Dagblaðið - 20.12.1976, Blaðsíða 8
8
Skattafrumvarpið:
„Eins dauði er
annars brauð”
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 1976.
\
\
— allt að sjö „afslættir” í stað
margra frádráttarliða, sem
eru skornir niður við trog
— hert að einstaklingum í
atvinnurekstri
— meginhluti f rumvarpsins á ekki
að taka gildi fyrr en 1978
Húsbyggjendur fá nú minni frádrátt samkvæmt nýja skattalaga-
frumvarpinu.
Margs konar afsláttur kemur
í stað frádráttarliða gömlu.
skattalaganna. Þau nýju munu
re.vnast erfið husbyggjendum
með miklar skuldir, þar sem
vaxtafrádráttur er ekki að sama
skapi og áður var. Utivinnandi
barnlaus hjón munu líklega
tapa á breytingunni og vafa-
samt er, að útivinnandi h.jón
vfirleitt telji sig hafa hag af.
Nú fellur niður, að helmingur
af launum útivinnandi konu sé
frádráttarbær en í staðinn kem-
ur ákveðinn og ekki. hár afslátt-
ur en tekjum hjónanna er skipt
í tvennt. þannig að „sérskött-
un" tekur gildi.
Mönnum verður ekki iengur
reiknuð eigin húsaleiga af ibúð-
um en gjöld vegna húsnæðisins
eru felld niður. „Viðhalds-
vinnuafsláttur" kemur i stað
viðhaldskostnaðar, og tapa á
því þeir sem eyða miklu í við-
hald.
Launaafsláttur svokallaður á
að koma í stað ýmissa gildandi
frádráttarliða, svo sem iá-
gjalda, stéttarfélagsgjalda,
sjúkra- og slysadagpeninga,
gjafa til menningarmála, kostn-
aðai1 við öflun bóka. giftingar-
frádráttar. námsfrádráttar frá
tekjum nemanda sjálfs og
fleira. Launaafsláttur á að
nema tveimur prósentum af
tek.jum.
Þá kemur „heimilisafslátt-
ur”. 60 þúsund krónur, hjá
hjónum sameiginlega, enda
vinni þau samtals í 24 mánuði á
árinu. Ella er hver mánuður
metinn á fimm þ.úsund krónur í
afslátt. Sama afslátt hefur ein-
stætt foreldri með barn undir
16 ára. Hins vegar kemur til
afsláttur til viðbótar barnabót-
um, svonefndur „barnabóta-
auki". sem er tiltekin fjárhæð
fyrir hvert barn í hlutfalli við
samanlagða útivinnu hjóna um-
t'ram 12 mánuði.
Vaxtaafsláttur
yfirleitt 25 prósent
Vaxtaafsláttur kemur í stað
núverandi frádráttar vaxta-
gjalda. Sú bre.vting er gerð, að
allir fá tiltekinn vaxtaafslátt
hið lægsta. Þetta er talið að
muni verða til einföldunar við
framtal til skatts hjá þeim, sem
lítið skulda. en hins vegar koma
til góða þeim, sem ekki hafa
vaxtagjöld vegna eigin hús-
næðis og búa i leiguhúsnæði, en
húsaleiga er ekki frádráttar-
bær til skatts. Vaxtagjöld skal
annars umreikna í þennan af-
slátt. Ætlunin er, að vaxtaaf-
slátturinn vegi jafnmikið hjá
há- og lágtekjumönnum.
Vaxtaafsláttur skal yfirleitt
vera 25% af vöxtum og afföll-
um.
Viðhaldsvinnuafsláttur svo-
nefndur skal vera fjórðungur
útlagðs viðhaldskostnaðar við
íbúðarhúsnæði en þó eigi meiri
en fimm þúsund krónur fyrir
einstakling og tíu þúsund fyrir
hjón.
