Dagblaðið - 08.12.1976, Page 18
18
DACBLAÐIÐ. MIÐVIKUDACUR 8. DESEMBER 1976
BILDUDALUR - FRAMHALD
ciikt Antonssyni frá Fram-
kvæmdastofnun ríkisins, Helga
Bachmann frá Landsbanka
íslands os Karli B.jarnasyni frá
Fiskveiðasjóði íslands. Endur-
skoðunarskrifstofa var fengin til
að annast uppgjörið og var því
verki jokið að fullu 11. júlí 1975. I
niðurstöðum uppgjörsnefndar
segir:
„Samkvæmt framansögðu er
l.jóst, að Boði hf., Bíldudal, er
gjaldþrota og skuldir umfram
eignir eru líklega um 20 millj.
kr."
Þegar þetta uppgjör lá fyrir
lækkaói Fiskveiðasjóður nokkuð
reikning sinn til Boða og tók til
greina endurbætur samkvæmt
matsgjörð Matsnefndar sjóðsins.
Reikningurinn lækkaði um 2.4
millj. og hljóðaði nú upp á
3.946.268,00.
Skömmu fyrir áramót 1975
sendi Fiskveiðasjóður bréf til
stjórnarformanns Boða, Péturs
Bjarnasonar, og skoraði á hann að
ganga þegar i stað frá málum
félagsins við sjóðinn, „eða í allra
siðasta lagi fyrir 31. janúar 1976."
Boói mótmælti þessu nokkrum
dögum síðar — og þar við situr.
Benedikt Antonsson, fulltrúi
Framkvæmdastofnunar ríkisins í
uppgjörsnefnd Boða, hefði flutt
sér, þess efnis að rekstri frysti-
hússins yrði haldið áfram á
nieðan gengið væri frá uppgjöri
Boða hf. Boði hafi síðan fallizt á
aö halda rekstrinum áfram með
samþykki Fiskveiðasjóðs og
tryggingu Byggðas.jóðs fyrir
greiðslu á hráefni og vinnu.
Aður hafði það gerzt i stjórn
Boða að á aðalfundi 1. desember
1974 var „samþykkt að fela næstu
stjórn að skrifa bréf til Fiskveiða-
sjóðs, þar sem skýrt kæmi fram að
félagið sé tilbúið að leggja niður
rekstur sinn sé þess óskað, og
aðrir aðilar séu tilbúnir að taka
við hlutverki þess hér, og óskað sé
eftir að tekin verði eindregin af-
staða til þessa máls sem fyrst."
Eyjólfur hafði einnig boðizt til
að segja af sér, ef það gæti orðið
til framdráttar.
með sér bréf frá stjórn Boða til
Byggðasjóðs. Óskað var eftir
óafturkræfu þriggja milljón
króna framlagi úr Byggðasjóði
„sem varið verður til þess að
tryggja rekstur hraðfrystihússins
hér á meðan uppgjör og mat á
eignum Boða hf. fer fram, sem
áætlað er að taki tvo
mánuði.„.framangreind fjárhæð
er ætluð til greiðslu á hráefni og
vinnulaunum og samþykkjr Boði
hf. að lúta eftirliti sjóðsins með
því að það verði gert.“
I þessu bréfi er einnig vikið að
„tilmælum" Framkvæmdastofn-
unar um að rekstri yrði haldið
áfram.
Þetta framlag vildi Byggða-
s.jóður ekki veita, heldur var
tekin sú ákvörðun að Byggða-
sjóður sjálfur tæki að sér rekstur-
inn á meðan uppgjör Boða færi
fram.
viö þá fyrir sunnan“, svo notuð
séu hans eigin orð Theódór segir
einnig að lauslegt uppgjör sitt og
Jens Valdimarssonar hafi sýnt að
reksturinn í þessa )>r(á mánuði
hafi verið hallalaus, slaðið á
núlli.
Hverju tapaði
Byggðasjóður?
