Dagblaðið - 22.06.1977, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 22, JÚNl 1977.
Varmá mengast
meira og meira
— úrbætur f undirbúningi — skolpið verður hreinsað
Hveragerði:
Önnur aðalskolpæð Hveragerðis opnast út í Varmá skammt fyrir
ofan brúna við Fagrahvamm. Þar sem áin er vatnslítil Iitar skolpið
hana verulega.
* Varmá, sem rennur í gegnum
Hveragerði, er mikið menguð
enda rennur allt skolp frá
staðnum í hana og þar sem áin
er vatnslitil og auk þess óvenju-
heit er mengunin alvarlegri.
Fyrir allnokkrum árum urðu
talsverðar umræður og blaða-
skrif um þetta mál en þrátt
fyrir það hafa engar sjáanlegar
úrbætur verið gerðar.
Rétt fyrir ofan brúna yfir
Varmá við Fagrahvamm opnast
önnur aðalskolpæð bæjarins út
í ána. Þar vellur út heilmikið
mórautt skolp og litar ána.
Neðan við brúna liðast svo lituð
áin í gegnum skógivaxið og vel
hirt land Fagrahvamms og
getur vart talizt prýði í þyí um-
hverfi þótt svo ætti að vera.
Þetta er aðeins iinnur aðal-
frárennslisleiðslan auk nokk-
urra smærri. Sigurður Pálsson
sveitarstjóri sagði í viðtali við
DB vegna þessa máls að nú
væri unnið að undirbúningi á
hreinsun skolpsins, áður en það
rynni í ána, og væri stefnt að
því að reisa eina hreinsistöð
fyrir plássið.
Undanfarin fimm ár hefði
verið lagt tvöfalt frárennslis-
kerfi í allar götur, annars vegar
fyrir yfirborðsvatn, sem ekki á
að menga þótt það renni
óhreinsað í ánni, og hins vegar'
fyrir skolp sem safnað yrði
saman í einni hreinsistöð.
í fyrrasumar voru fram-
kvæmdar rannsóknir á mengun
árinnar á vegum Heilbrigðis-
eftirlits ríkisins og er reiknað
með að þeim muni ljúka i
a~.
Ain rennur svo áfram undir brúna og i gegnum faliegt og vel hirt
iand Fagrahvamms og stingur ón.eitanlega í stúf við það. DB-
myndir G.S.
haust. Sagði Sigurður að
ákvörðun yrði tekin um tegund
hreinsistöðvar þegar þessum
rannsóknum væri lokið.
Kæmist þvi væntanlega ein-
hver skriður á málið á næsta
ári.
- G.S.
Á nefið ofan í hita veituskurð
Það getur verið dýrt spaug að
lána bílinn sinn. Ungur maður
leyfði mági sinum að fara í öku-
ferð að kvöldi 16. júní suður i
Keflavík. Innan tíðar var amer-
íska fólksbifreiðin komin á fram-
endann ofan i hitaveituskurð á
vegamótum Reykjanesbrautar og
gamla „Krossins" og nokkrum
sentímetrum styttri, — framhlut-
inn illa beyglaður, vafalítið tug-
þúsunda tjón.
Hitaveituskurðurinn var graf-
inn alveg að veginum að „Krossin-
um" — en engin aðvörunarmerki
voru við skurðbarmana, svo að
álitamál getur orðið hver á að
bera skaðann, ökumaðurinn eða
verktakinn sem skurðinn gróf.
- emm
Konur geta einnig
orðið góðir ræðumenn
Konur hafa löngum fengið
orð fyrir að vera málgefnar og
oft á tíðum einnig að ekki sé
þeim sýnt um að koma máli
sínu vel til skila. Nú á að bæta
úr þessu. Búið er að stofna mál-
freyjudeildina Kvist í
Reykjavík. Deildin er aðili að
alþjóðasamtökum málfreyja en
félagsskapurinn nefnist Inter-
national Toastmistress Club á
erlendu máli.
Markmið félagsskaparins er
að gera einstaklinginn hæfari
til ræðuhalda og þróa skilning á
gildi flutnings opinbers máls
opinberlega, einnig að örva
samfélagsþjónustu og ábyrgð
borgarans. Málfreyjustarfið er
útbreitt um allan heim. Sams
konar félagsskapur er einnig
starfræktur fyrir karlmenn.
Stofnfundur Kvists var hald-
inn nýlega og afhenti frú Vala
Ásgeirsdóttir Thoroddsen for-
seta deildarinnar, Aðalheiði
Maack, stofnskrá deildarinnar.
Á fundinum voru Vilhjálmur
Hjálmarsson menntamálaráð-
herra, Ólafur B. Thors forseti
borgarstjórnar og fulltrúar frá
málfreyjudeildunum Vörðunni
í Keflavík og Puffin á Keflavík-
urflugvelli. A.Bj.
Fegurðin verður líka að koma innan frá. Viðtal við
Ungfrií ísland, Önnu Björk Eðvarðs.
Punktar úr Irlandsferð
Pink Floyd íPoppþætti