Einstaklingar mega eiga allt
að þremur íbúðum, án þess að
greiða skatt af söluhagnaði, ef
þeir hafa átt þær lengur en
fimm ár.
Eftir breytingarnar, segir í
greinargerð frumvarpsins um
skattamál, sem var lagt fram á
laugardaginn, yrðu hjá flestum
einstaklingum og hjónum, þar
sem annað vinnur heima, ekki
nema um einn til þrjá afsláttar-
liði að ræða, auk persónuaf-
sláttar, það er að segja iaunaaf-
slátt, vaxtaafslát.t og viðhalds-
vinnuafslátt.
Afsláttarliðir
flestir sjö
Hið flesta yrðu afsláttarlið-
irnir, auk persónuafsláttar. sjö,
hjá fiskimanni sem á maka og
vinnur úti, hefur barn á fram-
færi og á eigin íbúð. Þessir liðir
koma í stað fjölmargra gildandi
frádráttarheimilda í núverandi
lögum.
Sjómannaafsláttur og fiski-
mannaafsláttur verða veittir
samkvæmt nýju reglunum.
Skattlagningu tekna barna er
breytt þannig, að f.vrstu krón-
urnar verða skattfrjálsar en
þær síðustu skattlagðar þyngst.
í gildandi lögum er tiltekinn
hluti skattlagður með tekjum
foreldra, en sé sérsköttun heim-
iluð lækkar tekjuskattur niður
í núll á tilteknu bili eins og
einstaklingur ætti í hlut.
Akvæði um tekjuskattsfrelsi
vaxtatekna eru nú miðuð við
vaxtagjöld í stað skulda sam-
kvæmt gildandi lögum. Arður
er gerður frádráttarbær hjá
móttakanda að vissu marki.
Skylt verður að telja fram
meira en áður, til dæmis spari-
fé.
Frumvarpið gerir ráð fyrir,
að tekjur einstaklinga af at-
vinnurekstri verði áfram á
einkaframtali hans, en sú
breyting er gerð, að tap af
rekstrinum verður einungis
frádráttarbært frá tekjum ,af
honum en ekki öðrum tekjum.
Reiknað er með, að skattþrep
verði áfram tvö og sömu hlut-
fallstölur og áður gildi um út-
reikning tekjuskatts.
Hert á
skattlagningu í
eigin rekstri
I eigin atvinnurekstri verða
menn að reikna sér tekjur og
færa laun sem gjöld í atvinnu-
rekstrinum og sem tekjur á
framtal sitt.
Tap á rekstrinum er ekki frá-
dráttarbært frá launatekjum.
Menn greiða því skatt þrátt fyr-
ir taprekstur. Tapið verðuf yf-
irfært til næsta árs og næstu
ára og dregið frá tekjum þeirra.
I frumvarpinu er lagt til, að
maður, sem stundar atvinnu-
rekstur í eigin nafni eða sjálf-
stæða starfsemi, skuli telja sér
til tekna eigi lægra endurgjald
fyrir starf sitt en hefði hann
innt starfið af hendi fyrir
óskyldan aðila, hvort sem hann
vinnur við eigin atvinnurekstur
eða sjálfstæða starfsemi eða þá
hjá félagi, sem honum er tengt.
Fyrningar af lausafé skal nú
reikna í einu lagi af bókfærðu
verði, upphaflegu kostnaðar-
verði að frádregnum fyrning-
um, sem áður hafa komið til.
Söluhagnaður af þeim eignum í
atvinnurekstri, sem heimilt er
að fyrna, verður að fullu skatt-
skyldur á söluári, óháð eignar-
haldstíma. Hagnaður af sölu
fyrnanlegra fasteigna verður
einnig að fullu skattjkyldur án
tillits til eignarhaldstíma, nema
varðandi Ibúðir, og telst mis-
munur á söluverði annars veg-
ar og 'kostnaðarverði þeirra að
frádregnum áðurfengnum
fyrningum, framreiknuðu með
vísitölu verðlags, hins vegar.