Eyjólfur Þorkelsson heldur því
fram að Byggðasjóður hafi á þess-
um þremur mánuðum tapað 10-12
milljónum eða allt að helmingi
meira en Boói á þremur árum.
Framkvæmdastofnunin (sem
Byggðasjóður er hluti af) vísar
þessari fullyrðingu á bug.
Staðfestar tölur um afkomuna
þessa þrjá mánuði hefur DB þó
ekki tekizt að fá, en væntanlega
eru þær i skýrslunni, sem verið er
að leggja fram.
Ekkert fer á milli mála, að
verulega var farið að þrengja að
Boða hf. um það leyti sem þetta
var allt að gerast. Og meira að
segja Sparisjóður Arnfirðinga,
Matvælaiðjan gamla. Bændur í nágrannasveitum eru nú að kaupa þetta hús fyrir 7 milljónir og
ætla að nota það f.vrir sláturhús. Kaupfélagið á annað á staðnum.
, ;-v
" . >.
Fiskimjölsverksmiðjan á Bíldudal. Heldur orðin hrörleg og úr sér gengin. (DB-myndir: ÓV.)
Karl rekinn!
Víkur nú aftur sögunni að
uppbyggingu frystihússins, sem
sveitarstjórinn, Theódór Bjarna-
son og Jens Valdimarsson, verk-
stjóri í frystihúsinu. önnuðust
umsjón með i nánu samráði við
„þá fyrir sunnan“, eins og þeir
orða það.
Sem fyrr segir sást Karl ekki
oft á Bíldudal og þótti heima-
mönnum — m.a. stjórnarmönnum
i Fiskvinnslunni — að lítið væri
hlustað á þá. Meira að segja
stjórnarsamþykktir væru hunzað
og hafðar að engu af Karli
Bjarnas. og Sigurði Uuðmunds-
syni. póstmeistara á Bildudal,
sem átti mikinn þátt í undir-
búningi stofnunár Fiskvinnslunn-
ar.
Dag einn i júlí í sumar höfðu
Jakob Kristinsson og fleiri
stjórnarmenn í Fiskvinnslunni
símasamband við Karl Bjarnason
sem þá var á Vestfjörðum. Hann
lofaði að hitta þá um kvöldið eftir,
kl. átta, heima hjá Jakob Þeir
biðu í klukkutíma, sagði Jakob
fréttamanni blaðsins, og fóru þá í
Flókalund þar sem Karl hafði
verið. Stúlkan í afgreiðslunni
horfði hissa á þá og sagði svo:
„Karl? Já, hann fór héðan í
morgun."
Bílddælingar fóru iieim og
ráku Karl umsvifalaust. 21. júli
skrifuðu þeir honum bréf þar sem
þeir tilkynntu að þeir hefðu
afturkallað prókúruumboðið fyrir
félagið og látið loka hlaupa-
reikningi nr. 11228 í Lands-
bankanum í Reykjavík. Var
einnig óskað eftir því að Karl
skilaði þegar I stað þeim pening
um, sem hann kynni að hafa und-
ir höndum frá íélaginu.
Karl róðinn aftur,
segir upp —
og fœr neitun!
Svar barst ekki frá Karli,
heldur Framkvæmdastofnun
ríkisins í skeyti 3. ágúst. Mynd af
þvi birtist hér með, en Jakob
Kristinsson, Theódór Bjarnason
og fleiri fullyrða að það hafi
aldrei verið gert að skilyrði af
hálfu sjóðanna að Karli Bjarna-
syni yrði falin umsjá uppbygging-
ar frystihússins.
Stjórn Fiskvinnslunnar hf. lét
þegar i stað undan, enda átti hún
ekki margra kosta völ. Rúmri
viku síðar kom Karl á Bildudal og
lét það verða sitt fyrsta verk að
óska eftir því við Jakob að stjórn
félagsins samþykkti að hann
hætti.
Stjórnin neitaði! Karl hætti þó
skömmu síðar.
