Dagblaðið - 18.03.1977, Blaðsíða 24
Áhrif vaxtabreytingarinnar á útf lutning sjávaraf urða
Eykur kostnaðinn
um 130 -150milljónir
i erfiðri stöðu
ÍJtflutningsfyrirtæki á
sjávarafurðum verða að þola
130—150 milljóna aukningu
kostnaðar vegna nýju vaxta-
reglnanna sem nú takagildi.
Þetta var mat Eyjólfs Isfelds
Eyjólfssonar, framkvæmda-
stjóra Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna, þegar DB ræddi
við hann í morgun.
Um helmingurinn af þessari
hækkun lendir á frystingunni.
„Þar má ekkert tæpara
standa,“ sagði Eyjólfur Isfeld
um stöðu frystingarinnar.
Hann kvaðst ekki sjá að staðan
hefði í raun og veru breytzt
neitt til batnaðar síðan fisk-
verðið var ákveðið um áramót.
Staðan væri þó mjög misjöfn
eftir landshlutum.
Mikilvægasta breyting á
vaxtaákvæðum nú er að vextir
á svonefndum viðbótarlánum
viðskiptabankanna út á útflutn-
ingsafurðir hækka úr ellefu
prósentum í venjulega víxil-
vexti, sextán og þrjá fjórðu af
hundraði.
Ennfremur hækka vextir á
svokölluðum útgerðarlánum úr
ellefu í þrettán prósent en í
staðinn verður fjárhæð þeirra
lána hækkuð um fjórðung og
Seðlabankinn veitir viðskipta-
bönkunum sérstaka fyrir-
greiðslu til að mæta því. -HH
sama ham, því að skýjað er við
Breiðafjöro og á Vestfjörðum,
dálitil él á Norðurlandi og þoku-
loft og lítils háttar slydduél á
Austurlandi.
Við vitum ekki hvaðan á okkur
stendur veðrið. Svo undrandi
erum við Sunnlendingar yfir
veðurbliðunni i vetur. Eiginlega
getum við varla talað um nokkurn
einasta vetur. Og enn getum við
verið ánægð því í dag
verður bjart við Faxaflóann og á
suðurströndinni með 5-7 stiga
hita. Áttin er norðaustlæg. Ekki
eru veðurguðirnir alls staðar í
— og enn meirí söl
Nýju Seðlabanka-
reglumar umgjald-
daga skuldabréfa:
15daga
frestur
óyggjandi
— óheimilt að reikna
dráttarvexti eða
gjaldfella fyrr
Nú er úr sögunni að hægt sé
að gjaldfella skuldabréf í heild
þegar eftir einhvern afborg-
unargjalddagann, án þess að
greiðsla hafi borizt í tæka tíð,
eins og nokkur þrögð hafa
verið að. Skv. nýju vaxtaregl-
um Seðlabankans er nú 15
daga óyggjandi gjaldfrestur
framyfir gjalddaga, til að gera
greiðsluna upp. Þá kveða regl-
urnar einnig á um að óheimilt
sé að reikna dráttarvexti af
hipni gjaldföllnu upphæð fyrr
en að 15 dögum liðnum.
Bankarnir hafa að vlsu haft
þennan háttinn á, en allur
gangur hefur verið á þessu í
viðskiptum manna á milli. Þar
sem Seðlabankinn á að setja
reglur fyrir bankana og láns-
viðskipti utan þeirra, verða
einstaklingar að taka tillit til
þessara reglna i framtiðinni.
-G.S.
frýálst, óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1977.
Dreifbýlis-
menn bregða
á leik í
þéttbýlinu
Tveir dreifbýlismenn
brugðu á leik í þéttbýlinu í
gærkvöldi. Voru það Grind-
víkingur og Selfyssingur sm
hugðust eyða kvöldstund við
skemmtan og ölteiti í veitinga-
húsinu Óðali.
Ekki tókst þó betur til en
svo að þeir gátu ekki orðið á
eitt sáttir um kvennamál og
slógust heiftarlega vegna
kvenmanns, sem báðir vildu
eiga vingott við. Ekki var þó
orðið áliðið kvölds, þvi
klukkan var ekki nema rétt
um hálf níu, þegar slagurinn
var.
I hamaganginum brotnaði
rúða í veitingastaðnum og
skarst Grindvíkingurinn á
glerbrotum. Var hann fluttur á
slysadeild Borgarspítalans, þar
sem gert var að sárum hans.
-A.Bj.
Útilegu-
maður í
Breið-
holtinu
I morgun er Ibúar í Hóla-
hverfi fóru á kreik kom í ljós
að maður nokkur lá, að því er
virtist sofandi, í urð fyrir utan
veginn. Var kallað á lögreglu
sem kannaði málið.
