Dagblaðið - 23.06.1977, Page 8
8
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 23. JUNl 1977.
Sjóðir Sjóvá jukust
um rúma mill j. á dag
—alla daga ársins ífyrra
Heildar iðgjaldatekjur Sjová-
tryggingafélags íslands á sl. ári
náinu 1865 milljónum króna og
höfðu aukizt frá árinu á undan
um 576 milljónir króna eða um
45%. Heildartjón á árinu námu
1563 milljónum, svo 302 millj-
ónir voru eftir af iðgjaldatekj-
um þegar öll tjón höfðu verið
greidd.
Frá þessu segir i fréttatil-
kynningu frá 58. aðalfundi
félagsins. Afkoman varð góð í
öllum frumtryggingargreinum
en verulegt tap var á erlendum
endurtryggingum.
Hagnaður var á heildar-
rekstri félagsins sem nam 16,2
inilliónum króna.
Tryggingasjóður félagsins
nam í árslok 1146 milljónum
króna og hafði aukizt um 384
milljónir á árinu. Sé litið öðrum
augum á þá tölu má sjá að
aukning sjóðsins nemur meira
en milljón á dag, alla daga
ársins.
Fastráðnir starfsmenn
SJÓVÁ eru 62. Stjórnarfor-
maður er Sveinn Benediktsson
og framkvæmdastjóri félagsins
er Sigurður Jónsson.
- ASt.
FRIÐRIK ÓLAFSSON GEFUR
KOST A SÉR TIL FIDE
Friðrik Olafsson stórmeistari í
skák hefur nú afráðið að gefa kost
á sér í forsetakjöri Alþjóða skák-
sambandsins (FIDE) sem fram
fer i Hollandi seint á næsta ári.
Samkvæmt lögutn FIDE skulu
aðalstöðvar FIDE vera í heima-
landi forseta þess, svo ef Friðrik
nær kjöri munu aðalstöðvar skák-
íþróttarinnar í heiminum flytjast
til íslands. FIDE hefur ekki
mörguin starfsmönnum á að
skipa, aðeins ólaunuðum forseta,
aðalritara sem gegnir störfum
framkvæmdastjóra og tveimur
öðrum starfsmönnum.
Auk Friðriks er væntaniegt
framboð tveggja manna, þeirra
Glicoric frá Júgóslavíu og Mendez
frá Puerto Rico. Til að verða
kjörinn þarf svonefndan aukinn
meirihluta, þ.e. kjósa þarf aðra
umferð ef enginn frambjóðenda
fær hreinan meirihluta í fyrstu
umferð.
Ef Friðrik nær kjöri þýðir það
ekki að hann þurfi að hætta allri
kynna. (DB-mynd Sv.Þ.)
taflmennsku; hann myndi mótum sem ekki eru á vegum
hugsanlega halda áfram að tefla á FIDE.
Helmingur fjölbýlishússins kominn undir þak. Níu íbúðir verða í hvorum stigagangi. DB-mynd: G.S.
Þorlákshöfn:
FYRSTA FJÖLBYLISHUSIÐ
AÐ RÍSA — 50 hús á byggingarstigi
Nú er langt komin pygging stækkun grunnskólans sem bygging smærri iðnaðarhúsa, svo
fyrsta fjölbýlishússins í Þorláks- verður fokheldur í haust og upp- eitthvað sé nefnt. - G.S.
höfn og byggir það bygginga-
meistarinn Hannes Gunnarsson.
Verða íbúðirnar seldar á frjálsum
markaði, en sveitarfélagið er
einnig að hefja framkvæmdir við
byggingu leiguíbúða skv. sérstök-
um löguin, að því er Þorsteinn
Garðarsson, sveitarstjóri tjáði
blaðinu.
Ennfremur eru 50 hús á bygg-
ingarstigi í Þorlákshöfn, mislangt
komin, en þrátt fyrir allt er hús-
næðisekla á staðnum, að sögn
sveitarstjóra.
