
verzlunarmanna gjaldþrota
árið 2025, miðað við
verðtryggingu lífeyris
næstu áratugum, miðað við
verðtryggingu lífeyris. í út-
reikningunum var byggt á
fjölda sjóðsfélaga í dag og ald-
ursskiptingu þeirra. Metið var
miðað við meðaltöl, hversu
margir „yrðu eftir" og fengju
lífeyri. Reiknað var með, að
aðrir kæmu í stað þeirra, sem
hætta. Forsendur voru gefnar
um hækkun launa og miðað við
ákveðna, verðtryggða prósentu
af launum, þegar menn fengju
lífeyri. Sjóðfélögum var með
þessum hætti „fylgt eftir“ 60 ár
fram í tímann. Reikningsmenn
gengu út frá tilteknum ið-
gjaldatekjum. Allir þættir voru
þannig reiknaðir miðað við þró-
un mála að undanförnu. Út-
koman var efnahagsreikningur,
sem sýndi, að Lífeyrissjóður
verzlunarmanna. mundi ekki
eiga fyrir skuldum árið 2025.
-HH
Efnafræðilegt
ólympíuljós
Dálítið furóulegl ljóserkomiðá
markaðinn hér á landi. Ljós þetta
sást fyrst opinberlega, þegar
íþróttafólk Olympíuleikanna í
Montreal gekk inn á leikvanginn
við lokaathöfnina. Hélt hver þátt-
takandi og áhorfandi á ljósstaf af
Cyalume-gerð, eins og þeim sem
hér eru kynntir.
Ljósið kviknar við efnahvörf.
Stafurinn er sveigður og við það
brotnar gler inni í honum og
gengur efni hans í samband við
önnur. Kviknar þá svolítil ljós-
týra, grænleit og jólaleg mjög.
Ljósið er ekki hægt að slökkva,
það deyr út á u.þ.b. tveim sólar-
hringum.
Framleiðendur telja að ljósstaf-
urinn geti komið að gagni í ýms-
um tilvikum, t.d. þegar ökumaður
lendir í vandræðum í myrki á bíl
sínum. Má jafnvel notast við ljós-
ið til að lesa við.
Ljósið hitnar ekki og getur ekki
vaídið íkveikju, og raimar er það
hið jólalegasta að sjá.Innflytjandi
ljósstafsins er Ragnar Sigfússon.
Ungi maðurinn á myndinni sýn-
ir olvmpíuljósið, ljós sem m.ynd-
ast við efnabreytingu. Það er
myndað með annars konar orku
en langafi drengsins framleiddi
fyrstur manna hér á landi, raf-
orku sem framleidd var með
vatnsafli. Ungi maðurinn heitir
Jóhannes Reykdal, og það hét
langafi hans reyndar líka en bara
hundrað árum eldri.
(DB-mynd Sv. Þorm.)
ALLT AÐ VERÐA ÓFÆRT
Á NA-LANDIVEGNA SNJÓA
meðan rykið fyllir vit og vistarverur fólks hér syðra
Færð er nú að verða allþung
víða á Norðausturlandi og norð-
anverðum Austfjörðum. Víða á
Norðurlandi er orðið þungfært
eða ófært og veður hefur víða
verið slæmt svo að ekki hefur
verið hægt að vinna að snjó-
ruðningi eða mokstri eða þá að
slíkt heíur reynzt ókleift vegna
skafrennings.
Flug féll að niestu niður til
Egilsstaða í tvo daga þangað til
síðari hluta dags í gær. En það
var skammgóður vermir fyrir
suma, því ófært var að verða
frá Egilsstöðum niður á firði og
óvíst hvort þeir sem ætluðu
þangað kæmust á áfangastað í
bráð. I gær var flogið til allra
staða sem fljúga átti til nema til
Norðfjarðar, þar sem flugvöllur
var lokaður vegna snjóa.
Arnkell Einarsson hjá Vega-
eftirlitinu sagði að greiðfært
væri um allt Suðurland og ágæt
færð allt norður í Skagafjörð.
Öfært er til Siglufjarðar og þar
varð að hætta mokstri í gær
vegna óveðurs. Verður haldið
áfram í dag leyfi veður.
Vegurinn yfir Öxnadalsheiði
og um Öxnadal var ruddur í
gær. í Eyjafirði og S-
Þingeyjarsýslu er töluverður
jafnfallinn snjór. Tók að skafa
er á leið þriðjudag og því óvíst
um færð i dag. Ekki var nema
stórum bílum fært út á Dalvík í
gær.
Gerð var tilraun til að rjúfa
einangrun Ölafsfirðinga en
hætta varð við þá tilraun í gær
og verður því ekki komizt til
eða frá Ölafsfirði nema á sjó.
A mánudag var rudd leiðin
frá Akureyri um Dalsmynni til
Húsavíkur. Þar var færð orðin
ótrygg í gær og veður fór versn-
andi. Mokað var í Mývatnssveit
i gær en ófært er fyrir Tjörnes.
A NA-landi er fært með
ströndum um Kelduhverfi og
austur á Þórshöfn. Þaðan er
hins vegar ófært um heiðar til
Vopnafjarðar.
Á Austurlandi eru flestir
vegir ófærir. Slæmt veður var
það í gærmorgun en batnandi á
Egilsstöðum og flugleið sem
lengi hafði verið lokuð opnað-
ist. En í gærkvöldi tók færð að
þyngjast niður á firði frá Egils-
stöðum og var hætta á að fram-
haldsleiðir flugfarþega á landi
myndu lokast. Byrjað var að
moka veginn um Fagradal sið-
degis í gær en útlit var f.vrir að
því verki yrði að hætta vegna
vaxandi skafrennings sem jafn-
harðan fyllti slóðir.
Allir fjailvegir evstra eru
ófærir og flestir vegir á lág-
lendi. En frá Re.vðarfirði er
fært suður um alla firði og síð-
an greiðfært til Re.vkjavikur.
-ASt.
„Vor við Húsafell”
Hvað skyldum við ísléndingar
senda mörg jólakort til ættingja
og vina heima og erlendis? Við
sendum m.a.s. til þeirra sem við
höfum hvorki heyrt né séð í mörg
herrans ár.
En enginn veit ævi sína fyrr en
öll er og ein lítil kveðja til vina og
kunningja á jólum getur orðið tii
þess að treysta vináttuböndin.
Ætli við getum ekki slegið því
föstu að allir hér á landi kannist
við málarann Ásgrím Jónsson.
Fáir eiga málverk eítir hann, en
allmargir eftirprentanir hans.
Þeir eru þó margir sem árlega
hafa fengið listaverkakort Ás-
grímssaíns sem jólakveðju. Þetta,
kort er geíið út sem aldarminning
Ásgríms Jónssonar 1976. Myndin
heitir „Vor á Húsafelli", 100x145
cm, olíumálverk 1950, Asgríms-
safn á myndina.
EVI
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njálsgötu 49 - Simi 15105
Skrásett I
vörumerki [
Ný
sending
TRAMPS
TRAMPS-kuldastígvél úr
sérstaklega góðu leðri
með loðfóðri og
þykkum hrágúmmísólum
Stærðir 35—46
Litur:
Brúnt leður
KR. 6860
Skóverzlun
Þórðar Péturssonar
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll. Sími 14181