Dagblaðið - 02.07.1977, Síða 6
6
t
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 2. JULÍ 1977.
' 1 ........... ....... ......
Sundf ólk í heimsklassa
— keppir i átta landa keppninni sem hefst í Laugardalslaug ídag
Bezta sundfólk átta þjóða,
íslands, Noregs, Skotlands,
Wales, Belgíu, Sviss, Israels og
Spánar, verður í sviðsljósinu í
Laugardalslaug í dag og á
morgun. Þá fer fram átta landa
keppnin í sundi, sem ísland
hefur tekið þátt í síðan 1971. í
fyrsta skipti, sem keppnin er
háð hér á landi — og forráða-
menn íslenzka sundsam-
bandsins hafa staðið í stór-
ræðum til að láta enda ná
saman i sambandi við þetta
mikla fyrirtæki En þeir telja
það ekki eftir sér — og vona að
keppnin veiti fslenzkum áhorf-
endum og keppendum mikla
gleði.
Keppnin hefst kl. þrjú í dag í
Laugardalslauginni — en á
morgun, sunnudag, hefst
keppnin kl. 9.30 með langsund-
um, en síðan í öðrum greinum
kl. 1.30.
í íslenzka landsliðinu er ungt>
fólk, sem samt hefur mikla
reynslu, flest, í keppni. Sig-
urður Ólafsson er elztur, 22ja
ára, Axel Alfreðsson og Vilborg
Sverrisdóttir: tvítug, Árni
Eyþórsson 19 ára, Bjarni Her-
mannsson og Hermann Alfreðs-1
son 17 ára, Hafliði Halldórsson,
og Þórunn Alfreðsdóttir 16 ára,
Ólöf Eggertsdóttir 15 ára,
Guðný Guðjónsdóttir og Sonja
Hreiðarsdóttir 14 ára og Hulda
Jónsdóttir aðeins 13 ára.
Keppt verður í 26 sundgrein-
um í keppninni og má búast við
ýmsum góðum afrekum. í fyrra
í Cardiff sigruðu Norðmenn og
þeir unnu einnig í Palma 1975.
Skotland sigraði i keppninni
1972 og 1973 en Spánn árin tvö
þar á undan.
1»
íslenzka landsliðsfólkið i sund-
inu sem keppir í átta landa
keppninni. Frá vinstri: Hulda,
Guðný, Bjarni, Sonja, Hafliði,
Hermann, Árni, Sigurður,
Axel, Vilborg og Þórunn. DB-
mynd Bjarnleifur.
Hvenær eru karlar beztir?
þegar þeir eru saddir, örlítið hýrir,
heitirog nýbaðaðir
„Hvenær eru karlar beztir —
þegar þeir eru saddir, örlítið
hýrir, heitir og nýbaðaðir. Hver
kona, sem náð hefur líkams- og
sálarþroska, þarf fleiri en einn
slíkan.“ Þessa setningu má lesa í
ársriti Kvenréttindafélags
íslands, 19. júní. Eru konur
farnar að færa sig upp á skaftið
— það er að það sé stefna kven-
réttindakvenna að fara fram á
fleiri en einn? Þá nýbaðaðan,
saddan, heitan og örlítið hýran?
Sjálfsagt ekki — en í 19. júní,
sem þekktur er að íhaldssemi
fremur en hitt, má finna greinar
eftir fimm konur á aldrinum 35-
60 ára. Þessar konur, ónafn-
greindar, flestar fráskildar,
greina frá viðhorfum sínum til
kynferðismála og reynslu sinni.
Lilja Ólafsdóttir skrifar dulítinn
formála að greinum kvennanna
fimm og ræðir meðal annars um
þær bábiljur er tröllriðið hafa
umræðum um kynferðismál.
Margt athyglisvert kemur fram
ef viðtölin fimm eru skoðuð sem
heild. Þar er þá fyrst að nefna að í
uppvexti var það nokkurn veginn
segin saga að ekki mátti minnast
á kynferðismál.
