Dagblaðið - 18.03.1977, Blaðsíða 23
DACiBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1977.
i
Utvarp
23
Sjónvarp
Dana Andrcw og Henry Fonda ásamteinum af meðleikurum sínum i bfómynd kvöldslns.
Sjónvarp íkvöld kl. 22.10:
Fínn vestri á skjánum
Vestraunnendur geta vel við
unað um þessar mundir því í
kvöld er ágætis vestri á
skjánum, — annar á skömmum
tíma. Kl. 22.10 í kvöld er mynd-
in Atvikið við Uxaklafa, The
Ox-Bow Incident, á dagskrá
sjónvarpsins. Þetta er banda-
rísk mynd frá árinu 1943 og
fara Henry Fonda og Dana
Andrews með aðalhlutverkin.
Mynd þessi fær fjórar
stjörnur í kvikmyndahandbók-
inni og þar segir ennfremur að
þótt ekki sé mikið borið í þessa
mynd sé hún alveg prýðileg.
Efni myndarinnar komist svo
vel til skila að áhorfendur sitji
næstum lamaðir eftir!
Myndin gerist árið 1885 í
Villta vestrinu. Lögreglustjóri
lítils bæjar er fjarverandi
þegar fréttir berast um að
bóndi I grenndinni hafi verið
myrtur. Bæjarbúar hafa engin
umsvif en vilja leita morðingj-
ann uppi og taka hann af lífi án
dóms og laga.
Sýningartimi myndarinnar
er ein klukkustund og fimmtán
mínútur. Þýðandi er Dóra Haf-
steinsdóttir.
A.Bj.
Útvarp í kvöld kl. 20.45:
Myndlistarþátturinn
Hver er starf saðstaða og
framtíðarmöguleikar
Myndlista- og handíðaskólans
og nemenda hans?
Myndlistarþátturinn er á dag-
skrá útvarpsins í kvöld kl. 20.45.
Þóra Kristjánsdóttir sér um þátt-
inn.
Fjallað verður um Myndlista-
og handíðaskólann, rætt við skóla-
stjórann Hildi Hákonardóttur og,
tvo kennara skólans, Björn Th.
Björnsson og Magnúts Pálsson.
Einnig verður rætt við nokkra
nemendur um skólann, starfs-
aðstöðuna þar og framtíðarmögu-
leika.
Nemendur úr skólanum voru
með basar í Bernhöftstorfunni
um síðustu helgi og vildu með
honum afla fjár til námsferðar til
útlanda sem fyrirhuguð er innan
skamms.
A.Bj.
Q Útvarp
Föstudagur
18. marz
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynn-
ingar. Viðvinnuna: Tónleikar.
14.30 MiAdogisMgan: „Bon Húr", saga frá
Krísts dögum eftir Lewis Wallaca.
Sigurbjörn Einarsson þýddi. Ástráð-
ur Sigursteindórsson les (3).
15.00 MiAdegistónleikar. Fílharmoníu-
sveitin i Vín leikur Slavneska dansa
op. 46 nr. 1. 3 og 8 eftir Dvorák; Fritz
Reiner stjórnar. Erika Köth, Rudolf
Schock og fleiri syngja með kór og
hljómsveit þætti úr „Meyjaskemm-
unni‘‘ eftir Schubert; Frank Fox
stjórnar.
15.45 Lasin dagskrá nasstu viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir).
16.20 Popphom. Vignir Sveinsson
kynnir.
17.30 Útvarpssaga bamanna: „Systumar í
SunnuhllA" eftir Jóhönnu Guðmunds-
dóttur. Ingunn Jensdóttir leikkona les
(3).
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Mngsjé. Umsjón Nanna Olfsdóttir.
20.00 Pianókonsert nr. 2 í B-dúr op. 83
eftir Brahms. Richard Goode, sigurveg-
ari 1 Klöru Haskil pianókeppninni
1973, leikur með Suisse Romande
hljómsveitinni; Jean Marie Auberson
stjórnar. — Frá svissneska útvarpinu.
