Dagblaðið - 08.12.1976, Síða 14
14
DAGBI.AÐIÐ. MIDVlKl'DAGl'H H. DKSKMBKK lí)7(i
jþróttir
Iþréttir
íþróttir
Sþróttir
ísl. landsliðið
á leið í víking
— Hélt utan í morgun og leikur tvívegis við
A-Þjóðverja. Dani á sunnudag
— Við förum i loftið kl. átta
þrjátíu. sagði dr. Ingimar Jóns-
son. aðalfararstjóri íslenzka
landsiiðsins. þegar blaðið hafði
samband við hann i gærkvöld. í
morgun hélt handknattleiks-
landsliðið í víking til Austur-
Þýzkalands og Danmerkur. Þrír
landsleikir verða leiknir í förinni
og auk þess leikur við úrvalsliö
Sjálands.
Auk dr. Ingimars verða lands-
liðsnefndarmennirnir Birgir
Björnsson og Gunnlaugur
Hjálmarsson með i förinni og
landsliðsþjálfarinn Janusz Czer-
winski.
Fyrsti landsleikurinn verður á
fimmtudag við Austur-Þjóðverja í
Berlín. Daginn eftir verður leikið
við þá í Frankfurt — en síðan
haldið til Danmerkur. Á
sunnudag verður leikið við Dani í
Kaupmannahöfn og hefst leikur-
inn kl. 16.30. Á mánudag verður
leikið við úrvalslið Sjálands — og
síðan komið heim. Þá verður
skammt í þrjá landsleiki hér
heima við Dani eða um aðra helgi.
Eitt mark í Köln
bjargaði Rangers
— QPR komst í 8-liða úrslit UEFA-keppninnar í gær
Lundúnaliðið QPR tryggði sér
rétt í 8-liða úrslit UEFA-
keppninnar í gær — lék í Köin og
þar mátti ekki miklu muna.
Þýzka liðið sigraði með 4-1 og
markatala úr báðum ieikjum lið-
anna var því 4-4. Utimarkið í gær
tryggði Rangers áframhald í
keppninni.
Það leit þó sannarlega vel út
íyrir QPR. Liðið kom með þriggja
marka forustu til Kölnar og eftir
aðeins fimm mín. hafði Don
Masson skorað. Það'var eins og
köld drífa á 38 þúsund áhorf-
endur í frostinu í Köln.
En QPR urðu þá á mikil mistök.
Liðið lagðist í vörn — gaf leik-
mönnum Kölnar eftir frum-
kvæðið. Það hefði getað orðið
dýrt. Köln skoraði þrivegis íyrir
hlé. Fyrst „Nýi-Miiller“ — lands-
liðsmiðherjinn Dietmar Múller.
Síðan Hames Loehr og að lokum
Wolfgang Weber. Staðan 3-1 i
hálfleik og rétt fyrir hlé var
enska landsliðsmarkverðinum
Dave Clement vikið af velli.
Utlitið var því bjart að ílestu
leyti hjá Köln, þar sem kappinn
frægi, Wolfgang Overath réð al-
gjörlega miðju vallarins ásamt
Heinz Flohe. Liðið þurfti að skora
tvö mörk til að komast áfram.
Köln sótti og sótti allan síðari
hálfleikinn, en Phil Parkes átti
einn af sínum stórleikjum í marki
og þurfti aðeins að sjá á eftir
knettinum einu sinni i mark til
viðbótar. Múller skoraði —en það
nægði Köln ekki. 1 kvöld verða sjö
leikir i UEFA-keppninni.
'jjgj Æ- :,,
I 1 wKm'' Wttkf § \ ISyQv Wmh JWi ntíK S mpmk y ' 1 \ 'Æ f \ ^ / 1 % # |
( ■ V / • i| J . • j
| ,, f
f ÉÆ ... ., W R i m m m M i 1 jpj | Æ M EfilP- ‘Á Jyj
Bandarískt háskóla-
lið gegn landsliðinu
— Leikur hér þrjá leiki í körfuknattleik rétt fyrir jól
Körfuknattleikslið Tennesse-
háskóla er væntanlegt liingað til
lands 18. desember og mun leika
hér þrjá leiki. Liðið kemur
hingað beinl úr keppnisferð um
England. Liðið er sterkl — vann
1!) leiki. en lapaði aðeins átta á
siðasta leiktímabili bandarísku
háskólanna.
Fyrsti leikur liðsins verður við
íslenzka landsliðið í Kennaraskól-
anum sunnudaginn 19. desember.