I ljós kom að maðurinn var
að sofa úr sér ölvímu og var
orðinn nokkuð kaldur. Var
hann rispaður og skrámaður
eins og honum hefði orðið fóta-
skotur í urðinni.
Var maðurinn fluttur á
slysadeild þar sem hlúð var að
honum. Maður þessi virtist
vera um fertugt, en var ekki
með skilríki á sér. A.Bj.
Ákært í
Geirfinns
málinu:
Eiga yfir höfði sér
allt að 24 ára dóm
—16 ár fyrir manndráp — 8 fyrir rangar sakargiftir
Ákæra I Geirfinnsmálinu
hefur verið gefin út. Eru Sævar
Marinó Ciesielski, Kristján
Viðar Viðarsson, Guðjón Skarp-
héðinsson og Erla Bolladóttir
ákærð fyrir manndráp og
rangar sakargiftir. Eiga þau
hvert um sig yfir höfði sér allt
að 24 ára fangelsisdóm nema
Guðjón allt að 16 ára fangelsi.
I ákæruskjali ríkissaksókn-
ara frá í fyrradag kemur fram,
að Erla Bolladóttir hélt þvi
fram allt þar til i september sl.,
að þeir Einar Bollason og Valdi-
mar Ólsen hefðu verið við-
staddir í Dráttarbrautinni i
Keflavík að kvöldi 19. nóvem-
ber. Þeir Sævar og Kristján
Viðar höfðu þá ekki gefið
falskar skýrslur aðlútandí aðild
fjórmenninganna, sem hvað
lengst sátu i gæzluvarðhaldi,
síðan áður en þeir voru látnir
lausir 9. maí sl. vor.
Það kemur einnig fram í
ákærunni, að Sævar Marinó
varð fyrstur sakborninganna til
að bera um meinta þátttöku
þeirra Einars, Valdimars,
Sigurbjörns Eiríkssonar og
Magnúsar Leópoldssonar. Var
það með skýrslu fyrir rann-
sóknarlögreglu 22. janúar 1976.
Daginn eftir tóku þau Erla og
Kristján Viðar við sér og
þremur dögum eftir það, eða
26. janúar, voru þeir Magnús,
Valdimar og Einar hnepptir í
gæzluvarðhald. Sigurbjörn var
handtekinn nokkru síðar.
Sævari, Kristjáni og Guðjóni
er gefið að sök að hafa orðið
Geirfinni Einarssyni að bana í
Dráttarbrautinni i Keflavik
aðfaranótt 20. nóvember 1974
og siðan um nóttina flutt llk
hans heim til Kristjáns í
Reykjavik. Tveimur dögum
síðar fluttu þeir Kristján og
Sævar ásamt Erlu lík Geirfinns
út fyrir borgina og greftruðu og
brenndu. Þykir Erla þannig
einnig sek um brot á mann-
drápsgrein hegningarlaganna,
enda aðstoðaði hún við að afmá
ummerki brotsins.
Kristjáni Viðari er einnig
gefið að sök að hafa rænt lík
Geirfinns seðlaveski, pening-
um, skilrikjum og teikniblý-
anti.
Kristjáni, Sævari og Erlu er
jafnframt gefið að sök að haf á
siðasta ári gerzt sek um rangar
sakargiftir i skýrslum fyrir
rannsóknarlögreglunni í
Reykjavik og á dómþingi Saka-
dóms Reykjavíkur. Segir í
ákæruskjali ríkissaksóknára,
að það hafi verið „samantekin
ráð þeirra að bera I skýrslum
þessum þær röngu sakir á
Einar Gunnar Bollason,
Magnús Leópoldsson, Sigur-
björn Eiriksson og Valdimar
Ólsen, að þeir hefðu átt hlut að
dauða Geirfinns Einarssonar og
smyglbrotum. Leiddu þessar
sakargiftir til þess, að fyrr-
greindum mönnum var gert að
sæta langvinnu gæziuvarðhaldi
i þágu rannsóknar þessara
sakarefna."
Þess er krafizt, að Sævar,
Kristján, Guðjón og Erla verði
dæmd til refsingar og til
greiðslu alls sakarkostnaðar.
Jafnframt á dómurinn — sem
skipaður verður sakadómurun-
um Haraldi Henryssyni,
Ármanni Kristinssyni og Gunn-
laugi Briem, dómsforseta — að
dæma um fjárkrotur, sem uppi
kunna að vera hafðar í málinu.
Er þar visað til yfirvofandi
skaðabótakrafa þeirra fjögurra
manna, sem sátu saklausir i
gæzluvarðhaldi i 90 og 105
daga. Má búast við að þar verði
dæmt um miklar fjárhæðir.
-ov