Dagblaðið - 08.12.1976, Blaðsíða 16
16
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1976
Hvers vegna er allt að fara til fj... á Bíldudal?
SAMSKIPTIN VIÐ SIÓÐINA
1 millitíðinni hafði enn sitthvað
merkilegt gerzt vestur á Bildudal.
Eins og kemur fram í yfirlits-
skýrslu þeirra Eyjólfs Þorkels-
sonar og Péturs Bjarnasonar
(sem birt var í mánudagsblaðinu)
hafði í apríl 1973 verið skrifað
undir samninga um smíði á 165
lesta stálskipi hjá Slippstöðinni á
Akureyri.
Það var þó ekki hlutafélagið
Boði, sem stóð að þessum skipa-
kaupum, heldur hlutafélagið Ein-
hamar. Stærsti hluthafi þar var
Eyjólíur Þorkelsson, síðan Boði
hf. Sat Eyjólíur jafnframt í stjórn
en aðrir stjórnarmenn Einhamars
voru sjómenn á staðnum. Jón
Steingrímsson, Jón Gestur Svein-
björnsson og Guðmundur
Péturssson.
Hreppsábyrgð
fyrir Einhamar
7. janúar 1974 skrifar stjórn
Einhamars svohljóðandi brél' til
hreppsneíndar Suðurfjarða-
hrepps á Bíldudal:
„Meö brófi þessu leyfir stjórn Einhamars hf.
sór afl sœkjo um abyrgö Suöurfjaröahrepps aö
upphœö kr. 5.000.000,- vegna kaupa fólagsins
á 165 tonna stálfiskiskipi hjá Slippstööinni á
Akureyri. Smíöaverö skipsins veröur væntan-
lega 65.505.000,00 miöaö viö verölag 1/12
1973, en nýjasti smiðasamningur Slippstóövar-
innar á sams konar skipi er kr. 82.500.000,00.
Áformaö er aÖ gera skipiö út á linu og
togveiöar frá Bildudal. Tekiö skal fram aö hluta-
fó fólagsins er 5 millj. kr. og innborgaö 3,5 millj.
Hreppsnefndin kom saman til fundar hálfum
mánuöi síöar, 21. janúar. og samþykkti aö veita
umboðna ábyrgö meö skilyröum þó. bau voru,
samkvæmt fundargeröabók hreppsins
1. Ábyrgöin falli þegar niöur veröi skipiö selt úr
byggöarlaginu.
2. Ábyrgöin er bundin þvi skilyröi. aö skipiö
leggi afla sinn aÖ jafnaöi upp á Bíldudal.
Veröi þessum skilyröum ekki framfylgt
telst ábyrgöin úr gildi fallin.
Ábyrgðin er aö sjálfsögöu háð samþykki
sýslunefndar."
Skipið selt til Grindavíkur
daginn eftir
Þar með voru geíin út skulda-
bréf, hvergi er að finna nákvæm-
lega hvað þau voru mörg. á nafni
Einhamars hf. 1 júní þetta sama
ár er skipið afhent hinum nýju
eigendum. Daginn eftir selja þeir
skipið aítur á kostnaðarverði til
fyrirtækisins Mumma hf. í
Grindavík. 95 milljón krónur, að
sögn Eyjólfs Þorkelssonar. Upp-
haflegt kaupverð átti að vera 55
milljón krónur. Auk lána úr opin-
berum sjóðum segir Eyjólfur að
ætlað hafi verið að fjármagna
kaupin með því að tveir rækju-
skipstjórar (Jón Steingrímsson
og Jón Gestur) ætluðu að selja
sína báta, sjálfur hafi Eyjólfur
ætlað að leggja fram eina milljón
og svo hafi Matthías Bjarnason,
núverandi sjávarútvegsráð-
hefra, útvegað 1500 þúsund króna
lán hja Samábyrgð íslenzkra fiski-
skipa. „Þegar til kom,“ sagði
Eyjólfur. „dugði þetta fyrir 10%
af kaupverðinu.“
„Bezti vinur Matthíasar“
A þeim tíma var „ég bezti vinur
Matthíasar á Bíldudal," segir
Eyjólfur. En 25. marz þetta ár átti
Eyjólfur samtal við Matthías
Bjarnason á skrifstofu hans í
ráðuneytinu í Reykjavík. Þar
lagði framkvæmdastjórinn fyrir
ráðherrann áætlun um kaup Boða
hf. á eignum Fiskveiðasjóðs á
Bíldudal og uppbyggingu þeirra
og atvinnulíís staðarins. Ráðherr-
ann hlustaði á og ræddú þeir
málið nokkra stund. En á þessum
fundi í • ráðuneytinu telur
Eyjólfur sig fyrst hafa orðið
varan við að afstaða Matthíasar
gagnvart sér væri eitthvað önnur
en hún var vön að vera. „Honum
hefur ef til vill þótt ég vera
kominn of mikið yfir á Framsókn,
þótt fátt sé fjarri mér,“ sagði
Eyjólfur fréttamanni blaðsins á
Bíldudal.
