Dagblaðið - 27.06.1977, Side 18
18
DAGBLAÐIÐ. M ANUDACUR 27. JUNl 1977
I
íþróttir
Iþróttir
íþróttir
iþróttir
I
Jóhannes ekki
ánægður
þrátt fyrir
stórsigur KA!
Diðrik Olafsson, markvörður Víkings, sem átti stórgóðan leik gegn ibv, mrðir knöttinn af tám Karls Sveinssonar.
DB-mynd Hörður Vilhjáimsson.
Markalaust jafntefli Víkings
og ÍBV i tilþrifalitlum leik
—og Víkingur komst því ekki upp að hliðinni á Valsmönnum í 1. deildinni
Vikingi tókst ekki að þoka sér
að hlið Vals i baráttunni um
íslandsmeistaratignina í ár er lið-
ið mætti Eyjamönnum í 1. deild
íslandsmótsins í knattspyrnu á
laugardag. Hvorugu liðinu tókst
að skora, markalaust jafntefli, 0-
0. Heldur var ieikur iiðanna
tilþrifalítill í blíðunni á laugar-
dag. Þó höfðu Eyjamenn undir-
tökin í spilinu iengst af í siðari
hálfleik. En sóknarbrodd vantaði
tilfinnanlega hjá báðum liðum —
varnir liðanna í aðalhlutverkum.
Bæði lið fóru heldur hægt af
stað — skiptust á að sækja án þess
að veruleg hætta skapaðist. Það
var helzt í kringum markakóng
ÍBV — Sigurlás Þorieifsson að
hætta skapaðist við mark Víkings.
Þannig lék Sigurlás laglega á
tvo varnarmenn Víkings á 28.
mínútu fyrri hálfleiks — skaut
föstu skoti að marki — en mis-
heppnuðu og litlu munaði að
Tómas Pálsson næði til knattarins
fyrir opnu marki.
Hannes Lárusson átti fast skot
ao mai ki IBV — sem fór í varnar-
mann og stefndi undir slá en
öruggur markvörður IBV, Sigurð-
ur Haraldsson, sló knöttinn yfir.
Þá komst Jóhannes Bárðarson
einn inn fyrir vörn IBV en missti
knöttinn of langt frá sér og Sig-
urður gómaði hann af tám
Jöhannesar. Segja má að þar með
séu marktækifæri fyrri hálfleiks
-upptalin — en Víkingar urou
fyrir áfalli um miðian fyrri hálf-
leik er petr misstu Eyjamanninn
Viðar Elíasson, skæðasta sóknar-
mann Víkings, út af, meiddan.
Einar Friðþjófsson átti í návígi
við Viðar, sparkaði illa í kálfann á
Viðari. Hann ló óvígur eftir — og
það kom mjög á óvart er heldur
tilþrif alítill dómari, Þorvarður
Björnsson, heimtaði að gert yrði
að meiðslum Viðars fyrir utan
völlinn. Viðar greinilega mjög
þjáður.
Annars hafa tæklingar aftan frá
verið mjög tiðar í sumar — og
kostað slæm meiðsli. Þannig er
KR-ingurinn Hálfdán Örlygsson
frá vegna ljóts brots aftan frá.
Það ber æ meir á að varnarmenn
tækli aftan frá — nokkuð sem
verður að afmá úr íslenzkri knatt-
spyrnu og eiga dómarar skilyrðis-
laust að sýna gula spjaldið er slíkt
gerist — ljót brot./ I stað þess að
veita Einari gult spjald á laug-
ardag — eða tijtal heimtaði Þor-
varður að Viðar yrði fjarlægður
af velli. Furðulegt — Eyjainenn
beinlínis græddu á brotinu þar
sem Viðar var. góða stund utan.
Ilann reyndi reynar að koma inn
aftur — en fór fljótlega út af,
draghaltur.
