Dagblaðið - 18.03.1977, Blaðsíða 22

Dagblaðið - 18.03.1977, Blaðsíða 22
22 1 STJÖRNUBÍÓ 8 Islenzk kvikmynd í litum on á breiðtjaldi. Aðalhlutverk: (iuðrún Asmundsdóttir, Steindór Hjörleifsson, Þóra Sigurþórsdóttir. Sýnd kl. 6, 8 og 10. Hækkað verð. Miðasala frá kl. 5. 1 GAMIA BIO 8 Rúmstokkurinn er þarfaþing Ný, djörf, dönsk gamanmynd og' tvímælalaust skemmtilegasta „rúmstokksmyndin" til þessa. íslenzkur texti. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuð innan 16 ára. LAUGARÁSBÍÓ 8 frumsýnir Jónatan mófur The Hall Bartlett Film Jonathan Livingston Seagull hom Iht book br Richard Bach (öl<n» PanavisionS Color by Deluxe^ A Paramount Pictures Release Ný bandarisk kvikmynd, einhver sérstæðasta kvikmynd seinni ára. gerð eftir metsölubók Richard Back. Leikstjóri: Hall Bartlett. Mynd þessi hefur verið sýnd í Danmörku, Belgíu og í Suður- Ameríku við frábæra aðsókn og miklar vinsældir. Sýnd kl, 5, 7, 9 og 11. tslenzkur texti. 1 HAFNARBÍO 8 Konungsdraumur Frábær bandarísk litmynd með Antony Quinn og Irene Papas. íslenzkur texti. Endursýnd kl, 7, 9 og 11.15. Skotglaðar stúlkur Spennandi litmynd. Bönnuð innan 16 ára. Endursýnd kl. 1, 3 og 5. DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1977. NÝJA BIO 8 Royal Flash Ný bandarísk litmynd um ævintýramanninn Flashman, gerð eftir einni af sögum G. Mac- Donald Fraser um Flashman, sem náð hafa miklum vinsældum er- lendis. Aðalhlutverk: Malcolm McDowelí, Alan Bates og Oliver Reed. Bönnuð innan 12 ára. Vegna fjölda áskorana verður myndin sýnd aftur í nokkra daga. Sýnd kl. 5, 7 og 9. 1 HÁSKÓLABÍO 8 Landið, sem gleymdist (The land that time forgot) Mjög athyglisverð mynd, tekin í litum og cinemascope, gerð eftir skáldsögu Edgar Rice Burrough, höfundar Tarzanbókanna. Furðulegir hlutir, furðulegt land og furðudýr. tslenzkur texti. Aðalhlutverk: Dough McClure, John McEnery. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl, 5, 7 og 9. I AUSTURBÆJARBÍÓ 8 tSLENZKUR TEXTI Lögregla með lausa skrúfu (Freebie and the Bean) Hörkuleg og mjög hlægileg ný, bandarísk kvikmynd I litum og Panavision. Aðalhlutverk: Alan Arkin, James Caan. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. 1 TÓNABÍÓ 8 Horfinn á 60 sekúndum (Gone in 60 seconds) Það tók 7 mánuði að kvikmynda hinn 40 minútna langa bíla- eltingaleik í myndinni, 93 bílar voru gjöreyðilagðir fyrir sem svarar 1.000.000 dollara. Einn mesti áreksturinn í myndinni var raunverulegur og þar voru tveir aðalleikarar mynd- arinnar aðeins hársbreidd frá dauðanum. Aðalhlutverk: H.B. Halicki, Mari- on Busia. Leikstjóri: H.B. Halicki. Bönnuð börnum innan 12 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. 1 BÆJARBÍÓ Frumsýning: K\ ikim ii<l Itc> nis ()<ldssoiiar 8 Morðsaga. . * JN mt Islcnzk kvikmynd í litum oc á brciði lahli Vðalhlutvcrk: <luðrún Asmúiidsdótlir. Slciiidói' lijörleifsson Þóra Sigúrþórsdóllir. Sýnd kl. 9 lia'kknð vcrð. Miðasalii l’rá kl. 8. Itöniiiið börnum innan lliára. Laus staða Dósentsstaða i efnafræði í verkfræði- og raunvísindadeild Háskóla tslands er laus til umsókn- ar. Starf dósentsins verður einkum á sviði matvæla- efnafræði. Laun skv. launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um rit- smíöar og rannsóknir, svo og námsferil og störf, skulu hafa borist Merintamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 1. maí nk. Menntamólaráðuneytið 8. mars 1977. Útvarp Sjónvarp Útvarpið ídag kl. 17.30: Útvarpssaga bamanna Systurnar íSunnuhlíð Sveitafólkið fer á mölina borgarfólkið í sveitina „Ég gerði það að gamni mínu í barnaskóla að skrifa sögur. Síðan hætti ég að kenna árið 1969 vegna lasleika. Þá hafði ég kennt í 33 ár, í Ausurbæjarskól- anum og Vogaskólanum, og byrjaði aftur að skrifa,“ sagði Jóhanna Guðmundsdóttir sem samið hefur útvarpssögu barn- anna Systurnar í Sunnuhlíð. Hún hefur samið aðra sögu sem líka var lesin í útvarp, Lísa og Diddi, og þýtt