Persónulegar deilur?
Flestir þeir, sem fréttamaður
DB ræddi við á Bíldudal á dögun-
um, telja víst að ástæðan fyrir því.
að Boði hafi ekki fengið keyptar
eignir Fiskveiðasjóðs á Bíldudal
hafi .verið einhverjar „persónu-
legar deilur" eða „pólitík" í
millum Eyjólfs annars vegar og
Sverris Júlíussonar og Matthíasar
Bjarnasonar hins vegar. Sú sé til
dæmis ástæðan fyrir því að
bréfum Boða til Fiskveiðasjóðs,
þar sem sótzt var eftir kaupum
eignanna, hafi aldrei verið
svarað. (Sverrir Júlíusson sagði í
Jakob Kristinsson, oddviti Suður-
fjarðahrepps og stjórnarfor-
maður Fiskvinnslunnar hf.
samtali við DB fyrir helgina að
þessum bréfum hefði verið
svarað, „hvort sem það var munn-
lega eða skriflega“.)
Þá eru nokkrir þeirrar
skoðunar að þessar deilur eigi
rætur sínar að rekja til þess er
Einhamar lét smíða skipið á
Akureyri. Sverrir Júlíusson
styrkir sjálfur þá skoðun í grein
sem hann iskrifaði í Visi sl.
fimmtudag. Þar segir hann meðal
annars að hann teldi rétt „að at-
huguð væru afskipti Eyjólfs Þor-
kelssonar, athafnamarins, af
kaupum og sölum mb. Viðey RE.
er varð síðar mb Árni
Kristjánsson BA og enn siðar mb.
Andri BA og nú Klængur ÁR, allt
á vegum hlutafélagsins Sóknar á
Bildudal. Og ekki síður þarf rann-
sóknar við um allt varðandi bygg-
ingu 150 rúml. (sic) stálbáts á
Akureyri, á vegum Einhamars hf.
Bildudal."
„Svara því fyrlr rétti“
Fréttamaður blaðsins hafði
samband við Sverri á föstudaginn
og spurði nánar út í Einhamar og
samskipti hans og Eyjóifs Þor-
kelssonar. „Ég svara ekki um
Einhamar," svaraði Sverrir. „Ég
geri það fyrir rétti og ég er ekki
fyrir rétti núna. Ég er þess fylgj-
andi, eins og stendur í Vísisgrein-
inni, að þetta mál verði rann-
sakað. Ég er tilbúinn að svara og
leggja fram ýmislegt fyrir retti.
Ef ég þarf að opna mig um
Einhamar, þá geri ég það, en ekki
svona."
Bátur Einhamars, sem nú er
Mummi GK, átti eftir að koma
aítur til tals i atvinnumálaum-
ræðu Bílddælinga. Við komum að
því síðar. Skuldabréfin, sem gefin
voru út með hreppsábyrgðinni frá
21. janúar 1974, áttu að vera úr
gildi þar sem þau voru aldrei
notuð í upphaflegum tilgangi.
Nafni breytt á skuldabréfi
með hreppsábyrgð
En í janúar 1975 fréttist af
þessum skuldubréfum, öllum á
óvart. að minnsta kosti hrepps-
nefndarmönnum. Boði hf. hafði
fengið milljón króna lán úr Láría-
sjóði Elíasar Þorsteinssonar. en
það er iánasjóður í tengslum við
Sölumiðstöð hraðfrystihúsatina.