Þannig segirein kvennanna að
eitt sinn hafi borizt inn á heimili
hennar bók um takmörkun barn-
eigna. Eitt sinn kom móðir
hennar að henni ásamt systrum
hennar að fletta bókinni. Móðirin
þreif bókina og kastaði henni á
eldinn. Þeir fordómar er ríkt hafi
á heimili hennar hafi beinlínis
orðið til þess að hún hafi verið
mjög óörugg og beinlinis álitið
kynlíf ósiðlegt.
Já, ósiðlegt — af svörum
kvennanna kom fram að kynlífið
hafi verið uppmálað ósiðlegt i
æsku þeirra. Konan væri til þess
að þjóna karlmanninum án þess
að hugsa um eigin ánægju. Það að
sofa hjá strák var hneisa fyrir
sómakæra stúlku, að ekki væri
talað um ef stúlkan yrði ófrísk.
Hins vegar hafa strákarnir stært
sig af því að sofa hjá sem flestum.
Þarna finnst konunum, eðlilega,
mikil tvöfeldni í uppeldi.
Veganestið var því að kynlíf
væri ósiðlegt en konurnar lærðu
af eigin reynslu, lærðu að meta
kynlífið rétt.
„Kynlífið er krydd lifsins" er
yfirskrift fyrstu greinarinnar.
Þar ber meðal annars á góma að
tal um kynferðismál og getnaðar-
varnir hafi á síðustu árum
einungis leitt lil þess að stúlkur
taki að lifa kynlífi mun fyrr en
ella. Þetta álítur greinarhöfundur
að sé alrangt og líkir því við
manninn er sagði: „ef þessi
berklaskoðun hefði ekki farið
fram þá væri ég ekki á hælinu.“
Með öðrum orðum — ekki þýði að
loka augunum fyrir gangi lífsiris
með þögninni.
„Að bíða eða taka“ er fyrirsögn
annarrar greinarinnar. Þar
ráðleggur greinarhöfundur
konum að sitja ekki aðgerðar-
lausar girnist þær karlmann. Vilji
þær einhvern tiltekinn karlmann
eigi þær ekki að bíða — heldur
„ná í“ karlmanninn. Og hún bætir
við — „í meir en tvö ár var ég
þátttakandi í gömlu rútinunni.
Beið með öndina í hálsinum eftir
að þeim karlmönnum, sem mér
leizt vel á í það og það skiptið,
þóknaðist að líta á mig — og vera
síðan — ef þeir ekki gerðu það —
með þessum eina góða, gamla,
sem við þekkjum og notum í
hallæri."
Þr.iðja greinin ber yfirskriftina
„Rósir og vín, kynhvötin minnkar
ekki með árunum, — hún vex.“
Þar skiptir greinarhöfundur
stúlkunum í þorpinu, þar sem
hún ólst upp, í tvo flokka. Annars
vegar eru þær sem voru
metnaðargjarnar og vildu mennta
sig meira. Þær sváfu ekki hjá
strákum. Hins vegar voru þær er
ætluðu sér að verða húsmæður.
Þær voru ekki svo mjög hræddar
við kynlíf. „Þær þóttust oft
,,negla“ stráka og krækja 1 þá með
því að sofa hjá þeim og jafnvel
verða ófrískar", • eins og segir
orðrétt.
Fjórða greinin ber fyrir-
sögnina: „Svona var pukrið
míkið“..giftar konur áttu fremur
að hafa mök við menn sína af
skyldu en anægju. Könan sem
skrifar er sextug og segir að er
hún var að alast upp hafi ekki
mátt tala um kynlíf. Stúlkur ólust
upp við að það væri ljótt og
ósiðlegt — kynlífið. En konan
hrósar happi að móðir hennar var
öðruvísi en mæður vinkvenna
hennar. Hún fræddi hana um
kynlíf. Þegar hún aftur sagði
vinkonum sínum frá því er móðir
hennar sagði henni hneyksluðust
vinkonurnar — já, slíkt var
pukrið, segir hún. Konan segir að
hún hafi reynt að ala upp börn sín
upplýst um kynferðismál, og eins
og hún segir í greininni, „mér
finnst ég auðugri fyrir að hafa
haft svo náið samband við börnin
mín og finna að þau hafa leitað til
mín og trúað mér fyrir vanda-
málum án þess að óttast að ég
svaraði þeim út úr eða hrinti
þeim frá mér með fordómafullu
viðhorfi eða eigin feitnni."
