Dagblaðið - 02.07.1977, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 2. JÚJL,Ll8?7s
I
Útvarp
23
Sjónvarp
Útvarp laugardag kl. 21,30:
Svavar skreppur
til Akureyrar
Svavar Gests brá sér til Akur-
eyrar í vikunni og aflaði þar efnis
í þátt sinn Laugardag til lukku,
sem að vanda verður á dagskrá
útvarpsins kl. 13.30 í dag. Verð-
ur Akureyri tekin „í bak og
fyrir“ eins og Svavar orðaði það,
rætt við Akureyringa og eingöngu
spiluð tónlist frá Akureyri. Er þá
rétt að hafa i huga að tónlistarlíf
á Akureyri byggist upp á fleiru
en Ingimar Eydal og félögum, því
höfuðstaður Norðurlands er mik-
ill menningarbær, jafnt á tónlist-
arsviðinu sem öðrum sviðum.
Inn í þáttinn koma síðan hinar
ýmsu fréttir, íþróttafréttir, veður-
fregnir og almennar fréttir kl.
16.00.
Létt og skemmtileg
hljómskálamúsík
„Þetta er tilbúin dagákrá sem
við fáum beint frá' útyarpinu í
Köln,“ sagði Guðmutidur Gils-
son i samtali við DB, en hann
hefur nú í nokkuð lángan tíma,
allt frá því í vetur, kynnt á
laugardagskvöldum það sem
hann nefnir Hljómskálamúsík
frá útvarpinu í Köln. Eru þarna
leikin létt óperu- og söngleikja-
lög spiluð af ýmsum þýzkum
hljómsveitum. Aðallega eru
það hljómsveitir þýzkra út-
varpsstöðva, s.s. frá útvarpinu í
Stuttgart, Berlín og víðar.
Hljómskálamúsík er senni-
lega óskilgreint hugtak á
íslenzku, en það er þýðing á
„promenademusik", orði sem
fjöldi þjóða notar. Er þá helzt
átt við hljómskála, stærri en þá
sem við íslendingar þekkjum,
stóra og opna með aðstöðu fyrir
stóra hljómsveit.
Þættir þessir eru sendir til
Islands i skiptum sem fram
fara milli evrópskra utvarps-
stöðya innan vébanda
European Broadcast Union
(EBU), sem eru sarntök
evrópskra útvarpsstöðva.
-BH.
„Ég ætla að spjalla við hlust-
endur um æskustöðvar mínar við
Bakkafjörð,“ sagði - Kristján frá
Djúpalæk, en hann verður með
þáttinn Mér datt það í hug í út-
varpinu kl. 16.25 á sunnudag.
Fyrir þá sem ekki vita er
Bakkafjörður, þar sem Kristján
fæddist og ólst upp, austan við
Langanes. „Eg ætla að tala um
lifandi fólk og dautt, samband
mannsins við náttúruna, kriuna
og fleiri fugla.“ Hyggst hann
koma víða við eins og heyra má á
þessari upptalningu, einnig ætlar
hann að tala við okkur „um þetta
líf og það næsta“ eins og hann
orðaði það.
Kristján er nýkominn úr ferð
til Bakkafjarðar og ætlar hann í
spjallinu einnig að hvetja okkur
Islendinga til að ferðast meira um
eigið land heldur en að vera að
þvælast þetta til útlanda, allt of
fáir hafa uppgötvað alla þá
möguleika sem ísland hefur upp
á að bjóða.
Kristján frá Djúpalæk hætti að
reykja um slðustu páska. „Ég
ræddi málið við sjálfan mig og
ákvað síðan að hætta reykingum.
Það þarf fyrst og fremst að undir-
búa sjálfan sig og þá er þetta
A þessari mynd sést Kristján frá
Djúpalæk reykjandi pípu, en nú
er hann hættur að reykja og ekki
hægt að ná mynd sem þessari af
honum.
enginn vandi að hætta
reykingum," sagði Kristján. Hann
hætti reykingum eftir að hafa
reykt í 36 ár.
-BH.
Þetla er sennilega eini hljúmskáli nkkar íslendinga, Hljómskálinn,
í samnefndum garði. En sú músik sem leikin verður i útvarpinu í
kvöld er vist frá stærri hljómskálum en þessum.
(DB-m.vnd Sv. Þ.).
21.30 Hljómskálatónlist frá útvarpinu í
Köln. Guðmundur Gilsson kynnir.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
Laugardagur
2. júlí
7.00 IMorgunútvarp. MorguntMsn kl. 7.50
Tilkynningar kl. 9.00. Lett lög milli
atriða Óskalög sjuklinga kl. 9.15
Kristín Sveinbjörnsdóttir kynnir
íz.ÓO Dagskrain. íonleikar. Tiikynn
ingar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 Laugardagur til lukku. Svavar Gests
sér um síðdegisþátt f tali og tónum.
