Dagblaðið - 18.03.1977, Blaðsíða 13
MAK3 1077.
íþróttir Sþróttir
Iþróttir
13
íþróttir ^
iCHLAG
LINNI!
Dankersen
SG Leutersh. 17 •
Ossweil 17 :
2 11 243-267 10
2 12 241-279 8
2. deild
Þeir félagar Einar Magnússon og
Guðjón Magnússon hafa náð góðum
árangri með liði sínu Hamburger SV
að undanförnu.
Um helgina lék liðið gegn 4.
deildarliðinu Ellhörn og Hamborg
vann 24-17. Skoruðu þeir félagar
fimm mörk hvor. I deildinni
er liðið í þiiðja neðsta sæti, en hefur
halað inn mikið af stigum síðan
Guðjón kom í liðið. Áður en Guðjön
kom til Hamburger SV, var Einar
eina útiskyttan og því oftast tekinn úr
umferð. Þetta breyttist þó eftir að
Guðjón fór að bíta frá sér og þeir
skora 70—80 prósent af mörkum
liðsins í dag.
PSV Hannover hefur nú tryggt sér
sigur í þessum riðli annarrar deildar-
.innar. Mjög líklega munu þeir Einar
og Guðjón yfirgefa Hamburger SV að
keppnistímabilinu loknu, en það mál
mun skýrast á næstunni.
Auf wiedersehen
Axel Axelsson
Ólafur H. Jónsson.
1
Axe!
Axelsson
Jóhannes
skoraði
Celtic hefur fjögurra stiga for-
skot í úrvalsdeildinni skozku
eftir jafnteflið 2-2 við Motherwell
á miðvikudag. Þeir Ronnie Glavin
og Jóhannes Eðvaldsson skoruðu
mörk Celtic í leiknum.
Celtic hefur 39 stig eftir 25
leiki. Dundee Utd. er í öðru sæti
með 35 stig eftir 26 leiki, Rangers
hefur 32 st. eftir 26 leiki og Aber-
deen 30 stig eftir 25 leiki.
Breiðholts-
hlaup ÍR
Annað Breiðhoitshlaup ÍR
verður á sunnudag. Hefst það kl.
14 fyrir framan Breiðholtskjör í
Breiðholti I. Keppendur eru
beðnir að mæta til skráningar og
númeraúthlutunar kl. 13.30.
Aðalfundur
Aðalfundur knattspyrnudeild-
ar FH verður fimmtudaginn 24.
marz í Víðistaðaskóla. Hefst kl.
20. Venjuleg aðalfundarstörf.
RITSTJÖRN:
HALLUR
SIMONARSON íhhjíím"
í morgun
keppninni að þessu sinni. Leik-
irnir á morgun hefjast á báðum
stöðum kl. 14.00 og B-lið félag-
anna leika svo strax á eftir.
KR BIKARMEISTARI
KR-ingar sýndu góðan varnarleik og tryggðu sér sigur gegn UMFN í úrslitaleik bikarkeppni KKÍ í
körfuknattieiknum í Laugardalshöli í gærkvöld. KR hafði lengstum góða forustu í leiknum, en munurinn
var lítill í lokin, 61-59 fyrir KR. Stigahæstur KR-inga var Einar Bollason með 17 stig, en hjá UMFN
Gunnar Þorvarðarson með 13 stig. A myndinni að ofan sjást þrír af sigurvegurum KR — garpar sem
fyrstir urðu íslandsmeistarar saman 1964 eða fyrir 13 árum. Frá vinstri Kolbeinn Pálsson, Kristinn
Stefánsson og Einar Bollason. DB-mynd Bjarnleifur.
Ingemar
féll
Ingemar Stenmark,
Svíþjóð, hafði forustu eftir
fyrri umferð í stórsvigi
heimsbikarsins i Voss í
Noregi í gær. í þeirri síðari
féll hann hins vegar, en lauk
þó keppni. Varð 26. Hins
vegar gekk helzta mótherja
hans, Klaus Heidegger,
Austurríki, mjög vel og
sigraði. Vann því 25 stig
á Ingemar og munurinn er
nú ekki nema 30 stig. Enn
eru fimm keppnisgreinar
eftir — m.a. svig i Voss.
Eftir stórsvigið í gær
hefur Ingemar 239 stig,
Klaus Heidegger 209 stig og
Franz Klammer, Austurríki,
203 stig.
Dregið ÍHM
Danir voru mjög ánægðir
eftir að dregið hafði verið í
riðla heimsmeistara-
keppninnar í handknattleik
i gær, svo ég lét strax berast
til Danmerkur, að við
værum í sjöunda himni,
sagði Sigurður Jónsson, for-
maður HSÍ, i morgun. Danir
og íslendingar eru í C-riðli
ásamt Sovétríkjunum og
Spáni.
En það er fvrst og fremst
ákvörðunaratriði stjórn-
valda hve langt íslenzka
liðið nær, sagði Sigurður
ennfremur. Ef leikmönnum
íslands er sköpuð viðunandi
aðstaða þurfum við engu að
kvíða.
Bragðast Ijómandi eitt sér,
eða t.d með:
niðursoðnum ávöxtum, íssósu
Jieyttum rjóma eða rjómaís.
Frosið frómasið næst auðveldlega "
Lúr forminu, ef því er difið ör-
stutta stund í sjóðandi
vatn. Einnig má
láta frómasið þiðna
í forminu.
Geymsla Geymsluþol Þiðnar á: Næringarefni í 100 g |
f-frystikistu - 18°C 1 frystihólfi kæliskáps - 3°C 1 kæliskáp + 5°C Við stofuhita (óopnaðar umbúðir) 5-6 mán u.þ.b. 3 sólarhringa u.þ.b. 24 klst. u.þ.b. 3 klst. u.þ.b. 3 klst. u.þ.b. 3 klst. Tilbúið til neyslu Tilbúið til neyslu u.þ.b. 170 hitaein. 7,5 g feiti 4,2 g prótín 19,0 g kolvetni
\