Vikingar fengu gullið tækifæri,
þegar á fyrstu minútu síðari hálf-
leiks, að gera út um leikinn.
Vikingar fengu horn hægra
megin — Hannes Lárusson gaf til
Eiríks Þorsteinssonar er aftur gaf
til Hannesar — hann sendi knött-
inn fyrir. Þar var Theódór
Magnússon einn — fyrir opnu
marki en missti knöttinn klaufa-
lega frá sér og Sigurður gómaði
hann. Þegar á 4. mínútu fengu
Eyjamenn síðan gott tækifæri til
að skora — Tómas Pálson tók
hornspyrnu — Sveinn Sveinsson
óvaldaður í vítateignum en hann
skallaði yfir. Víkingar reyndu í
lokin að auka sóknarþunga sinn
með því að færa Kára Kaaber
fram — og setja Gunnlaug Krist-
finnsson inn sem varamann en
lítt stoðaði. Eyjamenn léku stífa
rangstöðutaktík og féllu sóknar-
menn Víkings iðulega í hana.
Bæði lið gátu í lokin vel við
unað — fengu bæði stig.
Annars áttu Eyjamenn
mun meira í spilinu — reyndu
ávallt að halda knettinum með
jörðu og spiluðu oft laglega úti á
vellinum en er upp að marki kom
var sáralítil ógnun. Sigurlás
byrjaði vel — en það dofnaði yfir
honum er á leikinn leið, fékk litla
aðstoð. Þá var Tómas Pálsson
daufur — en tengiliðirnir réðu
lögum og lofum lengi vel á
miðjunni. Þórður Hallgriinsson
stjórnaði vörninni vel — þétt og
að baki hennar var Sigurður Har-
aldsson öruggur.
Vikingar áttu einn sinn lakasta
leik í sumar. — lítið reynt að
spila. Þeir spiluðu með þrjá mið-
verði — taktík er heppnaðist vel
gegn KR. Þá voru bakverðirnir
mjög virkir í sókninni en slikt var
ejtki uppi á teningnum á laugar-
dag. Miðjumennirnir sáust varla
— allir daufir og hikandi Mikið
voru reyndar langspyrnut fram
— furðulegt þar sem frarhlínu-
menn Vikings voru mjög léttir og
höfðu ekkert í skallaeinvígi við
háa og sterka varnarmenn IBV.
— Vikingar geta spilað vel úti á
vellinum — það hafa þeir sýnt
undanfarin ár. Slíkt hefur alls
ekki verið uppi á teningnum í
sumar — langspyrnur fram og
þegar knötturinn hefur komið aft-
ur hefur sterk vörn Víkings og
góður markvörður, Diðrik Ólafs-
son, séð um að halda markinu
hreinu. Víkinga skortir aðeins
herzlumun til að skipa sér á bekk
með Akranesi og Val — það sann-
ar stigataflan. Því verður að
b.vggja spilið betur frá vörn — um
miðju og þaðan í vítateig and-
stæðingsins en ekki sífelld spörk
úr vörninni. Þeir hafa létta og
lipra framlinumenn — er í víta-
teig andstæðings eru skæðir —
hins vegar ekki eins úti á
vellinum.
Leikinn dæmdi Þorvarður
Björnsson.
-h. halls.
Þrátt fyrir stórsigur KA, á
laugardag á Akureyri, gegn
Reyni frá Sandgerði í 2. deild
íslandsmótsins í knattspyrnu var
Jóhannes Atlason þjáifari KA
ekki hýr á svip eftir leikinn. KA
sigraði stórt 6-.'l — en vörn KA
hlýtur að hafa vakið upp ýmsar
spurningar með Jóhannesi. Það
var eins og varnarmenn KA væru
hreint ekki með á nótunum — og
gegn sterkari mótherja hefði
slíkt getað haft aivarlegar af-
leiðingar en sóknarmenn KA
voru á skotskónum og leyfðu sér
meira að segja þann munað að
misnota vítaspyrnu.
