Dagblaðið - 22.06.1977, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 22.06.1977, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUK 22. JÚNl 1977. 7 Ósamræmi Idi Amins i fréttum um Enn hefur ekkert spurzt til Idi Arnins, hvar hann sé niður- kominn, hvernig heilsan sé eða yfirleitt hvort ltann sé á lífi. Fréttastofan í Kenya fullyrðir að hann hafi hlotið skotsár síðasta laugardag er ráðizt var á hann skammt frá Entebbe flugvelli í nágrenni Kampala. Heimildum fréttastofunnar í Uganda ber ekki santan um hvort hann liggi nú á sjúkrahúsi í Uganda eða í Líbýsku Jamahiriyah. David Owen utanríkisráðherra Breta sagði í Luxembourg að eftir því sem hann bezt vissi væri Amin á lífi og við beztu heilsu. Ugandaútvarpið hefur skýrt frá því að sama dag og morðtilræðið átti að hafa verið framið hafi for- setinn hitt að máli nefnd þá sem hann sendi til Angola á fund sam- taka Afríkuríkja. Embættismenn þeir sem rætt var við í Kampala, höfuðborg Uganda, virtust einhuga um að upplýsa ekkert um heilsu leiðtoga síns né dvalarstað. Einn þeirra, starfsmaður á Entebbe flugvelli, kvað Amin ekki hafa sézt siðan á föstudag. „Hans er nú leitað um allt land en hann.finnst bara ekki,“ sagði hann. Haft er eftir diplómatískum heimildum í Egyptalandi að Amin sé á lífi og hafi átt fund með fjármálaráðherra sínum á mánu- daginn. Moses Ali, háttsettur maður í her Amins, sem nú er í opinberri heimsókn í Egypta- landi, vildi þó hvorki staðfesta né neita fregnum um líðan Amins. Þá þykir nú orðið alllangt síðan Mustafa Idrisi, varaforseti líðan landsins, hefur sézt, eða síðan um helgi. Fréttastofan í Kenya sagði jafn- framt í nótt að nú færu fram blóðugar hreinsanir í Uganda og hundruð landsmanna flýðu nú til Kenya til að halda lífi. Ravensburg, Vestur-Þýzkalandi: Skaut mann sinn, þrjú börn og loks sjálfa sig —engin ástæða f innst fyrirverknaftinum Þrjátíu og eins árs gömul kona í Ravensburg í Vestur- Þýzkalandi myrti eiginmann sinn og þrjú börn á fimm daga tímabili í síðustu viku. Hún skráði morðin samvizkusam- lega í dagbók sína áður en hún skaut sjálfa sig til bana. Lögreglan uppgötvaði þennan hörmulega atburð í gærmorgun, er nágrannar fjöl- skyldunnar tóku að undrast að börnin færu ekki með skóla- bílnum né væri neitt lífsmark á heimilinu. Dagbók konunnar, sem lögreglan nefnir aðeins Elisabeth St., gaf lögreglu- mönnum ljóslega til kynna hvað gerzt hafði. Samkvæmt frásögn Elisa- bethar skaut hún Horst mann sinn, atvinnulausan vörubíl- stjóra, á miðvikudagsmorgun í síðustu viku. Síðar sama dag féllu tvö börn hennar, Antje fjögurra ára og Horst ellefu ára. Þriðja barninu, hinum niu ára gamla Nobert virtist ókunnugt um hvað hefði gerzt. Hann fór ásamt móður sinni í heimsókn um helgina. Þar var sú skýring gefin á fjarveru hinna, að þau væru farin annað í sumarleyfi. Elisabeth skaut Nobert á mánudagsnóttina. Þegar lögreglan réðst til inngöngu í hús fjölskyldunnar fann hún Nobert liggjandi í rúmi sínu og móður hans látna í öðru rúmi í sama herbergi. Engin skýring hefur fengizt á þessum hryllilega verknaði Elisabethar St., eins ogi lögreglan kallar hana. Hún notaði lítinn riffil sem hún átti sjálf. Nýkomið frá BERKEMANN allargerðir með hinu þekkta holla Berkemann fótlagi úr mjög léttu póleruðu tré 362 Kopenhagen Litir: Hvítt og rouðbrúnt 375 Austrio Litur: Rautt 107 Noppen-Sandale Litur: Hvítt. 108 Noppen-Sandale Litur: Hvítt EINNIG NYKOMNIR mm Karlmannaskór (m.a. yfirstæröir allt í nr. 50) bamaskór, spariskór kvenna, fótlagaskór unglinga M OT o.fl.o.fl. Nr. 37 -40 Kr. 4.185.- Póstsendum samdægurs Domus Medica Egilsgötu 3. Sími 18519 110 Hamburg Litir: Hvítt, rautt blótt 402 Riemen-Toeffler Nr. 35 -48 Litur: Brúnt og hvítt fró kr. 5.735.- 376 Columbia Nr. 36 —39 Litur: Rautt Kr. 6.845.- 359 limu Nr. 36 —40 Kr. 5.520.- 350 Paris. Nr. 36 -39 litur: Ruutt. Kr. 4.780.- 390 Florenz Nr. 36 —40 Litur: Natur og rautt Kr. 5.580.- msmm wm&sffiKHHmæ/maaumammutaaÉumaumauHuíaiuuBM 100 Original-Sandale Allar stœrðir. Litur: Brúnt. Frá kr. 2.525.-

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.