Dagblaðið - 02.07.1977, Page 3
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 2. JÚLl 1977.
Hvar fær gamla
fólkið mjólkina?
^ Cá
Gömul kona skrifar:
Illa er farið með gamla fólkið
í Stórholti og nágrenni. Nú er
lögð niður mjólkurbúðin í Stór-
holti. Því var lýst yfir, þegar
Mjólkursamsalan hætti að reka
smásöluverzlanir, að bættur
skyldi allur skaði. Kaupmenn
skyldu taka við mjólkursölunni
svo að enginn biði tjón af.
En raunin verður önnur fyrir
allt gamla fólkið sem býr við
Stórholt og þar í grennd. Þarna
eru mjög margir aldraðir og
þeim er nú ætlað að fara langar
leiðir eftir mjólkinni.
%
Það munar um hvert skrefið
sem tölta þarf eftii' mjólkinni
þegar maður er kominn á þenn-
an aldur.
Raddir
lesenda
Umsjón:
Dóra Stefánsdóttir
Eru íþróttir ekkert nema
fótbolti, Bjami Felixson?
— Iþróttaþættir útvarpsins bera af þeim ísjónvarpinu
Anna skrifar:
Fróðlegt væri að vita hvort
íþróttafréttamaður sjónvarps-
ins sé hreinlega á móti öllum
íþróttum nema fótbolta og
hvort hann reyni aldrei að afla
innlendra fréttamynda af öðr-
um íþróttaviðburðum en fót-
bolta.
Það er engu líkara en að
hann birti ekki aðrar filmur í
íþróttaþættinum en þær sem
honum berast upp í hendurnar
og er þá mjög áberandi hvað
Svíar hafa verið rausnarlegir,
a.m.k. upp á siðkastið.
Eg er ekki neinn sérstakur
unnandi íþrótta yfirleitt en svo
hefur viljað til að ég hef hafnað
í sjónvarpsstólnum mínum
nokkur undanfarin mánudags-
kvöld og því er nú að ég sting
niður penna.
Mér finnst þetta í hæsta máta
undarlegir íþróttaþættir. Sumir
fótboltaleikirnir eru fyrst sýnd-
ir í heild á laugardegi og síðan
aftur kaflar úr þeim á mánu-
degi. Mér finnst þetta einum of
mikið. Maður var dálítið
spenntur að sjá mynd frá frjáls
íþróttamótinu í Kaupmanna-
höfn, sem búið var að auglýsa,
en sú mynd kom ekki.
Iþróttaþættirnir í útvarpinu
undir stjórn Hermanns Gunn-
arssonar eru aftur á móti bráð-
skemmtilegir. Þótt hann sé
sjálfur „gömul“ fótboltahetja
lætur hann ekki fótboltann
sitja í fyrirrúmi fyrir öðrum
íþróttagreinum.
Hermann er stórkostlega
góður. Ekki myndi heldur saka
að fá hann á skjáinn því maður-
ínn er dæmalaust huggulegur,
fynr utan að hann hefur þægi-
lega rödd og það skilst vel sem
hann segir.
Er leyfilegt að jórtra tyggi-
gúmmí í matvöruverzlunum?
Kona i Keflavík hringdi:
Ég fór hér út í matvöruverzl-
un um daginn eins og oft áður.
Kr þella ekki svolílið sóðalegl?
Á kassanum var ung stúlka sem
tuggði tyggigúmmí í svo mikl-
um ákafa að hún mátti varla
vera að öðru, hún tuggði eins og
hún ætti lífið að leysa. Þegar ég
var að borga blés hún stærðar
kúlu sem sprakk nærri því
frainan í mig. Hún baðst ekki
einu sinni afsökunar.
Eg segi frá þessu því mig
langar til að vita hvort þetta er
le.vfilegt. I frystihúsum og víða
annars staðar þar sem unnið et
með mat er slíkt bannað og eins
ætti auðvitað að vera í verzlun-
um sem hafa mat á boðstólum.
Af jórtri tyggjós er mikill sóða-
skapur fyrir nú utan hvað það
er hviinleiður vani.
Er ekkert íþróttir nema fótbolti? spyr Anna. Myndin var tekin í
leik Víkings og ÍBV.
Spurning
dagsins
Skrífarðuoft
sendibréf?
Hermann Sigurðsson nemi: Nei,
ég skrifa lítið af bréfum, hef t.d„
aldrei átt neinn pennavin, svo
kemur fyrir að maður sendi póst-
kort við og við.
Hallgrímur Glslason: Aldrei, ég
skrifa ekki bréf og geri lítið af
þvi að senda kort, þó kemur það
stundum fyrir.
Þórhildur Egilsdottir
menntskælingur: Neij ég geri nú
lítið af því, þegar aílt kemur tU
alls, þá geri ég það sennilega
ekkert.
Jóhannes Frank Jóhannesson,
starfs. Kaupf. Dýrfirðinga: Já, já,
ég skrifa stundum, þá skrifa ég
suður til afa og ömmu, einnig
sendi ég stundum kort.
Friðbert Jón Kristj ánsson, 'vlunur
hjá hreppnum: Nehei, það geri ég
aldrei. auk þess á ég enga penna-
vini og þarf sjaldan að skrifa kort.
Kristján Gunnarsson bifvéla-
virki: Nei, ég geri það nú ekki en
þó kemur stundum fyrir að maður
skrifi einhverjum póstkort.