Fleira er byggt i Þorlákshöfn
en íbúðarhús og má þar nefna
Hanastél! Nei,takk
Það er fátítt að Islendingar afþakki brennivin. Slíkt gerðist þó á
dögunum. Sendiherra Islands í Stokkhólmi bauð islenzkum náms-
mönnum til hanastélsdrykkju á 17. júní en þeir afþökkuðu. For-
sendan var sú að á meðan á tslandi væri afneitað jafnrétti til náms
og þjóðinni væri skipt í tvær stéttir þar sem önnur hefði ekki
lifvænleg laun fyrir átta stunda vinnudag á ineðan hin lifði í
vellystingum praktuglega treystu námsmennirnir sér ekki til að
sitja til hanastélsdrykkju með fulltrúum ríkisvaldsins. Þetta er
inntakið í fréttatilkynningu sem blaðinu barst um þennan einstæða
atburð. — DS
Bolungarvík:
Hið nýlega ráðhús Bolvfkinga sem jafnframt hýsir
sparisjóðinn. (DB-myndir BH)
„Menningarreisur'
farnar íbæinn
„Nei, ég treysti mér ekki til
að bera Bolvíkinga saman við
annað fólk,“ sagði Gunnar Guð-
mundsson skólastjóri á
Bolungarvík er blm. DB bað
hann að segja frá sérkennum
þeirra Bolvíkinga. „Ætli þeir
séu ekki bara eins og fólk er
flest, ekki frábrugðnir öðrum
íbúum þessa lands.“ I grunn-
skólanum á Bolungarvík eru
hjá Gunnari um 250 nemendur
og átta kennarar. Hafa þeir ný-
lega fengið sundlaug við skóla-
húsið, sem jafnframt er al-
menningssundlaug og er fyrir-
hugað að byggja þar við einnig
íþróttahús. Að sjálfsögðu er
það sonur íþróttafulltrúa ríkis-
ins sem er arkitekt að nýju
sundlauginni.
Auk nýju sundlaugarinnar
komu Bolvíkingar sér upp nýju.
ráðhúsi fyrir nokkrum árum og
er það hin glæsilegasta bygging
svo sem sjá má á meðfylgjandi
mynd. Auk þess sem skrifstof-
ur bæjarins eru í húsinu
starfar þar einnig sparisjóður-
inn,sá er lánar hvað mest til
húsbygginga af öllum sparisjóð-
um landsins.
Er síðast var tekið manntal á
Bolungarvík bjuggu þar 1119
manns og fer fjölga’ndi. Var
veturinn í vetur þar mildur
eins og víðast hvar annars
staðar á landinu og því yfirleitt
AF „PREST-
LEGUM” PRESTUM
Athugasemd Norðf jarðarprests
viðfrétt frá Eskifirði
Vegna fréttar frá fréttaritara
DB á Eskifirði þess efnis að sr.
Svavar Stefánsson, prestur á
Norðfirði, hafi flutt messu á Eski-
firði þann 17. júní sl. hafði hann
samband við blaðið og vildi koma
eftirfarandi á framfæri:
„I DB 21. júni sl. er frásögn af
hátiðarhöldum í tilefni 17. júní á
Eskifirði. Þar kemur m.a. fram
persónulegt álit fréttaritara á
háttum undirritaðs i starfi.
Umræddur fréttaritari vermdi
ekki bekki kirkjunnar þann dag
og byggir hún því- álit sitt á frá-
sögn annarra. Vil ég taka það
fram að ég var staddur í Reykja-
vik þennan dag, 17. júní, en ekki
við þjónustu í kirkju Eskfirð-
inga."
Vegna þessarar missagnar í
frétt Regínu hafði hún samband
við blaðið og hafði eftirfarandi að
segja:
Sr. Svavar Stefánsson prestur í
Neskaupstað hringdi til min í
morgun með þó talsverðum þjósti
og spurði mig eftir þvi hvað þýddi
„hirin prestlegi maður". Eg sagði
strax að ég teldi það prestlega
presta sein næðu til fólksins með
sinum ræðum og ynnu sín verk af
alúð eins og hann hefði leyst af
hendi i Eskifjarðarkirkju sl.
vikur.
Eg harma það að sr. Svavar.
háskólagenginn maður, skuli ekki
skilja orðið „prestlegur". Það orð
hef ég heyrt frá þvi ég var barn
um presta sem hafa fallega en
samt frjálsa framkomu og vinna
öll sín prestverk af alúð og vand-
virkni í hvívetna.
Eg bið séra Svavar afsökunar á
því að sagt hafi verið að hann
hefði messað, þvi það vgr mis-
skilningur. Það var Egilsstaða-
presturinn sem messaði.
Regina Th.
Breiðholtskirkja:
Arkitektinn
rangfeðraöur
Ranghermt var i biaðmu í
gær föðurnafn annars arki-
tektsins sem vann samkeppn-
ina um teikningu að nýrri
Breiðholtskirkju. Heitir arki-
tektinn Guðmundur Kr. Krist-
insson en ekki Guðmundsson.
Auk hans unnu til verðlaun-
anna samstarfsmenn hans,
Ferdinand Alfreðsson arkitekt
og Hörðtir Björnsson tækni-
fra'ðingur.
BH
góð færð og auðvelt að komast
milli staða frá Bolungarvík. Að
vetri til er það ótal margt sem
fólk gerir sér til skemmtunar,
og er ekki óalgengt að áhafnir
af bátunum bregði sér saman
til Reykjavíkur í „menningar-
reisur“. Er þá haldið suður á
föstudegi, farið í leikhús,
borðað úti og farið á ball. Þá er
ekki óalgengt að farið sé í róður
og allur peningur sem inn
kemur fyrir þann róður lagður
i „menningarreisusjóð". - BH
Gunnar Guðmundsson
stjóri á Bolungarvík.