(Inn í hann falla íþróttafréttir, al-
mennar fréttir kl. 16.00 og veður-
fregnir kl. 16.15).
17.00 Látt tónlist.
17.30 Rímur af Svoldarbardaga oftir Sigurð
Breiöfjörö; — V. þáttur. Hallfreður
örn Eirfksson cand. mag. kynnir. Guð-
mundur ólafsson og Pétur ólafsson
kveða.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fráttir. Fróttaauki. Tilkynningar.
19.35 Ailt í grasnum sjó. Stolið, stælt Og
skrumskælt af Hrafni Pálssyni og
Jörundi Guðmundssyni.
19.55 Píanósónata í es-moll eftir Paul
Dukas. Francoise Thinat leikur.
20.40 Skáld óös og innssais. Kristján
Árnason talar um Hermann Hesse á
aldarafmæli hans. Lesið verð-
ur úr ritum skáldsins f bundnu og
óbundnu máli, þ.á m. ..Draumljóð“.
smásaga í nýrri þýðingu eftir Hrefnu
Backmann.
Sunnudagur
3. júlí
8.00 Morgunandakt. Herra Sigurbjörn
Einarsson biskup flytur ritningarorð
og bæn.
8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir.
Otdráttur úr forustugr. dagbl.
8.30 Létt morgunlög.
9.00 Fréttir. Vinsalustu popplögin.
Vignir Sveinsson kvnnir.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Morguntónleikar. Píanókonsert i a-
moll op. 16 eftir Edvard Grieg. Géza
Anda og Fílharmoníusveitin í Berlfn
leika; llafael Kubelik stj.
11.00 Messa í Egilsstaöakirkju (hljóðr. á
þriðjud. var í tengslum við presta-
stefnu). Séra Eric H. Sigmar
predikar. Séra Kristján Valur Ingólfs-
son. séra Bjarni Guðjónsson og séra
Vigfús Ingvar Ingvarsson þjóna f.vrir
altari. Organleikari: Jón ólafur
Sigurðsson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.15 Veðurfregnir og fréttir. Tilkvnn-
ingar. Tónleikar.
13.30 I liöinni viku. Umsjón: Páll Heiðar
Jónsson.
15.00 Sónata fyrír pianó eftir Alberto
Ginastera. Ronald Turini leikur.
15.15 Islandsmótiö i knattspymu: Útvarp
frá Akranesi. Hermann Gunnarsson
lýsir keppni Iþróttabandalags Akra-
ness og Vals.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Mór datt þaö í hug. Kristján skáld
frá Djúpalæk spjallar við hlustendur.
16.45 íslenzk einsöngslög. Erlingur
Vigfússon svngur lög eftir Emil Thor-
oddsen. Þórarin Jónsson og Karl O.
Runólfsson. Fritz Weisshappel ieikur
á píanó.
17.00 Staldrað viö í Stykkishólmi. Jónas
Jónasson spjallar við fólk þar; —
fjórði þáttur.
17.50 Stundarkorn meö Rawicz og
Landauer, sem leika þekkta sigilda
dansa á pianó. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fróttir. Fróttaauki. Tilkynningar.
19.25 Líffiö fyrir austan; —fjóröi og síöasti
þáttur. Birgir Stefánsson kennari
segirfrá.
20.00 Sinfóníuhljómsveit íslands leikur í
útvarpssal. Christvne Tryk og Sin-
fóniuhljómsveit Islands leika Konsert
nr. 2 i D-dúr f.vrir horn og hljómsveit
eftir Joseph Ha.vdn; Páll P. Pálsson
stj.
20.20 Sjálfstestt fólk í Jökuldalsheiöi og
grennd. örlftill samanburður á „Sjálf-
stæðu fólki" eftir Halldór Laxness og
samtímaheimildum. Fyrsti þáttur:
Jörðin og fólkið. GunnarValdimarsson
tók saman efnið. Lesarar með honum:
Hjörtur Pálsson Klemenz Jónsson og
Guðrún Birna Hannesdóttir.
21.15 Sinfónía i C-dúr eftir Georges Bizet.
Hljómsveit franska rfkisútvarpsins
leikur; Sir Thomas Beecham stj.
21.45 „Bröltí myrkrí", smásaga eftir Mark
Twain. óli Hermannsson þýddi. Gísli
Alfreðsson leikari les.
22.00 Fréttir. *
22.15 Veðurfregnir. Danslög. Sigvaldi
Þorgilsson danskennari velur lögin og
kvnnir.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
Útvarp sunnudag kl. 16,25:
Kristján frá Djúpa
læk spjallar
við hlustendur