Það sem nteira var: þetta lán var
út á eitt veðskuldabréfanna se.m
hrep|)Lii inn hafði áb.vrgzt ári áður
fyrir Einhamar hf. til bátasmíð-
innar á Akureyri. Ljósmynd af
þessu bréfi barst til Bíldudals og
þar sást greinilega að nafn
Einhamars hf. hafði verið
þurrkað úr og nafn Boða sett í
staðinn útg. 31/5 ’74. Hrepps-
nefndarmenn fóru að spyrjast
fyrir hjá stjórnarmönnum Ein-
hamars og Boða hvar hin bréf
in gætu verið.
Þeir vísuðu . hver á
annan, að sögn Jakobs Kristins-
sonar oddvita, en 15. marz var
skilað tveimur bréfum, hvoru að
upphæð kr. 750.000,00. Fjögur
önnur bréf, samtals að upphæð
kr. 476.299,20, sem þeir Jón Stein-
grímsson og Jón Gestur, stjórnar-
menn í Einhamri, notuðu m.a. til
að kaupa sér bát á Blönduósi,
komu í ljós með stefnu, sem lögð
var fram í Bæjarþingi Reykja-
víkur 11. ágúst í sumar. Þau bréf
voru útgefin til handa Einhamri
25. janúar 1974.
Fréttamaður blaðsins hringdi
af hreppsskrifstofunni á Bíldudal
til lögmanns stefnanda og fékk
þar þær upplýsingar að raunveru-
lega væri Jón Steingrímsson hinn
stefndi; hreppsábyrgðin gerði
nauðsynlegt að stefna hrepps-
nefndinni á Bíldudal einnig; Enn
Sverrir Júlíusson, forstjóri Fisk-
veiðasjóðs Islands.
vantar þó bréf — og enginn
virðist vita hvað mörg — samtals
að upphæð kr. 2,023.000,-.
Báturinn, sem þeir Jón Stein-
grímsson og Jón Gestur keyptu á
Blönduósi, var 25 tonna bátur,
Seifur. Hann var seldur þaðan í
haust.
Skipt um skoðun — eða
hvað?
Nú ber einstökum hrepps-
nefndarmönnum ekki saman um
hvort þeir samþykktu og skrifuðu
undir ábyrgð fyrir Einhamar eða
Boða.
Mönnum ber heldur ekki sam-
an um hvernig stóð á að nafninu
var breytt á þessu tiltekna hluta-
bréfi.
Hreppsnefndin kom saman
þegar bréf þessi fóru að koma í
ljós. Ur íundargerð 20. febrúar
1975:
„2. Fyrír var tekiö hroppsabyrgÖ til Boöa hf. og
voru mættir á fundinn auk hreppsnefndarmanna
þeir Björn Magnusson og Hannes Bjarnason,
fyrrv. hreppsnefndarmenn. Ábyrgö þessi var
rædd á síðasta fundi, og óska þeir er stóöu aö
samþykkt hennar, aÖ þaö komi skýrt tram aö
þeir töldu ábyrgö þessa veitta Boöa hf. og hún
undirrituð sem slík. Hannes Bjarnason og Bjöm
Magnusson upplýstu, aö þeir hefðu aldrei undir-
rítaö ábyrgö fyrir Boöa hf., heldur var um aö
ræöa formbreytingar á bréfi fyrír Einhamar hf.
3. Meö tilvísun til fundargeröar 20. janúar 1974
vill hreppsnefnd leggja áherzlu á, aÖ hrepps-
ábyrgö ti| Einhamars hf. er úr gildi fallin eins og
bókun ffrá 20. jan. 1974 sýnir."
Eifíhamar hf. er ennþá skráð
fyrirtæki á Bíldudal og hefur
ekki verið tekið til gjaldþrota-
skipta.
Sjóðirnir vilja sameina
Það er mikið lagt á unga monn
á Bíldudal. Jakob Kristinsson
oddviti er aðeins 26 ára gamail.
Hann er jafnframt stjórnarfor-
maður Fiskvinnslunnar hf„ sem
nú hyggst taka við rekstri frysti-
hússins á Bildudal. Theódór A.