20.45 Myndlistarþéttur f umsjá Þóru
Kristjánsdóttur.
21.15 Kórsöngur. Sænski útvarpskórinn
syngur ungversk þjóðlög. Söngstjóri:
Eric Ericson.
21.30 ÚtvarpsMgan: „Blúndubörn" eftir
Kirsten Thorup. Nfna Björk Arnadóttir
les þýðingu sfna (15).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur Passíusélma
(35).
22.25 LjóAaþéttur. Umsjónarmaður:
Njörður P. Njarðvfk.
22.45 Afangar. Tónlistarþáttur sem
Asmundur Jónsson og Guðni Rúnar
Agnarsson stjórna.
23.35 Fréttir. Einvígi Horts og Spasskýs.
Jón Þ.Þór lýsir lokum 9. skákar. Dag-
skrárlok kl. 23.55.
Laugardagur
19. marz
7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl.
7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl.
8.15 og 8.50. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbsen kl. 7.50. Morgunstund
bamanna kl. 8.00. Gyða Ragnarsdóttir
heldur áfram að lesa söguna „Siggu
Viggu og börnin I bænum" eftir Betty
McDonald (3). Tilkynningar kl. 9.00.
Létt lög milli atriða. Óskalög sjúklinga
kl. 9.15: Kristfn Sveinbjörnsdóttir
kynnir. Bamatími kl. 11.10: Inga Birna
Jónsdóttir stjórnar tfma með fyrir-
sögninni: Þetta arum viA aA gera. Rætt
við fermingarbörn hjá sr. Ama Páls-
syni f Kópavogi og kvikmyndagerð I
Alftamýrarskóla.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
Sjónvarp
ii
Föstudagur
18. mars
20.00 Fréttír og veAur
20.25 Auglýsingar og dagskré.
20.30 SkákeinvígiA
20.45 PrúAu leikaramir. Gestur leik-
brúðanna í þessum þætti er söng-
konan Iæna Horne. Þýðandi Þrándur
Thoroddsen. Litur.
21.10 Kastljós. Þáttur um innlend mál-
efni. Umsjónarmaður Omar Ragnars-
son.
22.10 AtvikiA viA Uxaklafa (The Ox-Bow
Incident) Bandarfsk bfómynd frá
árinu 1943. Aðalhlutverk Henry
Fonda og Dana Andrews. Myndin
gerist í „villtra vestrinu" árið 1885.
Þær fréttir berast til smábæjar, að
bóndi úr nágrenninu hafi verið
myrtur. Þar sem lögreglustjórinn er
fjarverandi, vilja allmargir bæjarbúar
leita morðingjann uppi og taka hann
af lífi án dóms og laga. Þýðandi Dóra
Hafsteinsdóttir.
23.25 Degskréríok.
Sjönvarp íkvöld kl.
Prúðu leikararnir einna beztir
að margra dómi
í kvöld eru prúðu leikararnir á
dagskrá sjónvarpsins kl. 20.45.
Þeir fá söngkonuna Lenu Horn I
heimsókn. Hún er nú komin
nokkuð til ára sinna en var mjög
fræg á sínum tfma. M.a. var hún
fræg fyrir nauæra meðferð
lagsins Stormy weather.
Prúðu leikararnir eru einn af
fáum sjónvarpsþáttum sem
sendir eru út í lit. Að margra
dómi er þetta einhver skemmtileg
asti „skemmtiþáttur“ sem sjón-
varpið hefur tekið til sýninga og
er það ekki sízt fyrir frábæra þýð-
ingu Þrándar Thoroddsen. A.Bj.
B
r-
! I
IH
CZ
í j
_______________________________!
iiijg y-i.i,
u
Lj
H
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600
éft
^s\eös
V*#1. wett' ’iauw'líi