aðra úr dönsku, Njagwe. Fiðrildið hún Pella er ekki enn komin á fram- færi. „Þessa hugmynd að Systrun- um í Sunnuhlíð fékk ég vegna þess hve vænt'mér þykir um sveitina og á erfitt með að hugsa mér að jarðir fari i eyði. Það er slæm þróun þegar slíkt gerist með góðar jarðir," sagði Jóhanna sem sjálf er ættuð frá Lómatjörn, Höfðahverfi við Eyjafjörð. „Þess vegna fékk ég þá hugmynd að reyna að skrifa sögu um þetta efni. Það fer þó ekki þannig að Sunnuhlið leggist í eyði heldur flytja Reykvíkingar sem langar að hefja búskap á bæinn en sveita- fólkið fær hús þeirra í borg- inni. Ég hef afar gaman af því að skrifa, annars væri ég auðvitað ekki að því. Eg bý ein í íbúð og' hef góðan tíma. Byrja oft á morgnana. Nú er ég langt komin með kaupstaðardreng- inn Öttar Gestsson sem ég sagði ranglega í útvarpinu að væri sveitadrengur. Það er mikils virði að hafa eitthvert verkefni þegar maður gerist svolítið aldraður. Það er ómetanlegt, annars getur fólk alveg fallið saman.“ Lengra varð samtalið ekki. því að Jóhanna er önnum kafin, ætlar að leggja land undir fót bráðlega og heimsækja frænda sinn í Amerlku. Hver næsta saga hennar Ameríku? veit nema gerist 1 EVI Jóhanna Guðmundsdóttir getur ekki hugsað sér að góðar jarðir fari í eyði. DB-mynd Hörður. Sjónvarp íkvöld kl. 21.10: Kastljós Skipulag björgunarmála, tómstundastörf reykvískra unglinga og öryggi í husahit- unarkerfum á dagskránni Þrjú mál verða tekin fyrir í þættinum Kastljósi sem er á dagskrá sjónvarpsins I kvöld kl. 21.10. Umsjónarmaður er Ómar Ragnarsson. Fyrst verður fjallað um skipulag björgunarmála og rætt við Gunnar Friðriksson, forseta Slysavarnafélags Islands. Einnig verður rætt við Guðjón Petcrsen fulltrúa Almanna- varna ríkisins. Þá verður svipazt um á nokkrum stöðum þar sem reykvískir unglingar dveljast við tómstundastörf og loks sýnir Friðgeir Grímsson öryggismálastjóri öryggiút- búnað í húsahitunarkerfum. Nýlega varð sprenging í hitunarkerfi húss í Þorláks- höfn og hin mesta mildi að ekki varð slys á fólki. íbúar í Þor- lákshöfn, sem hafa sams konar húsahitun, hafa verið felmtri slegnir og vilja að vonum gera það sem í þeirra valdi stendur til þess að öryggisbúnaóur sé í sem fullkomnustu lagi. Fyrr í vetur sprakk húsið að Vestur- götu 32, á Akranesi vegna bilunar í rafmagnshitabúnaði hússins og minnstu munaði að mæðgur tvær, sem í húsinu voru hlytu af bráðan bana. Eftir þá sprengingu kom í ljós að nánast engin opinber stofnun bar ábyrgð á að full- komið öryggi sllkra hitunar- tækja væri tryggt, en skriður mun hafa komizt á þau mál eftir þá sprengingu. Ekki eru þau þó alveg komin í gott lag, því annars hefði mátt koma I veg fyrir sprenginguna I Þor- lákshöfn. -A.Bj. Útvarp íkvöld kl. 22.45: Áfangar Óvenjulegur þáttur sem er helgaður göldrum Þátturinn Áfangar er á dagskrá útvarpsins í kvöld kl. 22.45. Umsjónarmenn eru Guðni Rúnar Agnarsson og Asmundur Jónsson. Þetta verður dálitið óvenjulegur þáttur,. sagði Guðni Rúnar í viðtali við DB. Þátturinn verður helgaður galdri og fyrstur I röð nokkurra þátta, sem koma í framtíðinni og verða einskonar tónlistar- dulspeki. Verður töluvert lesið upp í kvöld, en einnig leikin tónlist. Fjallað verður um Alister Crowley en ' hánn var alþekktur galdramaður og hneykslunarhella Breta á sín- um tíma. Ritverk hans um galduf og ljóðabækur hans hafa haft gífurleg áhrif frá því hann lézt árið 1947. Alfreð Flóki telur Crowley vera sinn lífs- innblástur. Þá verður leikin tónlist samin og flutt af saxófón- og hljómborðssveitinni Graham Bond. Verkið á að hafa stór- galdrandi áhrif og skapa eins konar andlegan verndarvegg. Bond taldi sig vera launson Crowleys, en var alla tið of- sóttur af illum anda og batt enda á líf sitt með því að kasta sér fyrir neðanjarðarlest. Einnig verður leikið lag með hljómsveitinni Chakra, er kallast Scarlet Woman. -A.Bj.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.