Loks er það fimmta og síðasta
greinin en fyrirsiign hennar
hljóðar „Aldrei neitt stórmál".
Konan segist hafa búið á af-
skekktuin sveitabæ og vani/.t þvi
að sjá að æxlun væri eðlilegt fyrir-
bæri. Siðan, er hún spurði móður
sína um kynferðismál, var svarið
einfalt. Rétt eins og hjá dýrunum.
Rétt svona — einfalt, blátt áfram
og engin vandamál.
Hins vegar hafi hún síðan farið
í heimavistarskóla og þá var alls
ekkert rætt um kynferðismál.
Strákar og stelpur hafi vissulega
verið skotin hvert í öðru en létu
standa við kossaflens og vanga-
dans.
Slðan bætir hún við að þær
konur er mest gagnrýna þær
stúlkur, er barn hafa átt i lausa-
leik og þótt léttar á bárunni,
hefðu áður fyrr verið búnar að
bergja meira en góðu hófi gegndi
af lífsbikarnum sjálfar. Þær hafi
síðan komizt í hjónaband. Gagn-
rýni þessara kvenna telur hún að
stafi af sektarkennd af að hafa
ekki farið eftir hinum ströngu
reglum samfélagsins. Þær reyni
því að þvo af sér fyrra líferni með
því að auglýsa „heiðvirt" viðhorf
sitt.
Og hún heldur áfram: — „en á
síðustu árum hefur orðið bylting 1
umræðum um kynferðismál.
Byltingar eru óæskilegar því þær
slíta menningarlegar rætur. Áður
fyrr mátti ekki nefna kynlíf — nú
snýst allt um kvnlíf. Unglingar
verða að geta sannað fyrir sjálf-
um sér og öðrum að þeir séu engir
gamaldags bjánar, sem hika við
að vera með hverjum sem er.“ Og
hún bætir síðar við — „fólki
verður að þykja vænt hvoru um
annað til að kynlíf sé gott og
fallegt og veiti virkilega ánægju.
Já, mér finnst hálfóeðlilegt hvað
kynlífið er orðið mikil tízka.“
Já, ef til vill rétt — það er
skammt öfganna á milli. En
greinar kvennanna fimm eru
mjög athyglisverðar og spegla vel
viðhorf kvenna til kynlífs, annars
vegar það viðhorf er ríkti frá
1930-55 og hins vegar nú. -h. halls.
Yfir 60 þúsund bflfarmar
af sorpi fóru á haugana
Á síðastliðnu ári var 60102
bílförmum af sorpi ekið frá
Reykjavík á sorphaugana og i
sorpeyðingarstöð Reykjavíkur-
borgar. Þetta magn er áætlað
340 þúsund rúmmetrar og um
54 þúsund tonn. Þar að auki
losuðu utanbæjarsorpbílar
2355 bilfarma á haugana eða ca
10.570 torin, að þvi er segir i
ársskýrslu gatnamálastjóra.
Valtækni hf. sá um móttöku á
haugunum. Var lokið við að
setja 3 metra lag ofan á eldri
hluta tippsins. Þá var einnig
girt af viðbótarsvæði við haug-
ana og er tekinn upp úr því
jarðvegur og fyllt í með sorpi.
Er nú verið að byrja á þriðja
laginu og er áætlað að það taki
2-3 ár að ljúka við það.
Sorpe.vðingarstöðin tók við
1353 bílförmum af sorpi eða um
6600 tonnum. Urgangurinn frá
stöðinni varð um 3300 tonn og
var fluttur á haugana.
Framleiðsla á skarna var
6284 rúmmetrar. Seldist 2871
rúmmetri af þvi og 1400 pokar.
Borgarstofnanir notuðu rnegin-
hlutann af skarnafram-
leiðslunni, en einkaaðilar litið
magn.
Nágrannasveitarfélögin
Kópavogur, Hafnarfjörður,
Garðabær. Seltjarnarnes og
Bessastaða-. Mosfellssveitar- og
Kjalarneshreppur hafa gert
samning um sorpmóttöku. Enn-
fremur hafa bæirnir austan-
fjalls fengið leyfi til að losa
sorp á haugana um óákveðinn
tima.
-ÁSt.