„Tilmœli“ að sunnan
I lok april 1975 var Boði að
hætta rekstri frystihússins og
hafði sagt upp hinum umdeilda
„leigusamningi" við Fiskveiða-
sjóð frá og með 1. maí. Ilvað
gerðisl el'tir 1. maí er ekki endan-
lega víst, að þvi er DB hefur
komizt næsl. Eyjólfur Þorkelsson
segist hafa lengið „tilmæli" sem
Viku síðar var hætt við að
skrifa bréfið, en framkvæmda-
stjóranum og Uunnari Ölafssyni
(sem jaínframt var stjórnarfor-
maður Sóknar hf.) falið að reka
erindi Boða við Fiskveiðasjóð og
aðra aðila, bæði munnlega og
bréflega eftir ástæðum."
Sú ákvörðun, að hætta við
bréfaskriftirnar, á sinn þátt í að
ekki hefur tekizt að fá botn í hvað
raunverulega gerðist.
Boði biður um 3 millj-
ónir —óafturkrœft
Benedikt Antonsson segir það
ekki rétt að þess hafi verið óskað
að Eyjólfur og Boði. hf. héldu
áfram rekstri frystihússins. Því
síður hefði hann sjálfur flutt
nokkur „tilmæli" þar að lútandi;
sin afskipti af málefnum Bíldu-
dals hefðu hafizt síðar.
1. júnf 1975 fór Benedikt
Antonsson frá Bíldudal og hafði
„Velvild“ Fram-
kvœmdastofnunar
Eyjólfur telur sig hafa fengið
loforð fyrir því að tryggðar yrðu
nefndar greiðslur á hráefni og
vinnulaunum. Beneikt Antonsson
seglst hafa sagt á Bíldudal að litið
yrði með „velvild" á að sjóðurinn
læki að sér greiö.slur þessar.
Síðan hafi Framkvæmdastofnun
ríkisins óskað eftir því að Boði hf.
yrði lýstur gjaldþrota. Því hafi
ekki verið sinnt (sbr. stjórnar-
samþykkt Boða frá 11/9/75,
innsk. blm.) og þar með hefði
verið útilokað að sjóðurinn fengi
eitthvað af sínum peningum aftur
við afurðasöluna, enda hefði farið
svo að Landsbanki tslands fékk
allt saman.
Byggðasjóður tók formlega við
fr.vstihúsinu og eignum Fisk-
veiðasjóðs á Bíldudal 7. júní 1975.
Theódór Bjarnason sveitarstjöri
var ráðinn framkvæmdastjöri og
stjórnaði vinnslu i húsinu i þrjá
mánuði „í mjög nánum tengsium
sem Eyjólfur var sparisjóðsstjóri
fyrir, var farinn að ókyrrast
vegna stöðu Boða.
Á stjórnarfundi 10. maí var
bókað: „Sparisjóður Arnfirðinga
hefur nú um alllangan tima óskað
eftir því að settar yrðu frekari
tryggingar fyrir yfirdrætti á
hlaupareikningi 113, sem nú
stendur í rúmum 2 millj.
Samþykkt að óska heimildar
stjórnar Sóknar til að veðsetja
hlutabcéf Boða í Sókn hf/f, 14
bréf á samtals 700.000,00 kr.“
Á þessum stjórnarfundi var
einnig samþykkt að veðsetja
,;;reikninga þá, sem Boði h/f
hefur gert Fiskveiðasjóðj fyrir
endurbætur og viðhald", einnig í
því skyni að tryggja yfirdráttinn.
Áður en langt um leið sendi
Seðlabankinn mann til Bíldudals.
Það Ieiddi til þess að Lands-
bankinn yfirtók Sparisjóðinn,
sem þá sýndi raunhalla upp á sjö
milljónir. Sú saga verður þó að
v,era ósögð í bili.