Bjarnason sveitarstjóri er enn
yngri. aðeins tuttugu og fjögurra
ÖNNUR
GREIN
ára. Báðir tóku við störfum sínum
í sveitarstjórn eftir byggðakosn-
ingarnar 1974. Theódór er
„óháður" (enda ekki kjörinn) en
Jakob var efsti maður lista sem
boðinn var fram í nafni frjálsra
og óháðra með slæðingi af fram-
sóknarmönnum og alþýðubanda-
lagsmönnum.
Fljótlega eftir að riýja hrepps-
nefndin tók við barst henni erindi
að sunnan. Því er lýst nægilega í
svarbréfi hreppsnefndar til Karls
Bjarnasonar, starfsmanns Fram-
kvæmdastofnunar, sem Theódór
Bjarnason sendi honum 11.
október 1974:
Varðandi fyrirspurn frá Fiskveiðasjóði og
Framkvæmdastofnun ríkisins um afstöðu
Suðurfjarðahrepps til væntanlegs
fyrirtækis. sem stofnað yrði um rekstur á
eigum hf. Matvælaiðjunnar og á eignum
Fiskveiðasjóðs hér á Bíldudal. var eftirfar-
andi bókun gerð á fundi hreppsnefodar
Suðurfjarðahrepps 10.10 74:
Hreppsnefnd var sammála um að nauðsyn
væri á að frvstih'ls yrði starfrækt áfram og
þvi gæti þreppsnefndi ei skorazt undan að
stuðla að slíkum rekstri. en framlag yrði að
Theódór Bjarnason sveitarstjóri.
Framkvæmdastjóri frystihússins
á meðan Byggðasjóður rak það.
vora i formi hlutafjár. on okki som boin
rokstraraðild. Kinnig’tolur hroppsnofnd. að
nauðsynlogt só að hafizt vorði handa um að
afia na'gilogs hráofnis handa va'ntanlogu
fyrirtæki."
Boðamönnum lízt ekki á
samninginn við
Fiskveiðasjóð
Boðamenn voru einnig i fram-
kva'indahug. 15. október 1974
sondu þeir Fiskveiðasjóði bréf og
greinargerðir um endurmat
helztu eigna Boða hf„ svo og um
endurba'tur á húseignum yðar á
UndlrrlVað hlutaííla*, ... boöí . h.í., Blldadal, Tlðurkaaalr at
akulda Ltfnaajddl Xlíasar haradaiaaasnar kr. 1.000.000,aa -
allljda krdnur oc/1oo -.
Skuld þaaaa akuldblndua rtd okkur til ad cralda aad
logua afborgunua d naatu fiaa drua, hlnn 1. aai (.
hvara l fjrrata alnn 1, ndnabar 1974.
t vaati af akuld þaaaarl, tlna og hiln ar i hvarjua tfaa, akuld-
bindua rtd okkur ttl að (raiöa . tdlf af hundradi t árarazrt f)
1. jilnf 1974 að Mlja ag akulu vartlrnlr graiddir aisaarlala«a afrti
i binua aðau gjaldúb(aa og afboraanlraar.
Btttndua vld akkl f akllua asð gralðslu tfiuyua ac vazrt af al
graindri akuld ar bdn ðll f gjaldda«a fallla rt fþrirvara. rtt (
af btl fflagsins vardur takld tll gjaldþrstaskiyta,
Mdl, ssa rfaa kunna dt af akuld þaaaarl, ad raka fyrlr hajarþiac)
Rsykjavfkur, aaakvrtt dkvadua XVII. kafla la«B ar.
Til atadfaatu ritar atjdra fdlacslaa ndfa afa f rtdarrtat tv*cz>
vitundarvotta.
?'/r
»j k.f.
Vitundarvottari
itjdy*
yíeúm
7
Suðurf Jardahrappur dbyrciat cralöalu efi
graindrar akuldar aad sjdlfeskuldardbm
ad fancinni haiaild a/aluaafadar.
I hrappansfnd Suðurf jardahi
VitUBdarvottari
í • y / --------
■// ) ,y /! g,h.ltí'í
y
Skuldahi'éiið lil lianda Einliamri lif. sem síðar kom í Ijós á nafni Bnða.
I’renlisl þart vel niá sjá hvar nafninu hefur vorirt hrevtl á tveimur
slörtum.