Svipað ákvæði gildir um ófyrn-
anlegar fasteignir, svo sem lóð-
ir, lönd og ófyrnanleg náttúru-
auðævi.
Hagnaður af sölu lausafjár,
sem eigi er heimilt að fyrna,
svo sem einkabila telst því
aðeins til skattskyldra tekna, að
hlutaðeigandi hafi átt hina
seldu eign skemur en tvö ár.
Akvæði þetta tekur ekki til
hlutabréfa og eignarhluta í
samlögum og félögum.
Frumvarpið gerir ráð fyrir,
að ekki verði heimilt að fyrna
íbúðarhúsnæði.
I gildandi lögum telst ágóði
af sölu hlutabréfa og eignar-
hluta í sameignarfélögum og
samlögum að fullu til skatt-
skyldra tekna á söluári, hafi
aðili átt hið selda skemur en tvö
^ár, að hálfu eftir tvö ár en
skemmri en fjögur en ekki
skattskyldur eftir fjögur. Nú
verður full skattskylda, ef eign-
arhaldstími er skemmri en fjog-
ur ár.
20% af fyrstu
900 þús.
í frumvarpinu segir, að af
fyrstu 900 þús. krónum skuli
reikna 20% tekjuskatt en 40%
umfram það. Persónuafsláttur
einstaklings verði 163 þús. en
fyrir hvort hjóna 115 þúsund.
Barnabætur með fyrsta barni
verða 47.700 en 71.100 með
hverju barni umfram eitt.
Af fyrstu 6 milljón króna
eign greiðist ekki eignarskatt-
ur, ef um einstakling ræðir, en
0,8% af því, sem umfram er. Sé
um hjón að ræða, greiðist ekki
eignarskattur af fyrstu 4,5
milljónunum, en 0,8% umfram
það.
Skattskvld fyrirtæki greiði
1.4% í eignarskatt.
Rikisskattanefnd skal nú
skipuð mönnum sem hafa það
sem aðalstarf. Hún verður eins
konar dómstóll í skattamálum.
Viðurlög við brotum verða
mjög þvngd.
Reiknað er með, að TiTn nýju
skattalög taki ekki gildi fvrr en
1978, fyrir tekjur árið 1977.
Hins vegar er stefnt að því. að í
meðförum þingsins verði ein-
hver atriði þess framkvæmd
þegar á næsta ári. Frumvarpið
verður ekki afgreitt fyrr en eft-
ir jólafri þingmanna. sem lýkur
í janúarlok. þegar fólk er að
1 j ú k a s k at t f r a m t ö I u m.
Ovænturbókmenntaviðburður
Þórbergur Þórðarson
Óllkar PERSÓNUR
Bók þessi varpar nýju Ijósi á höfund-
skap Þórbergs Þórðarsonar. í henni
eru birtar ritgeröir, þættir og mann-
lýsingar frá árunum 1912-1916. Bók-
in sýnir hvort tveggja í senn bráö-
þroska Þórbergs og þróun ritlistar
hans þessi ár. Á þessum árum starf-
aði hann í Ungmennafélagi Reykja-
víkur, og voru flestar ritgeróirnar
íluttar á fundum félagsins. Helstu
þættir bókarinnar eru þessir:
Jón Strandfjeld.
Lýsing á skuldheimtumanninum.
Skáldskapargagnrýnarnir nýju og tvö kvæöi
eftir Sigurö Grímsson.
Safn til ævisögu Jóns Norðmanns Dúasonar.
Draumar Hannesar Péturssonar.
Ólíkar persónur.
Ársæll Árnason.
Auk þess eru birtar í bókinni þýð-
ingar Þórbergs á sögum eftir Edgar
Allan Poe og A. Conan Doyle.
* «»* jjt
UÓÐHÚS
Sími 3 57 24
Pósthólf 629
Reykjavík.
-HH