Hjól taka að snúast
Síðan tók við uppbygging
frystihússins, sem rakin hefur
verið hér að frama. Byggðasjóður
hefur nú samþykkt, að sögn Bene-
dikts Antonssonar að tryggja áð
hægt sé að hefja róðra og fisk-
vinnslu frá Bildudal. í peningum
þýðir það að sjóðurinn borgar
þær 9.5 milljónir, sem
uppbyggingin dregur á eftir sér
og eru umfram kostnaðaráætlun,
ef til vill þær sömu meintu tíu
milljónir sem stjórnleysið við
uppbygginguna er sagt hafa kost-
að. Líka verður Fiskvinnslunni
hf„ „óskabarni Framkvæmda-
stofnunarinnar“ tryggð greiðsla
á viðgerðarkostn. mb. Hafrúnar,
sem keypt var frá Bolungarvík og
verið hefur í Reykjavík undan-
farnar vikur — eða mánuði.
Þetta ástand hefur leitt til þess
að fremur er dapurlegt á Bíldudal
þessa dagana. Atvinnuleysið —
hvort sem það er jafnalvarlegt og
af er látið eða ekki — er þrúg-
andi. Félagslíf er í lágmarki og
meira að segja í Leikfélagi
Bíldudals, sem rekið var af mikl-
um myndarskap og krafti fyrir
nokkrum árum, er hálfgert
áhugaleysi.
Vítur ó Karl
Bílddælingar tóku samt hressi-
lega við sér einn laugardagseftir-
miðdag fyrir skemmstu og fjöl-
menntu á borgarafund. Var þar
margt skrafað og spjallað og sam-
þykkt ályktun, þar sem vítt voru
„þau vinnubrögð við
uppbyggingu hraðfrystihússins
að framkvæmdastjóri við
uppbygginguna (Karl Bjarnason)
hafi skilið við uppbygginguna
þannig að enn séu ógreiddar kr.
9-10 milljónir, setn valda því að
ekki sé hægt að hefja vinnslu í
húsinu og beinir þeim eindrengu
tilmælum til stjórnar Byggðasjóðs
að ráða fram úr þeim vanda sam-
kvæmt gefnum loforðum, með til-
liti til þess neyðarástands, sem nú
ríkir í atvinnumálum staðarins,
og þess að hægt verði að hefja
vinnu nú þegar.“
Sundurlyndið út
ó sextugt djúp
Framkvæmdastofnunin brást
við — eftir hálfan mánuð — og
sendi frá sér athugasemd. Þar
sagði meðal annars:
,, Malefnalegar umrœður eru vissulega
góöra gjalda veröar. ööru máli gegnir þegar
verk stofnunarinnar og starfsmanna hennar eru
storlega afflutt eins og gerzt hefir í málefnum
Bíldudals. Á þotta alveg sórstaklega viö um
þann starfsmann Framkvœmdastofnunarinnar,
Karl Bjarnason, sem mest og bezt hefir unniö aö
uppbyggingarmalum Bildudals aö undanförnu.
Hans verk og hagsýni eiga veigamikinn þátt i aö
ný og fullkomin fiskvinnslustöð hefir veríö
byggö á Bíldudal. Framkvœmdastofnunin telur
mikils viröi aö hafa i störfum mann meö hœfni
og reynslu, sem Kart Bjarnason hefir, enda
nýtur hann fytlsta trausts stofnunarínnar.
Von manna er, aö nú megi Bilddaslingar horfa
fram til bjartari tima í atvinnumálum og upp-
byggingu allrí. Og um leiö og þeir fá nú í hendur
ný tæki aö starfa meö og skip aö sækja sjó. þá
ættu þeir aö senda á sextugt djúp sunduriyndis-
fjandann."
Þessi samantekt er orðin ærið
löng. Ekki dylst heldur, að
ýmsum spurningum er ósvarað.
Menn hafa varpað fram þeirri
hugmynd að opinber rannsóknar-
nefnd taki þá sögu, sem reynt
hefur verið að segja I þessum
greinum, til meðferðar. Líklega
er óhætt að taka undir þá hug-
mynd. -ÓV.
Takið eftir!
Rýmingarsala hjá Hofi vegna
flutnings. Mikill afsláttur af
öllum vörum. ^
Þingholtsstræti 1