Daginn eftir leikur það í Njarðvík
við UMFN og þriðji og siðastf
leikur liðsins verður aftur við ís-
lenzka landsliðið. 21. desember í
Hagaskóla. Leikmenn University
of Tennessee eru flestir mjög há-
vaxnir — um og yfir tvo metra.
Það var finti og fjör. sem einkenndi sýningu Finileikasambands tslands og
spenna. Sýningin er orðin árlegur viöburöur og nú voru þátttakendur -
mynd Bjarnleifs frá sýningunni er ung stúlka á jafnvægisslá og þar er allt
Fer f ram á 1
ef þessu hc
— segir Guðgeir Leifsson, en hann er afar <
— Eg hef beðið um fund nteð stjórn
Charleroi til að ræða ntálin. þvi ég tel
langt frá því eðlilegt að hafa verið
settur úr aðalliðinu síðustu þrjár
t ikurnar. Ennþá hefur stjórnin ekki
raút við ntig. en það er pottþétt. að ég
reyni að fara frá félaginu — komast
til annars félags í Beigíu — ef ekki
verður á breyting um eða eftir ára-
mótin, sagði Guðgeir Leifsson. at-
. vinnumaður í knattspyrnu með
Charleroi. þegar blaðið ræddi við
hann í gær.
Það heíur vakið mikla furðu hér í
Charleroi, að ég hef ekki leikið í
aðalliðinu. Mér var ekki einu sinni
sagt frá því, þegar ég var settur úr
liðinu fyrir þremur vikum. Ég veit
ekki hver ástæðan er — get ekki
skilið hvað að er. Eg hef hugsað mikið
um þetta mál, en finn ekkert svar. Eg
hef æft mjög vel — leik ekki lakar en
áður og um algjöra reglusemi á ölium
sviðum er að ræða. Jafnt við æfingar
sem annað. Nei, ég finn ekkert svar,
sagði Guðgeir ennfremur.
Annars er mikil óánægja með
árangur Charleroi hér í borg. Liðið
hefur hlotið 9 stig úr 13 leikjum eftir
þokkalega byrjun og aðeins tvö lið í 1.
deild hafa hlotið færri stig. Það er
árejðanlega stutt í að þjálfarinn
Felix Weak, verðj rekinn. — Það er
almenn óánægja með hann jafnt hjá
leikmönnum sem áhangendum
liðsins.
Eg hef leikið í varaliði Charleroi að
undanförnu. Á laugardag unnum við
FC Brugge 4-1 á heimavelli, en það
lið er í öðru sæti í keppni varalið-
anna. Fyrsti leikurinn, sem ég lék í
varnaríiðinu fyrir þremur vikum, var
við Lokeren. Einnig á heimavelli, og
við unnum 4-1. Þá lék ég einnig með
varaliðinu gegn Standard í Liege og
þar fengum við skell. 8-0. Aðalmark-
vörður lsiðins var meiddur og vara-
markvörðurinn lék með Charleroi
gegn Standard í 1. deild. Hjá okkur í
varaliðinu var kornungur strákur í
markinu, sem ekkert varði.
í leiknum við Lokeren skoraði ég.
sagði Guðgeir ennfremur, og hef lagt
upp 3—4 mörk í leikjunum við Loker-
en og Brugge Það er lítið skrifað um
þessa leiki varaliðanna í blöð, en mér
hefur þó þótt vænt um að sjá þar
skrifað, að það sé skrítið að ég skuli
ekki leika I aðalliðinu. Fólkið hér í
Charleroi er greinilega með mér, því
þegar ég var á varamannabekkjum
fyrst eftir landsleikina heima á ís-
landi í HM við Belgíu og Holland, var
byrjað að hrópa eftir 10—15 mín. á
Buchani
Martin Buchan. fyrirliði
Manch. Utd. mun leika með
liðinu á ný á laugardag gegn
Bristol City. Það verður fyrsti
Ieikur hans frá því hann meiddist
í HM-leik Tékka og Skota fyrir
um tveimur mánuðum. A sama
tíma hefur Manch. Utd. ekki
unnið leik í deildakcppninni.
Johnn.v Giles. framkvæmda-
stjóri WBA og leikmaður. var
lagður inn á sjúkrahús í gær. Það
á að skera hann vegna
meinsemdar í fæti. Talið er. að
Giles verði 5-6 vikur frá keppni.
Duncan McKenzie komst í
gegnum læknisskoðun í gær og
mun leika sinn fvrsta lcik mcð