Þrátt fyrir góðar tölur átti lið
KA sem heild alls ekki góðan dag.
Vörnin var hreinasta gatasigti og
nánast ekki með í leiknum —
miðvallarleikmenn KA voru og
slakir en Gunnar Blöndal hins
vegar i essinu sínu. Hann skoraði
þrjú mörk — og var ásamt Ár-
manni Péturssyni bezti maður
liðsins.
, Eftir aðeins sjö minútna leik
tók KA forustu gegn Reyni. Gunn-
ar Blöndal skaut lausu skoti er
hann var úr jafnvægi. Mark-
vörður Reynis var of framarlega
og knötturinn fór yfir hann og í
netið, heppnismark, 1-0. Fyrsta
mark Gunnars í 2. deild í sumar
en hann átti eftir að leika varnar-
menn Reynis grátt.
KA sótti meir gegn Reyni án
þess þó að sérstök ógnun væri í
leik liðsins. Reynir átti góða kafla
— spilaði oft laglega úti á vellin-
um. En þrátt fyrir það jók KA
forustu sina í 2-0 á 38. mínútu.
Sigurbjörn Gunnarsson skaut
föstu skoti að marki Reynis.knött-
urinn fór í Guðjón Harðarson og
breytti um stefnu. Þetta kom
markverði Reynis úr jafnvægi og
í netinu hafnaði knötturinn, 2-0.
Aðeins tveimur mínútum síðar
var Ármann Sverrisson í dauða-
færi en rann til á hálum og blaut-
um vellinum og tækifærið rann út
i sandinn.
Reyni tókst að minnka
muninn í 2-1 á síðustu mínútu
hálfleiksins — með síðustu
spyrnu hálfleiksins. Gefin var
sending fyrir mark KA — varnar-
menn KA voru ákaflega illa á
verði og Pétur Sveinsson nýtti sér
hik varnarmanna og skoraði, 2-1.
KA jók forskot sitt þegar á 3.
minútu síðari hálfleiks. Gunnar
Blöndal sendi góða sendingu á
Ármann Sverrisson, sem skaut
fremur lausu en hnitmiðuðu skoti
í stöng og inn. 3-1. Aðeins tvær
mínútur liðu og enn var Gunnar
'Blöndal á ferðinni. Ármann
Sverrisson skaut af löngu færi —
markvörður Reynis hafði ekki
hendur á knettinum og Gunnar
skoraði af stuttu færi, 4-1.
Á 17. mínútu átti Jóhann
Jakobsson skot í stöng — og á 23.
mínútu jók KA forskot sitt í 5-1.
Gunnar Blöndal átti þá gott skot
úr vítateignum eftir fyrirgjöf
Magnúsar Vestmann.
Aðeins þremur mínútum síðar
minnkaði Reynir muninn í 5-2.
Pétur Sveinsson var aftur á
ferðinni — og aftur nýtti hann
mistök varnarmanna. Komst á
milli tveggja varnarmanna sem
áttu möguleika á að ná knettinum
— hikuðu báðir og Pétur skoraði
örugglega.
Skömmu síðar fékk KA dæmda
vítasp.vrnu — en Sigurbjörn
Gunnarsson skaut himinhátt yfir.
Hann bætti f.vrir það á 40.
minútu. Hann einlék laglega upp
kantinn — síðan inn i vítateig
miðjan og skaut föstu skoti neðst i
markhornið. 6-2. Aðeins mínútu
fyrir leikslok skoruðu leikmenn
Reynis sitt þriðja mark — Ómar
Bjarnason skaut föstu skoti. sem
Guðbergur. Ellertsson mark-
vörður missti heldur klaufalega
undir sig. 6-3.
Leikinn dæmdi Oli Olsen og
fórst vel — en áhorfendur voru
með færra móti. um 400.
-St. A.