Dagblaðið - 23.06.1977, Side 19
DACBLAÐIÐ. K1MMTUDAC.UK 211. JUNI lí)77.
l.i'ikfólau Uúsavikur sýnir i
kviild og annað kvöld li'ikritiö i
doifílunni eftir Arthúr Millor i
IOnó. Okkur lók nokkur
forvitni á aó vita hvað veldur
þvi að leikfélag i 2500 irtanna
bæ tekur þá áhættu fjárhafís-
lesa að fara suður til Reykja-
vikur með svo stórt st.vkki sem
Deielan er og um leið hvernif;
leiklistarstarfsemi úti á landi
eetur vfirleitt farið frarn.
Við litum því inn á -æfinKU
hjá leikfélaginu þegar við
vorum stödd á Norðurlandinu.
Efingarnar, sem þá fóru fram,
voru aðeins til að hressa upp á
minnið því leikurinn var
færður upp fyrir norðan í
vetur. Við hitturn að máli þá
Kristján Elis Jónasson formann
leikfélagsins og Einar Njálsson
sem einnis er í stjórn þess.
— Eruð þið bjartsýnir á
suðurferðina?
„Við verðum að vera það. Ef
við héldum ekki að ferðin stæði
undir fjárhagslegum kostnaði
værum við vitaskuld ekki að
fara. Þetta kemur til með að
kosta okkur um það bil 400
þúsund krónur eða tvöfalt
framlagið sem við fáum frá
Húsavíkurkaupstað á ári. Við
vonumst auðvitað til þess að
brottfluttir Húsvíkingar komi á
sýningarnar. svo og þeir sem
tengdir eru Húsavik eða Hús-
víkingum.”
— Hvernig hefur aðsóknin
verið hérna?
„Við höfum nú oft fengið
betri aðsókn. Við höfðum 10
sýningar á Deiglunni en oftast
höfum við getað haft um það bil
16 sýningar á.leikritum. Við
kennum því um að þetta er
þ.vngra verk þannig að for-
eldrar hafa líklega hikað við að
senda börn sín á sýningar. Oft
hefur það verið þannig með
verk sem við höfum fært upp
að heilu skólarnir hafa komið."
— Nú fjallar þetta leikrit um
ofsóknir sem fólk verður f.vrir
vegna gruns um galdur. Þykir
ykkur þetta eiga beint erindi til
fólks nú á dögum?
„Tvímælalaust. Ofsóknir
végna skoðana manna eru enn
við lýði. Bezta dæmið um það
eru Sovétrikin. Miller samdi
þetta leikrit sem dæmisögu og
ádeilu á annan tima, tíma
McCarthyismans. Við teljum
þessa dæmisögu enn í fullu
gildi.”
Á leiðinni út hittum við
Sigurð Hallmarsson skólastjóra
og þann sem margir telja
„primus motor“ leikfélagsins.
Við báðum hann um viðtal. Sú
ósk var veitt þó Sigurður tæki
það fram að venjulega ræddi
hann ekki við blaðamenn.
— Hvernig gengur leiklistar-
starfsemin hérna á Húsavík
yfirleitt?
„Við höfum átt því láni að
fagna að eiga áhugasama áhorf-
endur. Þar er sveitafólkið engir
eftirbátar annarra. í Þingeyjar-
sýslu er fólk sem hefur mikinn
áhuga á leiklist og við höfum
setl upp dýrar sýningar í
trausti þess að fólkið kæmi að
sjá þær og það hefur ekki
brugðizt trausti okkar."
— Hvernig er fjárhagurinn?
„Við fáum núna 200 þúsund
krónur frá bænum en þyrftum
vitaskuld að fá mun meira. Við
þyrftum að fá það mikið að
fjárhagsleg sjónarmið ráði ekki
verkefnavali . Hjá leikfélögum
úti um land er það víða þannig
að fjárhagurinn ræður því
hvaða verk eru sett upp og
hvaða menn eru fengnir utan
að, til dæmis til að stjórna.
Þetta ber þó alls ekki svo að
skilja að við höfum látið fjár-
hagsmálin stjórna okkar vali á
verkefnum, svo er áhuga-
sömum áhorfendum fyrir að
þakka.
Leikfélögin úti á landi þurfa
að hafa fjárhagslegt bolmagn
til þess að koma sér upp að-
stöðu til að smíða sviðsmyndir
og geyma þær. Það er aðstöðu-
leýsið sem þjakar leikfélögin
úti á landi mest. Senusmíði er
mjög tímafrek og erfið og það
má ekki minna vera en að þeir
sem við hana vinna fái viðun-
andi aðstöðu til þess. ÞvTmiður
hef ég komið i fá félagsheimili
á landinu þar sem aðstaða er
fullnægjandi til leiksýninga.
Það hefur ekki verið hugsað
nógu vel fyrir leiksviðum i
félagsheimilum almennt. Iæik-
sviðið er yfirleitt svo lítið að
Leikfélögin úti á landi eru grundvöllur atvinnuleikhúss:
19
%
Húsvíkingar koma með
Deiglu Millers suður
(Jr uppfærslunni á Deiglunni á Húsavík í vetur. Talið frá vinstri: Kristján Elís Jónasson, Hjörtur Sigurðsson, Herdís Birgisdóttir,
Þorsteinn Jónsson, Ingimundur Jónsson og Sigurður Hailmarsson. Myndina tók ljósmyndastofa Péturs á Húsavik.
það veldur þeim sem sér um
leiktjöld miklum erfiðleikum.
Það sem þjakar okkur núna
er að við höfum alltaf verið á
hrakhólum með geymslu fvrir
leiktjöld. Við höfum aldrei haft
fjárhagslegt boímagn til að
b.vggja eða kaupa húsnæði fyrir
þau. Það verður því sífellt að
vera að flytja tjöldin á iiiilli.
Það gle.vmist allt of oft að leik-
sýning er ekki bara leikararnir
sem standa á sviðinu, leik-
m.vndin er þar stór hluti."
— Nú eru leikarar frá Þjóð-
leikhúsinu farnir að starfa með
leikfélögum úti um land við
uppsetningar leiksýninga. Er
ekki að þessu mikil lyftistöng?
„Vitaskuld. Þetta er áreiðan-
lega það sem koma skal. Enda
er þá fyrst um þjóðleikhús að
ræða. Það má ekki gle.vmast að
alvinnuleikhúsin grundvallast
á áhugaleikhúsum. Leikhús í
hverri sveit gera það mögulegt
að reka atvinnuleikhús. Með
öðrum orðum, atvinnuleikhús
grundvallast á því að áhugi á
leiklist sé fyrir hendi. Áhuga-
leikhúsin skapa og viðhalda
þeim áhuga. Þetta er svipað og
að segja að ef ekki hefði verið
hagyrðingur í hverri sveit hefði
heldur ekki verið til Jónas Hall-
grímsson. Ljóðlistin var þá eðli-
legur hluti af lífinu eins og
,leiklistin á að vera.“
— Finnst þér Deiglan eiga
erindi til nútímafólks?
„Já. Boðskapur hennar er
ennþá í fullu gildi. Það er sko
engin tilviljun að þetta verk
hefur aldrei verið kvikmyndað.
Það snertir ennþá vissa strengi
í fólki, strengi sem mega ekki
vera snertir."
DS
Á æfingu, frá vinstri: Kristján Elis, Ingimundur, Herdis, Anna Jeppesen og Arnína Dúadóttir. Myndina tók Baldur, Húsavik